Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
11
Lífsstffl
Óvænt niðurstaða í könnun DV á sölu áfengis á vínveitingastöðum:
Sjússamir í öllumtilvikum
stærri en þeir eiga að vera
Sá orðrómur hefur gengið lengi að
á vinveitingastöðum sé reynt að
svindla á viðskiptavinum með því að
hafa hvem sjúss minni en lög gera
ráð fyrir. Reyndin virðist allt önnur.
DV heimsótti átta vínveitingastaði á
höfuðborgarsvæðinu um síðústu
helgi til að kanna þetta og í öllum
tilvikum fór magnið yfir það lágmark
sem lögin segja til um.
Tveir blaðamenn frá DV fóru á eft-
irtalda átta vínveitingastaði síöast-
liðið föstudagskvöld: Glaumbar,
Gauk á Stöng, Rauða ljónið, Bíóbar-
inn, Ömmu Lú, Kringlukrána, Hótel
ísland og Hótel Borg.
Blaðamennirnir fóru inn sem
venjulegir gestir, báðu um einn tvö-
faldan viskí og er drykkurinn var
kominn í glasið var honum hellt í
mæliglas og hann mældur fyrir
framan þjóninn. Var alltaf beðið um
Johnny Walker og ef sú tegund var
ekki til þá var beðið um Ballantines.
Aldrei var beðið um 12 ára gamalt
viskí.
Á Glaumbar, Gauki á Stöng, Rauða
ljóninu og Hótel íslandi var blaða-
mönnum þjónað til borðs en á hinum
fjórum stöðunum var viskíið pantað
við barborðið. Framreiðslufólkið
vissi ekki að um blaðamenn væri að
ræða fyrr en eftir að drykkurinn
haíði verið framreiddur.
Löggiltir sjússamælar taka 3 cl og
ætti því einn tvöfaldur að vera 6 cl.
Vakti það óneitalega furðu blaða-
manna er kom í ljós að á öllum veit-
ingastöðunum mældist meira magn
en það og á sumum stöðum umtals-
vert meira magn.
Meira magn
Á þremur stöðum, Glaumbar,
Rauða ljóninu og Kringlukránni,
mældist einn tvöfaldur viskí vera 6,2
cl. Á Hótel íslandi var hann 6,5 cl, á
Ömmu Lú reyndust blaðamenn hafa
fengið 6,9 cl og á Gauki á Stöng og
Hótel Borg var magnið 7 cl. Hjá Bíó-
barnum reyndist magnið í viskíglas-
inu vera 7,3 cl.
Þessi niðurstaða kom Haraldi Tóm-
assyni hjá Félagi framreiðslumanna
mjögá óvart. Að sögn Haraldar tíðk-
aðist að þjónamir keyptu vínflösk-
una af veitingamanninum fyrir
ákveðna upphæð. í 75 cl flösku eru
25 sléttfullir sjússar og varð þjónninn,
að koma út á sléttu til þess að hafa
upp í verð flöskunnar. Aðeins voru
leyfð 3 prósent afíoll af flöskunnfög
fyrir þetta fékk þjónninn síðan 15
prósent þjónustugjald. Ef afíollin
voru meiri tapaði þjónninn þjónustu-
gjaldinu.
Þetta fyrirkomulag er enn við lýði
á flestum hótelum borgarinnar og
öðrum stöðum, eins og t.d. Perlunni,
en á kránum er framreiðslufólki yfir-
leitt borgað samkvæmt mánaðar-
kaupi. Sala gegn þjónustugjaldi gerir
það að verkum að þjónninn hefur
annað viðhorf til flöskunnar.
Rétt skal mælt
„Bæði þjónustufólkið og eigandinn
eiga að fylgjast vel með því að rétt
sér mælt. Ef alltof mikið er mælt er
þetta orðin gífurleg rýrnun og tals-
verður kostnaður. Það hljóta flestir
veitingamenn að passa upp á þetta,“
sagði Ema Hauksdóttir hjá Sam-
bandi veitinga- og gistihúsa.
„Ef verið er að skammta svona ríf-
lega þarf kúnninn ekki yflr neina að
Löglegur sjússamælir tekur 3 cl og á skjaldarmerkið að vera á aðalhaldinu en auk þess nemur það við brún
sitt hvorum megin við höldin. DV-mynd Brynjar Gauti
Hversu stór er sá tvöfaldi?
Gaukur
á Rauða Amma Kringlu- Hótel Hótel
Glaumbar Stöng Ljónið Bíóbarinn Lú kráin Island Borg
6,2 d 7,0 d 6,2 d 7,3 d, 6,9 d 6,2 d 6,5 d 7,0 d,
\j/ \/ \J/. \w
Ef keypt yrði magn einnar flösku ( 75 cl) myndi hún kosta krónur.
kvarta nema það að sumir kæra sig
hreinlega ekki um sterkari drykk en
þeir pöntuðu. Það er farsælast að
rétt sé mælt, þá fá allir sitt og allir
vita hvað þeir em að fá. Menn mega
alls ekki klipa af skammtinum."
Annað athyglisvert kom í ljós í
þessari könnun. Á þremur stöðum
af þessum átta, þ.e.a.s. Glaumbar,
Hótel íslandi og Hótel Borg, fengu
blaðamenn DV dýrari tegund af viskí
en beðið var um. Á þessum stöðum
var framreitt 12 ára gamalt viskí þó
að aldrei hefði verið beðið um það.
Vanþekking á víntegundum
Að sögn Haraldar Tómassonar hjá
Félagi framreiðslumanna á það aldr-
ei að eiga sér stað að sá sem pantar
viskí fái 12 ára gamalt viskí án þess
aö hafa beðið sérstaklega um það.
Sagði Haraldur að því miður hefðu
margir staðir ekki fengist til að hafa
faglært fólk og oft þekkti fram-
reiðslufólkið ekki tegundirnar. Þegar
tilfelli sem þessi kæmu upp gæti
hreinlega verið um vankunnáttu að
ræða.
„Ef fólk biður um viskí eða koníak
þá hélt ég nú að yfirleitt væri fólk
spurt að því hvaða tegund það vildi.
Það á ekki að afgreiða fólk með sér-
stakar súpertegundir eins og 12 ára
gamalt viskí eða XO koníak nema
það spyrji efitir því,“ sagði Ema
Hauksdóttir hjá Sambandi veitinga-
og gistihúsa. „Afgreiðslumaður á að
ganga úr skugga um að ekki sé mis-
skiíningur um hvað beðið er um.“
Skjaldarmerkið
á sjússamælinum
Allir sjússamælar eiga að vera
löggiltir af Löggildingarstofunni og
er löggildingin auðþekkjanleg á því
aö skjaldarmerkið er stimplað í aðal-
haldið og lítfí skjaldarmerki nema
við brún bikarsins á honum miðjum
sitt hvorum megin við höldin. Fram-
reiðslufólk á að blanda drykkinn fyr-
ir framan viöskiptavininn og vinnu-
reglan er sú að sjússamælirinn á að
hvíla ofan á glasinu á meðan hellt er
í hann. Sá sem framreiðir á ekki að
halda á sjússamælinum á meðan
skammtað er.
Álagning á vínfongum á veitinga-
stöðum hefur verið fijáls síðustu
þrjú árin. Áöur en það varð var
álagning á léttu víni 50 prósent og á
sterku víni 80 prósent. Þrátt fyrir
frjálsa álagningu var verðið það
sama á funm stöðum af átta. Einn
tvöfaldur viskí, annaðhvort Ballanti-
nes eða Johnny Walker, kostaði 600
krónur á Glaumbar, Gauki á Stöng,
Bíóbarnum, Ömmu Lú og Kringlukr-
ánni: Á Rauða ljóninu kostaði sá tvö-
faldi 560 krónur, en 660 krónur á
Hótel íslandi og 640 krónur á Hótel
Borg. Þar sem blaðamenn fengu 12
ára gamalt viskí borguðu þeir 720 eða
740 krónur
181 % álagning
Veitingastaðir kaupa vínið hjá
ÁTVR á sama verði og hinn almenni
borgari. Venjuleg flaska af Ballanti-
nes kostar 2.710 krónur en tólf ára'
gamalt Ballantines kostar 3.010 krón-
ur. Johnny Walker Red Label (venju-
legur) kostar 2.750 krónur en Johnny
Walker Black Label (12 ára gamalt
vín) kostar 3.320 krónur.
Ef síðan litið er á hvað vínveitinga-
húsin fá fyrir flöskuna þá kemur í
ljós að það var á bilinu 6.165 krónur
til 7.613 krónur. Þetta verð fékkst
með þvi að deila verði drykkjarins í
magnið og margfalda síðan með 750
ml. Ef framreiðslumanninum tækist
að ná út úr flöskunni nákvæmlega
25 sjússum fengist fyrir flöskuna
7.500 krónur á flestum stöðunum. Á
Hótel íslandi kostar flaskan 8.250
krónur, á Hótel Borg kostar hún 8.000
krónur og á Rauða ljóninu aðeins
7.000 krónur.
Ofangreint verð sýnir hvað stað-
irnar ættu að fá fyrir viskíflöskuna
en ef allir fá jafn ríflega úr henni og
DV fékk þarna um kvöldið þá eru
tölumar aðrar. Flaskan á Glaumbar
var á 7.260 krónur, á Gauk á Stöng
var hún á 6.428 krónur, á Rauða ljón-
inu á 6.773 krónur, á Bíóbarnum að-
eins 6.165 krónur (álagning 127 pró-
sent), á Ömmu Lú kostar flaskan
6.525 krónur, á Kringlukránni kostar
hún 7.260 krónur, á Hótel íslandi
7.613 krónur (álagningin 181 prósent)
og á Hótel Borg var veröið 6.855 krón-
ur.
Tíkall fyrir millilítrann
Á Hótel íslandi kostaði millilítrinn
af viskíinu 10,15 krónur og í Glaum-
bar kostaði millilítrinn af 12 ára
gömlu viskíi 11,60 krónur. Til saman-
burðar má sjá að ef sama áfengi er
keypt hjá ÁTVR þá kostar millilítr-
inn af venjulegum Ballantines 3,61
krónu og millilítri af Johnny Walker
Black Label kostar 4,43 krónur.
Álagningin á skemmtistöðunum er
gífurleg, eins og sjá má, og er hægt
að kaupa heila flösku af áfengi út úr
ÁTVR á sama verði og tæplega fimm
tvöfaldir kosta á börunum. -GHK
Landinn lætur það ekki á sig fá þó dropinn sé dýr og biðraðir fyrir utan
öldurhúsin eru algeng sjón um helgar.