Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Síða 20
32
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
Iþróttir unglinga
Hin mikla vinna undanfarinna ára farin að skila sér:
Besta leiktímabil
Fylkis frá upphafi
- segir Smári Björgvinsson knattspymuþjálfari
Síðastliöin ár hafa orðið miklar
breytingar á knattspyrnuþjálfun
yngstu flokka Fylkis. Meiri áhersla
hefur verið lögð á að efla allt ungl-
ingastarf innan félagsins og auðvit-
að hefur þetta allt skilað sér í aukn-
um árangri á knattspymuvellin-
um. Það er óhætt að segja að Fylk-
ir hafl nánast verið allsráðandi í
öllum mótum 5., 6. og 7. flókks
undanfarin ár - og er þessi mikla
vinna þeirra Fylkismanna þegar
farin að skila sér upp í 4. flokk því
að sá flokkur varð Reykjavíkur-
meistari og hafnaði í 3.-4. sæti í
íslandsmótinu.
Við skulum kynnast svolítið nán-
ar hinni glæsilegu frammistöðu
Árbæjarfélagsins í sumar en sá
árangur er sagður vera sá besti frá
stofnun Fylkis, 1967.
Umsjón:
Halldór Halldórsson
Árangur 7. flokks
Víkingsmót 31. maí: A- og B-lið í
2. sæti.
Toyota-mótið í Keflavík 19. júní:
B- og C-lið í 1. sæti og A-lið í 2. sæti.
Breiðabliksmót 20. júní: A- og C-
hð í 1. sæti -en B-lið í 2. sæti.
Lottómótið á Akranesi 17.-19 júlí:
A-liðið í 3. sæti, B-liðið í 1. sæti og
C-liðið í 3. sæti.
Hnokkamót Stjörnunnar 8.-9. ág-
úst: A-lið varð í 2. sæti og B-lið í
3. sæti.
Landsbankamót Fylkis 29. ágúst:
Þrefaldur sigur 1A-, B- og C-liðum.
Þjálfari 7. flokks Fylkis er Hall-
dór Öm Þorsteinsson.
Árangur 6. flokks
Tröllatópasmót Fylkis: A-, B-, C- og
D-lið sigmðu og þá einnig í saman-
lagðri stigagjöf.
Reykjavíkurmeistarar (innan-
húss).
Shell-mótið í Eyjum: Sigur í A-,
B- og C-liði. Besti leikmaður móts-
ins var kjörinn Andri Fannar Ott-
ósson, Fylki, og markakóngur varð
Brynjar Harðarson, Fylki.
Páskamót Samskipa og FH (inn-
anhúss): A-lið í 2. sæti.
Fantamót ÍA: A-lið í 3. sæti og
C-lið í 3. sæti. Besti sóknarmaður
mótsins var kjörinn Andri Fannar
Ottósson.
Reykjavíkurmeistarar (utan-
húss) í A-, B og C-liði og 2. sæti í
D-liði.
Pollamót KSÍ (Islandsmót):
Meistarar í B-liði. Besti leikmaður
B-liða var kjörinn Bjarki Smára-
son, Fylki.
Viðeyjarmót Fram fyrir C- og D-
lið: Fylkir sigraði í báðum liðum.
Vinamót Fjölnis: 2. sæti í C-hði
og 1. sæti í D-liði (Bara keppt í þess-
um flokkum). Besti leikmaður C-
hða var kosinn Brynjar Harðarson,
Fylki.
6. flokkur Fylkis hefur verið mjög
sigursæll, eins og sést á framan-
töldu. Flokkurinn hefur unnið til
verðlauna í öhum mótum sem
hann hefur tekið þátt í. 15 sinnum
hafa strákamir unnið gull, 5 sinn-
um silfur og tvisvar brons. - Þjálf-
ari 6. flokks Fylkis er Smári Björg-
vinsson.
Arangur 5. flokks
Reykjavikurmeistarar (innan-
húss), 2. sæti utanhúss.
ESSÓ-mót KA: A-hð í 1. sæti og
B-hð í 3. sæti.
íslandsmeistarar (utanhúss) og
haustmótsmeistarar. - Þjálfari 5.
flokks Fylkis er Þórir Sigfússon.
Arangur 4. flokks
Reykjavikurmeistarar innanhúss
og utanhúss.
Á íslandsmótinu hafnaði hðið í
3.-4. sæti. Strákarnir eiga eftir að
spila í haustmótinu. - Þjálfari 4.
flokks Fylkis er Ólafur Geir Magn-
ússon.
Fylkir sigraði f A-, B- og C-liði á Landsbankamóti Fylkis í 7. tlokki stráka sem fór
fram laugardaginn 29. ágúst á grasvöilum Fylkis. - Fremst er C-liölð, frá vinstri:
Sigurður Guöjónsson, Guðjón Hauksson, Siguröur Helgi Grimsson, Eggert Ellerts-
son, Kjartan Ágúst Jóhannsson, Þórólfur Þorsteinsson, Hlynur Pétursson, Bjaml
Helgason og Haukur Kristinsson. í annarri röð er B-lið Fylkis: Rögnvaldur Þorkels-
son, Heiðar Þór Gunnarsson, Bjöm Bragi Árnason, Páll Þorsteinsson, Jens Haröar-
son, Sverrir Daviðsson, Einar Brag) Þórðarson, Bjarni Sturluson, Geir Jón Geirsson,
Ólafur Páll Ámason og Samúel Kristjánsson. í þriðju röð er A-lið Fylkis, frá vinstri:
Þórarinn Þrándarson, Eyjóifur Héðinsson, Þórarinn Hauksson, Gunnar Tómas Kristj-
ánsson, Hrafn Davíðsson, Hjörleifur Gislason, Slguröur Stefánsson, Kristján Hafliöa-
son og Kristján Valdimarsson. í öftustu röð er C-liö(2), sem ekki sigraði en stóð sig
samt af mikilli prýöi. Frá vinstri: Guðmundur Andrés Gujónsson, Guömundur Sigur-
jón Hallgrfmsson, Jón Anton Jóhannsson, Alexandra G. Frimannsdóttir, Hannes Slg-
urösson, Hjalti Geir Pétursson, Jakob Óskar Helðarsson og Eli Bæring Frímanns-
son. ÞJálfarar strákanna eru þeir Halldór Þorsteinsson og Lúðvík Bragason.
Þorgrfmur, fulltrúi Landsbankans, afhenti verðlaunin og er hann til hægri á myndinni.
Fylkisstrákarnir í 5. flokki fagna Islandsmeistaratigninni á Þróttarvelli í ágúst.
Arangur meistaraflokks:
Fylkir varð íslandsmeistari 2.
deildar og leikur því í 1. deild á
næsta leikári. Flestir leikmanna
hðsins hafa leikið upp alla flokka
félagsins en það er draumur þjálf-
ara yngri flokka Fylkis að sem
flestir leikmenn meistaraflokks
verði til innan félagsins. Þjálfari
meistaraflokks er Magnús Jónat-
ansson og eru allar hkur á því að
hann verði áfram.
Þetta byrjaði 1986
Til þess að fá nánari fregnir af hin-
um mikla uppgangi Árbæjarfélags-
ins var ekki úr vegi að hitta að
máli Smára Björgvinsson ungl-
ingaþjálfara en hann hefur undanf-
arin ár kennt yngstu knattspyrnu-
mönnum Fylkis og náð mjög góð-
um árangri.
„Árið 1986 var stofnaður Knatt-
spymuskóh Fylkis og var Guðjón
Reynisson, sem er núverandi þjálf-
ari íslandsmeistara Blika í 1. dehd
kvenna, ráðinn skólastjóri. Ég tel
að hann hafi unnið mjög mikið og
gott starf fyrir Fylki og hann á að
mínu mati stóran þátt í þeirri upp-
byggingu sem varð hjá félaginu."
7. flokkur jafnhár hinum
„Á svipuðum tíma og skólinn byij-
aði fór 7. flokkur í gang og hann
varð strax tekinn sem fullgildur
flokkur en ekki einhver taglhnýt-
ingur 6. flokks."
Öflugt starf foreldra
„Yngstu flokkamir hafa ávallt ver-
ið mjög vel mannaðir og með svona
stóra hópa, eins og hjá okkur, kah-
aði það að sjálfsögðu á framlag for-
eldranna sem hafa svo sannarlega
ekki legið á hði sínu. Það er til
dæmis algengt að þegar foreldrar
koma meö krakkana sína á 7.
flokks æfingu í fyrsta sinn hrífast
þeir með og koma til starfa kring-
um bömin sín. Starf foreldra í
Fylki hefur verið mjög öflugt, þeir
vinna að fjáröflun og hafa sinnt
ýmsum öðrum mikilvægum verk-
efnum fyrir flokkana og em mikih
stuðningur fyrir þjálfara og þá um
leið félagið."
Endastöðin er
meistaraflokkurinn
Nú er sífeht streymi í 7. flokk fé-
lagsins og samfelld keðja leik-
manna til og með upp í 4. flokk. Svo
langt hafið þiö náð síðan átakið
hófst 1986. Er meiningin að ná til
síðasta hlekksins sem er meistara-
flokkurinn?
„Það vona ég vissulega - en það
kostar mikla og stranga vinnu. Til
að það takist þurfa menn að halda
vöku sinni og mega helst aldrei
verða fullkomlega sáttir - þá er
hætt við að hahi undan fæti. Við
þurfum að vera sífellt vakandi og
alltaf að reyna að bæta okkur.
Endapunkturinn er að sjálfsögðu
meistaraflokkurinn og það er ekk-
ert leyndarmál að við ætium Fylki
stóra hluti í framtíðinni. Við erum
mjög stoltir af meistaraflokki okk-
ar í dag þar sem flestir leikmanna
hðsins eru aldir upp hjá félaginu."
Hvað með álagið?
„Ef ég á að svara fyrir mig þá finnst
DV-myndir Hson
mér sjálfsagt að hvetja krakkana
til að gera sitt besta. Ef það dugar
th þess að vinna leiki eða mót þá
er það af hinu góða.
Við megum ekki horfa framhjá
því að sigrar eru afleiðing þeirrar
þjálfunar sem krakkarnir fá en
koma ekki samkvæmt pöntun.
Þetta sjáum við best hjá þeim félög-
um sem hafa öflugt unglingastarf.
Við þjálfararnir verðum þó að gera
okkur grein fyrir því að við erum
að meðhöndla brothætt fjöregg og
þurfum því að gæta að okkur varð-
andi kröfur. Þetta er þó keppni og
allir vilja vinna og þegar vel gengur
verður starfið léttara. En það má
ekki verða einhver stór sorg þegar
leikir tapast. Ekki er sama hvernig
á þessu er tekið og er það skylda
okkar þjálfara að reyna að bregðast
rétt við. Hann er vandrataður hinn
gullni meðalvegur og gleymum því
ekki að krakkarnir eru í þessu
vegna þess að þeim finnst gaman í
fótbolta,“ sagði Smári Björgvins-
sonaðlokum. -Hson
Sigurvegarar í 6. flokks vormóti Fram og Kiwanisklúbbsins Viöeyjar urðu lið Fylkis,
bæði C- og D-liö en þetta mót er einmitt hugsaö fyrir þessi lið. Fremsta röð frá
vinstri: Baldur örn Arnarsson, BJörn Ingi Árnason, Sigurður Hjörvar Sigurðsson,
Árni Þór Ragnarsson og Andri Þórarinsson. önnur röö frá vinstri: Egill Einarsson,
Brynjar Harðarson, Páll Eiríkur Kristinsson, Marteinn Guðjónsson og Birgir Guöjóns-
son. Þriðja röö frá vinstri: Róbert Skúlason, Einar Ágúst Einarsson, Kristleifur Hall-
dórsson, Bjarni Halldórsson og Stefnlr Stefnisson. Fjórða röð frá vinstri: Hermann
öm Pálsson, Sindri Þórarinsson, Jón Óskar Agnarsson, Vilhjálmur Þór Vilhjálms-
son, Gunnar örn Jóhannsson, Finnbogi Karl Andrésson og Þórarinn Einarsson.
Fimmta röð frá vinstri: Bogi Hauksson, Marteinn Vöggsson, Ágúst Bent Sigbertsson,
Tryggvi Áki Pétursson, Birgir Már Danielsson, Ólafur Ingi Skúlason og Ólafur Gylfi
Gylfason. Þjálfari strákanna er Smári Björgvinsson og fyrir aftan hann er Axel Axels-
son aðstoðarþjálfari.