Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1992, Síða 28
40
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1992.
Skoppandi þjóðhagsspá fyrir 1993
— Breytingar á landsframleiðslu í prósentum —
Spá í sept.
Smáauglýsingar Fréttir
■ Sumárbústaðir
Arlnofnar. Arinofaar, íslensk smíði.
Gneisti hf., vélsmiðja, Smiðjuvegi 4E,
sími 91-677144, fax 91-677146.
■ Bílar til sölu
Tveir góðir fjölskyldubilar. MMC
Lancer ’87, ekinn 92 þús., VW Passat
’82, ekinn 136 þús. Báðir í góðu ástandi
og skoðaðir ’93. Sími 676935.
Ford Econoline F 150 '83, 44" dekk,
álfelgur, 5 tonna spil, 60 hásinga að
aftan, 44 hásinga að framan, stærri
gerðin, no spin að framan. Uppl. á
Litlu bílasölunni í síma 91-679670 eða
91-656694 á kvöldin.
Menning
Magnús Ólafesan, DV, Húnaþingi:
Hljómeyki í Kristskirkju
Tónleikar voru í Dómkirkju Krists konungs í
gærkvöldi. Þar söng kórinn Hljómeyki undir
stjóm Sigursveins Kristins Magnússonar. Á efnis-
skránni vom verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Pablo Casals, Benjamin Britten, Igor Stravinsky
og Gunnar Reyni Sveinsson.
Efnið á þessum tónleikum var að mestu það
sama og Hljómeyki flutti á tónleikum í Skálholti
í sumar. Tónleikamir hófust á verki Hjálmars,
Ave María, sem er gullfallegt verk byggt á þrí-
hljómum sem er skipað á svolítið óveiyulegan
hátt með góðum árangri. Verk Casals 0 vos om-
nes getur ekki kallast frumlegt eða sérstakt að
neinu öðm leyti en því að það hljómar mjög vel
og er einhvem veginn alveg eins og það á að vera.
Hymn to Ceciha eftir Britten er viðamikið verk,
það hjjómaði svolítið misgott að þessu sinni en
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
margir staðir em þar mjög fallegir. Verkið, sem
auðvelt væri að heyra nokkram sinnum í viðbót,
er Anthem eftir Stravinsky. Það hefur mjög sér-
kennilegt sterkt aðdáttarafl og er ekki annað hægt
en að dást að fjölhæfni hins mikla snillings Stra-
vinskys. Missa Piccola eftir Gunnar Reyni hefur
margt að geyma sem gaman var að heyra aftur.
Það vora helst staðir þar sem ostinato hendingar
era áberandi sem misstu áhrif við aðra heym.
Ekki fer milli mála að Hljómeyki er einhver sá
besti kór sem hér starfar enda þótt varlega beri
að fara með slíkar alhæfingar. Kórinn sýndi á sér
sínar bestu hliðar þetta kvöld. Nákvæmni, fjöl-
breytt blæbrigði og smekkleg túlkun var það sem
blasti við áheyrendum tónleikana í gegn og fóra
þeir glaðir heim að tónleikunum loknum.
Þessi mynd var tekin úr lofti yfir Skrapatungurétt. Fjöldi fólks kom i réttina og fylgdist með. DV-mynd Magnús
Opel Kadett GSi, árg. ’85, til sölu,
rauður, 15" álfelgur, 205/5Ó ný dekk,
Recaro stólar og digital mælaborð,
tvívirk sóllúga o.fl. Verð kr. 570.000
staðgreitt. Sími 93-12373 e.kl. 19,
Gunnar.
Fjölmenni var í Skrapatungurétt á
sunnudag þegar þar voru hrossarétt-
ir. Hópur fólks kom víðs vegar af
landinu og fór með gangnamönnum
að smala hrossunum til rétta en á
síðasta ári hófu bændur og ferða-
þjónustuaðilar átak í að markaðs-
setja göngur á Laxárdal. í sumar var
sett upp nýtt hús við réttina fyrir
veitingasölu.
Fjöl-
mennií
Skrapa-
tungurétt
Nissan Patrol ’84 til sölu. Uppl. í síma
91-44016.
Þjóðhagsspá fyrir 1993 hefur hoppað og skoppað:
Munar 5 prósentu
stigum á 4 spám
Þjóðhagsspár Þjóðhagsstofnunar
fyrir næsta ár, 1993, hafa breyst
gífurlega á skömmum tíma. Stofn-
unin hefur gert fjórar slíkar spár
síðan í apríl og þar munar hvorki
meira né minna en heilum fimm
prósentustigum þegar stofnunin
hefur verið að spá ýmist hagvexti
eðasamdrætti.
Þjóðhagsstofnun ber fyrir sig að
aðstæður hafi breyst. Það eru eink-
um ákvarðanir stjómvalda sem
Sjónarhom
Haukur
Helgason
hafa sett strik í reikninginn. Þjóð-
hagsstofnun spáði í apríl í vor að
næsta ár, 1993, yrði hagvöxtur og
landsframleiðslan ykist um eitt
prósent. Þessi spá féll með sumar-
komunni.
Stofnunin spáði þannig í júní að
samdráttur yrði árið 1993. Lands-
framleiðslan drægist samkvæmt
því saman um 4 prósent á því ári.
Þetta gerði stofnunin eftir að fiski-
fræðingar, erlendir og innlendir,
komu fram með upplýsingar um
slæma stöðu þorskstofnsins og
nauðsyn mikillar minnkunar afla.
Einnig þetta breyttist.
Ríkisstjórnin lagði fram ákvarð-
anir um kvóta. Meðal annars
skyldi veitt meira af öðrum tegund-
um til að bæta upp minnkun þor-
skafla. Við þetta breytti Þjóðhags-
stofnun spá sinni fyrir 1993 mjög
verulega. Nú átti samdrátturinn
1993 að verða mun minni en áöur
stefndi eða 1-1,5 prósent.
Stofnunin er þessa dagana að
ganga frá þjóðhagsspá fyrir 1993
sem verður lögð fram í þingbyrjun
1. október. Nú breytist spáin enn.
Ríkisstjómin segist ætla að leggja
tvo milljarða króna til nýrra við-
fangsefna til að örva atvinnulífið á
næsta ári. Samdrátturinn verður
því minni, nokkurn veginn sem því
nemur, eða innan við 1 prósent
minnkun landsframleiðslu, líklega
um 0,8 prósent, samkvæmt spánni.
EES hefur verið inni
Taka verður fram vegna frásagna
í sjónvarpi í fyrradag að þau áhrif
á efnahag okkar, sem Þjóðhags-
stofnun telur EES-samninginn
munu leiða af sér, hafa verið inni
í þjóðhagsspánni fyrir 1993 síðan
EES-samningurinn var gerður í
vor. Því er kúnstugt að stíga á stokk
og ræða þessi áhrif nú eins og ein-
hverja nýlundu í spánni. Þjóðhags-
stofnun gerir ráð fyrir að EES-
samningurinn geti á næsta ári orð-
ið okkur ígildi 2 prósent verðhækk-
unar útfluttra sjávarafurða eða
þannig aukið tekjur sjávarútvegs
um 1500 milljónir króna. Þarna
gæti munað um 0,4 prósentum sem
landsframleiðsla okkar ykist við
þetta og dugir ekki til eins og sést
af framangreindum tölum.
Eitt prósentustig af landsfram-
leiðslu okkar era um 3,8 milljarðar
króna.
Kjarasamningar verða almennt
lausir 1. mars í vetur. Samdráttur-
inn á næsta ári þýðir að varla geta
orðið miklar breytingar á kaup-
mætti launa. Verðbólgan er nú inn-
an við 2 prósent miðað við árið.
Hún ætti að geta haldist svo lítil á
næsta ári. Viðskiptahalli við útlönd
var mikill í fyrra, 5 prósent af fram-
leiðslu í landinu eða 18,7 milljarðar
króna. Hann minnkar í ár því að
dregið hefur úr innflutningi, einka-
neyslu ogfjárfestingu. Samdráttur-
inn segir til sín.
Staða sjávarútvegs er .slæm um
þessar mundir og verður það áfram
samkvæmt Þjóðhagsstofnun. Botn-
fiskveiðar og -vinnsla eru nú rekin
með 1,4 prósent tapi, að sögn Þjóð-
hagsstofnunar. En miklu skiptir að
endurgreiðslur úr Verðjöfnunar-
sjóði nema nálægt 4 prósentum, svo
að tapið væri 5,6 prósent ef ekki
yæri um þessar endurgreiðslur að
ræða. Þetta era slæmar tölur þar
sem botnfiskveiðar og -vinnsla eru
um 70 prósent af greininni. Rækjan
stendur einnig illa en aukning verð-
ur á loðnuafla. Minni afli í heildina
er mikið áfall fyrir útveginn og áhrif
EES verða lítil upp í það þótt rétt
reynist hjá stofnuninni.
Ilssan king cab, ðrg. '90, til sölu,
lágrár, 5 gíra, upphækkaður á 33"
ekkjum. Uppl. í síma 91-677599.
Látum bíla ekki
vera í gangi aö óþörfu!
Utblástur bitnar verst
á börnunum
tfas”*" J\