Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. Utlönd Elísabet Englandsdrottning á I óopinberu stríði við John Major, forsætisráðherra sinn. Hann vill skera niður laun til konungsfjölskyldunnar og fara þannig eftir óskum almennings. Elísabet reynir að verja hlut síns fólks og vonast til að halda í það minnsta sér og Filippusi manni sinum á launaskrá. Simamynd Reuter Launamál bresku konungsfl ölskyldunnar enn á ný í uppnámi: Drottnlng hafnar tilboði frá Major - Thatcher var búin aö lofa föstum greiðslum til aldamóta skrá. Rússirekinnfrá njósnaumer- lendastúdenta Viktor V. Fedik, þdðji sendi- ráðsritari við russneska sendi- ráðið í Ósló, hefur verið rekinn frá Noregi fyrir að njósna um erlenda studenta. Rússinn bauö Norðmanni borgun fyrir að afla upplýsinga um. stúdentana. Rússinn er í GRU, leyniþjón- ustu hersins, en ekki er vitað hvað hann vildi með upplýs- ingamar. Hann hefur verið í Nor- egi frá árinu 1978 og það kann að hafa átt þátt i brottvisun hans nú að hann hafi áður stundað njósn- ir í Noregi. :: aðfánóbelinn Sænskir bókamenn veðja á að líbanska Ijóðskáldið Adonis fái bókmenntaverðlaun Nóþels í ár. Tilkynnt verður um verðlauna- hafann á morgun. Adonis hefur getið sér orð fyrir að ondurnýja arabískan kveð- skap og hann er heitur andstæð- ingur allra heistu valdamanna í Austurlöndum nær. Þar á rneðal eru Assad Sýrlandsforseti og Saddam íraksforseti. Aðrir sem nefndir eru til sög- unnar eru Belginn Hugo Claus, Vestur-Indíumaðurinn Derek Walcott og Albaninn Ismail Kad- aré. Einnig eru tveir Eistiending- ar nefndir. Spár um líklega verð- launahafa standast yfirleitt aldr- ei. rússneskum sjó- mönnum bætur Dönsk yfirvöld hafa ákveðið aö greiða 21 rússneskum sjómanni bætur fyrir óréttmæta handtöku á Borgmundarhólmi i sumar. Rússamir höfðu verið á veiðum á Eystrasalti en gengu á land á eyjunni kvöld nokkurt og tóku að strá um sig dollurum. Lögreglan á staðnum taldi pen- ingana falsaða en síðar kom í ljós að svo var ekki. Sjómennimir höfðu fengið hlut sinn greiddan í gjaldmiðli Sáms frænda ogmáttu sólunda réttmætu aflafé sínu að viid. Rússarnir fengu sér lögfræðing og hann hefur nú haft sigur í málarekstri fyrir þá. Hver Rússi fær 8000 danskar krónur i bætur fyrir handtökuna. Það jafngildir um 30 þúsund íslenskum krón- tun. NTB.RitzauogTT Nú er ljóst aö Elísabet n. Englands- drottning hefur hafnað hugmyndum Johns Majors forsætisráðherra um endurskipulagningu á launamálum konungsfiölskyldunnar. Major var búinn að leggja fyrir drottningu tilboð um að greiðslur til fjölskyldunnar yrði skomar niðrn- allt til þess að aðeins drottning, Filippus maður hennar, Karl og Díana og Elísabet drottningarmóðir yrðú á launum. Hinn kosturinn sem blasti við Elísabetu var að fjölskyld- an yrði öll tekin af opinberri launa- Þrátt fyrir erfiða samningsstöðu í kjölfar hneykslismála sumarsins hefur drottning ákveðið að rísa upp til vamar og ber fyrir sig að Margrét Thatcher, fyrrverandi forsætisráð- herra, hafi lofað því árið 1990 að greiöa konungsfjölskyldunrú tæpar 10 milljónir punda í laun árlega allt til aldamóta. Elísabet drottning hefur lagt til við Major, að því er bresk blöð herma, að fækka nokkuð á launalistanum en alls ekki í sama mæli og forsætis- ráðherrann hafði lagt til Þá vill drottning ekki greiða skatta en al- menningur í Bretlandi telur ekki réttmætt að hún sé skattlaus meðan vinnandi fólk verður að þola þungar álögur. Nú stendur því jám í jám í deilu drottningar og forsætisráðherra hennar. Elísabet gerir sér þó ijóst að raunverulegt vald í þessum efnum er h)á forsætisráðherranum en bind- ur vonir við að hann víki ekki frá ákvörðun Thatchers. Það hafi ekki gefijt svo vel í öðrum efnum. öðrueyranuá Minnstu munaöi að sextán ára unglingur á Nýja-Sjálandi kæm- ist upp með að stela bíl og eyði- leggja hann eftir ofsaakstur. Hann missti þó annað eyraö í slysinu og þegar hann kom á sjúkrahús til að fá sárið grætt var kallaö á lögregluna. Hún kom með eyi-að og það passaöi á ungi- inginn. Lögreglan vili ekkl uppiýsa hvort hún ákærir hinn ógæfu- sama ökumann enda hefur hann tekið út nokkra refsingu með því að missa eyrað. Læknar ætla að freista þess að græða það á aö nýju. ætiarímál vegna rógburðar Lögmenn kvikmyndaleikstjór- ans Woody Allen segjast vera að undirbúa málsókn á hendur tíraaritinu Vanety Fair fyrir að breiða út söguna um að Allen heíði átt mök við sjö ára gamla fósturdóttur sambýliskonu sinn- ar. Hjá Vanety Fair er sagt að heimildir fyrir sögunni séu traustar og ætiar blaðið að standa við frétt sina. Svo vill til að sagan er ekki enn komin á prent í tima- ritinu en efiii greinarinnar var sent öðrum tjölmiðlum og þeir gleyptu við sögunni um Allen og litlu stúlkuna. Fischerferá f und Milosevic Serbíuforseta Skákmeistarinn Bobby Fischer fór í gær á fund Slobodans Mi- losevic í Belgrad og fræddist þar um að forsetinn tefiir ekki skák - í það minnsta ekki við skák- borö. Meö heimsókninni er Fischer enn að lítilsvirða samskiptabann Sameinuðu þjóðanna á Serbíu og Svartfjallaiand en forsetinn þótt- ist hafa rétt hlut sinn í augum almennings. Danirfinnaolíu iNorðursjó Ðanir eru vongóðir um aö þeir hafi fundið nýjar og gjöfúlar olíu- lindir í Norðursjó. Olían er þó á miklu dýpi og fannst þess vegna ekki við fyrri leit á svæðinu. Búið er að bora tílraunaholur á svæð- inu og er talið líklegt að unnt reynist að vinna oiíuna. Reuter og Ritzau iii’' M.má MMC Lancer hb. 1500 '90,5g., 5d. vinrauð ur. ek. 40.000. V. 760.000. MMC Paiero. langur. turbo/disil 89. 5 g.. 5 d.. blár/gylltur, ek. 102.000. V. 1.350.000. Nissan Sunny SLX 4*4 1600 89. 5 g.. 4ra d.. svartur. ek. 55.000. V. 590.000. III i.i; 111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.