Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 24
-40 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. • T'-.. ?:* w.v ; •,» í^,>3lr £•' r PH£ ■*^»r:vMf ,FEMMUSAG úrvals ÉplSS feiflKtÉ® AteréRK ;#'>Vy.%/, :1 :.^.:/TT: 18 -^ . V;—Tvv* .Oi;' haust 1992 KV.^ *- ^ Re«Ilb°9anUm Meiming________________pv Vélvæöing prentunar hefur aliö af sér áþekka verkaskiptingu og vinnu- skipulag á íslandi og í Svíþjóð. Samanburður á prentiðnaði Svía og íslendinga Saga prentiðnaöarins er um margt verðugt viðfangsefni og gimilegt til fróðleiks, ekki síst í ljósi þeirra stórstígu breytinga á sviði prenttækninn- ar og hinnar öru þróunar sem átt hefur sér stað á því sviði á úndanförn- um áratugum. Það þarf því ekki að koma á óvart að félagsfræðingur skuh sækja efnivið sinn í doktorsritgerð inn á þetta svið. Ritgerð Inga Rúnars Eövarðssonar mun hafa að geyma fyrstu rannsókn félagsfræð- ings á sögu prentiðnaðarins á íslandi. Til eru þó eldri rannsóknir um þetta efni en af öðrum sjónarhóh skoðaðar. Ber þar helst að nefna Fjögur hundruð ára sogu prenthstarinnar á íslandi eftir Klemenz Jónsson (1930). Ritgerð Inga Rúnars er ekki takmörkuð við ísland heldur er hér um að ræða samanburöarrannsókn á þróun almennrar prentunar á íslandi og í Svíþjóð á tímabihnu 1950-1988. Ritgerðinni er þannig jafnframt því að vera framlag til sögu prentiðnaðarins ætlað að auka skhning okkar á íslensku og sænsku þjóðfélagi. Aðferð hans byggist einkum upp á saman- burði á tveimur íslenskum prentfyrirtækjum og tveimur sambærilegum Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson sænskum fyrirtækjum. Ekki er látið uppi hver fyrirtækin eru, en svo ítarlegar upplýsingar eru um þau að það er hægðarleikur fyrir kunnuga að átta sig á hver þau eru (a.m.k. þau íslensku) og því kannski vandséð hvaða thgangi nafnleyndin þjónar. Þá var framkvæmd forkönnun í prent- smiðju í Lundi og þijú prentfyrirtæki í Reykjavík heimsótt til skemmri athugunar. Höfundur rannsakar þjóðleg einkenni á samningagerð, með- ákvörðunarrétt starfsmanna, starfsmenntun og skipulag verkalýðsfélaga og áhrif þessara þátta á starfshætti og skipulag fyrirtækjanna. Niðurstöður ritgerðarinnar eru m.a. þær að vélvæðing prentunar hafi ahð af sér áþekka verkaskiptingu og vinnuskipulag í löndunum tveimur, en skipulag greinanna reynist hins vegar vera með afar ólíkum hætti. í Svíþjóð var samningagerð miðstýrð og starfsemi verkalýðsfélaga öflug sem leiddi th þess að kjör og kaup voru með líkum hætti frá einni prent- smiðju th annarrar. Hér á landi voru yfirráð prentsmiðjueigenda meiri, einstakhngshyggja ríkari, launamunur meiri og innsýn starfsmanna í stjóm fyrirtækja fátíðari. Geta þessar niðurstöður varla tahst mjög óvænt- ar. Hér er ekki rúm th að fara ofan í einstaka þætti þessarar ritgerðar en almennt finnst mér hún fróðleg og vinnubrögðin yfirleitt traustvekjandi. Ég sakna þess þó að athyghnni skyldi ekki sérstaklega beint að dagblöðun- um í ljósi þeirra átaka sem hin nýja tækni á sviði prentiðnaðarins hefur leitt th á þeim vettvangi, bæði hér á landi og svo víða erlendis. Það kemur á óvart að bók sem fjallar svo ítarlega um alla þá tæknimögu- leika sem nútímaprentiðnaður hefur upp á að bjóða skihi vera þannig úr garði gerð að ekki hafi tekist að prenta íslensku bókstafina ð eða þ heldur látið nægja að skrifa þá sem d og th. Þannig verður heitið á rit- smíð hins kunna prentara Stefáns Ögmundssonar í heimildaskrá ósköp skondið: „Eftir eigin gedthótta.“ Vegna fjölmargra svipaðra dæma verður heimhdaskráin heldur fráhrindandi fyrir íslenska lesendur. Að öðru leyti er bókin vönduð aö úthti og fjölmargar vandaðar skýringatöflur era th þess fahnar að auka á læsheika hennar. Ljóst er að að baki þessari ritgerð hggur mikh vinna sem gerir höfund vel í stakk búinn th að takast á hendur það verkefni sem hann hefur nú verið ráðinn th, þ.e. aö rita sögu prentiðnaðar hér á landi á vegum Jóns Böðvarssonar, ritstjóra Iðnsögu íslendinga. Ingi Rúnar Eðvarðsson. Prlnting in Action. General Prlnting in lceland and in Sweden. Lund Unlversity Press 1992 (232 bls.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.