Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. Spumingin Hverju spáir þú um úrslit ieiks íslend- inga og Grikkja? Jóhann Hilmarsson sölumaður: 2-1 fyrir íslendinga. Yíðir Kristjánsson verslunarmaður: Ég spái því að ísland vinni 1-0. Sigríður Ingólfsdóttir húsmóðir: Leikurinn fer 1-0 fyrir ísland. Benedikt ívarsson nemi: Hann fer 2-1 fyrir ísland. Tinna Björk Baldvinsdóttir nemi: ís- lendingar skora tvö mörk gegn einu marki Grikkja. Dröfh Guðmundsdóttir nemi: Leik- urinn fer 1-1. Lesendur Hraðakstur í f lug Kristinn Snæland skrifar: Sunnudaginn 27. september sl. var ég á ferð suður Reykjanesbraut til Keflavíkur. Nokkuð sunnan viö Straumsvík, er ég ók á 90 km hraða, sveif bíll fram úr. Ég tók, fyrir for- vitni sakir, að elta hann. Við náðum nokkrum bílum sem óku á 100 km hraöa og fórum fram úr þeim og enn öðrum sem óku á 110 km hraða og fórum líka fram úr þeim. Vitanlega þutum við fram úr öllum bílum sem óku á 90 km hraða eða minna. Ég taldi líklegt að slökkviiiðsmaður væri þama á ferð í mikinn eldsvoða en vantaði bara blátt, blikkandi ljós á bílinn. Auðvitað gat þetta líka verið læknir í bráðaferð en þá hefði hann líka átt að aka með blátt, blikkandi Ijós eða að minnsta kosti hvíta veifu. Skemmst er frá því að segja að eft- ir gífurlega skemmtilegan hraðakst- ur námum við staðar við Leifsstöð og þar snaraöist ungt og huggulegt par út úr bílnum en stimamjúkur bílsijórinn kippti farangri úr skott- inu og bar inn í flugstöðina. Þama varð mér ljóst að bifreiðin R-63022 er stjómarráðsbíll eða ráðherrabíll. Unga parið er hins vegar öragglega ekki ráðherrar, ráðuneytisstjórar né diplómatar. Konan var greinilega ekki komin að því að fæða, enda hefði þá verið ekið á næsta sjúkrahús og örugglega var enginn í þessari hrað- ferð í slökkviliðinu, enda enginn eld- ur laus í slökkvistöðinni né ná- grenni. Ástæðan fyrir þessari miklu hraðferð lá þannig ekki í augum uppi. Við nánari umhugsun virðist skýringin þessi: Almennt virðast rólegustu öku- menn tryllast ef aka skal farþegum eða sjálfum sér í flug. Þetta virðist látið afskiptalaust af lögreglu svo lengi sem trylhngurinn fer ekki yfir 110 km hraða. Stjómarráðsbílar og t.d. leigubílar í lögreglufylgd með háttsetta erlenda gesti aka gjaman enn hraðar og þá vissulega með blá ljós lögreglu blikkandi í bak og fyrir. Það er sumsé orðin eins konar hefð að aka eins og brjálæðingur ef ferð- inni er heitið í flug í Keflavík. Þess vegna ætti líklega að fyrirgefa mér að halda í við stjórnarráðsbílinn á sunnudaginn, þótt hraðinn hafi far- iö eitthvað aðeins yfir 90 km, eða hvað? Bréfritari segir það orðið hefð að menn gefi duglega í séu þeir á leið í flug í Keflavik. Af bilunum kommanna Ingibjörg Sigurðardóttir skrifar: Eins og kunnugt er hafa hérlendir kommar löngum verið sterkir í trúnni á kenninguna austrænu enda töluðu þeir áratugum saman með takmarkaðri virðingu um þá sam- flokksmenn sína sem leyfðu sér að draga í efa réttmæti ýmissa geröa ráðamanna Sovétríkjanna. Komm- amir töldu sig alla tíð vera öðrum mönnum gáfaðri, eins og einn ágæt- ur - fyrrverandi - hösmaður þeirra hefur skýrt frá á prenti. Nú hefur það hins vegar komið í ijós, eftir að jámtjaldið féll, að annað- hvort hafa kommarnir talað gegn betri vitund xun áratuga skeið, elleg- ar þeir hafa haft til að bera mun lé- legri dómgreind en aðrir menn. En varöandi þau tilvik sem finnast úr sögu kommanna, þar sem einstak- ir liðsmenn þeirra yfirgáfu „Sovét- óðaiið" höfðu kommamir þau orð, að viökomandi hefði bilað. Dæmi: Þegar Sovétríkin réðust á Finnland gengu allmargir úr flokki komm- anna. Það hét á máli hinna heittrú- uðu að þeir menn hefðu bilað í Finna- galdrinum. Sömuleiðis fóm margir úr flokknum þegar Sovétmenn réð- ust á Ungveijaland og Tékkóslóvak- íu. Það var kallað að bila í Ungó eða Tékkó. Og enn urðu margir til að yfirgefa kommana eftir kjamorku- slysið á níunda áratugnum. Og auð- vitaö hét það að bila í Tsjemobyl. En það virðist seint ætla að renna upp fyrir kommunum að dómgreind og almenn greind þeirra sjálfra hafi einhvem tíma á ferli þeirra orðið fyrir einhvers konar bilun. Apex-fargjöld: Apex-fargjöld Flugleiða eru orðin úrerlt, að mati bréfritara. Kristinn skrifar: Nú, í vaxandi samkeppni flugfélag- anna, keppast þau við að bjóða far- þegum sem hagstæðust flugfargjöld. Spái ég því að í allri þessari sam- keppni veröi Apex-fargjöld, þessi þvingunarfargjöld, úrelt innan skamms. Því miður halda Flugleiðir stíft í þessa tegund fargjalda, raunar svo stíft að maður nokkur sem þurfti að breyta farseðli sínum í Kaupmanna- höfn vegna þess að hann þurfti að vera kominn heim, fyrr en áætlaö var, þurfti að borga 1000 danskar krónur eða um 10.000 íslenskar til þess að breyta einni einustu dagsetn- ingu. Honum var tjáð að Apex-regl- umar væru svona strangar og f DV áskilur sér rétt til að stytta aðsend lesendabréf. þessu efni varð elskulegum af- greiðslustúlkum á skrifstofu félags- ins ekki haggaö. Ég vil spyrja Flugleiðir hvort fyrir- tækið ætii að halda í þessar úreltu reglur um Apex? Er ekki eðlilegt aö Flugleiðir, sem önnur flugfélög, sýni viðskiptavinum sínum lipurð og hjálpsemi þegar þannig stendur á að flugfarþegi erlendis þarf skyndilega, af persónulegum ástæðum, að breyta farseðh. Það getur varla verið hagur Flug- leiða að viðhalda þessum stirðleika í þjónustunni. Hann bætir ekki ímynd fyrirtækisins út á við. Það er ósk mín að Flugleiðum vegni vel og það hlýtur að vera hagur Flugleiða að bæta þjón- ustuna. Þvinganir em aldrei vinsælar og hljóta að verða aö víkja. verslana Sigrún skrifar: Ekki skil ég hvað fólk er að fetta fingur út í þótt verslanir séu opn- ar á sunnudögum. Þaö hlýtur að vera mál viðkomandi kaup- manns og starfsfólks hversu góð þjónusta er veitt. Nú hafa ýmsir rokið upp til handa og fóta og sagt að þetta fólk veröi að eiga frí á sunnudög- um. Mér finnst óþolandi þegar einhveijir vitringar em að reyna að hafa vit fyrír öðrum, oftar en ekki í óþökk þeírra sem um er að ræða. stjérnvalda Indriöi P. hringdi: Er þetta ekki dæmigert fyrir okkur Islendinga? Bandaríkja- menn hafa beðið í röðum eftir aö fá að setja upp fyrirtæki á fríiðn- aöarsvæði á Keflavikui-flugvelli. Fyrir mörgum mánuðum kom þetta mál til islenskra stjóm- valda. En þau hafa akkúrat ekk- ert gert. Það er engu líkara en að hér sé yfrið nóg atvinna og blómlegt þjóðarbú. Þannig haga stjóm- málamennimir sér að minnsta kosti. En þeír mega ekki iáta þetta tækifæri úr greipum ganga. skólagörðum Anna Ólafsdóttir skrifar: Þegar ég las frásögn konunnar, sem stóð tvær aðrar að því að ræna skólagarða barnanna, þá komu upp í huga raér tveir svip- aðir atburðir sem áttu sér staö í haust. í báðum tilvikum var tekiö úr görðum sem böm höföu hugs- að um í allt sumar. Þegar þau komu aö görðunum einn morg- uninn var búið að róta í þeim og taka talsvert af grænmeti. Það er enginhemja að fullorðið fólk skuli stela frá bömum. Oft heyrir maður að ungllngarnir séu svona og svona. En það er kannski engin furða því það læra börnin sem fyrir þeim er hafL til úHanda Helgi Siguijónsson skrifar: Það var ánægjulegt að heyra að íslenskt nautakjöt skyldi hafa verið metið betra en það banda- rlska í keppni sem fór fram í New York á dögunura. Bandaríkja- menn ero taldir algerir nauta- kjötssérfræðingar þannig að við megum vel við una að hafa betur. En þaö er ekki nóg með að viö eigum besta nautakjöt í heimi, viö eigum líka besta lambakjötiö. Hvemig væri nú að fara aö huga að því að koma þessu á erlendan markað? Það hiýtur að vera hæg- ur leikur úr því að gæðin eru á heimsmælikvarða. Síendurtekin um- ferdariagabrot Hallgrímur Óskarsson hringdi: Ég er einn af þeim flölmörgu sem em óánægðir með umferö- ina. Þaö er svo mörgu ábótavant hér aö þaö er meö ólíkindum. Tökum stefnuljósin sem dæmi. Rjöimargir ökumenn nota helst aldrei stefnuljós og geta því hæg- lega valdið stórslysum. Þeir gefa ekki til kynna hvert þeir ætla en snarbeygja svo allt í einu. Of míkið er um að menn dóli sér á vinstri akrein þegar þeir ættu að vera á þeirri hægri. Ótrú- lega margir aka yfir á gulu ljósi og oft hef ég séð ökumenn gefa í þegar gult Ijós er fram undan og hendast svo yftr á rauðu. Lögregl- an virðist alltaf víðs fjarri þegar þessi brot eiga sér staö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.