Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 40
Fór rúm 200tonn JP w m W m Tram ur Kvoianum Verlð er að rannsaka meint brot útgeröar Eleseusar BA frá Tálkna- . firði, en grunur er um að aíli báts- ins á síðasta fiskveiðiári hafi verið rúmum tvö hundruð tonnum meiri en kvóti bátsins er. Þá er bent á að ekki hati verxð keyptur kvóti eða leigður til að mæta þessum mikla mun á afla og kvóta. Búast má viö að aflaverðmæti þeirra tonna sem fiskuð voru umfram kvóta sé 16 til 20 milljónir króna. „Þetta er alveg rétt Það þarf ekki að rannsaka neitt, þaö liggur ljóst fyrir. Það eru sektargreiðslur við þessu og ég borga þær núna eins og áöur. Þetta er ekki sama og þeg- ar menn landa fram hjá, þá eru menn brotlegir. Það sem ég fiskaöi umfram kvóta minn var allt löglega vegið,“ segii’ Níels Ársælsson, út- geröarmaður og skipstjóri. - Getur verið aö þú hafir fiskað rúm tvö hundruö toim umfram kvóta? „Já, ég get vel trúað því." Eleseus BA var seldur á nauð- tmgaruppboði í vor sem leið. Upp- boðinu var skotið til Hæstaréttar, en Hæstiréttur hefux* staðfest rétt- mæti þess. Þegar fyrrum eigandi Eleseusar, þaö er Níels Ársælsson, varð að láta bátinn frá sér varð þaö að lögreglumáli þar sem grunur er um að úr bátnum hafi verið tekin verðmæti iyrir allt að tíu miHjónir króna. I samtali við DV neitar Ní- els þeim ásökunum algjörlega og segir að það eina sem ekki hafi verið í bátnum, þegar hann skilaöi honum af sér en átti að vera um borð, sé plotter sem er í viðgerð og þangað geti núverandi eigendur sótt þegar þeim sýnist svo. Níels segist hafa sannað með gögnutn aö kæran á hendur honum hafi verið lögð fram vegna mis- Níels Arsælsson sætir ákæru vegna slyss sem varð í mynni Pat- reksfjarðar í juni 1990 en þá varð árekstur milii Eleseusar og trillu. Einn maður var á triliunni og lést hann af völdum árekstursins. Trillan sökk en manninum var bjargað um borð i Eleseus. Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á vettvang var maðurinn látinn. í framhaldi af slysinu gaf rikissak- sóknari út ákæru á hendur Níelsi - þar sem hann var ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Málið er til meðferðar í Sigiinga- dómi. Níels segist hafa það frá emb- ætti ríkissaksóknara að það liafi verið mistök að Ijúka þessu máli ekki með dómssátt í áliti Rannsóknamefndar sjó- slysa segir um þátt Níelsar: „Skip- stjóri m.b. Eleseusar BA 328 hefur sýnt vítavert kæruleysi við stjórn og siglingu skipsins þar sem hann stjómaði siglingu skipsins um leið og hann sá um að slaka út veiðar- færi auk þess sem hann vissi að bátur var mjög nálægt" Eftir sjóprófin beindi sýsluroaður því til sjómanna að koma ekki ná- lægt flaki trillunnar. í skýrslunni segir að þrátt fyrir tihnæli sýslu- manns hafi Eleseusi veriö siglt aö flakinu og reynt hafi veríð aö koma krekjuíþaö. -sme "Bjórinn lækkar ÁTVR gefur út nýja verðskrá fyrir áfenga drykki í dag. Aðalbreytingin er að dregið er úr skattlagningu á. innfluttum bjór. Algengast er að inn- fluttur bjór lækki um 1 til 2% en í sumum tilfellum er lækkunin allt að 5%. Bjór frá Bandaríkjunum lækkar mest vegna hagstæðs verðs á Banda- ríkjdal og Holsten bjórinn lækkar um 3 til 5%. -Ari LOKI Hvor ætli verði skólastjóri þessa nýja skóla, Davíð eða Jón Baldvin? Álversdeilan: Verkalýðsfor- ráðherra „Þetta var gagnlegur viðræðufund- ur þar sem upplýsingum var miðl- að,“ sagði Sigurður Tr. Sigurðsson, formaður Hlífar í Hafnarfirði, eftir fund með Davíði Oddssyni og Jóni Sigurðssyni iðnaðarráðherra í gær. Til umræðu var vmnudeilan 1 álver- inu í Straumsvík. Auk Sigurðar vom á fundinum þeir Ásmundur Stefán- son, forseti ASÍ, Öm Friðrikson og Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðarmað- ur í Straumsvík. Sigurður segir VSÍ stefna friði á vinnumarkaðmum í hættu með því að samþykkja ekki miðlunartillögu ríkissáttasemjara. -kaa Veðriðámorgun: Veðurfer kólnandi Á hádegi á morgun veröur hæg norðlæg átt og kólnandi veður í bih. Skúrir eða slydduél við norð- ur- og austurströndina en þurrt annars staðar. Veðrið í dag er á bls. 52 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. jpt Morgunfundur Verslunarráðs: Kenna fólki að vera at- vinnulaust Ölvaður olli - sagði Páll Kr. Pálsson „Vandinn liggur í minnkandi fram- legð í rekstri fyrirtækja. Fyrirtækin verða að ráðast á fastakostnaðinn, allt sem nöfnum tjáir að nefna, jafn- vel launin," sagði Páll Kr. Pálsson, framkvæmdasljóri Vífilfells, en hann hélt ásamt Einari Oddi Kristj- ánssyni framsögu á morgunverðar- fundi Verslunaráðsins nú í morgun. Fundurinn bar yfirskriftina íslenskt atvinnulíf - ástand og úrræði. „Hið opinbera þarf að skera niður útgjöld sem alls ekki hefur verið gert sem skyldi. Síðast en ekki síst verða stjórnvöld að kenna fólki að vera atvinnulaust, þaö er að segja byggja upp félagslegu hliðina,“ sagði Páll. „Ég held að þetta tal um að enginn megi vera atvinnulaus muni bara skilja okkur eftir standandi frammi fyrir vandanum með kannski 6% at- vinnuleysi en enginn veröi búinn að gera neitt til að kenna fólkinu aö vera atvinnulaust og sætta sig við það. Menn segja að við megum ekki sætta okkur við atvinnuleysi en eng- inn segir hvemig eigi að leysa það. ' Ég veit ekki hvemig á að gera það,“ sagðiPáli. -Ari Fyrsti morgunveröarfundur Verslunarráðs islands á þessum vetri var haldinn í morgun. A myndinni sjást Lára V. Júlíusdóttir, Sigurður B. Stefánsson, Páll Kr. Pálsson, Einar Oddur Kristjánsson og Vilhjálmur Egilsson. DV-mynd GVA slysi og mikl- um skemmd- umínótt Maður sem olii slysi á mótum Hringbrautar og Bústaðavegs var látinn gista fangageymslur lögregl- unnar í nótt. Hann ók fólksbíl austur Hringbraut er hann kom að gatna- mótunum við Bústaðaveg og Snorra- braut. Þar beið lítill þailbíli á rauðu ljósi en ölvaði ökumaðurinn ók sín- um bíl harkalega aftan á pallbíhnn með þeim afleiðingum að hann kast- aðist út á gatnamótin og í veg fyrir annan bíl sem var ekið yfir þau á grænu ljósi. Ökumaður pallbílsins meiddist á höfði og fæti en ekki var nákvæmlega Ijóst í morgun hve al- varlegs eðlis meiðslin voru. Tvo af framangreindum bflum ' varð að fiarlægja með krana af slys- stað í nótt. Vegna ölvunar þess aðila sem olli slysinu var hann færður í fangageymslur og verður skýrsla tekin af honum í dag. -ÓTT Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gaett. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. 0Fennei Reimar og reimskífur Vauisen SuAuriandsbraut 10. S. 680409.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.