Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1992. Frjálst.óháÖ dagblað Otgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Hringlandi Alþingi var sett í gær aö nýju eftir stutt hlé ogfjárlaga- frumvarp var lagt fram. Helsta verkefni þingsins veröur aö afgreiða fíárlög og taka afstööu til Evrópska efnahags- svæðisins. Bæði eiga þessi stóru mál eftir aö reynast ríkisstjórninni þung í skauti. Gera má ráð fyrir að sam- komulagið um EES hafi meirihluta í þinginu en kröfur hafa farið vaxandi um þjóðaratkvæðagreiðslu og ríkis- stjómin mun ekki standa sterk að vígi meðan hún neit- ar þjóðinni að segja áht sitt á þessum afar mikilvægu samningum. Hér í blaðinu hefur verið mælt með Evr- ópska efnahagssvæðinu en jafnframt tahð eðhlegt að þjóðin hefði um það síðasta orðið. Þessu hefur ríkisstjórnin hafnað og í því felst þver- sögn vegna þess að stjómarflokkamir hafa lagt áherslu á að EES skipti sköpum fyrir næstu framtíð þjóðarinnar og það er til styrktar mádinu að ríkisstjórnin hafi þjóð- ina á bak við sig í svo stóm máh. Meðan ríkisstjómin þverskahast við kröfum um þjóðaratkvæði hggur hún undir þeim grun að þora ekki að vísa EES-samkomulag- inu til dóms þjóðarinnar. Varla getur það tahst traust- vekjandi eða sannfærandi um ágæti málsins. Hitt stóra máhð em fjárlögin. í því frumvarpi, sem lagt var fram í gær, em margir lausir endar. Niður- skurður í einstökum ráðuneytum er ótilgreindur að mestu. Það er kreist og togað hér og þar en árangur frá yfirstandandi hárlagaári er því miður ekki til þess fah- inn að vekja trú á almennum yfirlýsingum um niður- skurð. Satt að segja virðist ríkisstjómin hafa mikið tU gefið það upp á bátinn að draga saman í ríkisrekstri en í stað þess fer mest púðrið í vangaveltur um breytingar á virðisaukaskatti sem þó á ekki að gefa mikiö í aðra hönd. Fyrirkomulag á virðisaukaskatti er enn óljóst sam- kvæmt frumvarpinu sem þýðir að ríkisstjómin á enn eftir að taka ákvörðun um skattlagningu sem hugsan- lega getur gengið í gUdi eftir rúma þrjá mánuði. Fyrst var talað um að fækka undanþágum og taka upp tvö virðisaukaskattsþrep. Síðan var hætt við þau áform en fleygt fram hugmynd um að leggja niður endurgreiðslur á virðisaukaskatti á vöm og þjónustu sem ekki er virðis- aukaskattskyld. Næst er svo það að frétta að fjármála- ráðherra og utanríkisráðherra hafa dustað rykið af fyrri tiUögunni og segja hana enn til skoðunar! Ekki em þetta traustvekjandi vinnubrögð og raunar ótrúlegur hringlandi. í báðum tUvikum hafa komið fram sterk mótmæh og þung rök gegn þessum áformum báðum. Þingflokkar stjómarflokkanna höfnuðu fyrri leiðinni og augljóst er að runnið hafa tvær grímur á ráðherrana við afar mál- efnalegum röksemdum gegn þeirri síðari. Það er út af fyrir sig rétt að í stefnuyfirlýsingum stjómarinnar hefur verið minnst á þær fyrirætlanir að taka upp tvö skattþrep og undanþágur orka oftast tví- mæhs. En þá ber að hafa í huga að tvö skattþrep á virð- isaukanum hafa verið rædd á þeirri forsendu að efra þrepið lækkaði verulega og í neðra þrepið fæm flestar nauðsynjavörur. Hvomgt hefur verið lagt til. Matar- skatturinn frægi er enn í efra þrepinu og á að vera áfram. Lækkunin er óveruleg eða úr 24,5% í 22%. Ríkisstjómin á að einbeita sér að því að skera niður útgjöld í stað þess að mæna á einhverjar matarholur í skattkerfinu; matarholur sem em raunar afar rýrar og hafa hingað th verið undanþegnar vegna þess að stjórn- völd hafa falhst á að ýmiss konar starfsemi í þjóðfélag- inu stendur ekki undir íþyngjandi skattlagningu. Ehert B. Schram „Þaö er ekki síst saltfiskvinnslan sem hagnast á EES,“ segir höfundur. EES gjörbreytir stöðu sjávarútvegs Fyrir skömmu lét Sigurður Har- aldsson, framkvæmdastjóri SÍF, svo um mælt í viðtali að samning- urinn um evrópska efnahagssvæð- ið yrði „mikil vítamínsprauta fyrir saltfiskiðnaðinn á íslandi". For- stjóri Þjóðhagsstofnunar, Þórður Friðjónsson, hefur lýst svipuðum skoðunum, og telur að strax á næsta ári muni aðildin að EES skila 1,5 til 2% hærra verði fyrir sjávarafurðir inn í landið. Þetta þýðir að íslensk fyrirtæki munu fá allt að 1500 milljónum króna meiri tekjur fyrir sjávarafurðir á næsta ári, án þess að eyða í þær meira hráefni. Þessar upplýsingar staöfesta það svart á hvítu að forsvarsmenn mik- ilvægustu atvinnugreina á íslandi jafnt sem hæfustu sérfræðingar okkar á sviði efnahagsmála eru sammála um mikilvægi Evrópska efnahagssvæðisins fyrir velferð ís- lensku þjóðarinnar. í framhaldinu hafa svo öll helstu samtök í sjávarútvegi lagt mikla áherslu á þýðingu samningsins fyr- ir greinina, og hafa meðal annars í samvinnu viö aðra burðarása úr atvinnulífinu birt stórar auglýsing- ar í dagblöðunum, þar sem kostum samningsins fyrir atvinnulífið er lýst. Þaö segir hins vegar sitt um mál- flutning stjómarandstöðunnar að þvert ofan í yfirlýsingar forystu- manna í sjávarútvegi hafa nokkrir oddvitar hennar haldið því fram að samningurinn um EES sé létt- vægur fyrir íslenskan sjávarútveg. Saltfiskurinn - gjör- breytt staða Það er ekki síst saltfiskvinnslan sem hagnast á EES. í dag á hún í erfiðri samkeppni og hefur verið að tapa mörkuðum, til dæmis í Portúgal. Helstu keppinautamir em Norðmenn og Færeyingar sem hafa flutt saltfisk tollfijálsan inn á Evrópu meðan íslendingar hafa þurft að greiða 13% toll af flöttum saltfiski og 20% toll af saltfiskflök- um. Markaður fyrir söltu flökin eykst hratt og þau skila mun betri hagnaði en hefðbundni fiskurinn. En vegna tollanna hafa íslendingar ekki getað selt þau í nægilegum mæh. Við eigum hins vegar í sam- keppni við fleiri en Norðmenn og Færeyinga. Danir hafa til dæmis keypt fisk, meðal annars af íslend- ingum, saltað heima og síðan selt tollfxjálst til Evrópu. Kanadamenn hafa líka keppt við íslendinga en þurft að borga háa tolla eins og við. í harðnandi samkeppni við þessar þjóðir höfum við átt undir högg að sækja vegna hárra tolla. Tollfríðindin sem samningurinn um EES býður upp á mun gjör- breyta þessari stöðu. Saltfiskflökin Kjallarinn Össur Skarphéðinsson formaöur þingflokks Alþýöuflokks af einhverri alvöm keppt við aðra framleiðendur á hinum mikilvæga ferskflakamarkaði í Evrópu. Með þessu hefur EB neytt íslend- inga til að flytja fiskinn út óunn- inn, og með honum bæði atvinnuna og vinnsluvirðið sem fæst við flök- unina. Samningurinn um EES breytir þessu í einu vetfangi. Um leið og hann tekur gildi sviptast burt tollamir á fersku flökunum og við verðum samkeppnisfærir með íslensk flök á neytendamörk- uðum Evrópu. Það mun í senn skila auknum tekjum inn í landið, en jafnframt mun atvinnan, sem til þessa hefur verið flutt í formi óunnins fiskjar til Evrópu, verða eför á íslandi. Fyrir okkur gæti þetta skipt millj- örðum á ári, auk nýrra atvinnu- tækifæra. „Þessar upplýsingar staðfesta það svart á hvítu að forsvarsmenn mikil- vægstu atvinnugreina á Islandi jafnt sem hæfustu sérfræðingar okkar á sviði efnahagsmála eru sammála um mikilvægi Evrópska efnahagssvæðis- ins fyrir velferð íslensku þjóðarinnar.“ munu þá í einu vetfangi veröa al- gerlega tollfijáls, og sama gildir um flatta saltfiskinn sem er unninn úr þorski. Norömenn munu aö sönnu áfram njóta tollfijálsra innflutn- ingskvóta á þurrkaðan saltfisk, en samkeppnisstaða okkar gagnvart þeim, og einnig Færeyingum og Dönum, gjörbreytist eigi aö síöur til hins betra. Og hvað Kanada- menn varðar mun samningurinn um EES færa okkur verulegt for- skot. Samningurinn um EES jafngildir því að framlegð á hvert hráefnis- kíló gæti verið 7-8 krónum meiri. Það er hins vegar óvíst að tollfrels- ið myndi allt skila sér til framleið- andanna á íslandi. Fersku flökin Samningurinn er ekki síður mik- ilvægur fyrir möguleika íslendinga til að selja fersk flök - og raunar ferskar unnar fiskafurðir - á hin- um sterkríku neytendamörkuðum Evrópu. En þar eins og víðar hefur neyslumynstur breyst þannig, að neytendur kjósa nú miklu fremur fersk flök en fryst. Þeir borga mun hærra verð fyrir ferskleikann, þannig að verðið á ferskfiskflökun- um er miklu hærra. Evrópubandalagið hefur hins vegar komið í veg fyrir að íslend- ingar gætu notfært sér aukna tekjumöguleika af sölu á ferskum flökum með því að setja á þau mjög háan toll, eða 18%. Þetta hefur vita- skuld girt fyrir að íslendingar gætu Tilbúnir réttir Tollar af tilbúnum, samsettum réttum munu jafnframt stiglækka úr 10% niður í 3%. Til þessa hefur veriö ipjög erfitt að ná fótfestu fyr- ir slíka vöru í Evrópu vegna afar harðrar samkeppni. Sérfræðingar í markaðsmálum telja þó, að þessi tollalækkun muni skipta sköpum fyrir sölu tilbúinna fiskrétta. Reynslan mun væntanlega leiöa það í Ijós. Hins ber að geta, að framleiðsla og markaðssetning á slíkum rétt- um er afar áhættusöm. Líftími rétt- anna er stuttur og nýir ryðja þeim gömlu fljótt úr hillum stórmarkað- anna. Það eru einkum stórir hring- ir, líkt og Findus, sem hafa náð varanlegum árangri á þessu sviði. Þeir hafa það sem okkur skortir: sterkt dreifikerfi. Við höfum það sem þá vantar: vandað hráefni. Tollfríðindin, sem bjóðast með EES, setja okkur hins vegar það verkefni að ná þessum stórfyrir- tækjum hingað til lands til sam- starfs við Islendinga um fram- leiðslu og dreifingu í Evrópu á til- búnum, samsettum réttum úr sjáv- arfangi. Þar er óunninn akur, sem við gætum plægt í samvinnu við slík fyrirtæki. Með EES felast því sóknarfæri á ótal sviðum í fiskvinnslu. Við eig- um ekki að láta þau úr greipum ganga. össurSkarphéðinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.