Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1992, Blaðsíða 19
19 JulioCesar Æ, a JLém^ ÍKim foiDroinaoi Julio Cesar, brasilíski vamar- maðurinn í liði Juventus á Ítalíu, leikur ekki knattspymu naestu 4 mánuðina. Cesar varð fyrir því óláni að fótbrotna í leik gegn Napoli um síðustu helgi eftir að hafa lent í samstuði við Svíann Jonas Them h)á Napoh. knattspyrnu, Rafael Martin Vazquez, er á leiö til spánska liðs- ins Real Madrid frá Marseihe í Frakklandi. Vazquez, sem gekk til liðs við Marseille fyrir þetta tímabil frá italska félaginu Tor- ino, lék með Real Madrid fyrir tveimur ámm. Kaupvcrð Madridarhðsins á honum er um 350 milljónir íslenskra króna. -GH LeedsogStuttgart Mótaneíhd Knattspymusam- bands Evrópu hefur ákveðið að aukaleikur Leeds United og Stuttgart í Evrópukeppni meist- araliöa í knattspymu fari fram i Barcelona á Spáni á fóstudaginn. Forráðamenn Leeds voru ekki ánægðir með þá ákvörðun UEFA að leikurinn færi fram á hlutlaus- um velli, vildu að leikurinn yröi spilaður í Leeds en þeir hafa nú sæst á að leikurinn verði háður i Barcelona og forráðamenn Stuttgart eru á sama máh. Liðið sem sigrar í þessum leik mætir Glasgow Rangers í 2. umferð. -GH Enginfrestun áhandboStanum Mótanefhd HSÍ ákvað á fundi sínurn í gær að leikjunum í 1. deild karla yrði ekki frestaö í kvöld þó svo að ísienska knatt- spymulandsliðið vœri að ieika á sama tíma gegn Grikkjum í und- ankeppni HM. Nokkur félög, þar á meðal FH og Víkíngur, vftdu fresta leik sínum en mótanefndin var á öðru máh. Leikimir, sem framfara í kvöld, eru þessir: Vík- ingur-FH, StjamanHR, Haukar- HK, Valur-Selfoss, ÍBV-Fram og KA-Þór. Allir leikirnh- heíjast klukkan 20 að undanskildmn lelk Akureyrarhðanna sem hefst hálf- tíma síðar. -GH Snæfeilfær Valíheimsókn Einn leikur er í Japisdeildinni í körfuknattleik. Snæfell leikur sinn fyrsta leik í deildinni þeg- ar hðið fær Valsmenn í heimsókn í Stykkishólm. Lcikurinn hefst klukkan 20. StórsigurSvía Svíar unnu stórsigur á Búigör- um, 6-0, í Evrópukeppni 21-árs landshða I Halmstad í gærkvöldi. í San Marino töpuðu heimamenn fyrir Noregi, 0-3. A-landslið þess- ara þjóða mætast í undankeppni HM í kvöld. -VS Palace gerir Guðna tilboð - lánssamningur kemur til greina, segir Guðni Bergsson Crystal Palace hefur gert ná- grönnum sínum í Tottenham tiiboð í íslenska landshðsmanninn Guðna Bergsson sem ekkert hefur fengið að spiia með Tottenham á þessu keppnistímabili. Ólíklegt er að af kaupum verði en hins vegar kemur til greina að Palace fái Guðna að láni um einhvern tíma - eða þá að hann fari sem lánsmaður til ein- hvers annars félags. „Það er rétt, ég fékk boð frá Palace fyrir nokkrum dögum, en ég hef ekki áhuga á að vera seldur þangað. Hins vegar gætu málin þróast þannig að ég færi þangað að láni í skemmri tíma, sem væri betra en að hanga þar sem ég er. Ég þarf að halda mér í leikæfingu og komast í einhvers konar sviðs- ljós til að eiga möguleika á að kom- ast burt frá Tottenham. Eins og fyrr er ég sannfærður um að meg- inlandið henti mér best,“ sagði Guðni í samtali við DV í gærkvöldi. Líkt er á komið með Tottenham og Palace en þessi kunnu Lundúna- félög eru við botn úrvalsdeildar ensku knattspyrnunnar. Totten- ham er íjórða neðst með 10 stig en Palace er stigi og sæti á eftir. Samningur við Tottenham rennur út í vor Guðni hefur verið upp á kant við stjórn Tottenham frá því í sumar en hann vill komast burt frá félag- inu þó samningur hans renni ekki út fyrr en næsta vor. Hann hefur leikið meö varaliðinu að undan- fórnu en til að byrja með var hon- ummeinaðaðleikameðþví. -VS Guðni Bergsson i leik með Totten- ham. „Von á erfiðum leik“ - segir Alketas Panagoulias, þjálfari Grikkja Alketas Panagoulias, þjálfari gríska landshðsins í knattspymu, stjómaði æfingu hðsins eins og her- foringi á flóðlýstum Laugardalsvelli í gærkvöldi. Léttleikinn og gaman- semin var þó ekki langt undan en við nánari kynni á þjáifaranum kom í ljós að þar er á ferð hinn hressasti náungi. Hann talar ensku reiprenn- andi og til gamans má geta þess að hann stundaði nám við sama háskóla og Sigurður A. Magnússon í New York á sjötta áratugnum en Sigurður er túlkur gríska hðsins meðan það dvelur hér á landi. Panagoulias sagðist í viðtali við DV eftir æfinguna í gærkvöldi alltaf vera bjartsýnn fyrir leiki en viðurkenndi þó að hann ætti von á mjög erfiðum leik og hann bæri mikla virðingu fyrir íslenska Uðinu, sem væri sýnd veiði en ekki gefin. „Ég er búinn að fara mörgum sinn- um yfir myndbandsspólu frá leik Ungverja og íslendinga í Búdapest sl. vor en þar kom íslenska hðið mjög á óvart með því að sigra en liðið sýndi á köflum skynsamlegan og yfirveg- aðan leik. Ég býst fastlega við mjög erfiðum leik gegn íslendingum, það verður ekkert gefið eftir af hálfu beggja þjóða enda mikið í húfi. Við erum hingað komnir til að sigra en Panagoulias, þjálfari gríska lands- iiðsins, á æfingu í gær. DV-mynd Brynjar Gaufi til að það gangi eftir verðum við sýna mjög góðan leik,“ sagði Panagoulias í samtalinu við DV. Hann bætti síðan við að hann gerði sig ekki ánægðan með jafntefli. Það mátti greinilega heyra á máh Panagouhas að hann var mjög inni í íslenskri knattspymu og þar væru nokkrir sterkir leikmenn sem lékju með erlendum félagsliöum. Hann sagði ennfremur að Asgeir EUasson, þjálfari íslenska hðsins, væri nú þeg- ar búinn að ná góðum árangri með hðið og hann virtist hafa mikinn metnað til að standa í stykkinu. „Veðrið komið mér á óvart“ Panagoulias var spurður um vallar- aðstæður: „Mér sýnist leikvangur- inn vera í ágætu ásigkomulagi og það er ekki yfir honum að kvarta. Veðrið hér er hka mun betra en við áttum von á. Ég átti satt best að segja von á kaldara loftslagi en það hefur kom- ið okkur öllum á óvart," sagði Alket- as Panagoulias við DV. -JKS Qdi í\ ÐV, Engiandi.' Breska sjónvarpsstöðin BBC skýrði frá því i gærkvöldi að Brian Ciough, framkvæmdastjóri Nottingham Forest, hefði hafnaö boði íslenska landshösmannsins Þorvalds Örlygssonar um aö sleppa landsleik íslands og Grikklands i kvöld. Foresl mætir Stockport í síðari leik liðanna i 2. umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu í kvöld. Forest vann fyrri leikinn, 3-2, og þá skoraði Þorvaldur eitt marka liösins og lagði annað upp. Hann hefur átt íást sæti í liði Forest að undanfómu. > ^ Ásgeir mættur til viðræðna Ásgeir Sigurvinsson kom til lands- ins í gær til viðræðna við forráða- menn knattspymudeildar Fram en í dag mun hann hefja viðræður við forkólfa félagsins um þjáifarastarf hjá meistaraflokki Uðsins. „Við munum setjast niður með Ásgeiri og ræða málin saman og ég er bjartsýnn að það gangi saman með okkur á allra næstu dögum," sagði Halldór B. Jónsson, formaður knatt- spymudeildar Fram, í samtaii við DV í gær. Á myndinni er Halldór B. Jónsson með Ásgeiri Sigurvinssyni á Varmárvelh í gær. -JKS FH mætir Ystad Islands- og bikarmeistarar FH-inga í handknattleik drógust gegn sænsku meisturunum í Ystad í Evrópukeppni meistaraliða og Valsmenn gegn bik- armeisturum Litháen, Maistas Kla- ipeta, í Evrópukeppni bikarhafa en dregið var til annarrar umferðar á Evrópumótunum í handknattleik í gær. Ystad komst með naumindum í 2. umferð. Eftir tvo leiki gegn finnska hðinu BK-46 varstaða liða jöfn, hvort með einn unninn leik en Ystad fór áfram með því að skora fleiri mörk á útivelii. Fyrri leikur FH og Ystad fer fram hér á landi 7. eða 8. nóvemb- er og viku síðar í Svíþjóð. „Þetta er alveg örugglega mjög sterkt hð sem við mætum. Ég á þó eftir aö kynna mér þá betur. Ég er þó ekki svartsýnn á að við getum slegið þá út. Það er viss ókostur að þurfa að leika fyrri leikinn heima en ef Kaplakrikinn fyllist og við fáum dyggftegan stuðning eigum við möguleika á að fara með gott forskot til Svíþjóðar," sagði Kristján Arason, þjálfari FH, í samtah við DV í gær. Fyrri leikur Valsmanna gegn Maistas Klaipeta Litháen í Evrópu- keppni bikarhafa fer fram ytra. Ma- istas Uðið lék gegn finnska hðinu IF Helsinki í 1. umferð. Fyrri leikinn, sem fram fór í Litháen, vann Maist- as, 34-18, en Finnarnir unnu síðari leikinn með 5 marka mun. „Þetta var ekkert óskaiið hjá okkur en þetta hefði geta orðið verra. Við vitum nánast ekkert um þetta hthá- íska lið. Við eigum útileikinn fyrst sem ég álít plús fyrir okkur en svo gæti samt alveg farið að reynt yrði að leika báða leikina hér heima,“ sagði Jakob Sigurðsson, fyrirhði Vals, við DV. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.