Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992. Svipmyndir Af hverjum er svipmyndin? Ef til vill ætti hann að verða arkí- tekt. Strax á unga aldri fékk sá sem svipmyndin er af mjög mikinn áhuga á alls kyns byggingum. Væri hafist handa um að gera grunn að húsi mátti treysta því að hann kæmi á staðinn. En hvers vegna yrði hann ekki viðskiptajöfur? Þegar hann var tíu ára var hann farinn að safna skýrslum frá ýmsum fyrirtækjum. Það mátti því reikna með að hann heíði góða möguleika á að verða forstjóri. Á þessum tíma skipti það miklu að sýna dugnaö, vildu menn ná langt. Sá sem hér er lýst var mjög metorðagjam. Hann las allar bæk- ur norrænu fjölskylduútgáfunnar til að geta komið félögum sínum á óvart með þekkingu sinni. Þá las hann í bíblíunni og söng í bamakór kirkjunnar. Hann hafði lítinn áhuga á því að gera prakkarastrik og knattspyma var ekki eitt af áhugamálum hans. Félagamir Utu því stundum horn- auga þennan dreng með stóm dökku augun og liðaða dökkbrúna hárið sem lét sig dreyma um svo margt. En það leið þó ekki á löngu þar til hann ávann sér virðingu allra með kímni sinni, þekkingu og kald- hæðnislegum ummælum um sjálf- an sig. Gekk illa í latínu Eftir gagnfræðaskólanámið fór hann í menntaskóla. Þar gekk hon- um illa að ná tökum á latínu. Eftir nokkum tíma tók sá sem svip- myndin er af þvi þá ákvörðun að læra rússnesku í stað latínu en rússneskan var þá nýlega orðin námsgrein. Vorið 1930 tók sá sem lýst er stúd- entspróf. Síðar gegndi hann her- þjónustu í Örebro. Þar var hann í 260 daga og stundaði heræfingam- ar af kappi. Hann vildi verða góður hermaður. Hann fékk því hæsta vitnisburð þegar herþjónustunni lauk. Sá sem svipmyndin er af var af efnaðri flölskyldu og naut því mik- ils valfrelsis er að því kom að hann kysi sér starfsgrein. Þaö var list- hneigð hans og áhugi á húsagerð- arlist sem réð úrslitum. Árið 1931 fór hann til Bandaríkjanna. Og fjórum árum síðar var hann með fyrstu námsgráðu í húsagerðarlist frá Michigan-háskóla. Hann lenti í ýmsum ævintýrum í Bandaríkjunum. Er hann var á ferðalagi fyrir utan Chicago var hann rændur af glæpaflokki. Þá ferðaðist hann um Mexíkó í göml- um Ford-bíl. Sumarið 1935 sneri hann aftur til Svíþjóðar til að hefja störf sem arkítekt. Þar vakti hann athygli fyrir tillögur sínar um sundlaug á Riddarholmen, en alls lagði hann fram sjö hugmyndir um gerð henn- ar. Teikningar hans vom fallegar og þaulhugsaðar. Hann vann til annarra verðlauna. En því miður varð engin tillagnanna að vera- leika. Sá sem hér er lýst áttti áhrifa- ríkan föðurafa sem leit svo á að sonarsonurinn þyrfti að öðlast al- þjóðlega reynslu. Fyrst lá leiðin til Suöur-Afríku. Sjóferðin frá Osló til Höföaborgar tók tuttugu og einn dag. Margir Svíar vom um borð. Þeir höfðu sér margt til dægradval- ar á leiðinni. En sá sem svipmynd- in er af vann alla leiðina að teikn- ingum að nýrri slökkvistöð í Lulea en efnt haföi veriö til samkeppni meðal arkítekta um útlit hennar og búnað. Eftir hálfsársdvöl í Höföaborg hélt hann áfram til Haífa í Palest- ínu. Þar var hann sömuleiöis í hálft ár og hafði sú dvöl mikil áhrif á framtíð hans. Þegar hann kom aftur til Stokk- hólms haföi sá sem svipmyndin er af aö mestu misst áhugann á húsa- gerðarlist en í staðinn fengið mik- inn áhuga á viðskiptum. Þýskur maður, sem flust haföi til Svíþjóð- ar, haföi þá fengið einkaleyfi á nýrri gerð af tappa. Sá sem hér er lýst lagöi mikið fé í fyrirtækið. En uppfinningin hlaut aldrei þær við- tökur sem hann haföi vænst og féð tapaðist. Erlend viðskipti í upphafi árs 1941 sótti hann um starf hjá Mið-evrópska verslunar- sambandinu. Hann haföi þó enga reynslu af alþjóðaviðskiptum. Þrátt fyrir þaö var hann ráðinn til starfans og skömmu síðar var hann orðinn framkvæmdastjóri þeirrar deildar sem sá um erlendu við- skiptin. Nú var komið fram í miöja síöari heimsstyrjöldina. Starfinu fylgdu margar utanlandsferöir. Sá sem svipmyndin er af fór til Sviss, Frakklands og Þýskalands. í febrú- ar 1942 og haustið 1943 var honum fengið að vinna að viðskiptum við eitt landanna í Mið- Evrópu. Ferða- lögin áttu eftir aö hafa mikil áhrif á framtíð hans. Sunnnudag einn í júní 1944 hélt heimavamarliðið sænska æfingar við Drottningholm. Þar var sá sem hér er lýst í hlutverki liðþjálfa. Hann þótti góður þjálfari nýliða. Skyndilega kemur boðberi á reið- þjóli. Hann færir þeim sem hér er lýst skipun um aö koma á fund ráðningarstjóra utanrikisráðu- neytisins í Stokkhólmi. Skipunin varð upphafið að at- burðum sem áttu eftir að verða fréttaefni um allan heim og tengj- ast fólki í mörgum löndum. Margt af því telur sig geta þakkað þeim sem svipmyndin er af fyrir að vera álífi. Hver var hann? Svar á bls. 56 Matgæðingur vikurinar Sætt og súrt „Ég ætla ekki að veröa við ósk Önnu Svölu um gæsafyllingu, held- ur koma með kínverskan rétt,“ seg- ir Sigurmundur G. Einarsson, bankamaður í Vestmannaeyjum og matgæðingur vikunnar. Hann ætl- ar að bjóða lesendum upp á súrsæt svína/lambarif sem er mjög spenn- andi réttur, matreiddur í Wok pönnu. „Ég reyni að matreiða við hátíðleg tækifæri og hef mjög gam- an af því. Austurlenskur matur hefilar mig. Þessi uppskrift sem ég gef núna er að mestu eftir sjálfan mig þó ég styðjist oft við erlendar matreiðslubækur," segir Sigur- mundur. Hann segist t.d. hafa gam- an af að nota hvalkjöt í rétti sína. í þennan kínverska rétt, sem Sig- urmundur býður, má nota hvort sem er svína eða lambarif eftir smekk. Fyrst þarf að leggja kjötiö í marineringu og hún er löguð þanriig: Það sem þarf 1 kg svína/lambarif 'A bolli sykur 1 tsk. salt 1 msk. sojasósa 1 þeytt egg Kjötiö skorið í kubba og þeir sett- ir í löginn þar til hann hefur geng- ið inn í kjötið. Sætt og súrt 1 lítill grænn pipar niðurskorinn (hægt aö mala fimm kom) 1-2 afhýddir tómatar 1 lauf rifinn hvítlaukur 4 sneiðar af engiferrót, rifnar niður 1 gulur laukur, niðurskorinn /2 bolli vinedik Vi bolli púðursykur 1 tsk. salt 2 msk. kartöflumjöl /2 bolli niðurskorinn ananas, þurr Sigurmundur Einarsson, matgæðingur vikunnar. DV-mynd Omar, Eyjum Aðferðin Veltið marinemðu kjötinu í kart- öflumjöli þannig að það þekist vel. Hellið hálfum lítra af hnetuolíu (steikingarolíu) í Wok pottinn og hitið til að djúpsteikja kjötið þar til þaö verður ljósbrúnt á lit, ca 6-8 mínútur. Fjarlægist og þurrkist á pappír og haldist heitt. Ath! mjög gott er að hita kjötið aftur í olíu áöur en það er borið fram. Hreinsið pottinn og setjið síðan tvær matskeiðar af olíu til að steikja pipar, lauk, hvítlauk, og engifer í 1-2 mín. Setjið marinn tómatinn ásamt legi búnum til úr vínediki, púðursykri, salti ananas og kartöflumjöli í pottinn. Þegar gumsið hefur þykknað og er orðið tilbúið, berist þá fram með kjötinu. Gott er að bera fram með þessu gulan maís og hrísgrjón að sjálf- sögðu. „Ég ætla að skora á Kristínu Ósk Gestsdóttur (Kiddý kokk) að vera matgæðingur næstu viku,“ sagði Sigurmundur Einarsson, banka- maður í Vestmannaeyjum. -ELA Hinhliðin Langar ekki í stjómmál - segir Siggi Sveins, handboltahetja og fleira Sigurður Sveinsson handbolta- maður hefur í nógu aö snúast þessa dagana. Hann æfir með Selfoss- Uöinu og ekur á hverium degi aust- ur fyrir íjall eftir að vinnudegi lýk- ur. Á daginn starfar Siggi Sveins í Kringlusporti. Og að auki er hann með þætti á Aðalstöðinni. „Vinnu- dagurinn er langur hjá mér, frá níu á morgnana til tíu á kvöldin," segir Siggi. Hann segir að Selfoss-liöið stefni á að minnsta kosti einn titil þennan veturinn og því ýmislegt í vændum. Það er Siggi Sveins sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Sigurður Valur Sveins- son. Fæðingardagur og ár: 5. mars 1959. Maki: Sigríður Héðinsdóttir. Böm: Auður 5 ára og Styrmir tæp- lega tveggja ára. Bifreið: Subaru árgerð 87. Starf: Verslunarmaður og dag- skrárgerðarmaður. Laun: Þokkaleg. Áhugamál: íþróttir og eiginkonan. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Einhvemtíma fékk ég þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Það er að sjálfsögðu að spila handbolta og að vera með fölskyld- unni í leik og starfi. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Ætli það sé ekki að ryksuga íbúðina á sunnudagsmorgnum. Eg er mikill morgunhani og drif mig upp um helgar þótt aðrir í fjöl- Sigurður.Sveinsson. skyldunni sofi. Uppóhaldsmatur: Lambalæri „Be- arnaise". Uppóhaldsdrykftur: Kaldur bjór. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Þetta er erf- ið spuming en ég nefni Einar Öm Þorvarðarson og Gísla Felix Bjarnason. Uppóhaldstímarit: Ég les yfirleitt aldrei tímarit nema helst ég gluggi í íþróttablaðiö. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Jessica Lange. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? í augnablikinu er ég hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Ætli mig langi ekki helst að hitta Hannibal Lecter yfir léttum kvöldverði. Uppóhaldsleikari: Robert De Niro. Uppóhaldsleikkona: Jessica Lange. Uppóhaldssöngvari: Kenny Rogers. Uppóhaldsstjórnmólamaður: Allir jafn klikkaöir. Uppóhaldsteiknimyndapersóna: Skuggi. Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér ó landi? Ég er á móti því. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Aðalstöðin. Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigmar Guðmundsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Stöð 2. Uppóhaldssjónvarpsmaður: Bjami Fel. Uppáhaldsskemmtistaður: Hylur- inn á Selfossi. Uppáhaldsmatsölustaður: Götu- grillið - Ameríkumaður í París - í Borgarkringlunni. Uppáhaldsfélag í iþróttum? Selfoss og Þróttur. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtiðinni? Já, að verða ekki stjómmálamaður. Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég gerði mest lítiö. Fór þó í Svartá og veiddi fimm laxa. Það var fínt frí. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.