Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992. Er 15 ára og hefur þegar leikið í fjölda leikrita: Leiklistm ekki áhugamál hjá mér „Ég hafði engan áhuga á leiklist þeg- ar ég steig fyrst á sviö en áhuginn var fljótur aö koma eftir þá reynslu. Leiklistin er þó ekkert áhugamál hjá mér, þetta er miklu frekar eins og vinna sem ég hef mjög gaman af. Ég er ekki í leiklistarhóp eöa í leikiist í skólanum og hef aldrei leikið í skóla- leikriti. Ég hef mestan áhuga á körfu- bolta,“ segir ívar Öm Sverrisson, sem leikur stórt hlutverk í leikritinu Heima hjá ömmu, sem Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í Borgarleik- húsinu um síðustu helgi. ívar Öm er 15 ára gamall en hefur þegar öðlast töluverða reynslu sem sviðsleikari. Hann sté fyrst á leiksvið 9 ára gamall þegar Leikfélagið sýndi Land míns föður. Þá lék hann hlut- verk í Makbeð hjá Aiþýðuleikhúsinu og Kai Munk ungan í Kai Munk hjá Leikhúsinu í kirkjunni. ívar lék einnig í Vesalingunum í Þjóðleikhús- inu en fyrsta stóra hlutverkið var hlutverk Hrapps í Olíver (Twist) sem hann lék 12 ára gamall. Þá kom ívar Öm lítillega við sögu í kvikmyndinni Foxtrott og lék Tuma Sawyer í Stik- ilsberja-Finni sem fluttur var í út- varpinu. Nýverið lék hann í útvarps- leikritinu Eitthvert bam í Ríó sem flutt verður bráðlega. Leikritið Heima hjá ömmu gerist í Bandaríkjunum á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Það íjallar um svolítið sérstaka fjölskyldu þar sem amman, gyðingur, stálkerling og hið mesta hex, hefur alltaf haft síðasta orðið og kúgað böm sín til hlýðni. Sonur hennar hefur misst eiginkonu sína úr krabbameini og er skuldum vafinn eftir viðskipti sín við spítal- ana. Hann þarf að fara að heiman til að vinna fyrir skuldunum og kemur því tveimur sonum sínum, unglings- strákunum Kobba og Túra, fyrir hjá ömmunni á meðan. Persónur eða söguþráður verða ekki rakin hér en ívar Öm leikur annan strákanna, Túra, sem er „þrettán og hálfs“. Hann er á sviðinu nær allt leikritið sem tekur tvær og hálfa klukkustund í flutningi. Góðir dómar ívar Öm hefur aldrei lært leiklist, virðist „náttúrutalent". En hann hef- ur hlotið lofsamleg ummæli leikhús- gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína í Heima hjá ömmu þar sem meðal annars má lesa: „... gefur skóluðum leikurum ekkert eftir...“ og ....þessi unglingur, sem ekki hefur lært leiklist,. . . hefur hörkuhæfi- leika.“ - Hvemig fékkst þú fyrsta hlutverk- ið þitt? „Kjartan Ragnarsson vantaði ein- hvem strák til að leika á móti öörum strák í Land míns fóður þar sem margar sýningar voru í hverri viku. Mamma var með í þessari sýningu og Kjartan spurði hana hvort hún ætti ekki strák sem hefði áhuga á að vera með. Hún hélt reyndar ekki en ég vildi hins vegar prófa þetta og það gekk. Þetta voru þijú smáhlutverk en mér þótti ofsalega spennandi að leika á sviði og fannst það mjög skemmtilegt." ívar segir spennandi að fást við ólík hlutverk, fjölbreytnin geri skemmtilegt starf ennþá skemmti- legra. - Er erfitt að leika Túra? „Nei, ekki mjög. Þegar verið er að æfa leikrit er mjög gott að læra text- - segir fvar Öm Sverrisson „Eg hef lært heilmikiö af eldri leikurunum og finnst mjög gaman að vinna með þeim. Leikhúsið er stórkostlegur vinnustaöur, allt öðruvisi en allir aðrir sem ég þekki til,“ segir ívar Örn Sverrisson sem þrátt fyrir ungan aldur er ekki óvanur því að leika á sviði. Hann hefur þegar leikið í fjölda leikrita og getið sér gott orð fyrir leik sinn. ann sem fyrst, sem ég gerði, og losna við handritið. Þá getur maður ein- beitt sér betur að stöðum á sviðinu og að því aö skapa karakterinn. Ég hugsaði þó ekki sérlega mikið um Túra sem persónu, hann bara kom eiginlega þar sem hann er tiltölulega líkur mér. Svo hjálpar náttúrlega mjög góð leikstjórn Hallmars." Við ræddum viö ívar daginn eftir aðra sýningu, sem hann kallaði af- slappaða, þar sem mesta spennan eftir frumsýninguna var horfin. En getur ekki ýmislegt komið upp á í svona sýningu? „Jú, jú. Það getur einhver leikari hlaupið yfir setningu og þá getur stikkorð horfið. Þá er um að gera að fylgjast vel með og halda bara áfram eins og ekkert hafi ískorist." Bróðir líka með Þó ívar Öm segist ekki hafa neinn sérstakan áhuga á leiklist er óhætt að segja aö hann sé alinn upp í ná- lægð við leikhús og framkomu á sviði. Faðir hans er Sverrir Guðjóns- son, kennari, söngvari, kennari í Alexanderstækni og búksláttarmað- ur með meiru. Móðir hans er Elín Edda Ámadóttir, leikmynda- og bún- ívar örn, t.h., i hlutverki sinu sem Túri i leikritinu Heima hjá ömmu. Á myndinni eru einnig leikararnir Elva Ósk Ólafsdóttir (Bella frænka) og Gunnar Helgason (Kobbi). DV-myndir Brynjar Gauti ingahönnuður. Móðuramma hans hefur-unnið á saumastofu Þjóðleik- hússins um árabil og einnig lang- amma og móðurafi hans á smíða- verkstæðinu. Yngri bróðir ívars Amar, Daði, bráðum 14 ára, hefur einnig nokkra reynslu af að leika í leikritum, lék meðal annars í Olíver, Kai Munk og hinu nýja útvarpsleikriti. Meiri heimavinna ívar Öm er nemandi í 10. bekk í Langholtsskóla. Hann segist reikna með að fara í menntaskóla næsta vetur en er þó alveg óráðinn varð- andi framtíðina. „Ég hef ekki hug- mynd um hvað ég ætla að verða.“ - Nú em væntanlega stífar æfingar fyrir leikrit eins og þetta. Rekst ekki leiklistin á við skólann hjá þér? „Þegar við vorum að æfa Heima hjá ömmu varð ég að fara úr skólan- um eftir nokkrar kennslustundir á hverjum degi. Æfingarnar byijuðu klukkan ellefu og stóðu alveg til klukkan fiögur. Svo var líka æft á kvöldin en þá vom dagæfingamar styttri. Skólinn hefur hliðrað til fyrir mig svo ég geti stundað æfingar og það er mjög gott.“ - Enhefuröuekkiorðiðáeftirínám- inu? „Ég hef þurft að leggja harðar að mér við heimavinnuna. Nú sýnum við þrisvar í viku og æfingar eru hættar svo að ég hef náð að vinna upp það sem ég hafði dregist aftur úr. Svo er pabbi menntaður kennari og hefur hjálpað mér mikiö." - Verður þú ekki þreyttur að vera i skólanum, sinna áhugamálum og leika í leikriti þar sem þú ert á svið- inu nær allan tímann? „Ef ég verð þreyttur hvíli ég mig heima. Annars finnst mér gott að vinna á kvöldin og fannst alltaf betra að æfa á kvöldin en á daginn. Þegar ég lék í Olíver var ég stundum mjög þreyttur. En þá var ég bara tólf ára og hlutverkið gerði meiri kröfur til mín. Annars finnt mér gott að hafa nóg að gera, hafa alltaf eitthvað fyrir stafni. Þess vegna leggst ágætlega í mig að vinna með skólanum." Æfir körfubolta ívar Örn er mjög glaðlegur og hress strákur sem talar óþvingað og hisp- urslaust um hlutina. Eins og fram kom hér að ofan er körfubolti aðalá- hugamál hans. Kemst fátt annað að. Hann æfir með 10. flokki ÍR og fylg- ist vel með leikjum í körfuboltanum. Eins og vænta má er NBA-körfubolt- inn í Bandaríkjunum ofarlega á blaði en stórlið Cliicago Bulls er þar í miklu uppáhaldi, hefur verið það frá því hann var 12 ára. Á sumrin hefur Ivar Örn unnið í unglingavinnunni og einnig í auglýsingum, er til að mynda ’Cheérios-strákurinn í sjón- varpsauglýsingunum. Lært hjá þeim eldri Túri er stærsta hlutverk ívars til þessa. Hann segist ekki hafa átt von á að leika í jafn stóru hlutverki þegar hann var beðinn um að taka að sér hlutverk Túra. Hins vegar hafi þaö hjálpað að hafa reynslu og aö hafa unnið með reyndum leikurum. „Ég hef lært heilmikið af eldri leik- urunum og finnst mjög gaman að vinna með þeim. Leikhúsið er stór- kostlegur vinnustaður, allt öðruvísi en allir aðrir sem ég þekki til.“ ívar Öm segist ekki hafa verið beð- inn um að leika í fleiri leikritum en skyldi hann eiga sér eitthvert óska- hlutverk? „Nei, ég hugsa ekkert um það. Ég hélt satt að segja að ég væri hættur að leika þegar ég fékk hlutverkið í Heima hjá ömmu. Ég sækist ekki eft- ir að fá hlutverk og læt mér nægja að hugsa bara um það leikrit sem ég leik í hveiju sinni.“ -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.