Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992. Sérstæð sakamál Þrír sjóræningiar Hákarlamir voru famir aö synda kringum sökkvandi vélbátinn og mennimir þrír um borð gengu ör- væntingarfullir milli boröstokka og fylgdust með því er sjórinn gekk æ hærra upp eftir þeim. Á milli vom þeir önnrnn kafnir við að reyna að ausa bátinn. Sjór lak jafnt og þétt inn í hann en vélin gekk ekki og því var ekki hægt að ræsa dælumar. En þremenningamir höfðu ekki undan og því var þeim ljóst að það var aðeins spuming um hvenær en ekki hvort báturinn sykki undan þeim. Þá yrðu þeir hákörlunum að bráð og við tilhugs- unina setti að þeim hroll í öllum hitanum langt úti á Indlandshafi. Björgun á síðustu stundu En þremenningamir höfðu heppnina með sér. Skyndilega sáu þeir til skips úti við sjóndeildar- hringinn. Og það nálgaðist. Þeir fylgdust með því af áhuga. Vonandi breytti það ekki um stefnu fyrr en mennimir í brúnni hefðu komið auga á bátinn. Og svo var sem þeir gerðu það því allt í einu breytti skipið örlítiö um stefnu og stefndi nú beint á bátinn. Stundarfjórðungi síðar varð þre- menningunum ljóst að hér var flutningaskip á ferð. Og þegar það lagðist aö bátnum kom í ljós að hér var á ferö Corviglia frá Durban í Suður-Afríku. Þama hafði vissu- lega mátt litlu muna. Bátnum yrði ekki bjargað og nokkm síðar sökk hann. Allir voru glaðir yfir því að svo vel skyldi hafa tekist til á elleftu stundu. Ekki var þó hægt að til- kynna umheiminum um það sem gerst hafði því fjarskiptatæki Cor- viglia vom í ólagi. Og það kom sér ekki sem verst fyrir þremenning- ana því það var þeim í hag að sem fæstir vissu um ferðir þeirra. Grunsemdir vakna Skipstjórinn á Corviglia var í upphafi manna glaöastur yfir því aö hafa getað bjargaö þremur mannslífum. En þegar hann fór að ræða við þremenningana komst hann aö raun um aö þeir höfðu engin skilríki meðferöis og fannst honum sú skýring þeirra aö þau hefðu oröiö eftir í bátnum vart fá staðist. Þeir höfðu vissulega haft nógan tíma til aö taka úr honum jafnmikilvæga hluti og vegabréf. Þá fannst skipstjóranum frekar ólíklegt aö menn sem þessir hefðu átt jafndýran bát og þann sem sokkiö hafði. Þeir bára ekki með sér aö vera eignamenn heldur þvert á móti. Um hríö velti skip- stjóri því fyrir sér hvað hann ætti að gera. Svo ákvað hann að gera lögreglunni aövart þegar í land væri komið. Það reyndist skynsam- leg ákvörðun. Eftirlýstir fyrir morð og rán Lögreglan í Durban kom um borð í Corviglia er skipið lagði að bryggju en skipstjóri hafði gert henni orð með aðstoð hafnsögu- manns. Kom þá f ljós að í heilan mánuð hafði staðið leit að þremur mönnum sem eftirlýstir vora fyrir morö og bátsrán á Seychelles-eyj- um. Hafði málið fengið verulega umftöllun í blöðum og þótti með þeim sérstæðari um langan tíma. Þremenningamir, sem fundust á Indlandshafi, reyndust vera bræð- umir Len og Axel Lionel og Dave Antoine. Allir vora þeir á þrítugs- aldri. Ferðamannaparadísin Seychelles-eyjar. Þar vakti morðið mikinn óhug. Santos að sökkva vlð hllðlna A Corvlglla. Seychelles-eyjar eru með feg- urstu eyjum og hafa um langan tíma veriö eftirsóttur ferðamanna- staður. Hefur efnafólk einkum sótt þangað. Þar er hins vegar atvinnu- leysi eins og víðar og því njóta ekki allir Ijúfa lífsins sem ferðamann- anna bíður. Þannig höfðu þre- menningamir ungu fengið að kynnast dapurlegu hlið tilverunn- ar á eyjunum. Þeir höfðu búið í höfuðborginni, Mahé, en komist í kast við lögregluna og óttast hand- töku og fangelsun. Er þeir höfðu husgaö ráö sitt um hríð komust þeir að þeirri niðurstöðu að eina leiðin væri að flýja eyjamar. En hvemig gátu þeir það, eftirlýstir, vegabréfslausir og félausir? Lausnin talin fundin Loks töldu ungu mennimir sig hafa fundið lausnina. Þeir myndu stela bát og sigla frá eyjunum. Nú þurfti aðeins að finna réttan bát. Og brátt ákváöu þeir að reyna að komast yfir vélbátinn Santos sem var bæði öflugur og virtist fær í flestan sjó. Eigandi hans var efnað- ur plantekraeigandi, Reg Sout- hwell. Hann bjó á eyjunni Cerf, sem er ein ytri SeycheUes-eyja. Leigði hann stundum ferðamönnum bát- inn. Kvöldið sem bátnum skyldi rænt sat SouthweU veislu með nokkrum vina sinna á Mahé-strandhótelinu. Er Uðiö var að miðnætti hélt hann niður að Santosi en hann hugðist sofa í bátnum um nóttina. Er hann gekk niður að höfninni fylgdu í humátt á eftir honum ungu af- brotamennimir þrír en þeir hugð- ust einnig ræna fé af SouthweU. Kom síöar fram að tilvfijun hafði í rauninni ráðið því að þeir ákváðu að stela þessum bát en ekki ein- hverjum öðrum. Sú tilvUjun varð Reg SouthweU til ólífis. Morðingjarog sjóræningjar Þremenningamir biðu þess við bátahöfnina aö ljósin um borö í Santosi slokknuöu. Er þeir töldu að eigandinn væri sofnaður lædd- ust þeir um borð. Var ætlun þeirra sú að yfirbuga hann. En SouthweU vaknaði og snerist til vamar af miklum ákafa. Um hríö stóðu mik- U átök en svo féU SouthweU í höfn- iná. Nokkram augnablikum síða vora ungu mennimir orðnir að morðingju'm. Dave Antoine svipaðist í skyndi um eftir einhverju sem hann gæti notað til að beija á bátseiganda með. Það nærtækasta var krók- stjaki og með honum lagði hann nú til Southwells þar sem hann reyndi að halda sér á floti í sjónum en áöur hafði Alex Lionel stungið hann mörgum sinnum með hnífi. Bróðir hans, Leon, lagöi svo sitt til með. því að berja á Southwell með jámstöng. Eftir atiöguna sáu þremenning- amir aö lík SouthweUs rak á bak- inu burt frá bátnum. Flóttinn Vél Santosar var nú ræst. Hún reyndist aflmeiri en þremenning- amir höfðu gert sér grein fyrir og eftir skamma stund var báturinn kominn út úr höfninni í Mahé. Var nú tekin stefna á haf út. í óðagotinu eftir morðið lá ungu mönnunum svo mikið á að þeir hugðu hvorki að vistum né eldsneyti og má segja að það hafi verið í stíl við þá van- hugsuðu áætiun að ætia að sigla út á Indlandshaf án nokkurrar þekkingar á úthafssighngum. Reyndar var æsingurinn svo mikUl að komast burt að akkerið var ekki tekið um borð. Dró bátur- inn það því á eftir sér og var ekki annað að sjá en eitthvað hefði fest í því. En svo var sem það sem hékk á þvi dytti af. Tókst þá að ná akker- inu inn. Þremenningarnir voru þeirrar skoðunar að líkið af Southwell kynni að hafa fest í akkerinu og vera mætti að hákarl hefði gripið það og losað. Einn ungu mannanna var reyndar svo kaldhæöinn aö segja glottandi að vera mætti að SouthweU heföi aUs ekki verið dá- inn. Hann hefði náð taki á akkerinu en orðið bráð hákarls. Daprir í bragði Það vottaði hins vegar ekki fyrir brosi á neinum þremenninganna þegar lögreglan í Durban leiddi þá í land eftir að skipstjóri CorvigUa hafði gert boð fyrir hana. Skömmu síöar kom einnig í ljós að þetta vora mennirnir þrír sem eftirlýstir vora á SeycheUes-eyjum. Skömmu eftir bátsránið hafði eintijáningur þremenninganna fundist á strönd- inni. Einnig höfðu fundist fótspor í sandinum og sömuleiðis greiða með nafni Daves Antoines. Sagan um að CorvigUa hefði kom- ið að Santosi eldneytislausum, mataralausum, nær vatijslausum og sökkvandi, á síðustu stundu í orðanna fyllstu merkingu, varö víöa fréttaefni. En mannanna þriggja, sem ekkert hafði um tíma virst bíða nema að verða bráö há- karla, biðu nú ákærur og réttar- höld. Eftir að lögreglan í Durban hafði yfirheyrt þá var þeim tilkynnt að þeir yrðu fluttir til Seychelles-eyja. Eftirmálin Á SeycheUes-eyjum vora flestir á eínu máU um hvaö biöi þeirra Lion- el-bræöra og Daves Antoines. Moröiö á Reg SouthweU haföi vakiö mikla reiði og reyndar höföu marg- ir haft af því áhyggjur aö þaö yrði til þess að draga úr áhuga ferða- manna á eyjunum en ferðamanna- iðnaðurinn er ein helsta tekjuUnd eyjarskeggja eftir að Bretar veittu þessari fyrrum nýlendu þeirra sjálfstæði. Ekki hefur þess gætt að atburður- inn hafi orðið til þess að draga úr ferðamannastraumnum. Hann hef- ur aftur á móti leitt til þess að ýmsir hafa farið að rifja upp Utríka sögu sjóræningja þama á eyjunum á fyrri tíö. Þá höfðu þama tímabundið að- setur frægir sjóræningjar á við La Buze og John England. Og þeir settu það ekki fyrir sig að kasta mönnum fyrir hákarla. Tækju þeir fanga sem þeim fannst ástæða til að taka af lífi var þaö venjulega gert á þann hátt að binda um þá reipi, kasta þeim fyrir borð á sjó- ræningjaskipunum og bjóða þá hákörlunum. Réttarhöldunum yfir Len og Alex Lionel og Dave Antoine lauk með því að allir vora þeir dæmdir í lífs- tíðarfangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.