Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 11
LAUGARDÁGUR 24. OKTÓBER 1992.
11
Vísnaþáttur
Jón úr Vör
fleiri vísur úr þeirri bók sem ég
nefni. Jón úr Vör
Á stríðsárunum síðustu gerðust
veður öll válynd í þjóðréttar- og
menningarsögu íslendinga, eins og
annarra þjóða. Viðbrögðin voru
margvísleg. En heimurinn allur
breyttist og hefur, eins og allir vita,
ekki orðið samur síðan. Um það
verða menn aldrei sammála hvað
hefur orðið til góðs. Ekkert er með
öllu illt, en eitt er víst að almenn
mannást og samúð með öllum sem
eiga bágt og verða að þola þjóðern-
islega kúgun og efhalegt misrétti,
hefur varla enn komist í samt lag.
Þetta leyfir sér maður á mínum aldri
að fullyrða. Ég var tvítugur þegar
síðari styijöld hófst, mótaður af
mannúðarstefnu millistríðsáranna.
Þáttastjóri er ekki vel að sér í
átthagafræðum. Ekki nóg að heyra
eða sjá nöfn og bæjarheiti til þess
' að geta séð hvar höfundarnir eiga
sínar rætur, en lesendur vilja vita
nokkur deili á höfundum vísnanna.
Ég kasta fram spumingum. En
bréfin, sem ég fæ, eru æði fá. Fæð-
ingarárs er auðvelt að afla sér. En
er maðurinn á lífi? Ef ekki, þá er
æskilegt að geta birt dánarár og
nokkur orð um stöðu og störf, enn-
fremur helstu dvalarstaði. Ég á oft-
ast í fórum mínum eina eða fleiri
vísur, sem ég birti síðar, þegar mér
berast persónusögulegar upplýs-
ingar. Hafið mig í huga, lesendur
góðir. Heimilisfang: Fannborg 7,
Kópavogi.
Húnvetningaljóð komu út í all-
stórri bók á Akureyri 1955 og voru
höfundamir rúmlega sextíu. Hve
margir þeirra em nú fallnir frá?
Og hvað mætti segja meira af höf-
undar- og starfsferli þeirra, en gert
er í bókinni? Hér eru aðeins fáir
höfundar nefndir og vísur fáar.
Þóra Jónsdóttir frá Kirkjubæ í
Norðurárdal, f. 1895, var dóttir
Halldóru Einarsdóttur frá Bólu í
Skagafirði og manns hennar, Jóns
Jónssonar. Það var skagfirsk hag-
mælskuætt. Varð húsfreyja í
Reykjavík, mun nú látin. Hér eru
þrjár vísur eftir hana sem bera
heitið Svar.
Árblik skráir unaðsspá
æsku gljáir drauma.
Vekur þrá, er útsýn á
yfir bláa strauma.
Geislaslóðir hulduhljóð
heillar fljóð að drengjum.
Sjafnarglóðir sólaróð
seiða af ljóðastrengjum.
Ýmsir fást þar um og slást,
óska, þjást og dreyma.
Rúnir mást, er ristir ást,
ráð er skást að dreyma.
Arinbjörn Ámason frá Neðri-
Fitjum, Víðidal, f. 1904, starfaði í
Hafnarfirði og Reykjavik:
Roðar tinda röðull fagur,
reifar gulli dal og hól.
Rís í austri dýrðardagur.
Drottin lofa jörð og sól.
Ljómar snilli lífs á grund,
ljósið gyllir voga,
Iðar hilling yst við sund
öll í stilliloga.
Auðunn Bragi, fyrrverandi
skólastjóri, sonur Sveins frá Eli-
vogum, fór snemma til náms heima
og erlendis. Hann hefur gefið út
bækur, þýtt og frumsamið, enn
starfsamur, f. 1923. Fyrsta tilfærð
vísa er ort yfir moldum Elivoga-
skáldsins:
Hann mót neyð og heimsins önn
hart nam ota spjótum.
Hans á leiði heiðahvönn
hefur skotið rótum.
Hallgrímur Jónasson yfirkennari
flutti oft ferðaþætti í útvarpið. Til
hans orti Auðunn þessar stökur:
Meir en tísku og munaðspijál
metur gróður jarðar,
öræfanna söngvasál,
sonur Skagafjarðar.
Stakan heillar hugann þrátt,
hækkar andans veldi.
Þú berð merki hennar hátt
að hinsta ævikveldi.
Og um vorið í Laxárdal:
Ekki er lengi að leysa snjó
Laxárdals úr hlíðum,
þegar Suðri sendir nóg
af sunnanvindum þíðum.
Bjöm Daníelsson, f. 1920, skóla-
stjóri á Sauðárkróki, gaf út bækur,
en féll frá ungur að aldri. Tvær
vísur eftir hann:
Ef hríð er grá og heillatreg,
með hóp af fláum draugum,
lýsa þá um langan veg
ljós úr bláum augum.
Þótt sölni grösin græn á vori,
glói hrím á blaði og steinum,
gróðurilm úr gengnu spori
geymum við í hugans leynum.
Þormóður Pálsson frá Njálsstöð-
um í Austur-Húnavatnssýslu, f. 1914,
lengi gjaldkeri Tóbakseinkasölunn-
ar og bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Þó að orni enn við fund
ylur handabandi.
Finnst mér eins og seilst
um sund
sitt frá hvom landi.
Helgimyndir heimskunnar
hyllir blindur fjöldinn.
Svo fer yndi æskunnar
allt í syndagjöldin.
Nú leyfi ég mér að bíða eftir bréf-
um um það efni, sem ég nefni í
upphafi þessa máls. Síðar koma
Sýnum einnig
fjölbreytt úrval
fylgihluta fyrir JCB
vélar.
JCB mest seldu
traktorsgröfurnar
á Islandi í dag.
-heimurgœða!
Laugardaginn
24. október frá
kl. 13.oo - 17.oo í
sýningarsal Globus,
Lágmúla 5
Sýnum
VÖKVA-SERVO og
POWER skiptingar
í nýju JCB
tra kto rsg röf u n u m.
Komið og kynnist af
eigin raun
fullkomnum og
öflugum
traktorsgröfum.
Efhríðergrá...