Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 24, OKTÓBER 1992. 45 Hressir unglingar í 8. bekk Hagaskóla: Fólk sér ekki engla eins og okkur „Það er svo dýrt fyrir okkur að kaupa skó, fót og fleira sem við þurf- um að réttast væri aö veita okkur unglingabætur. Við fáum vasapen- inga fyrir að hjálpa til heima, taka til, vaska upp, skúra og laga kaffl en þeir duga bara ekki. Það er dýrt að stunda áhugamálin sín og ef maður ætlar að fá sér flottar galla- buxur kosta þær 7 þúsund krónur. Það gengur ekki,“ sögðu nokkrir unglingar sem DV rakst á í strætó- biðskýli við Hagaskóla. Krakkamir eru aÚir í 8. bekk Hagaskóla og eru alls ófeimnir við að tjá sig um allt milli himins og jarðar. Þetta eru þau Elísabet, Krislján, Axel, Guðbjörg, Edda Hrönn, Gríma, Agnes og Ás- laug. Tilefni samræðna okkar var með- al annars að fimmtudaginn 29. okt- óber verður haldinn sérstakur ungl- ingadagur. Hann er skipulagður af nefnd, þar sem meðal annars sitja fiilltrúar Unghngaheimilis ríkisins. Tilgangur unglingadagsins er að vekja athygli á lífi og starfi ungl- inga, því umhverfi sem unglingar alast upp í, jákvæðum og neikvæð- um hhðum, og þeim hættum sem unglingar standa frammi fyrir í nútímajjjóðfélagi og gildi forvamar- starfs. I fréttatilkynningu segir að þegar unglingar séu að mótast og stíga sín fyrstu skref til fuhorðins- ára verði þeir því miður oft fóm- arlömb ýmissa fylgifiska nútíma þjóðfélags, þar sem hraði, spenna og veikari staða fiölskyldunnar er áberandi. Á unglingadaginn verður reynt að fá fyrirtæki og stofnanir til að bjóða unglingum vörur og þjónustu á sér- stökum kjörum. Fjölbreytt dagskrá verður í gangi sem endar á ungl- ingahljómleikum í Reykjavík um kvöldið. „Unglingadagur, við höfum ekkert heyrt um hann. Hvað er nú það?“ sögðu krakkamir í biðskýlinu en virtust engu að síður fullir áhuga. Ráðherrakonur sitji heima Við ræðum um þann vanda sem blasir við í þjóðfélaginu, þar sem gjaldþrot og uppsagnir em nær dag- legt brauð. Ástandið leggst illa í krakkana og þeim hst ekkert á að taka við öllu í msh. „Það á að hækka atvinnuleysisbætumar og minnka um leið launin hjá ráðherrunum. Þeir hafa það alveg nógu gott,“ segja þau. - Enhvaðmynduðþiðgeraefþið fengjuð að ráða þjóðfélaginu? „Við myndum byija á aö stytta skólann og minnka heimalærdóm- inn. Það tekur ahan daginn að vera í skólanum og læra heima, við fáum varla tíma th að stunda áhugamál- in.“ - Enþiðverðiðaðleggjaeitthvaðá ykkur, erþaðekki? „ Jú, jú, en okkur finnst þetta samt.“ Gríma, Agnes og Áslaug halda áfram: „Okkur finnst að ráðherr- amir ættu að fá lægri laun og spara meira við sig. Þeir em ahtaf í út- löndum og lifa flott og taka svo kon- umar með. Þeir eiga að láta konum- ar sitja heima. Svo ættu þeir að kaupa sína eigin bha og borga bens- ínið sjálfir eins og aht venjulegt fólk.“ Hin taka imdir þessi orð og einnig heyrist: „Það má hins vegar ekki spara með neinum látum hjá - þykirvandamálmveramjögýktaffullorðnum ríkinu, það verður að gerast jafnt og þétt tíl aö skehurinn verði ekki of mikih fyrir fólk.“ Frekaríbíó enbæinn Krakkamir segjast oft nota félags- miðstöðina sína, Frostaskjól. Fóm sumir þeirra í ferð þaðan í Stykkis- hólm um síðustu helgi og fannst mjög gaman. Þeir segja böh og diskótek vera reglulega í skólanum og em hrifnir af því. En fara þeir í bæinn um helgar? „ Jú, stundum," segja sum og bæta þó við aö það sé misskemmtílegt. Guðbjörg hefur ákveðna skoðun á bæjarferðum á kvöldin: „Það er miklu skemmthegra að fara í bíó en hanga niðri í bæ í skítakulda," segir hún og fleiri taka undir. Fáir unglingar til vandræða - Núerahtafveriðaðtalaum vandamál unglinga, hvað finnst ykkurumþað? Kristján: „Þetta með vandamálin er tómt kjaftæði og mikiö ýkt. Það er stundum eins og allir haldi að unglingar séu ahtaf fullir og aht það. Það er mjög ýkt mynd.“ Hin bæta viö: „Það era mjög fáir ungl- ingar sem em th vandræða en það er gert svo mikið vandamál úr því. Við föhum næstum í skuggann af vandamálaunglingunum þannig að fólk sér ekki „engla“ eins og okk- ur,“ segja þau og hlæja hátt. - Verðiðþiðmikiðvörviðstétta- skiptingu í skólanum ykkar þar sem sumir hafa aht th ahs en aðrir ekki? „ Já,“ segja þau öh „ hún er mjög áberandi. Sumir virðast ahtaf eiga fuht af vasapeningum, ganga um 1 nýjum og flottum fötum meðan sumir virðast ekki fá neitt. Þaö er kannski ekki svo gott að fá ahtaf aht, það getur ruglað fólk. Það hefn- ir sín kannski þegar þessir krakkar þurfa að standa á eigin fótum seinna. Þeir geta ekki endalaust leit- að th pabba og mömmu.“ Tónlistoghestar Við spyijum að lokum hvað krakkamir æth að verða seinna meir. Krislján: „Ég ætla að verða tón- listarmaður. Eg spha í rokkhljóm- sveit, á trommur og hljómborð. Við höfum sphað á skólaböhum í Vest- urbæjarskóla en vantar almennilegt nafn.“ Þess má geta að Kristján er afabam Baldurs Kristjánssonar, þekkts píanista á árum áður. Gríma: „Ég ætla að verða tamn- ingamaður, ég hef mjög gaman af hestum. ég á ekki sjálf hest en frændfólk mitt á hesta svo ég kemst stímdum á bak. Það er æðislegt." Elísabet: „Mig langar að læra inn- anhússarkitektúr. Eg hef gaman af húsum og innbúum og svo býst ég við að maöur getí orðið ríkur sem innanhússarkitekt.“ Krakkamir vom að bíða eftír strætó í nepjunni þegar við ræddum við þá. Þeir slepptu einni ferð th að slíta ekki samtalinu en nú var strætó aftur væntanlegur og öhum orðið kalt. Því kvöddum við þessa hressu og skemmthegu krakka. -hlh „Ráðherramir eiga að láta konurnar sitja heima þegar þeir ferðast. Svo ættu þeir að kaupa sina eigin bíla og borga bensinið sjálfir eins og allt venjulegt fólk,“ segja þau (f.v.) Elísabet Ásgeirsdóttir, Kristján H. Kristjánsson, Axel Pétursson, Guðbjðrg Vigdfs Guðmundsdóttir, Edda Hrönn Kristinsdóttir, Gríma Jónsdóttir, Agnes Hrönn Gunn- arsdóttir og Ásiaug Dröfn Sigurðardóttir, nemendur i 8. bekk Hagaskóla. DV-mynd GVA ISKNATTLEIKSFELA6IÐ mA BJÖRNINN B1ÖRNINN Æfingatímar vetrarins Sunnudaga: Þridjudaga: Fimmtudaga: 18:15-19:05 19:05-19:55 19:55-20:45 20:45-21:35 21:35-23:15 21:35-23:15 18:05-18:55 18:55-19:45 19:45-20:35 20:35-21:25 9ára og yngri drengjaflokkur drengjaflokkur unglingaflokkur meistaraflokkur meistaraflokkur drengjaflokkur drengjaflokkur unglingaflokkur meistaraflokkur Skráning og upplýsingar verða á æfingatímum niðrá skautasvellinu í Laugardal um leið og svellið opnar. ALLIR VELKOMNIR Stjórn Í.K.B. skautar þeirra BESTU KRINGLU Oooper ÍSHOKKÝVÖRUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.