Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1992, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992.
17
Bridge
Sveit Suðurlandsvideós, bikarmeistari í bridge árið 1992. Frá vinstri eru
Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson, Matthías Þorvaldsson, Björn Ey-
steinsson, Aðalsteinn Jörgensen og Guðlaug Jónsdóttir, fyrirliði án spila-
mennsku sem heldur á farandbikarnum.
Bikarkeppni BSÍ 1992:
Fimmti bikar-
meistaratitill Jóns
Úrslit bikarkeppni Bridgesam-
bands íslands voru spiluð í miðjum
þessum mánuði og sveit Suður-
landsvideós vann þá yfirburðasigur
á sveit Eiríks Hjaltasonar.
Þeir sem skipa sveit Suður-
landsvideós eru Aðalsteinn Jörgen-
sen, Jón Baldursson, Matthías Þor-
valdsson, Sverrir Armannsson og
Björn Eysteinsson. Þeir voru allir í
sveit Landsbréfa sem vann íslands-
meistaratitilinn í vor, að viðbættum
Magnúsi Ólafssyni og hafa þeir félag-
arnir þar með unnið tvær stærstu
sveitakeppnir spilaársins.
Jón Baldursson var með sigri sín-
um í bikarkeppninni að bæta fimmta
titlinum í safnið en það hefur enginn
bridgespilari leikið eftir honum. Síð-
asta laugardag birtist röng mynd
með texta um umfjöllun úrslitaleiks-
ins í bikarkeppninni, en hér birtist
mynd af bikarmeisturum ársins 1992
þegar þeir tóku á móti verðlaunum
sínum.
-ÍS
Minningarmót
Einars Þorfinnssonar
Hið árlega Minningarmót Einars Þorfinnssonar var spilað laugardaginn
17. október í Gagnfræðaskólanum á Selfossi. Keppnisstjóri var eins og
síðustu ár hinn röggsami Hermann Lárusson og í ár var honum til aðstoð-
ar dúfa í samlitum jakkafótum sem flaug um spilasalinn og hafði hún
góða yfirsýn yfir gang mála.
Þeir aðilar sem gera Bridgefélagi Selfoss kleift að halda þetta mót eru
Búnaðarbankinn, íslandsbanki, Landsbankinn og Bæjarsjóður Selfoss.
Spilaður var barómeter eins og venja er í þessu móti með þátttöku 38
para. Þetta er í tólfta sinn sem þetta mót er haldið og var það vel skipað
sterkum pörum að venju.
Eftir ellefu tíma spilamennsku stóðu uppi sem sigurvegarar þeir Eirík-
ur Hjaltason og Ragnar Hermannsson með 242 stig yfir meðalskor. Verð-
laun voru veitt fyrir 5 efstu sætin, samtals krónur 180 þúsund. Röð efstu
para varð þessi:
1. Eiríkur Hjaltason-Ragnar Hermannsson 242
2. Matthías Þorvaldsson-Sigurður Sverrisson 213
3. Aðalsteinn Jörgensen-Bjöm Eysteinsson 166
4. Hjördís Eyþórsdóttir-Ásmundur Pálsson 162
5. Hjalti Eliasson-Páll Hjaltason 158
6. Jón Baldursson-Sverrir Armannsson 152
7. Sveinn Þorvaldsson-Gísli Steingnmsson 126
8. Ólafur Lárusson-Páll Valdimarsson 107
Höskuldarmótið
Nú er lokið fjórum kvöldum af 5 í aðaltvímenningi B. Selfoss, Höskuldar-
mótinu. Spilaður er tölvugefinn barómeter og spiluð eru 7 spil milli para.
Mótsstjóri og reiknimeistari er Þröstur Ámason. Tuttugu og tvö pör taka
þátt í mótinu og er það með því besta sem gerist hjá félaginu. Staðan er
þessi á toppnum í keppninni:
1. Sigfús Þórðarson-Gunnar Þórðarson 232
2. Vilhjálmur Þór Pálsson-Guðjón Einarsson 200
3. Þórður Sigurðsson-Runólfur Jónsson 135
4. Helgi G. Helgason-Krislján Már Gimnarsson 114
Næsta mót hjá félaginu er hraðsveitakeppni og hefst hún fimmtudaginn
29. október. Sveitaforingjar eru beðnir að skrá sig hjá Ólafi formanni á
spilakvöldum eða í síma 21319. Bæjarkeppnin við Hafnarfjörð verður
spiluö laugardaginn 7. nóvember og í ár verður spilað í Hafnarfirði.
Bæjarkeppnin við Kópavog verður trúlega spiluð fóstudaginn 29. nóvemb-
er á Selfossi en það skýrist betur þegar nær dregur.
Ábridgeheilræðakeppni BOLS:
Láttu ekki and-
stæðingana vita að
þú sért í vanda!
Það er bandaríski bridgemeistar-
inn Matt Granovetter sem gefur
bridgeheilræði dagsins, en sem
kunnugt er vann hann nýlega No-
vato-stjömu-einmenningskeppnina
og hlaut að launum knippi af dollara-
seðlum.
Einmenningskeppnir hafa átt
auknum vinsældum að fagna und-
anfarið og til marks um það má geta
þess að Bridgesamband íslands hefur
að nýju hafið keppni um íslands-
meistaratitil í einmenningskeppni en
keppni um hann hefur legið niðri um
nokkurra ára skeið. Keppnin hófst í
gær og lýkur í dag en spilað er í
húsnæði BSÍ við Sigtún.
En víkjum aftur að bridgeheilræði
Granovetters: „Þegar ég spurði Pam-
elu konu mína hvaða heilræði ég
gæti gefið í keppninni í ár minnti hún
mig á heilræði sem Victor Mitchell
hafði kennt okkur. Hann er þekktur
sem sérfræðingur sérfræðinganna í
New York og þegar hann er ekki á
veðreiðabrautinni er hann að kenna
góðum spilurum að bæta spila-
mennsku sína.
Einu sinni var hann að spila í tví-
menningskeppni á móti Pamelu og
gaf henni eftirfarandi ráð: Ef þú þarft
að geta í íferð í hliðarlit skaltu ekki
upplýsa stöðuna með því að hika á
úrslitastundinni!
Þegar ég er í vörn finnst mér best
að eiga við góða sagnhafa sem hægja
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
á sér á úrslitastimdu í stað þess sem
spilar alltaf nokkuð hratt. Heilræði
Victors kom vel í ljós í þessari
keppni. S/A-V
♦ G865
V ÁD1042
♦ 87
+ 65
♦ 1032
V G5
♦ ÁD95
+ ÁD93
* D
V K6
* 10642
* G108742
* ÁK974
V 9873
♦ KG3
+ K
Flestir suðurspilaramir spiluðu
spaðabút og fengu hálitarútspil. Þeg-
ar tromp kom út tóku sagnhafar
trompin og spiluðu síðan hjarta og
svínuðu drottningunni. Austur drap
á kónginn og flestir spiluðu síðan
tígli til baka. í þessari stöðu tóku
suðurspilaramir sér umhugsunar-
frest og létu síðan flestir gosann.
Alla vega tók vestur síðan hitt tígul-
háspilið og síðan laufaás. Þrír unnir.
Við borð Pamelu hafnaöi Victor í
þremur spöðum. Victor drap tromp-
útspilið, tók tvisvar tromp og svínaði
hjartadrottningu. Þegar austur spil-
aði tígli til baka lét hann umsvifa-
laust kónginn. (Hann var áður búinn
að ákveða að setja kónginn ef hjarta-
svíningin misheppnaðist og austur
spilaði tígh.) Vestur drap tígulkóng-
inn með ásnum og dró þá ályktun
að austur ætti tígulgosann þar eð
sagnhafi lét umsvifalaust tígulkóng-
inn þegar tíglinum var spilaö. Æstur
í að hnekkja spilinu spilaði hann
undan tíguldrottningunni og Victor
fékk tvo yfirslagi og næstum topp
fyrir spilið.
Stefán Guðjohnsen
GRUfiDiG ESFISHER
Gæði á góðu verði
Fullkomið heimilismyndbandstæki
29.900
Áður kr. 39.950 - verð nú
stgr.
stereo
litsjónvarpstæki
Nicam stereo myndbandstæki
40%
afsláttur
25" s.gr 99.900
28" s,gr 109.900
33" s,g, 199.950
áður kr. 83.278 - verð nú
49.900
stgr.
Opið laugardaga
SJÖNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
Síðumúla 2 - sími 68-90-90
Fjölskyldutilboð:
Þú færð einn og hálfan
lítra af Pepsí og
brauðstangir frítt með
stórri fjölskyldupizzu.
Hádegishlaðborð:
Heitar pizzusneiðar
og hrásalat eins og þú getur
í þig látið fyrir aðeins 590 kr.
alla virka daga frá kl. 12-13.
Hausttilboð:
Heit Hawaianpizza
fyrirtvo ásamtskammti
af brauðstöngum
á aðeins 1.090 kr.
Hótel Esju, sími 680809
Mjódd,sími682208