Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Page 12
12
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992.
I skotgröfum fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Erlend bóksjá
Arabíu-
Isabelle
Isabelle Eberhardt átti það
sameiginlegt með Arabíu-Lawr-
ence að vera Evrópubúi sem
heillaðist gjörsamlega af eyði-
mörk Arabíu.
Hér er stuttu en ævintýralegu
lífshlaupi þessarar rússneskætt-
uðu skáldkonu ítarlega lýst. Hún
ólst upp í Evrópu á síöari hluta
síðustu aldar en varð snemma
hugfangin af arabaheiminum
sem þá var einkum skipt upp á
milh Frakka og Breta. Hún hélt
út í eyöimörkina og skrifaði um
reynslu sína greinar og sögur.
Isabelle hagaði sér gjarnan á
mjög óhefðbundinn hátt: drakk
ótæpilega, ánetjaðist hassi og átti
mök við fjölda karlmanna, ferð-
aðist stundum með leynd í karl-
mannsklæðum, kvæntist loks
arabískum hðþjálfa, tók trú íslam
og gekk í leynireglu Sufi-manna.
Eins og þessi æviatriði bera með
sér var Isabehe óvenjuleg kona
sem lést einungis 27 ára að aldri
í náttúruhamfórum á útkjálka í
eyðimörkinni.
ISABELLE.
Höfundur: Anette Kobak.
Penguin Books, 1992.
Mannfólk í
Ramagarði
Arthur C. Clarke, einn kunn-
asti höfundur visindaskáldsagna
á öldinni, samdi fyrir nokkrum
árum forvitnilega bók um mann-
laust geimfar sem nálgaðist jörð-
ina og viðbrögð jarðarbúa viö
þessum óvænta og torkennilega
gesti. Síðan hefur hann samið
tvær framhaldsbækur í sam-
vinnu við Gentry Lee.
Þessarar þriðju sögu um Rama
hefur verið beðið af aðdáendum
Clarkes með nokkurri eftirvænt-
ingu því síðustu sögunni lauk
þegar Rama stefndi á brott með
nokkra jarðarbúa innanborðs.
Nýja sagan tekur við þar sem sú
fyrri hætti og lýsir fór Rama út
úr sólkerfinu og til baka aftur.
Garden of Rama veldur óneit-
anlega nokkrum vonbrigðum.
Hér fer ahtof htið fyrir þeim efni-
stökum og hugmyndaauðgi sem
einkennir fyrri sögur Clarkes.
Kannski mætti orða það svo að
hér sé of htið af Clarke og of mik-
ið af Lee.
THE GARDEN RAMA.
Höfundar: Arthur C. Clarke
& Gentry Lee.
Bantam Books, 1992.
Skotgrafahern-
aður fyrri heims-
styrjaldarinnar
hlýtur aö teljast
th eins af meiri-
háttar glæpum
mannkynssög-
unnar. Úrræöa-
lausir stjórn-
málamenn og
herforingjar
Þýskalands,
Bretlands og Frakklands slátruðu þá
blóma ungra manna þjóða sinna í
mannfórnum sem ekki áttu sinn líka.
Þeir sem sluppu lifandi úr þessu
víti voru yfirleitt ilhlega meiddir fyr-
ir lífstíð, ekki síður andlega en líkam-
lega. Lífsreynslan í skotgröfunum
var einfaldlega svo óhugnanleg að
tilfinninga- og taugakerfi flestra
hlaut að bila um lengri eða skemmri
tíma við svo ómanneskjulegt álag.
Andleg endurhæfing
Þeir hermenn Breta, sem þoldu
ekki álagið og „fóru á taugum", voru
sendir á sérstök sjúkrahús eða hæh
til geðlækna sem reyndu að lappa
upp á sálarlífið svo hægt væri að
senda þá aftur á vígvöhinn. Einna
kunnast slíkra hæla var stríðs-
sjúkrahúsið í Craiglockhart í Skot-
landi. Þangað voru tíl dæmis Sieg-
fried Sassoon og Wilfred Owen send-
ir tU meðferðar hjá dr. Rivers, einum
helsta sérfræðingi í taugasjúkdóm-
um á þeim tíma.
Sassoon hafði þá þegar hlotið nokk-
urt umtal sem ungt ljóðskáld. Owen
öðlaðist fyrst slíka viöurkenningu
eftir dauðann, en hann er nú talinn
langfremst þeirra bresku skálda sem
ortu um óhugnað fyrra heimsstríðs-
ins.
Þeir voru reyndar komnir til Craig-
lockhart af ólíkum ástæðum. Owen
tU að ná sér eftir alvarlegt taugaáfaU
í skotgröfunum en Sassoon fyrir að
hafa sent frá sér skriflega áskorun
til stjórnmálamannanna um að
hætta tilgangslausu blóðbaðinu.
Hann vonaðist reyndar tU að sér yrði
stefnt fyrir herrétt fyrir áskorunina,
en vinir hans - þar á meðal annar
verðandi rithöfundur, Robert Graves
- komu því svo fyrir að hann var í
staðinn sendur til andlegrar endur-
hæfingar í Craiglockhart.
Söguleg skáldsaga
Regeneration er söguleg skáldsaga
um veru Sassoons og Owens í Craig-
lockhart og tilraunir dr. Rivers tíl
að koma lagi á geðheUsu þeirra og
annarra stríðshijáðra ungra manna
sem sendir voru til hans.
Það er vafalaust djarft teflt að
skrifa skáldverk um jafn þekkta ein-
stakhnga og Sassoon og Owen en
höfundurinn kemst afar vel frá því
verki. Sagan, sem fiallar í raun-
sæisstíl um andlegar ógnir og ólíkar
leiðir einstakhnganna tU að ná taum-
haldi á þeim, er öguð, læsileg og
æsingcdaus.
Sumir héldu frá Craiglockhart tU
að lifa. Sassoon lést til dæmis ekki
fyrr en 1967. En Owen var sendur út
í stríðið á ný og drepinn rétt áður en
vopnahléð var samiö árið 1918.
REGENERATION.
Höfundur: Pat Barker.
Penguin Books, 1992.
ItwkWyMd**
jB omiia mi
IU S T fN W l N T L E
Ferðalag
um Víetnam
Tvennt kemur einkum fram í
hugann þegar minnst er á Víet-
nam. Armars vegar sú langa og
hörmulega styijöld sem háð var
í landinu fram á miðjan áttunda
áratuginn. Hins vegar bátafólkið
svokallaða: flóttamennimir sem
flúðu tU annarra landa á hverju
því sem flotið gat og eru margir
hveijir enn í flóttamannabúðum.
Höfundur þessarar bókar, sem
er sagnfræðingur aö mennt,
dvaldi í þijá mánuði í Víetnam
síðari hluta ársins 1989. Hann fór
viða um suðurhluta landsins og
hélt svo upp eftir langri strönd-
inni aha leið norður tU Hanoi.
Þótt Wintle hafi aUan tímann
verið undir effirhti opinberra
leiðsögumanna, sem skipulögðu
ferðaáætlun hans, dregur hann
upp forvitnUega mynd af hvers-
dagslegu lífi í Víetnam hátt í
tveimur áratugum efhr að styij-
öldinni lauk, meðal annars með
viðtölum við marga Víetnama, og
reyndar útlendinga hka, sem
hann rekur ítarlega.
ROMANCING VIETNAM.
Höfundur: Justin Wintle.
Penguin Books, 1992.
Ævintýri
Hoffmanns
Nú á tímum eru ævintýri E.T.A.
Hoffmanns senrúlega kunnust
vegna óperunnar sem Offenbach
byggði á sögum þessa þýska róm-
antíska rithöfundar sem eitt sinn
var eitt víðlesnasta sagnaskáld
Þýskalands.
Bretinn Ritchie Robertson hef-
ur vahð í þessa bók, og þýtt sjálf-
ur á ensku, fimm þekktustu æv-
intýri Hoffmanns. Þau eru dæmi-
gerð fyrir sagnagerð hans þar
sem yfirnáttúrulegir og ógnvekj-
andi atburðir gerast oft í afar
raunsæislegu umhverfi.
Hér er aö finna frægustu sögur
Hoffmanns - það er Der goldne
Topf eða The Golden Pot sem
nafn ritsins vísar til og The Sand-
man (Der Sandmann) um ógn-
vættinn sem leitar í augu bam-
anna en einnig Princess Bramb-
Ula (Prinzessin BrambUla), Mast-
er Flea (Meister Floh) og My Co-
usin’s Comer Window (Des Vett-
ers Eckfenster). Robertson ritar
einnig formála þar sem verkin
em sett í samtímasamhengi höf-
undarins.
THE GOLDEN POT AND
OTHER TALES.
Höfundur: E.T.A. Hoffmann.
Oxford University Press, 1992.
MetsölukQjur
Bretland
Skáldsögur:
1. Stephen Fry:
THE LIAR.
S. Catherlne Cookcon:
THE RAG NYMPH.
3. Stephen Klng:
NEEDFUL THINGS.
4. Etlzabeth Jane Howard:
MARKtNG TtME.
5. Dirk Bogarde:
JBRICHO.
6. Joanna Trollope:
THE RECTOR S WIFE.
7. Fredertck Forsyth:
THE OECEIVER.
B. Ruth Rendell:
KISSING THE GUNNER’S DAUGHTEfl.
9. Martln Amls:
TtME'S ARROW.
10. Sera Paretsky:
GUARDIAN ANGEL.
Rit almenns edlis:
1. Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
2. Ranutph FlennBe:
THE FEATHER MEN.
3. Peter Mayle:
TOUJOURS PROVENCE.
4. Mark Tully:
NO FULL STOPS IN INDIA.
5. John Pilger:
DtSTANT VOICES.
6. BIH Bryson:
NEITHER HERE NOR THERE.
T. Hannah Hauxwell:
HANNAH: THE COMPLETE STORY.
8. Laurie Lee:
A MOMENT OF WAR.
9. Naney Friday:
WOMEN ON TOP.
10. N. Blundoll t 3. Blackhall:
FALL OF THÉ HOUSE OF WtNDSOR.
(Byggt a The Sunday Tlmes)
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Alexandra Rlpley:
SCARLETT.
2. John Grisham:
THE FiRM.
3. Oanielle Steet:
NO GREATER LOVE.
4. John Grisham:
A TIME TO KILL.
5. Anne Tyter:
SAINT MAYBE.
6. Kathleen E. Woodlwfss:
FOREVER IN YOUR EMBRACE.
7. Ullan Jackson Braun:
THE CAT WHO MOVEO A MOUNTAIN.
8. Jane Smlley;
A THOUSAND ACRES.
9. Ken Fottett
NIGHT OVER WATER.
10. Catherine Coulter:
THE HELLION BRIDE.
11. Fannle Flagg:
DAISY FAY AND THE MIRACLE MAN.
12. Fannle Flagg:
FRIED GREEN TOMATOES AT
THE WHISTLE STOP CAFE.
13. Tom Ctancy:
THE SUM OF ALL FEARS.
14. Robert Jordan:
THE DRAGON REBORN.
15. Jayne Ann KrenU:
FAMILY MAN.
Rit almenns eölis:
1. Ross Perof:
UNITED WE $TAND.
2. D.L Ðarlett & J.B. Steele:
AMERICA: WHAT WENT WRONG?
3. B. Clinton & A. Gore:
PUTTINQ PEOPLE RRST.
4. Susan Paludl:
BACKLASH.
$. James B. Stewart:
DEN OF THIEVES.
6. Martln L Gross:
THE QOVERNMENT RACKET.
7. Camille Paglia:
SEX, ART AND AMERICAN CULTURE.
8. Deborah Tannen:
YOU JUST DON'T UNDERSTAND.
9. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS TRAVELLED.
10, Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
(Öyggt á New York Times Book Revlew)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Betty Mahmoody;
FOR MIT BARNS SKYLD.
2. Mary Wealey:
ET FORNUFTIGT LIV.
3. Flemming Jartíkov;
TYRKERNES GADE.
4. Francaaco Alberonf:
FORELSKELSE OG KÆRLIGHED.
5. Herbjerg Waaamo:
DINAS BOG.
8. Betty Mehmoody;
IKKE UDEN MIN DATTER.
7. Henrl Nathanaen:
MENOEL PHtLIPSEN OG S0N.
8. Thomaa Harrle:
ONDSKABENS 0JNE.
9. A. de Salnt Exupery:
DEN LILLE PRINS.
10. Dean R. Koontz:
KOLO ILD.
(Byggt á Pottttken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson