Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992. 25 Húni frá Waldhof, ræktunarbúi Hans Dieter Piitz, er ein helsta von Hindisvikurstofnsins í Þýskalandi. DV-mynd Wolfgang Junge Hindisvíkur- hrossvekja athygli í Þýskalandi Þaö er fátítt að haldnar séu sýningar á íslenskum hrossastofnum í útlöndum, en nýlega var boðiö upp á sýningu hrossa af Hindisvíkurætt í Roderath í Þýska- landi. „Við seldum tvær Hindisvíkurhryssur til Þýskalands fyrir fimm árum tíl þeirra bræðra Hans Dieter Piitz og Claus Piitz, sem búa í Nettersheim í Eiffelhéraði, og árangurinn hefur ekki látíð á sér standa," segir Agnar Norland, sem í félagi við son sinn, Ástmund Norland, hefur verið að endurreisa Hindisvíkur- hrossastofninn á íslandi. „Áhugi á Hindisvíkurhrossunum hefur aukist veru- lega í Þýskalandi og komu um það bil 400 manns á þessa sýningu. Sýnd voru tæplega fimmtíu hross og var helmingur þeirra fullkomin Hindisvíkurhross en hinn helmingurinn var blandaður til helminga við aðra stofna. Auk þess var folaldasýning og dómar á folöldum af ýmsum stofnum og ættum. Það stutt er síðan hrossin fóru út að elstu afkomend- ur þeirra eru fjögurra vetra. Þau voru því flest sýnd á fætí en stóðhestunum; Húna, Hrafnfaxa og Heljari, var riðið auk þriggja geldinga. Töluverðum tíma var varið í sýningu hrossanna sem stóð yfir fram á kvöld,“ segir Agnar. Folaldadómar marka framtíð hrossanna „Flestöll folöld í Þýskalandi eru dæmd og hafa dóm- amir töluvert að segja fyrir framtíð hrossanna því flest þeirra sem dæmast vel halda sínu síðar á lífsleiðinni og hátt dæmd folöld hækka snarlega í verði. Reising, fas og vilji gilda 20%, bygging 30% og gang- ur 50%. Hindisvíkurstofninn fékk mjög góða auglýs- ingu í sumar vegna þess að hæst dæmda folald sumars- ins til þessa er af Hindisvíkurætt og er með 8,29 í eink- unn. Andreas Trappe keypti það folald frá Josef Krum- pen og kom með það á sýninguna. Hindisvíkurstofninn hundrað ára gamall „Við feðgarnir erum að rétta Hindisvíkurstofninn við eftir töluverða lægð. Stofninn er kominn út af einni hryssu, Rauðskjónu frá Hindisvík, sem var reiðhross Jóhannesar Sigurðssonar í Hindisvík. Hann hóf rækt- un hrossanna skömmu fyrir 1890, en hross hans eru út af hrossum frá Ánastöðum í Húnavatnssýslu. Sonur hans og fóðurbróðir minn, séra Sigurður Nor- land Jóhannesson, tók við Hindisvíkurstofninum, en þegar hann lést árið 1971 erfðum við þrír bræðurnir jörðina og hrossin. Bræður mínir höfðu ekki áhuga á hrossunum og því tók ég við þeim og hef verið að rækta upp stofninn ásamt syni mínum, Ástmundi. Um þaö bil 60 hreinræktuð hross voru í stóðinu og höfum við passað upp á að hreinleikinn haldist, við blöndum ekítí inn öðrum hrossastofnum inn í Hindis- víkurstofninn og vonumst til að aðrir ræktendur ís- lenskra hrossastofna haldi hreinleika síns stofns sem mestum," segir Agnar Norland að lokum. -E.J. ALTERNATORAR & STARTARAR I BÍLA - BÁTA - VINNUVÉLAR - VÖRUBiLA FÖLKSBlLA Chevrolet, Ford, Dodge, Wagoneer, Oldsm. dís. Chevrol. dis. 6.2. Ford dís., 6,9 og 7,3, Datsun, Mazda 323,626, 929, Daihatsu Charade, Mitsub. Colt, Pajero, Toyota Corolla, Tercel, Honda, Benz, Opel, VW Golf, Peugeot. Volvo, Ford Esc- ort, Lada, Fiat, o.fl. o.fl. SENDIBÍLA M. Benz 207 D, 209 D. 309 D. 407 D, 409 D. Peugeot, Ford Econoline. Ford 6,9 L. Renault. Volvo, Volkswagen, o.fl. o.fl. VÖRUBÍLA M. Benz, Scania, Man, GMC, Volvo, Bedford o.fl. VINNUVÉLAR JCB, M. Ferguson, Ursus, Zetor, Case, Deutz, Cat, Breyt o.fl. BÁTAVÉLAR BMW, Bukh, Caterpillar, Ford, Cummings, Iveco. Mann, Mercury Mercruiser, Perkins. Lister, Sabb, Volvo-Penta, Renault o.fl. BÍLARAF H/F BORGARTÚNI 19, SÍMI 24700-624090 GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Ódýrt/IADA Vetrartilboð 1. Vélarstilling (tölvustilling) 2. Ljósastilling 3. Tímakeðja strekkt 4. Kúpling stillt 5. Hleðsla mæld 6. Smurt í læsingar 7. Öll Ijós athuguð 8. Frostþol mælt og bætt á ef þarf 9. Mæld olía á vél, bætt á ef þarf 10. Geymasambönd hreinsuð 11. Stýrisgangur athugaður 12. Silíkon borið á þéttikanta 13. Skipt um loftsíu ef þarf 14. Settur ísvari á rúðusprautu 15. Hreinsuð bensínsía í blöndungi 16. Handhemill hertur 17. Viftureim athuguð Verð á vetrartilboði kr. 5.500,- m/vsk. Innifalið í verði: kerti, platínur, kveikjuþéttir ÁTAK SF. Bifreiðaverkstæði Nýbýlavegi 24 (Dalbrekkumegin) 200 Kópavogi Símar: 46040 og 46081 Viðskiptavinir, gerið verðsamanburð Gildir til 15. desember ’92.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.