Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Side 19
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992. Bridge 19 íslandsmótið í einmenningskeppni 1992: Akureyri eign- aðist sinn fyrsta íslandsmeistara Það var ungur Akureyringur, Magnús Magnússon, sem kom, sá og sigraði á íslandsmótinu í einmenn- ingskeppni sem haldið var í húsa- kynnum Bridgesambands íslands um síðustu helgi. Keppni um þennan titil haföi legið niðri í nokkur ár en töluverður áhugi virtist fyrir þessu keppnisformi þvi 112 keppendur mættu til leiks. Það skyggði hins vegar á góða keppni að þótt spiiuð væru sömu spil í öllum riðlum var skorin eingöngu bundin við hvem riðil fyrir sig og því réð heppni meiru en góðu hófi gegndi. Væntanlega verður því breytt í fram- tíðinni. Það einkenndi hins vegar keppnina að hinir gamalgrónu bridgemeistar- ar blönduðu sér ekki í toppbarátt- una, utan einn, Guðmundur Sv. Her- mannsson. Guðmundur var allan tímann í efstu sætunum en varð að lokum að játa sig sigraðan af ungu kynslóðinni. Ekki skorti hins vegar mannval meðai þátttakenda því ekki færri en fjórir heimsmeistarar og eitthvað af Norðurlandameisturam voru mættir. Akureyringar voru að vonum stolt- ir yfir árangri Magnúsar og á fyrsta spilakvöldi eftir mótið var honum færður blómvöndur. Magnús var hógvær í viðtali við undirritaðan en taldi hins vegar að góðir lokasamn- ingar, frekar en annað, hefðu fært sér sigurinn. Við skulum skoða eitt spil frá mót- inu en þar átti Magnús í höggi við einn heimsmeistara og einn fyrrver- andi Norðurlandameistara og stóð upp með „guiitopp". N/A-V ♦ A8754 V 6543 ♦ K8 + KD + KG3 V K1087 ♦ 1097 + 432 * D962 V DG92 ♦ D + G875 * 10 V A ♦ AG65432 + A1096 Magnús Magnússon Magnús sat í suður með óþekktan makker en vestur var Jón Baldurs- son heimsmeistari og austur Hjördís Eyþórsdóttir, fyrrverandi Norður- landameistari. Umsjón Stefán Guðjohnsen Sagnir gengu þannig: Norður Austur Suöur Vestur pass pass 1 tígull 1 spaði lgrand 2spaðar 31auf 3spaðar pass pass 4tíglar dobl pass pass pass Jón spilaði út spaöaás og skipti síð- an í hjarta. Tvisvar tromp setti Jón inn aftur en spihð var unnið. Það grátlega fyrir meistarana í a-v er hins vegar það að þótt Magnús sé með fjóra tapslagi þá getur vörnin ekki nálgast þá, eins og spiliö liggur. Magnús fékk því 510 og „gulltopp" fyrir spihö. Algengasti samningur- inn á spihð var hins vegar fimm tígl- ar doblaðir í suður, einn niður. Lokastaðan í mótinu var þessi: 1. Magnús Magnússon, 319 stig 2. Gissur Ingólfsson, 314 stig 3. Sveinn R. Eiríksson, 313 stig 4. Guðmundur Hermannss., 312 stig 5. Jón Þorvarðarson, 308 stig 6. Kjartan Ingvarsson, 308 stig 7. Anton Haraldsson, 307 stig 8. Guðmundur Sveinsson, 304 stig 9. Gylfi Baldursson, 304 stig 10. Sverrir Ármannsson, 302 stig Stefán Guðjohnsen Vorum að fá frábæra svefnsófa úr leðri í 6 litum Frábært verð! 69.950,- ís-mat h/f, Laufásvegi 17, sími 624510 WS4 áraumurinn Veriu meo gæli ordið að veruleika !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.