Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Side 26
26
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992.
Skák
Einn mestu skákmanna sögunn-
ar, Alexander Aljekín, hefði orðið
hundrað ára á morgun, 1. nóvem-
ber. Honum til heiðurs nefnir Al-
þjóða skáksambandið árið 1992 ár
Aljekíns og í Moskvu er nýhafið
opið stórmeistaramót til minningar
um Aijekín sem var af rússneskum
aðalsættum.
Aljekín var heimsmeistari á ár-
unum 1927-1935 er hann beið ósig-
ur í einvígi við Euwe. Hann endur-
heimti titilinn 1937 og var heims-
meistari fram yfir seinni heims-
styijöld, til dauðadags. Aljekín lést
í Lissabon 1946 og átti þá vart til
hnífs og skeiðar. Hermt er að í
kjöltu hans hafi legið vasatafl.
Skákin var líf hans og yndi alla tíð,
allt þar til yfir lauk.
Aljekín var grfðarlega sigursæll
mótaskákmaður. Á árunum 1927 til
1934 tefldi hann á 33 stórmótum og
varð einn efstur eða jafn öðrum
tuttugu sinnum. Ef hann hefði
hætt að tefla á þessum tímapunkti
hefði hann trúlega verið álitinn
mesti skákmaður allra tíma. En
hann hélt ótrauður áfram og því
má halda fram að með því hafi
hann að vissu leyti „eyðilegt goð-
sögnina" svo notaö sé vinsælt orða-
lag.
Aljekín varð heimsmeistari er
hann bar sigurorð af Capablanca í
. Aljekín að tafli við finnska skákmeistarann Eero E. Böök í Margate 1938.
Hundrað ára afmæli Aljekíns
löngu og ströngu einvígi í Buenos
Aires 1927. Sigur Aljekíns kom þá
mjög á óvart því að Capablanca var
álitinn ósigrandi. Capa tefldi létt
og tært eins og eftir hljómfalli Moz-
arts en Aljekín tefldi af meiri sköp-
unarkrafti, eins og Beethoven væri
kominn til skjalanna.
Aljekín var frægur fyrir djúp-
hugsaðar leikfléttur og undi sér
best í flóknum og viðsjárverðum
stöðum. Hann var einnig langt á
undan sinni samtíð hvað byrjana-
undirbúning snerti og raunar eng-
inn eftirbátur Capa í endatafli.
Garrí Kasparov er gjarnan líkt
við Aljekín sem er sá heimsmeist-
aranna sem kemst næst því að vera
honum til fyrirmyndar - með dá-
litlu Tai og Fischer ívafí. Frægustu
skákir Aljekíns eru hreinasta
augnayndi. Skákin við Retí þykir
mér gott dæmi um dýptina í leik-
fléttum Aljekíns en einkenni þeirra
er að kjami fléttunnar kemur ekki
í ljós fyrr með síðasta leik.
Baden Baden 1925
Hvítt: Richard Reti
Vængtafl
1. g3 e5 2. Rf3 e4 3. Rd4 d5
Aljekín þarf nú sjálfur að glíma
við Aljekínsvörn með skiptum ht-
um (1. e4 RfB) þar sem hvítur á leik
til góða.
4. d3 exd3 5. Dxd3 Rf6 6. Bg2 Bb4+
„Nú á dögum hefði ég hugað
meira að öryggi svörtu reitanna í
stöðu minni og því hefði ég sneitt
Verzlunarskóli íslands
ÍÞRÓTTATÍMAR
100 m2 íþróttasalur er til leigu í Ví eftir klukkan 17
á daginn. Hentugur fyrir 14-16 manna starfsmanna-
hópa í almenna leikfimi undir leiðsögn kennara.
Aðgangur að þrektækjum, gufubaði og nuddpotti
fylgir.
Upplýsingar í síma 688400.
STANGVEIÐIMENN
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í veiðirétt í Blöndu sem leigð verður í
þrennu lagi á næsta sumri. Gert er ráð fyrir að veiði-
leyfi verði seld frá hádegi til hádegis.
1. Neðsta svæði Blöndu er frá ósum að Ennisflúðum.
4 stangir.
2. Miðsvæðið (Langidalur) nær frá Breiðavalslæk að
Æsustöðum ásamt Auðólfsstaðaá. 4 stangir.
3. Efsta svæðið er Blöndudalur ofan Ártúna. 2 stangir.
Tilboð sendist til Halldórs B. Maríassonar, Finns-
tungu, 541 Blönduós, fyrir föstudaginn 13. nóv.
næstk., sem veitir allar upplýsingar í síma 95-27117.
Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Stjórn Veiðifélags Blöndu og Svartár
hjá uppskiptum á biskupum,"
skrifar Aljekín síðar í skýringum
við skákina.
7. Bd2 Bxd2+ 8. Rxd2 0-0 9. c4! Ra6
10. cxd5 Rb4 11. Dc4 Rbxd5 12. R2b3
c6 13. 0-0 He8 14. Hfdl Bg4 15. Hd2
Dc8 16. Rc5 Bh3!
Umsjón
Jón L. Árnason
Biskup hvíts er lykihinn að þrýst-
ingi hans á drottningarvæng og
Aljekín leitar því eftir uppskiptum.
Eins og næstu leikir leiða í ljós er
honum jafntefli ekki á móti skapi
enda er staða hvíts hðlegri.
Með leiknum býður Aljekín mót-
herja sínum einnig upp á „eitrað
peð“ eins og þau gerast best. Eftir
17. Bxh3? Dxh318. Rxb7? hefði teflst
18. - Rg4 19. Rf3 R5e3! 20. fxe3 Rxe3
21. Dxf7+! Kh8! 22. Rh4 Hf8 vinnur
svartur vegna máthótunarinnar á
fl.
17. Bf3 Bg4 18. Bg2 Bh3 19. Bf3 Bg4
20. Bhl
„Loksins,“ skrifar Aljekín. En
hvítur kaupir það dýru verði að
tefla til vinnings. Biskupinn stend-
ur lakar í horninu eins og brátt
verður ljóst.
20. - h5! 21. b4 a6 22. Hcl h4 23. a4
hxg3 24. hxg3 Dc7 25. b5?
Með framrás h-peðsins tókst Alj-
ekín.að veikja kóngsstöðu Retís og
hahn uggir ekki að sér. Eftir 25. e4
Rb6 26. Db3 Rbd7! er staðan í jafn-
vægi.
25. - axb5 26. axb5
81 I +
if i i
1 m
A
A
a a A
s
ABCDE FGH
26. - He3!
Upphafið að ævintýralegri at-
burðarás. Hrókinn má ekki taka
því að eftir 27. fxe3 Dxg3+ 28. Bg2
Rxe3 hótar svartur máti á g2 og
drottningunni. í stöðunni hótar
svartur 27. - Hxg3+! Besti leikur
hvits er 27. Bf3 þótt ekki nægi til
að halda jafnvæginu, að sögn Alj-
ekíns.
27. Rf3? cxb5 28. Dxb5 Rc3! 29. Dxb7
Dxb7 30. Rxb7 Rxe2+ 31. Kh2
Frá 27. leik hvíts hefur hann ekki
átt annarra kosta völ. Ef 31. Kfl
Rxg3 + ! 32. fxg3 Bxf3 33. Bxf3
Hxf3+ 34. Kg2 Haa3 35. Hd8+ Kh7
36. Hhl+ Kg6 37. Hh3 Hfb3! og
vinnur. Svartur hótar riddaranum
og máti í 2. leik - dæmigert afbrigði
Aljekíns.
En hvað nú? Eftir 31. - Rxcl 32.
fxe3 er ekkert að hafa úr stöðunni
annað en jafntefli.
31. - Re4!!
Bætir enn olíu á eldinn! Nú yrði
svarið viö 32. fxe3 Rxd2 og hótar
hvoru tveggja í senn, 33. - Rxcl og
33. - Rxf3 - hvítur kemst ekki hjá
því aö tapa liði. Retí finnur bestu
vörnina.
32. Hc4 Rxf2!
Ef hins vegar 32. - Rxd2 33. Rxd3
Hd3 á hvítur svarið 34. Rc5 og held-
ur jafntefli því að hrókurinn á a8
er í uppnámi.
33. Bg2 Be6! 34. Hcc2
Um aðra'leiki er ekki að ræða en
nú kemur þvinguð leikjaröð sem
leiðir til vinnings á svart í níunda
leik!
34. - Rg4+ 35. Kh3
Ekki 35. Khl vegna 35. - Hal +.
35. - Re5+ 36. Kh2 Hxf3! 37. Hxe2
Rg4+ 38. Kh3 Re3+ 39. Kh2 Rxc2
40. Bxf3 Rd4
- Og Retí gafst upp, áður en Aljek-
ín gæfist tóm til að ljúka fléttunni.
Eftir 41. Hf2 Rxf3+ 42. Hxf3 Bd5!
er hrókur og riddari hvíts í upp-
námi og annar hlýtur að falla.
Þetta er svo sannarlega mögnuð
skák enda taldi Aljekín hana meöal
sinna allra glæsilegustu móta-
skáka.
Ég læt aðra skáka Aljekíns fljóta
með sem sýnir vel hve snjall hann
var að skapa sér færi úr litlum
efnivið. Staðan eftir sautján leiki í
skákinni lætur ekki mikið yfir sér
en tíu leikjum síðar er svartur
mát! Við stjórnvölinn situr þó eng-
inn annar en dr. Emanuel Lasker,
heimsmeistari í 27 ár. Hann var að
vísu kominn af léttasta skeiði þegar
skákin var tefld, var 65 ára en Alj-
ekín 42 ára.
Zurich 1934
Hvítt: Alexander Aljekín
Svart: Emanuel Lasker
Drottningarbragð.
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3
Be7 5. Bg5 Rbd7 6. e3 0-6 7. Hcl c6
8. Bd3 dxc4 9. Bxc4 Rd5 10. Bxe7
Dxe7 11. Re4 R5f6 12. Rg3 e5 13. 0-0
exd4 14. Rf5 Dd8 15. R3xd4 Re5 16.
Bb3 Bxf5 17. Rxf5 Db6
„Teórían" mælir nú með 17. - g6
18. Rd4 De7 meö jöfnu tafli. Eftir
leikinn í skákinni virðist svo sem
ekki mikið að svörtu stöðunni en
takið nú eftir hvernig Aljekín fer
aö prjóna.
18. Dd6! R5d7?
Euwe mælir með 18. - Hae8!? (ef
18. - Rg6 19. Rh6+! og hvítur fær
betra) 19. Re7 + Kh8 20. Dxe5 Rg8!
og endurheimtir manninn.
19. Hfdl Had8 20. Dg3! g6 21. Dg5!
Óþægilegur leikur. Hvítur hótar
m.a. 22. Hd6.
21. - Kh8 22. Rd6 Kg7 23. e4! Rg8 24.
Hd3! f6
Ekki gengur heldur 24. - h6 25.
RÍ5+ Kh7 26. Rxh6 f6 (26. -Rxh6 27.
Hh3 og vinnur) 27. Rf5! fxg5 28.
Hh3+ og mát í næsta leik en 24. -
Rdf6 var skásti möguleikinn.
1
11 * 1
ÍfA® 1 1
p
A
A m
A A A A A
S *
ABCDEFGH
25. Rf5+ Kh8 26. Dxg6!!
- Og Lasker gaf - 26. - hxg6 27.
Hh3+ Rh6 28. Hxh6 er mát.
-JLÁ