Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1992, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1992.
45
Nadia og ég á barnsaldri í Birmingham. Það er austrænt blóð í æðum
okkar og þess vegna erum við ekki beinlínis enskar í útliti. En við erum
enskar og ekkert annað.
Mohammed slátraði lambi fyrir há-
tíðina. Það var kailað á mann úr
þorpinu tíi þess að framkvæma um-
skumina fyrir stórfé. Hann kann
ekkert til verka og hefur enga hug-
mynd um læknisfræði. Hann tók
bara hlutverkið í arf eftír fööur sinn.
Til að umskera drenginn togar
maðurinn þétt í forhúðina á miili
þumalfingurs og vísifingurs og bind-
ur fast um með tvinna. Svo sker hann
húðina með rakvélarblaði og skrapar
liminn til að hreinsa vel. Bamið
öskrar og blóðið streymir. Það er
hræðilegt.
Eftir þetta er eldrautt sótthreinsi-
efni sett á sárið og bamið afhent
móðurinni sem reynir að hugga þaö
svo það gleymi sársaukanum. Það
eina sem gert er næstu tvær vikum-
ar er að setja bindi á milli fótleggj-
anna á baminu til þess að koma í
veg fyrir núning og blæðingar úr
sárinu.
Konurlíka
umskomar
Ahmed litli er tiltölulega hepp-
inn. Ég heyrði sagt frá því að í öðrum
hémðum færi umskumin fram
miklu seinna, á unglingsaldri og at-
höfnin væri hræðilega grimmdarleg.
Sá sem framkvæmir hana kastar for-
húðinni til mannfjöldans sem horfir
á. Ungi maðurinn hefur rýting við
gagnaugað og má hvorki öskra, gráta
né hreyfa sig. Þannig verður hann
að manni...
Ahmed grét lengi í örmum móður
sinnar og þegar ég lýsti atburðinum
fyrir Nadiu sagði hún mér frá öðmm
sem var enn hræðilegri. Salama
tengdamóðir hennar eignaðist telpu
og Nadia var viðstödd umskumina.
Litla stúlkan er klædd úr öllu og
kona togar 1 húðflipana, sem era
innri skapabarmamir, og saumar þá
saman með nál. Þegar hún er búin
að sauma þá saman sker hún húð-
ina, sem er umfram, með rakvélar-
blaði. Nadia gat ekki sagt mér hvort
konan heföi skorið burt snípinn.
í borgunum, í Hays, þar sem kon-
umar tala um þetta sín á milli, er
þessi siður að hverfa sem betur fer.
Þær trúa ekki lengur lygunum sem
þorpsbúar segja enn litium telpum
til þess að telja þeim trú um að um-
skumin sé heilsusamleg. Þeim er
sagt að ef húðin sé ekki skorin burt,
muni barmamir vaxa með aldrinum
og að lokum muni þær stíga á þá.
Hvemig getur nokkur manneskja
trúað þvílíku bulh? En í þorpinu em
flestar konur sannfærðar um að
þetta sé rétt og þegar þær komust
að því að Nadia var ekki umskorin
gerðu þær grín að henni. Það rigndi
yfir hana bröndurunum. Ein stúlkan
gerðist jafnvel svo ósvifin að spyija
hvemig henni liði að vera svona og
hvort ekki væri erfitt fyrir hana að
ganga. Stúlkan hætti ekki að angra
hana fyrr en Salama haföi kvartað
yfir þessu við Gowad. Það gegnir
öðm máli um mig, ég er ekki stöðugt
umvafin kæfandi andrúmsloftinu í
veröld kvennanna vegna þess að hús
Abdul Khada er svo langt ftá þorp-
inu.
Nadia systir meö Tinu dóttur sinni í desember 1987. Hún er enn fangi í
Yemen ásamt þremur börnum sínum og Marcusi, syni mínum. í fjögur ár
hef ég ekkert heyrt frá þeim en ég berst fyrir þvi aö við náum aö sameinast
á ný. 1
Merming
Stemningar liðins tíma
- Þorvaldur Þorsteinsson sýnir í Gerðubergi
Fyrr á árinu sýndi Þorvaldur Þorsteinsson frum-
myndasafn sitt í Nýlistasafninu og á Mokka. Sjálfur
skýrði hann hugmyndir sínar mn frummyndasafn svo
aö þama væm á ferð tákn eða stemningar sem heföu
skotið rótum í hugskoti hans frá því í bemsku. Þann-
ig væri hann sem listamaður að reyna að henda reið-
ur á þessum táknmyndum og varpa þeim út úr hug-
skoti sínu, burtséð frá allri fagurfræði. Aðferðir Þor-
valds til að ná þessu markmiði sínu byggðust ýmist
upp á því að hylma yfir miðpunkt athyglinnar í hverri
mynd, t.d. með svörtu tússi, eða að taka hversdagslega
hluti úr sínu viðtekna samhengi og setja þá á stall
eins og sýningargripi. Á sýningunni í Nýlistasafninu
brá einitig fyrir öðrum aðferðum sem virtust fjarlæg-
ari frummyndahugmyndinni, þ. á m. „leiðréttingum"
á biblíumyndum Gustave Dorés og umbreytingu tíma-
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
ritaljósmynda í skúlptúrskissur. Nú stendur hins veg-
ar yfir önnur óskyld sýning frá hendi Þorvaids í Gerðu-
bergi en undirritaður er samt sem áður á því að þar
sé hið eiginlega frummyndasafn listamannsins loks
komið á legg.
Vangaveltur æskunnar
Þó einungis séu fimm verk á sýningunni þá er hvert
þeirra samsett úr mörgum myndum og hlutum. Hér
er í raun um innsetningu (installation) að ræða þar
sem markmiðið er að ná fram heildaráhri un. Hér
má t.a.m. sjá fmmmyndasafh unga drengsins sem fær
verðlaun fyrir góða hegðun á skátamóti og gefur út
tímarit í frístundum (Heimalningur, nr. 2). Einnig
frummyndasafn ungu stúlkunnar sem langar til að
vera í senn ballettdansari og kanínubóndi (Stjömur
og sítrónur, nr. 5). í stuttu máli eru hér dregnar fram
sígildar vangaveltur æskufólks: eigin tilvist í tíma og
rúmi, staða íslands í aiheiminum, guðsótti, líf og
dauði, góðir gæjar og slæmir og framtíðarstarfiö, svo
nokkuö sé nefnt. Allur blær myndefhisins tilheyrir
liðinni tíð, nánar tiltekið árunum í kringum 1960. Þar
af leiðandi hlýtur skoðandinn að álykta sem svo að
verkin tengist æsku listamannsins sjálfs.
Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður.
Tengslogtíðarandi
Þrátt fyrir að Þorvaldur kenni sýningu sína að þessu
sinni ekki við frummyndir þá verður ekki annað sagt
en að hugmynd hans um frummyndasafn komist hér
betur til skila en á fyrrnefndum sýningum í Nýlista-
safninu og á Mokka. Hér stendur skoðandinn með sín-
ar innbyggðu frummyndir andspænis frummyndum
listamannsins og tengslin em þannig hvort tveggja
hrein og bein milli verks og skoðanda og innbyrðis
milli þeirra þátta sem mynda verkið í heild sinni.
Myndþættir þessir era úr hversdagslífinu og tengjast
alhr því á einhvem hátt: blaðaúrklippur, jesúmyndir,
glansmyndir, fjölskyldumyndir o.s.fhr. Sum verkanna
em tiltölulega stílhrein og einföld, eins og Risna nr.
4, en önnur margbrotin - allt eftir eðli viðfangsefnisins
sem getur verið í senn tímabil í ævi einstaklings eða
almennt tíðarandasýnishom. Sérstaða þessarar sýn-
ingar felst ekki hvað síst í alþýðleik verkanna. Sýning-
arrýmið í kjallara Gerðubergs er lítið og líða sýningar
þar fyrir htia möguleika í lýsingu. Spuming er hvort
þessi verk Þorvalds heföu ekki betur átt heima í Ný-
listasafninu sl. vetur, inni á margumræddri frum-
myndasýningu listamannsins. Sýningu Þorvalds í
Gerðubergi lýkur nk. þriöjudag, 3. nóvember. Á laug-
ardag er opið til kl. 16 en lokað á sunnudag.
Gítarar í öllum verðflokkum!
Fender-W ashburn-Rock It
Einkaumboð fyrir FENDER
tómZ>9Ju *■
HLJOÐFÆRAHUS
R E Y K J A VliCMFÍ
LAUGAVEGI96 S600935