Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1992, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1992, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992. Átök Jeltsíns og þingsins harðna: Forsetinn vill þjóðar- atkvæði um hver ráði ÚtLönd SkriðuföIS granda 210 í Bólivíu Aö minnsta kosti 210 manns létu lífið þegar aurskriöur lentu á gullgrafarabúðum í norður- hluta Bóliviu. Hundraða manna til viðbótar er saknað og að sögn björgunarsveitarmanna er óttast að þ$ir hafi einnig farist Úrhellisrigning haíði verið áö- ur en aurskriðan féll ó þriðjudag. Búðirnar eru 200 kílómetra fyrir norðan höfuðborgina La Paz.- Flestir ibúamir voru í fastasvefni þegar þetta gerðist. Reuter Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hvatti til þess í morgun að viðhöfð yrði þjóöaratkvæöagreiðsla um hver ætti að bera ábyrgð á efnahagslegri enduruppbyggingu Rússlands, for- setinn eða fulltrúaþingið. „Ég hvét þingið til að skipuleggja þjóðaratkvæðagreiðslu með spurn- ingunni um hverjum þið treystið fyr- ir endurreisn Rússlands, þinginu eða forsetanum," sagði Jeltsín í þinginu. Ræðu Jeltsíns var sjónvarpað beint og í henni fordæmdi hann þingið og sagði það vígi afturhaldsafla og sak- aði þingmenn um að koma í veg fyr- ir umbætur. Stjórnlagadómstóllinn íhugar nú beiðni Jeltsíns. Ruslan Khasbulatov, forseti þings- ins og einn valdamesti maðurinn í Rússlandi, steig í ræðustól á eftir Jeltsín forseta og baðst lausnar'frá embætti sínu. „Orð forsetans eru móðgun við þingið og æðsta ráðið,“ sagði Khasb- ulatov. „Viö þessar aðstæður er mér ekki kleift að sinna skyldum mínum sem forseti æðsta ráðsins." Jeltsín hefur orðið að láta í minni pokann fyrir þinginu að undaniomu og í gær höfnuðu þingmenn Jegor Gajdar, frambjóðanda forsetans, í embættiforsætisráðherra. Reuter 13 V Skilnaðurrikis- erffingjanna harmaðurá fugumsíðna Bresku blöðin fóru hamförum í morgun í umíjöllura um sldlnað Karls ogDíönu. The Sun, sem um árabil hefur fylgt konungsfjöl- skyldunni hvert fótmál, lét ekki minna duga en 28 síðna frásögn af hneykslinu. Daily Mail gekk nokkru skemmra og fórnaði að- eins 25 síðum undir máhð. Gæðablöðin svokölluðu tóku líka kipp og Indipendent braut eigin heföh meö því að setja leið- ara um framtíö konungdæmisins á forsíðu. Financial Times htur sjaldan af kauphölhnni en nu tóku vangaveltur um ríkiserfö- irnar upp besta plássið. Svomá bölhæta aðhendaáann- aðverra Konungholhr Bretar reyna að hugga sig við það að breska kon- ungsfjölskyldan hafi áður koinist í hann krappan og að konungar þeirra hafi ekki alltaf verið ham- ingjusamlega kvæntir. l>ó verður að fara aftur til mið- alda til að finna álíka hneyksli og nú er komið upp - ef frá er talin ást Játvarðar VIII. á Vallis Simpson. Menn minnast þess nú að Hinrik I. átti 22 börn í lausa- leik með sex hjákonum. George IV. lokaði sina drottningu úti á brúðkaupsnóttina og leit aldrei á hana upp frá því, Hann varð á endanum sekur um tvíkvæni. Karl prins á ekkert lausaleiks- barn að því er best er vitað þótt hann eigi vingott við Camillu Parker Bowles og Diana hefur ekki komist lengra á syndabraut- inni en að tala við ökuþórinn James Gilbey í síma. Lífvörður Önnu prinsessugrun- aðurumsvik Viðurkennt er í breska innan- ríkisráðuneytinu að Peter Schmidt, hfvörður Önnu prins- essu, hafi sætt sérstöku eftirliti allt frá því í september. Schmidt er grunaður um að hafa hlerað símtal Karls prins og Camiilu Parker Bowles. Það komst í hend- ur fjölmiöla í haust og olh miklu uppnámi. Lífvörðurinn er og grunaður um að hafa selt fjölmiðlum ástar- bréf frá Önnu til Timothys Lawr- ence fyrir þremur árum. Þá varð fyrst uppvíst um ástarsamband þéirra en þau ætla að eigast um helgina. Schmidt neitar öllum ásökunum. Norma elskar Major heittog innilega Norma Major, eiginkona Johns Major,: forsætisráðherra Breta, segir aö sögur um stirða sanibúð þeirra hjóna séu uppspuni. Út er komin í Bretlandi óopinber ævi- saga hennar þar sem því er hald- iö fram fullum fetum að John og Norma hafi ákveðið að þrauka saman í hjónabandi meðan hann er forsætisráðherra. Þessi saga þykir ágæt viðbót við hjóna- bandserfiðleika Karls og Díönu. Höfundur sögunnar segir aö alvarlegir brestir séu í hjóna- bandinu og sambúðin faii dag- versnandi. Norma sé hins vegar tillitssöm og hlífi manni sínum við skilnaöi „Ég elska minn mann,“ svarar Norma og sakar ævisöguritarann um ómerkilega sölumeimsku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.