Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1992, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1992.
poor <jrjfjifi'ír9r3n ». r crnrn.* /tttv A v
47
Fréttir
Gæði ferskvatns á Sauðárkróki könnuð:
Fær væntanlega gæðastimpil EB
Þórhalhir Ásmundsson, DV, Sauöárkróki;
Vatnsveita Sauðárkróks hefur í
samvinnu við Átak hf. staöið fyrir
ítarlegum rannsóknum á gæðum
ferskvatns úr lindum Veðramóts-
veitu. Þessum rannsóknum er nú
lokið að mestu og væntanlega mun
vatnið frá Veðramóti innan skamms
öðlast viðurkenningu Efnahags-
bandalagsins sem þýðir að það stenst
þær ströngu gæðakröfur sem settur
eru varðandi sölu ferkvatns innan
EB-landanna. Gæðamáiin koma því
ekki til með að stöðva hugsanlegan
vatnsútflutning úr lindum Veðra-
móts.
Aö sögn Páls Pálssonar veitustjóra
gerir EB þær kröfur varðandi inn-
flutning á neysluvatni að fram fari
ítarlegar rannsóknir á lindum í tvö
ár og einnig liggi fyrir jarðfræðikort
af upptakasvæði vatnshndanna.
Rannsóknin beinist að greiningu 55
efna í vatninu fyrir utan gerlarann-
sóknir og hafa sýni verið send í nokk-
ÞÓrhaHur Ásmunds3on, DV, Sauöáikn
Nýr liafnarvörður tók til starfa
á Skagaströnd í byijun mánaðar-
ins. Vilþjálmur Skaftason heitir
hann og nær ráðningin til árs í
fyrstu. Birgir Árnason, sem veríð
hefur hafnai’vörður síðustu 20
árin, var iátinn hætta störfum
gegn vilja sínum. Birgir ætlaöi
sér að gegna starfínu þrjú ár til
viöbótar, eða til sjötugs. Vegna
starfsloka Birgis þarf Höföa-
hreppúr að greiða hornun 50 þús-
und krónur i mánaðarlaun til
starfsloka hans eftir þrjú ár.
Minnihluti hreppsnefiidar,
sjálfstæöismennimir Elín H.
Njálsdóttir og Adolf J. Berndsen,
mótmælti ákvörðun hrepps-
neíhdar aö segja Birgi upp störf-
um. Ómannúðlegt væri að leyfa
honum ekki aö starfa þau þijú
ár i vlðbót sem honum væri leyfi-
Íegt og að auki fæli þessi gjöm-
ingur í sér aukinn kostnað fyrir
hreppinn.
Birgir er síður en svo sáttur við
að þurfa að láta af störfum. „Mér
var aldrei gefln nein skýring á
uppsögnhmi og var látinn hætta
áður en uppsagnarfresturinn var
útrunninn. Ég er á fullu kaupi
ennþá og gat meira að segja leyft
mér það sera fáir getahema ráð-
herranjir, að fara út fynr land-
steinana á fuflu kaupi. Ég gerði
það þegar kratar i Hafharfirði
buðu okkur nokkrum i starfs-
mannafélaginu til írlands í síð-
asta mánuði.
En þeim hefur tekist það núna
sem að var stefnt við myndun
meirihluta eftir síðustu kosning-
ar. Nu hafa allir fengið sitt.
Sveinn varð oddviti, Magnús
sveitarstjóri og Þorvaidur fékk
félagsheimilið fyrir sig og hafnar-
vörðinn fyrir Vilhjálm bróöur
sinn. Þetta dæmi var sett upp til
að losna við mig. En ekki þar fyr-
ir aö éghafi ekki nóg fyrir stafhi
og þurfi að leiðast eða kvíða fram-
tíðinni, með fuflan eUUifeyri og
tekjutryggingu auk atvmnuleys-
isbótanna," sagði Birgir, fyrrum
hafharvörður, i samtali við DV.
ur skipti til Svíþjóðar til rannsóknar.
Niðurstöður rannsókna hafa verið
mjög jákvæðar, að sögn Páls, og
þessa dagana er Þórólfur Hafstað,
jarðfræðingur hjá Orkustofnun, að
flúka við gerð jarðfræðikorts og
skýrslu um rannsóknimar.
Nafn Sauöárkróks og Hreins Sig-
urðssonar kom strax upp þegar farið
var að ræða um vatnsútflutning fyrir
mörgum árum. í dag liggur samt
ekkert fyrir um það að vatnsútflutn-
ingur frá Króknum verði staðreynd
þótt Sauðárkrókur virðist hafa ýmis-
legt umfram aðra staöi, t.d. vottorð
frá EB.~Ekki er vitað tíl að aðrir
vatnsréttindahafar hafi aflað sér
þeirra. Að öðm leyti er staðan í
vatnsútflutningi sú að samstarfsaðil-
ar Hreins Sigurðssonar em að vinna
að útflutningi. Hreinn hefur hins
vegar misst grunn vatnspökkunar-
verksmiöjunnar og lóðina á hafnar-
svæðinu til Sauðárkróksbæjar.
Að matí bæjarstjóra eru samt eng-
ar líkur á því aö bæjarsjóður verði
stór þátttakandi eða eigi frumkvæði
að vatnsútflutningi. „Hér er um svo
kostnaðarsamt fyrirtæki að ræða aö
ekki er veijandi fyrir bæinn að taki
áhættu í uppbyggingu þess nema að
óveruiegu leyti. Hér em menn að
tala um hundmð mifljóna," sagði
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjarstjóri.