Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Side 25
FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993.
33
Leikhús
ÞJOÐLEIKHUSEÐ
Sími 11200
Stórasviðiökl. 20.00.
MY FAIR LADY
Söngleikur byggður á leikritinu
Pygmalion
eftir George Bernard Shaw
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt, fös.
22/1, uppselt, fös. 29/1, uppselt, lau. 30/1,
uppselt, fös. 5/2, lau. 6/2, fim. 11 /2, fös.
12/2.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Fim. 21/1, lau 23/1, fim. 28/1.
Sýnlngum fer fækkandi.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Sd. 17/1 kl. 14.00, örfá sæti laus, sd. 17/1
kl. 17.00, örfá sæti laus, lau. 23/1 kl. 14.00,
örfá sæti laus, sun. 24/1 kl. 14.00, örfá
sæti laus, sun. 24/1 kl. 17.00, mið. 27/1
kl. 17.00, sun. 31/1 kl. 14.00, sun. 31/1 kl.
17.00, sun. 7/2 kl. 14.00, sun. 7/2 kl. 17.00.
Smíðaverkstæðið
EGG-leikhúsið í samvinnu við Þjóð-
leikhúsið.
Sýningartimi kl. 20.30.
DRÖG AÐ SVÍN ASTEIK eftir
Raymond Cousse.
í kvöld, á morgun, fim. 21/1, fös. 22/1.
STR/ETI eftir Jim Cartwright.
Sýningartimi kl. 20.00.
Lau. 23/1, sd. 24/1, fim. 28/1, fös. 29/1.
Sýningum lýkur I febrúar.
Ath. að sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i sal
Smíðaverkstæðisins eftir að sýningar
hefjast.
Litla sviðið kl. 20.30.
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN eftir Willy Russel.
Sýningartími kl. 20.30.
Á morgun, mið. 20/1, fös. 22/1, fim. 28/1.
fös. 29/1, lau. 30/1.
Sýningum lýkur í febrúar.
Ekki er unnt að hieypa gestum i salinn
eftir að sýning hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar greiðist viku fyrir sýningu
ellaseldiröðrum.
Miðasala Þjóöieikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
að sýningu sýningardaga.
Miðapantanir frá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsið -góða skemmtun.
TiBcyimingar
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardaginn klukkan 14 í
Húnabúð, Skeifúnni 17. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara,
Reykjavík
Danskennsla Sigvalda byrjar á laugardag
í Risinu klukkan 13 fyrir byijendur en
klukkan 14.30 fyrir lengra komna.
Göngu-Hrólfar fara að venju frá Risinu
klukkan 10 á laugardagsmorgun. Ferð til
Benidorm í vetur. Upplýsingasími 28812
(Stefania).
Myndlistarnámskeið
vesturbæjar
Ný námskeið heQast 20. janúar. Kennd
verður málun og teikning. Innritun í
síma 621728 kl. 17-20 alla daga. Verið
velkomin. Elva.
Borgfirðingafélagið
í Reykjavik. Félagsvist spiluð á morgun
laugardag 16/1 kl. 14.00 á Hallveigarstöð-
um.
Fréttatilkynning
Margrét Birgisdóttir heldur sýningu í
Gallerí Úmbru, Amtmannsstíg 1, frá 14.
janúar til 3. febrúar.
Hún sýnir þar myndverk sem eru unn-
in í blandaðri tækni á síðustu tveimur
árum.
Margrét er fædd 1954 og stundaði nám
í Myndlista- og handíðaskólanum frá 1981
til 1985 er hún útskrifaðist úr grafíkdeild.
Þetta er fyrsta einkasýning Margrétar
en hún hefur tekið þátt í samsýningum
hér heima og erlendis.
Sýningin er opin þriðjudaga til laugar-
daga frá kl. 13-18, sunnudaga frá kl.
14-18, lokað mánudaga.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian.
Sunnud. 17. jan. kl. 14.00, uppselt, sunnud.
17. jan. kl. 17.00, örfá sæti laus, sunnud.
24. jan. kl. 14.00, uppselt, fimmtud. 28. jan.
kl. 17.00, laugard. 30. jan. kl. 14.00, örfá
sæti laus, sunnud. 31. jan. kl. 14.00, upp-
selt, miðvikud. 3. febr. kl. 17.00, örfá sæti
laus, laugard. 6. febr., fáein sæti laus,
sunnud. 7. febr., uppselt..
Miðaverð kr. 1.100, sama verð fyrir börn
og fullorðna.
Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakort,
Ronju-bolir o.fl.
Stórasviðkl. 20.00.
BLÓÐBRÆÐUR
söngleikur eftir Willy Russell.
Frumsýning föstud. 22. janúar kl. 20.00.
Uppselt.
2. sýn. sunnud. 24. jan. Grá kort gilda.
Örfá sæti laus.
3. sýn. föstud. 29. jan. Rauð kort gilda.
Örfá sæti laus.
4. sýn. laugard. 30. jan. Blá kortgilda, örfá
sæti laus.
5. sýn. sunnud. 31. jan. Gul kort gilda.
HEIMA HJÁÖMMU
eftir Neil Simon.
Laugard. 16. jan., uppselt, næstsiðasta
sýning, laugard. 23. jan., allra siöasta sýn-
ing.
Litla sviðið
Sögur úr sveitinni:
eftir Anton Tsjékov
PLATANOV
Laugard. 16. jan kl. 17.00, uppselt, auka-
sýning fim. 21. jan. kl. 20.00, örfá sæti laus,
laugard 23. jan. kl. 17.00, uppselt.
Siðasta sýning.
VANJA FRÆNDI
Aukasýning fös. 15. jan., uppselt, laugard.
16. jan., uppselt, laugard. 23. jan. kl. 20.00,
uppselt, aukasýning sun. 24. jan, örfá sæti
laus.
Síðasta sýning.
Verð á báöar sýningarnar saman aðeins
kr. 2.400.
KORTAGESTIR, ATH. AÐ PANTA ÞARF
MIÐA Á LITLA SVIDIÐ.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn
eftir að sýning er hafin.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir i sima 680680 alla virka
dagafrá kl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslinan, simi 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
Bændur
-Sunnlendingar
EES?? - G ATT??
Borgarafundur með Halldóri Blöndal
landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra
og Hauki Halldórssyni, formanni stétta-
sambands bænda í Hellubíói, Hellu, kl.
21.00 fóstudaginn 15. jan. 1993.
Jón Gunnar Jónsson, framleiöslustjóri
SS, og sérfræðingar landbúnaðarráðu-
neytisins munu einnig svara spumingum
fundarmanna.
Fjölnir FUS, Rangárvallasýslu.
Kjördæmissamtök ungra sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi.
Leikfélag Akureyrar
ÚTLENDINGURINN
Gamanleikur
eftir Larry Shue.
Föstud. 15. jan. kl. 20.30.
Laugard. 16. jan. kl. 20.30.
Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafn-
arstræti 57, alla virka daga nema
mánudaga kl. 14 til 18 og sýningar-
daga frá kl. 14 og fram að sýningu.
Símsvari fyrir miðapantanir allan
sólarhringinn.
Greiöslukortaþjónusta.
Sími i miðasölu:
(96)24073.
Sálarrannsóknafélag
Suðurnesja
Fréttatilkynning
Sálarrannsóknafélag Suðurnesja flytur
í nýtt húsnæði að Víkurbraut 13, 1. og
2. hæð, viö Keflavikurhöfn. Sunnudaginn
17. janúar kl. 13.00 verður húsið opnaö
öllum til skoðunar og til að njóta hinnar
sérstaklega fjölbreyttu dagskrár sem
standa mun í heila viku í tilefni opnunar
nýrrar félagsaðstöðu.
Strax á sunnudeginum verður opnuð
málverkasýning þar sem fjölmargir lista-
menn af Suðumesjum sýna verk sín.
Mest em þetta þekktir listamenn af Suð-
umesjunum en þó em nokkrir sem ekki
hafa verið uppgötvaðir fyrr en e.t.v. nú.
Margir listamannanna hafa ákveðið aö
ef verk þeirra seljast á sýningunni þá
muni hluti andvirðisins renna til styrkt-
ar SRFS.
Þá verður boðið upp á einkamiðilsfundi
hjá Iris Hall og Clive Teal. Guðný Am-
bergsdóttir frá Heilsubúðinni kemur með
árumyndavélina sína svo fólk getur feng-
iö ljósmynd af árunni sinni og stutta lýs-
ingu á hvað hún segir eða hægt er að
lesa úr henni. Læknamiðill verður starf-
andi í húsinu og fólk getur þvi fengið tíma
hjá honum.
Margt fleira verður reynt að hafa og
má geta þess að miðilsefni, sem að visu
em enn í þjálfun og hafa hingað til ekki
haft fundi fyrir almenning né heldur fyr-
ir hinn almenna félagsmann, munu láta
í fyrsta sinn reyna á hæflleika sína með
því að hafa tilraunafúndi utan þjálfunar-
hringja aðeins þessa einu viku, a.m.k.
fyrst um sinn. Þá verður reynt að hafa
kynningu á hugleiðslu og fólk mun geta
fengið aö reyna undir leiösögn þrautþjálf-
aðs fólks. Hugleiðslukynning og fundir
miöilsefnanna munu ekki verða með
reglubundnum hætti og verður fólk því
að fylgjast sérstaklega með því hjá félag-
inu, annaðhvort í afgreiðslu eða í síma
92-13348.
Félagið hvetur eindregið alla til að
koma, jafnt félagsmenn sem aðra, bæði
til að kynna sér nýtt húsnæði félagsins
og til að njóta einstaklega fjölbreyttrar
dagskrár vikuna 17. janúartiI24. janúar.
Fréttatilkynning
Níunda tölublað tímaritsins Bjartur og
frú Emilia - timarit um bókmenntir og
leiklist - er komið út. Meðal efnis í þessu
hefti er grein Berglindar Gunnarsdóttur
um skáldakynslóð Lorca. Sigurður A.
Magnússon ijallar um bresku skáldin
W.H. Auden, C. Day Lewis, Stephen
Spender og Louis MacNeice. Skáldin
Bragi Ólafsson, Charles Bukowski, Úlf-
STOFNFUNDUR
samtaka áhugafólks um skynsamlega nýtingu ís-
lenskra fiskistofna verður haldinn í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 16. janúar kl.
14.00.
Skorað er á almenning að mæta á fundinn og leggja
með því áherslu á að nýta eigi íslensku fiskistofnana
í þágu allrar þjóðarinnar en ekki nokkurra sérhags-
munaaðila.
FULLVINNSLA SJÁVARAFURÐA = FULL
ATVINNA
UNDIRBÚNINGSNEFND
Menning
Vínartónleikar
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Háskólabíói í gærkvöldi. Á
efnisskránni var svonefnd Vínartónlist. Stjórnandi var Páll P. Pálsson.
Milena Rudiferia sópransöngkona söng einsöng. Flutt voru lög eftir Franz
von Suppé, Johann Strauss, Edward Reznieck, Nico Dostal, Josef Strauss,
Jaques Offenbach og Eduard Kunnecke.
Vínartónleikar eru árviss atburður oröinn hjá Sinfóníunni og njóta stöð-
ugra vinsælda. Fullt hús var í gærkvöldi og aðrir tónleikar eru áætlaöir.
Spyrja má hvernig á því standi að dægurtónhst frá nítjándu öld nái svo
endingu. Venjulega deyr tónlist af því tagi með kynslóðinni sem skóp
hana. Hluti af svarinu er að Vínartónlist er óneitanlega vandaðri en
dægurtónlsit yfirleitt og höfundar hennar eiga það almennt sameiginlegt
að kunna fag sitt vel. Meðal annars þekkja þeir hljóðfærin og skrifa vel
fyrir hljómsveitina. Nærtækari skýring er þó sú að meðal þessara höf-
unda var einn sem ágætur getur talist og verk hans hafa alla buröi til
langlífis. Hér er auðvitað átt við Johann Strauss. Gæði verka hans halda
uppi tónlistargreininni og þar með ýmsum öðrum lakari verkum sem
annars væru löngu fallin í gleymsku. Lög eins og „Raddir vorsins" og
„Góöglaður" sem flutt voru í gærkvöldi, eru gott dæmi í hveiju snilld
Strauss felst. Form og undirleikur í lögum þessum eru hvorttveggja í
fastar skorður bundið. Sköpunargleði höfundar fær hins vegar útrás í
laglínunum. Þær eru fullar af lífi og hugmyndagleði. Ekki aðeins það,
heldur hefur Strauss frábært eyra fyrir því sem nýtur sín í flutningi.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Skýrleiki og virkni einkennir þessa tónlist. Þótt Strauss þeri höfuð og
herðar yfir aðra höfunda Vínartónlistar eru einnig til lög eftir aðra sem
nálgast verk hans. Má þar nefna forleikinn úr Donna Diana eftir Reznic-
ek. Aðrir höfundar verka á tónleikunum í gærkvöldi stóðu þessum tölu-
vert að baki.
Einfóld tóniist eins og Vínartónlist í eðh sínu er gerir ekki minni kröf-
ur til nákvæmni í flutningi en önnur tónhst. Heimamenn í Austurríki
hafa sett fyrirmynd um ílutninginn sem gerir miklar kröfur. Því miður
skortir nokkuö á í þessum efnum á þessum tónieikum þótt margt væri
vel gert innan um. Margir einleikarar úr hópi hljómsveitarmanna sýndu
falleg tilþrif. Samspiiiö mátti sums staðár vera betra. Nokkuð bætti þó
upp í þessu efni mikil spilagleði og átti þar ekki minnstan þátt hljómsveit-
arstjórinn sem virtist njóta hvers augnabliks og hreif aðra með sér. Rudi-
feria söng mjög vel. Hún hefur fallega rödd og sýndi gott vald á efninu.
Áheyrendur kunnu vel að meta þetta allt og klöppuðu óspart fyrir hljóm-
listarfólkinu og fengu nokkur aukalög í staðinn.
hildur Dagsdóttir og Kristin Bjamadóttir
eiga ljóð í heftinu. Birtur er kafli úr hinu
fræga verki Oktavio Paz, Völundarhús
einsemdarinnar, í þýðingu Ólafs Engil-
bertssonar. Ritnefnd timaritsins ræðir
við Þór Tulinius leikara. Einnig eru birt
viðtöl við leikskáldið og rithöfundinn
Peter Handke um splunkunýtt leikrit eft-
ir hann og hinn þekkta leikstjóra, Ana-
tolij Vassiljev. Þorvaldur Þorsteinsson á
tvö leikverk í heftinu og fjallað er um
nýja þýðingu Karls Guðmundssonar á
verki Moliéres, Mannhataranum.
Tímaritið Bjartur og frú Emilía er 125
síöur. Forsíðu gerði Grétar Reynisson
myndlistarmaður. Ritið kemur út flórum
sinnum á ári. Áskriftargjald er 1993 krón-
ur fyrir árið 1993 og hækkar um 1 krónu
ár hvert. Útgefandi er bókaútgáfan Bjart-
ur.
Nýstjömuspá á hverjum degi. Hringdu! 39,90kr.mínúian