Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Page 26
34 FÖSTUBAGUR 15. JANÚAR 1993. Afmæli Ámý Margrét Guðmundsdóttir Ámý Margrét Guðmundsdóttir, starfsmaður Dvalarheimilisins i Stykkishólmi, til heimilis að Höfða- götu 27, Stykkishólmi, er fimmtug í dag. Starfsferill Ámý fæddist á Uxahryggjum á Rangárvöllum og ólst þar upp. Hún vann nokkrar vertíðir hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum frá sautján ára aldri en var síðan húsmóðir í Kópa- vogi 1964-69. Amý var ráðskona að Slitvinda- stöðum í Staðarsveit og stundaöi síðan búskap á hálfri jörðinni á ár- unum 1973-63. Þá flutti hún í Stykk- ishólm þar sem hún hefur búið síð- an og starfað við Dvalarheimili aldr- aðra. Fjölskylda Ámý giftist 1964 fyrri manni sín- um, Auðuni Sigurðssyni frá Vatns- enda í Eyjafirði. Hann er sonur Benedikts Guðmundssonar, fyrrv. b. á Vatnsenda, og Jakobínu Sigurð- ardóttur húsfreyju. Árný og Auð- unn slitu samvistum 1969. Synir Ámýjar og Auðuns eru Kristján Viktor Auðunsson, f. 5.1. 1964, vörubílstjóri hjá Sigurði Ág- ústssyni hf. en unnusta hans er Hildur Kristín Vésteinsdóttir nemi; Þröstur Ingi Auðunsson, f. 6.2.1965, rafvirki og sjómaður en unnusta hans er Hugrún Sigurðardóttir nemi. Ámý gifist 1973 seinni manni sín- um, Kristmanni Hreini Jónssyni, f. 28.11.1933, starfsmanni hjá Sigurði Ágústssyni hf. í Stykkishólmi. Hann er sonurjón Kristjánssonar, b. á Efra-Hóli í Staðarsveit, og Unu Kjartansdóttur húsfreyju. Dóttir Ámýjar og Kristins er Edda Sóley Kristinsdóttir, f. 19.5.1972, húsmóðir, en unnusti hennar er Jón Ingi P. Hjaltalín sjómaður og eiga þau eina dóttur, Omu Dögg, f. 13.6. 1991. Systkini Árnýjar eru Ingibjörg, f. 28.6.1932, d. 13.4.1965; Gíslína Margrét, f. 1934, dó ársgömul; Magn- ús, f. 30.6.1936, b. á Uxahrygg; Dýr- finna, f. 18.5.1939, húsmóðir á Hellu; Erlingur, f. 17.9.1940, vörubílstjóri á Hellu; Ingibjörg, f. 23.1.1946, hús- móðir á Eyrarbakka; Gísli, f. 22.6. 1948, lögreglumaður á Grundarfirði. Uppeldisbróðir og systursonur Árnýjar er Guðmundur Hólm Bjarnason, f. 15.12.1950, sjómaður. Foreldrar Árnýjar voru Guð- mundur Hreinn Gíslason, f. 30.8. 1903, d. 1987, b. á Uxahrygg, og kona hans, Hólmfríður Magnúsdóttir, f. 31.1.1910, d. 1983, húsfreyja. Ætt Guðmundur var sonur Gísla, b. í Húnakoti í Þykkvabæ, bróður Vil- hjálms, b. í Dísukoti, föður Ingvars, útgerðarmanns, fóður Jóns, stjóm- arformanns SH. Gísli var sonur Hildibrands, b. í Vetleifsholti, Gísla- sonar, b. í Oddsparti í Þykkvabæ, Gíslasonar. Móðir Gísla var Sigríð- ur Einarsdóttir, b. á Búðarhóli í Þykkvabæ, Ólafssonar, b. á Seh í Holtum, Jónssonar. Móðir Ólafs var Guðrún Brandsdóttir, b. á Felli í Mýrdal, Bjarnasonar, b. á Víkings- læk, Halldórssonar, ættfóður Vík- ingslækjarættarinnar. Móðir Guð- mundar var Margrét Hreinsdóttir, b. á Sperðli í Landeyjum, Guðlaugs- sonar, b. í Hemlu í Landeyjum, Bergþórssonar. Hólmfríður var dóttir Magnúsar, b. í Hvítanesi í Vestur-Landeyjum, bróöur Andrésar klæðskera. Magn- ús var sonur Andrésar, b. og for- manns í Hemlu í Landeyjum, Andr- éssonar, b. í Hemlu, Andréssonar. Móðir Magnúsar Andréssonar var Hólmfríður Magnúsdóttir frá Ásólfsskála. Móðir Hólmfríðar á Uxahrygg var Dýrfinna Gísladóttir, b. á Seljavöllum undir Eyjaíjöllum, Guðmundssonar, b. á Seljavöllum Gíslasonar, frumbúa á Seljavöllum. Árný Margrét Guðmundsdóttir. Móðir Dýrfinnu var Margrét Sig- urðardóttir frá Hvammi. Árný tekur á móti gestum að heimili sínu eftir kl. 20.00 á afmæhs- daginn. Bjöm Palsson Flygenring Björn Pálsson Flygenring læknir, búsettur í Bandaríkjunum, er fer- tugurídag. Starfsferill Bjöm fæddist í Hafnarfirði og ólst upp bæði þar og í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MT1973 og varð cand. med. ffá HÍ1982. Bjöm var við framhaldsnám viö University of Wisconsin, Madison, í lyflækningum 1984-87 og við Uni- versity of Washington, Seattle, í hjartasjúkdómum 1987-90. Bjöm er í dag sérfræðingur í lyf- lækningum og hjartasjúkdómum og hefur starfað sem yfirlæknir hjarta- deildar William S. Middleton Veter- ans Hospital í Madison og jafhframt verið aðstoðarprófessor við Uni- versity of Wisconsin i Madison í Bandaríkjunum frá árinu 1992. Fjölskylda Björn er kvæntur Valgerði Haf- stað, f. 14.7.1963, húsmóður með BA í ensku, MA í enskum bókmenntum og MBA. Hún er dóttir Páls Hafstað, f. 8.12.1917, d. 5.9.1987, fyrrum skrif- stofustjóra Orkustofnunar, og Ragnheiðar Baldursdóttur, f. 20.10. 1919, húsmóður og kennara, sem býr íReykjavík. Dóttir Bjöms og Valgerðar er Ragnheiður Þóra, f. 5.9.1992. Bjöm á tvær systur. Þær em: Kirstín, f. 19.5.1955, hagfræðingur, gift Sigurði R. Helgasyni, forstjóra Björgunar, og eiga þau dótturina Þóm; ogElín, f. 12.5.1957, lögfræð- ingur, ritari Menningarmálanefnd- ar Noröurlandaráðs í Stokkhólmi, gift dr. Finnboga Jakobsyni lækni og eiga þau dætumar Kristel og Björgu. Foreldrar Bjöms em Páll Flygen- ring, f. 17.10.1925, verkfræðingur og fyrrv. ráðuneytisstjóri í iðnaöar- ráðuneytinu, og Þóra Jónsdóttir, f. 17.1.1925, ljóöskáld. Ætt Páll Flygenring er sonur Kirstínar Pálsdóttur, Þorsteinssonar, b. í Tungu í Fáskrúðsfirði, og Ingólfs Flygenring, alþingismanns í Hafn- arfirði og forstjóra í íshúsi hf., Ág- ústssonar Flygenring, alþingis- manns þar, Þórðarsonar, b. á Fiski- læk, Sigurðssonar ogk.h., Sigríðar Runólfsdóttur, hreppstjóra á Saurbæ á Kjalamesi, Þórðarsonar og k.h., Halldóru Ólafsdóttur, b. á Blikastöðum, Guðmundssonar. Systir Sigríðar var Guðrún, kona Matthíasar prests og skálds Joch- umssonar. Bróðir Sigríðar var Þórð- ur á Móum, faðir Bjöms forsætis- ráðherra, föður Þórðar, fyrrverandi ríkissaksóknara. Þóra er dóttir Jóns Helga, b. á Laxamýri, Þorbergssonar, b. á Björn Pálsson Flygenring. Helgastööum í Reykjadal, Hall- grímssonar og Elínar Vigfúsdóttur frá Gullberastöðum í Borgarfirði, Péturssonar. Kona Þorbergs var Þóra Hálfdán- ardóttir, b. á Öndólfsstöðum, Bjömssonar. Kona Hallgríms var Bergþóra Magnúsdóttir, b. á Hall- dórsstöðum í Laxárdal, Þórarins- sonar. Bræður Jóns Helga eru Jónas, fyrrv. útvarpsstjóri og alþingismað- ur, faðir Jónasar útvarpsmanns, föður Sigurlaugar, þulu hjá Sjón- varpinu, og Hahgrímur, b. á Hah- dórsstöðum í Laxárdal. Til hamingju með daginn 15. janúar 90 ára Bergþóra Hafliðadóttir, Sæunnargötu 6, Borgarnesi. 85 ára Sigurður Guðmundsson, fyrrum b. og símstöðvarstjóri, Am- arstapa á Mýrum, nú til heimihs að Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi. 75 ára Dalrós Sigurgeirsdóttir, Þórunnarstræti 130, Akureyri. Sveinn Þórðarson, Kvíabólsstig 1, Neskaupstaö. 70 ára Lilja Halldórsdóttir, Flúðabakka l, Blönduósi. Anna Bjarnadóttir, Vinnslustöðinni, Vestmannaeyj- um. 60 ára Hannes Eggertsson, Þórseyri, Kelduneshreppi. Óli Jóhannsson, Hjallavegi 1, Reyðarfirði. GarðarSveinsson, Blöndubakka3, Reykjavík. Stefán Ragnar Árnason, BarrhoIti3, Mosfellsbæ. Ingibjörg Jónsdóttir, Hábergi 32, Reykjavik. Guðrún H. Arndal, ÁlfaskeiðiSO, Hafnarfirði. Ingibjörg Friðbertsdóttir, Vesturbergi 81, Reykjavík. 40ára Kolbrún Halldórsdóttir, Urðarvegi 50, ísafirði. Gunnar Þór Grétarsson, Foldahrauni26, Vestmannaeyjum. Haraldur Jónsson, Lækjarbergi 22, Hafharfirði. Héðinn Heiðar Baldursson, Faxabraut 30, Keflavík. Brynja Guðbjörg Valgeirsdóttir, Vesturbergi 117, Reykjavík. Gunnar Geirsson, Skólavegi 94a, Fáskrúðsfirði. Þórður Pálsson Þórður Pálsson, kaupfélagsstjóri og bóndi á Refsstað í Vopnafirði, varð fimmtugur í gær. Starfsferill Þórður fæddist á Refsstað og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða- og landsprófi frá Laugaskóla í Þingeyj- arsýslu og stundaði síðan skrif- stofustörf og húsasmíði. Þórður hefur ætíð átt heima á Refsstað og hefur verið bóndi þar frá 1970. Jafnframt hefur hann verið kaupfélagsstjóriK.V.V. frá 1989, verið framkvæmdastjóri Sláturfé- lags Vopnfirðinga hf. frá 1989 og framkvæmdastjóri Mjólkursamlags Vopnfirðinga hf. frá sama tíma. Þórður var Stéttarsambandsfuh- trúi 1971-88 og sat í stjóm Stéttar- sambands bænda 1987-89. Þá hefur hann, ásamt konu sinni, séð um framkvæmdastjóm byggingar Sundabúðar, dvalarheimihs og legudeildar aldraðra, frá 1976. Fj'ölskylda Þórður kvæntist 6.4.1971 Ágústu Þorkelsdóttur, f. 6.2.1944, bónda og húsfreyju. Hún er dóttir Þorkels Gíslasonar, verkamanns í Reykja- vík, og Freyju Pétursdóttur hús- móður sem bæði eru látin. Sonur Ágústu er Þorsteinn Bergs- son, f. 27.6.1964, ráðunautur Búnað- arsambands Austurlands, kvæntur Soffiu Ingvarsdóttur. Synir Þórðar og Ágústu era Páh Þórðarson, f. 6.6. 1971, háskólanemi, búsettur á Refs- stað, og Skúh Þórðarson, f. 21.5. 1972, iðnnemi, búsettur á Refsstað. Systkini Þórðar: Svava Pálsdóttir, f. 25.3.1941, fóstra á Vopnafirði, gift Konráð Ólafssyni og eiga þau 3 dæt- ur; Ásgerður Pálsdóttir, f. 3.2.1946, bóndi á Geitaskarði í Langadal, gift Ágústi Sigurðssyni og eiga þau 4 böm; Gunnar Pálsson, f. 6.6.1948, bóndi á Refsstað, kvæntur Marie Th. Robin og eiga þau tvö börn. Hálfsystkini Þóröar, samfeðra, eru Víglundur Pálsson, f. 25.5.1930, bankastjóri á Vopnafirði, kvæntur Elínu Friðbjömsdóttur og eiga þau tvö böm en fyrri kona hans var Jóhanna Einarsdóttir og eiga þau íjögur böm; Bjöm Pálsson, f. 24.5. 1931, jámsmiður á Vopnafirði, var kvæntur Katrínu Valsdóttur og eiga þau þrjú börn; Guðlaug Pálsdóttir, f. 27.4.1932, húsmóðir í Reykjavík, gift Steinari Péturssyni og eiga þau fimm dætur; Erhngur Pálsson, f. 3.7. 1933, fyrrv. bóndi og nú verkamaður á Vopnafirði, kvæntur Önnu Geirs- dóttur og eiga þau þrjú böm. Foreldrar Þórðar; Páh Metúsal- emsson, f. 24.8.1899, d. 16.6.1975, bóndi á Refsstað, og kona hans, Sig- ríöur Þórðardóttir, f. 19.4.1908, hús- freyjaáRefsstað. Ætt Páll var sonur Metúsalems, b. á Svínabökkum, Jósefssonar, b. á Svínabökkum, Jónssonar, b. á Refs- stað Péturssonar, afa Sigfúsar Ey- mundssonar, ljósmyndara og bók- sala. Móðir Páls var Guðlaug Páls- dóttir, silfursmiðs á Éyjólfsstöðum, bróður Þórunnar, ömmu Þorsteins Gíslasonar, skálds og ritstjóra, föð- ur Gylfa, fyrrv. ráðherra og Vil- hjálms útvarpsstjóra. Páll var sonur Sigurðar, umboðsmanns á Eyjólfs- stöðum, Guðmundssonar, og Ing- unnar Vigfúsdóttur, prests á Val- þjófsstað, Ormssonar. Móðir Guð- laugar var Helga Benjamínsdóttir, Þorgrímssonar og Guðrúnar Vig- fúsdóttur, b. í Fremraseh, Tómas- sonar. Bróðir Sigríðar var Sigvaldi Thordarson arkitekt. Sigríður var dóttir Þórðar, b. á Ljósalandi í Vopnafirði, Jónassonar, b. á Selási í Víðidal, Guðmundssonar, b. á Refs- stöðum, Jónssonar. Móðir Þórðar á Ljósalandi var María Guðmunds- dóttir, b. á Efri-Þverá í Vesturhópi, Skúlasonar. Móðir Maríu var Júl- íana Steinsdóttir Bergmanns, b. á Þorkelshóh, Sigfússonar Berg- manns, b. á Þorkelshóh, ættföður Bergmannsættarinnar. Albína var dóttir Jóns, b. á Ljósa- landi, Kristjánssonar, b. á Hrauni í Aðaldal, Sigmundssonar, b. á Breiðumýri, Markússonar. Móðir Albínu var Jóhanna Jóhannesdótt- ir, b. í Skógum í Öxnadal, Þórarins- sonar, b. í Lóni, Guðmundssonar. Móðir Þórarins var Ingunn Páls- dóttir, b. á Víkingavatni, Amgríms- sonar, sýslumanns á Laugum, Hrólfssonar. Þórður tekur á móti gestum á heimili sínu í dag eftir kl. 20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.