Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1993, Qupperneq 32
F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglysingar - Áskrift - Dreifing: Simi 63 27 00 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993. Gáskabátar til Kanada: Sjálfhætt hér á landi - segir Regin Grímsson „Það er sjálfhætt í þessu hér á landi. Stefna stjórnvalda og LÍÚ er að fækka bátum og þá syrti í álinn hjá okkur. Ég fór nýverið með einn bátanna til Kanada og þar reyndist mikill áhugi. Við ákváðum því að flytja framleiðsluna þangað," segir Regin Grímsson, eigandi Mótunar sem sér um framieiðslu á Gáskabát- um. Regin og íjórir aðrir starfsmenn Mótunar í Hafnarfirði flytjast til Kanada í næsta mánuði til að halda áfram framleiðslu á Gáskabátum, 5,9 tonna plastbátum. Alls hafa verið framfeiddir um 400 Gáskabátar hér á landi frá árinu 1977. Upp á síðkast- ið hafa 6 menn starfað við bátagerð- iná en þegar mest var störfuðu um 20mannshjáfyrirtækinu. -kaa Börnin kunna vel að meta skafiana enda er snjódýpt i Vestmannaeyjum þessa dagana með því mesta sem Eyjamenn hafa kynnst. DV-mynd Ómar Vestmannaeyjar: Skaf larnir á þriðja metra Órnar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum: Snjódýpt í Vestmannaeyjum þessa dagana er með því mesta sem Eyja- menn hafa kynnst um áratugaskeið. í bænum eru ruðningsskaflar sem eru vel á þriöja metra og þeir eru árangur tveggja sólarhringa mokst- urs á götum. Enn sér ekki fyrir end- ann á mokstrinum. Allar götur í bænum eru sæmilega greiðfærar þó á sumum sé aðeins hægt aö keyra í aðra áttina. Hreinsun flugvallarins var ekki lokið fyrr en síðdegis í gær og hafði þá staðið á annan sólarhring. Fyrsta flugvélin lenti á fimmta tímanum en þá hafði verið ófært fram að því vegna snjóa þó veður væri hið besta. Flórídafangamir: Fæðið lélegt og allt ís- lenskt lesefni endursent fengum soðinn hamborgara á jólunum, segir Pétur Júlíusson Anna Bjamason, DV, Hórida: „Þegar maöur er fangi á maður ekki að vera að kveina og ég tel mig ekki vera að því þó ég segi ykkur frá staðreyndum. Veran hérna í fangelsinu er mjög slæm,“ sagði Pétur Júlíusson, annar islensku fanganna, sem verið hafa í alríkis- deild fangelsisins í Sanford í Flórída í símtali viö DV. Fangamir tveir hafa setið inni síðan í nóv- ember og bíöa nú dóms. „Maturinn er fyrir neðan allar hellur. Hann er soðinn einhvers jóladaginn fiskstykki með spínati. Skammturinn var eins og upp í nös á ketti. Við viljum ekki ræða sjálft málið - ákæruna á hendur okkur - fyrr en eftir að refsing okkar hefur ver- iö ákveðin. Við viljum heldur ekki vera með eitthvert kvein en það eru viss atriði sem við teljum að ekki eigi að leyna. Mest af öllu sárnar okkur félög- unum að nú er búið að ákveöa end- anlega að við faum ekki afhenta þijá eða fjóra blaða- og bókapakka frá fólkinu okkar heima á íslandi. um þau send i áskrift frá útgefend- um. Þið mynduð kannski vilja koma þeim skilaboðum áleiðis til einhverra útgefenda eða annarra sem vilja stytta okkur stundir að reyna sannleiksgildi þeirrar full- yrðingar með þvi að senda okkur blöð þannig innpökkuð. Pétur sagði að í fangelsinu væri hægt að kaupa ýmislegt smávegis eins og sjampó og sælgæti en úrval- ið væri nú ekki til að státa af. Samt heföi það súkkulaði, sem hann heföi fengiö þar, komiö sér vel. Hann hefði reynt að nota það sem staöarútiibæmörgumklukkutím- Þeir verða allir endursendir. Þaö uppbót á lélegt fæði. I búðinni væri um áður en við fáum hann. Svo er sárt því hér eru allir aðrír að hins vegar ekki hægt að £á jafn faum við hann í einhverjum lesa blöð og tímarit á sínu eigin sjálfsagðan hlut og tannbursta. stálboxum. Á aðfangadaginn feng- tungumáli. Þeirsegjaaðviðgætum Fangarnir fá einn tannbursta á um við soöinn hamborgara og á fengiðþessiblöðafhentefviðfengj- mánuði og eru þeir af mjög lélegri gerð. Pétur sagði að eftir 10-15 daga væru burstahárin eiginlega horfin og þá yrðu menn bara að notast við skaftiðeitt Hann taldi að reglur um útivist fanganna væru stundum brotnar. Þeir ættu að fá útivist þrisvar f viku, eina klukkustund í senn - nema þegar blautt væri úti. Svo heföi oft verið að undanfömu og útivistartíminn því skorinn niöur og Pétri virtist sem ýmsar fleiri ástæður væru notaðar til að stytta útivistina. Pétur segir þá félaga hafa kvartað til yflrmanna fangelsisins en ekk- ert svar fengið. Nýtt og glæsilegt iþróttahús var opnað við Selásskóla í Seláshverfi í gærdag. Unga fólkið lét sig ekki vanta og er sjálfsagt hið ánægöasta með húsið. Sem þakklætisvott frá börnum í hverfinu gaf þessi unga stúlka Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra blómvönd við opnunina. DV-mynd BG Ákæruvald lögreglustjóra: Beiðniríkissak- sóknaraveltekið - frumvarp væntanlegt Aðstoðarmaður dómsmálaráð- herra sagði við DV í morgun að gert væri ráð fyrir að farið yrði að beiðni ríkissaksóknara um breytingar á lögum um meðferð opinberra mála sem snýr að ákæruvaldi allra lög- reglustjóra á landinu. Eins og fram kom í DV í vikunni er genginn hæsta- réttardómur þar sem niðurstaðan varð aö lögreglustjórar hafi ekki heimild til að gefa út ákæmr, m.a. í minni líkamsárásarmálum - þvert á þau vinnubrögö sem ríkissaksóknari fól lögreglustjórum frá 1. júlí. Þetta þýðir að fjöldi kærumála er kominn í biðstöðu. Ríkissaksóknari bað ráðuneytið samkvæmt þessu strax um að breyt- ingau- yrðu gerðar á lögunum. „Ég reikna með að beiðni ríkissak- sóknara verði vel tekið. Við lögðum bréfið fyrir ráðherra. Það verður reynt að vinna eins hratt og kostur er og að hafa væntan- legar breytingar tilbúnar þegar þing kemur saman þann 10. febrúar. Ég reikna með að frumvarpið verði lagt fram fljótlega upp úr því og reynt verði að fá það sem fyrst samþykkt eftir það,“ sagði Ari Edwald, aðstoð- armaðurdómsmálaráðherra. -ÓTT LOKI Eiga þeirekki 5stjörnu fangelsi í Bandaríkjunum? Veöriðámorgun: Kaldi eða stinnings- kaldi Á hádegi á morgun verður aust- læg átt, kaldi eða stinningskaldi. Él, einkum sunnanlands og vest- an og á annesjum norðanlands. Frost 1-8 stig. Veðrið 1 dag er á bls. 36 ÖRYGGI - FAGMENNSKA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.