Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1993.
11
Utlönd
Leikarinn Guilherme de Padua hefur játað að hafa stungið mótleikkonu
sína tólf sinnum með skærum. Simamynd Reuter
Játning í brasilíska „sápuóperumoröinu“:
Leikkonan var
með brókarsótt
- sagöimorðinginníjátningufyrirrétti
Rannsókn á svokölluðu „sápuó-
perumorði“ í Brasilíu er lokið með
játningu aðalsakborningsins. Guil-
herme de Padua, aðalleikari í sápuó-
perunni Af lífi og sál, játaði fyrir rétti
að hafa stungið mótleikkonu sína,
Danileu Perez, tólf sinnum með
skærum þann 28. desember.
Morðinginn sagði að sér hefði verið
nauðugur einn kostur því leikkonan
hefði verið með brókarsótt og sótt
það óþægilega fast að komast í bólið
með honum.
Þar með er botn fenginn í mál sem
í þijár vikur hefur verið uppspretta
ótrúlegustu sagna meðal almennings
í Brasihu. Morðinginn sagði að kona
sín þunguð hefði hvergi komið nærri
þótt hún hefði áður játað á sig verkn-
aðinn.
Hún sagðist hafa banað leikkon-
unni með skrúflámi en lögreglan tel-
ur sannað að skæri hafi verið notuð
við verkiö. Nú sagðist hún hafa verið
í verslunarmiðstöð í sjö klukkutíma
daginn sem morðið var framið en
ekkert keypt.
Því var lengi trúað að leikkonunni
hefði verið fómað við trúarathöfii
djöfladýrkenda. Leikarinn og kona
hans áttu að vera þar fremst í flokki
og sagt var að þau hefðu heitið hvort
öðm ævarandi trúnaði með því að
láta tattóvera nöfn sín á kynfæri
hvors annars.
Sápuóperan Af lífi og sál naut
óhemjuvinsælda allt þar til hin raun-
verulega harmsaga skyggði á hana.
Móðir hinnar myrtu var höfundur
handritsísápunni. Reuter
qífarskóli
ÖLAFS GAUKS
SÍÐASTA INNRITUNARVIKA
Innritun virka daga kl. 14-17 í síma 27015
Skírteinaafhending laugard. 23. jan. kl. 14-17 í skólan-
um, Stórholti 16. Kennsla hefst 25. janúar.
Vandaóur og spameytinn 5 dyrajeppi
Verð frá
1.678.000 kr.
Aflmikil 16 ventla vél með beinni innspýtingu, 96 hö.
Vökvastýri - vandaður búnaður
Gormafjöðrun á öllum hjólum, aksturseiginleikar í sérflokki.
Grindarbyggður - auðvelt að hækka bílinn upp.
Eyðsla frá 8 lítrum á 100 km.
$ SUZUKI
**-----------
SUZUKI BÍUUt HF
SKEIFUNNI 17 . SlMI 685100
ÍSLANDSBANKA
Sparileiðir íslandsbanka fœra
þérgóða ávöxtun á bundnum
og óbundnum reikningum
Sparileib 3 gafS, 3 % raunávöxtun
á árinu 1992 sem var hœsta raunávöxtun mebal
óbundinna reikninga í bönkum og sparisjóöum.
ÍSLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma!
Sparíleib 4 er bundinn reikningur sem gaf
6,3% raunávöxtun áriö 1992.
Ávaxtaðu sparífé þitt á árangursríkan hátt. íslandsbanki býður
fjórar mismunandi Sparileiðir sem taka mið afþörfum hvers og eins.