Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00 Frjálst, óháð dagblað MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1993. Maðurinn veitti mótspyrnu við hand- tökuna. DV-mynd Sveinn Lögreglan: > Braut rúðu til að ná glanna Lögreglunnl í Reykjavík var í gær- kvöldi tilkynnt um glannaakstur ökumanns sem meðal annars hafði farið þrisvar sinnum yfir á rauðu ljósi og virti engar umferðarreglur. Lögregla reyndi að stöðva ferð mannsins til móts við Hótel Esju en maðurinn hlítti því ekki og ók á lög- reglubifreið. Það var ekki fyrr en á mótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegs aö tókst að stöðva bíl- inn. Ökumaðurinn neitaði þá að opna bifreiðina og þurfti að brjóta hliöarrúðu til að ná manninum út. Hann hefur ítrekað áður komið viö x sögu lögreglu fyrir umferöarlaga- brot. -ból Seyðisíjörður: Hættuástandi aflétt Hættuástandi hefur verið aflétt sunnan megin Seyðisfjaröar en þar var talin ástæða til að loka fyrir umferð í gær sökum hættu á snjó- flóðum. Vegurinn sunnan megin í firöinum var lokaður til móts við Síldarverk- smiðjur ríkisins. Mikið hefur snjóað á Seyðisfirði og safnast snjórinn saman í gilskominga sem skapar flóðahættu. -ból Hagvirki kaup ir SH verktaka - kaupverðið600þúsimdkrónur „Já, það er það að frétta að Verk- fræðiskrifstofa Jóhanns Bergþórs- sonar hefur gert tilboð í hlutabréf i SH verktökum og það liggur fyrir samþykki stjórnar fyrir því. Stjórnin sem sagt leggur þaö til við alla eigendur að því verði tekiö segir Jón ingi Gíslason, stjórnar- formaður og fyrrverandi forstjóri SH verktaka. Stjórnin sat á fundi í gær og stóð hann langt fram á nótt. Jón Ingi sagöi að Jóhann mundi kaupa hlutinn á sama verði og Pét- ur Blöndal ætlaöi að kaupa á eða rúralega 600 þúsund krónur en það er um 1% af nafnverði hlutafjár. Hann sagðist ekki eiga von á ööru en flestir hluthafar samþykktu þetta. „Þetta tryggir þaö að mennirnir halda vinnunni og hægt verður að halda áfram með þau verkefni sem viö höfum. Jóhann mun kaupa fyr- irtækiö í heild sinni, án skilmála, og ber þvi ábyrgð á þeim skyldum sem hvíla á fyrirtaeki sem er í greiöslustöðvun," segir Jón Ingi. Hagvirki-Klettur mun að likindum taka við verkefnum SH verktaka. Jón Ingi sagði að Sparisjóður Hafnaríjarðar kæmi hvergi nærri þessum samningum nú en eins og kunnugt er spunnust deilur milli sjóösíns og Péturs Blöndals vegna greiðslna fyrir verk þau sem SH verktakar eru að vinna. SH verk- takar skulda sparisjóðnum hátt í 30 milljónir. Jóhann Bergþórsson, forstjóri Hagvirkis-Kletts, vildi ekkert um máliö segja er DV haföi samband viðhannímorgun. -Ari Báðir bílarnir eru illa farnir eftir áreksturinn í gærkveldi. DV-mynd Sveinn Færeyjar: MaritaPeter- sen lögmaður í stað Atla Dam Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum; Marita Petersen verður kjörin lög- maður Færeyja á fundi í lögþinginu síðdegis í dag. Hún verður fyrsta konan til að gegna því embætti. Þingflokkur Jafnaðarflokksins ákvað á fundi í gærkvöldi að Marita skyldi taka við af Atla Dam sem lét af embætti á fóstudag. Hann hafði fyrir löngu ákveðið að draga sig í hlé. Jafnaðarmenn funduðu einnig um eftirmann Atla á laugardag en náöu ekki samstöðu. Þegar upp var staðið höfðu Marita Petersen og Tomas Arabo fengið jafnmörg atkvæði í flokksstjórninni. Marita Petersen er kennari að mennt en hún var kjörin á þing í síð- ustu kosningum. Afli Dam mun sitja áfram á lögþinginu, jafnframt því sem hann starfar vlð fjármálastofn- un sem lánar til fiskiskipakaupa. Ókástaw Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið á staur við Kópa- vogslæk snemma í morgun. Maðurinn var á suðurleið og missti vald á bfl sínum í hálku með þeim aíleiðingum að hann rakst á staur. MeiðsU mannsins reyndust ekki al- varleg. -ból Árásunum mótmælt Samtök gegn stríði efndu til friðar- stöðu fyrir utan bandaríska sendi- ráðið í gærkveldi tfl að mótmæla stríðsrekstri Bandaríkjanna í írak. Um 20 manna hópur fólks stóð í tæpan klukkutíma fyrir utan sendi- ráðið með mótmælaspjöld og logandi kerti. -ból lega í árekstri Kona slasaðist alvarlega í hörðum árekstri á Norðurströnd á Seltjarn- amesi í gærkveldi. Konan ók fólksbfl og er talið að hún hafi farið yfir á rangán vegarhelming og lent framan á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Sjúkra- og tækjabif- reið var kölluð á staðinn og þurfti að nota klippur fll að ná konunni út úr bílnum. Hún slasaðist mikið og er meðal annars tahn brotin á báðum fótum. Hún er ekki talin í lífshættu. -ból . LOKI Það munar ekki um kepp í sláturtíðinni! Veöriðámorgun: Skýjaðen úrkomu- laust Fremur hæg suðaustanátt sunnan- og vestanlands með dálítilli slyddu við suðurströndina. Annars verður að mestu skýjað en úrkomulaust. Veðrið í dag er á bls. 44 ÖRYGGI - FAGMENNSKA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.