Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1993.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsíngar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Schliiter hættir
Dregið hefur til tíðinda í dönskum stjómmálum. Poul
Schliiter forsætisráðherra hefur sagt af sér í kjölfar
skýrslu rannsóknardómara, sem komst að þeirri niður-
stöðu að Schliiter hefði gert tilraun til að blekkja þingið
og gefið því rangar upplýsingar. Schliiter hefur að vísu
mótmáelt þessari niðurstöðu en dregur sig engu að síður
í hlé af því hann telur ásakanirnir svo alvarlega að
hann geti ekki gegnt embætti forsætisráðherra.
Poul Schliiter hefur verið forsætísráðherra Dana í tíu
ár. Það er langur tími í pólitík og langur valdaferill
Schliiters er því merkilegri að hann er formaður íhalds-
flokksins sem nýtur ekki fylgis nema fimmtungs dönsku
þjóðarinnar og ríkisstjómir Schliiters hafa jafnan verið
minnihlutastjómir.
Stjómkænska Schliiters og lagni við að ná málamiðl-
unum, reynsla hans og persónutöfrar hafa hins vegar
fleytt honum yfir allar torfærur og komið honum í þá
sterku stöðu að Danir hafa varla getað hugsað sér stjóm
án forystu Schliiters. Aðrir stjómmálamenn hverfa í
skuggann.
Auðvitað hafa aðgerðir ríkisstjóma Pouls Schliiter
ekki alltaf verið vinsælar. Sérstaklega hafði hann mót-
byr á fyrstu árunum þegar hann var að vinda ofan af
velferðarkerfinu og óráðsíunni í Danmörku. Efnahagur
Dana var einnig í rúst þegar Schliiter tók við en með
seiglu og þrautseigju hefur Schliiter tekist að rétta
dönsku skútuna við. Efnahagur Dana er nú allt annar
og betri, ríkisfiármál í jafnvægi og uppsveifla í atvinnu-
lífi. í tíð Pouls Schluter gengu Danir í Evrópubandalag-
ið einir norrænna þjóða og þeir hafa fyrir vikið haft
vissa forystu á Norðurlöndum þar sem bæði Schluter
og EUeman Jensen hafa verið áberandi.
Það er pínlegt og raunar úr fókus að Schluter skuh
þurfa að hætta vegna tamílamálsins vegna þess að það
er í rauninni lítið mál og ómerkilegt miðað við aðrar
ákvarðanir og aðgerðir forsætisráðherrans. Schluter er
sakaður um að hafa gefið þinginu rangar upplýsingar
um hlut sinn í því máli sem heyrði undir annan ráð-
herra og ráðuneytí.
Það er fótaskortur sem hefur orðið honum að falli.
Það leiðir hugann að því hvort slíkir hlutir geti gerst
hér á landi. Hversu oft hafa ráðherrar ekki verið staðn-
ir að því að segja rangt til, eða farið með hvíta lygi?
Hversu oft hafa ummæh íslenskra ráðherra ekki orkað
tvímæhs og tilefhi gefist til rannsókna á staðreyndum?
Hvað sem um Schluter má segja og hvað sem hður
viðurkenningu á ágæti hans, stendur forsætisráðherr-
ann frammi fyrir niðurstöðu rannsóknardómara, sem
áfelhst ráðherrann og sakar hann um að fara með rangt
mál. Mál þetta snýst um póhtískt siðferði en ekki refsi-
verðan verknað eða afglöp í starfi. í Danmörku er það
nóg. Honum er ekki stætt lengur.
Hér á landi mundu stjómmálamenn seint samþykkja
rannsókn á málflutningi sínum. íslenskir stjómmála-
menn em ekki siðavandir og raunar er aðhald almenn-
ings eða sjálfstæðra rannsókna htið sem ekkert. Em
þó tilefhin ærin og auðvitað á að gera kröfur um sið-
ferði, heiðarleika og tiltrú til þeirra manna, sem em
kjömir forystumenn þjóðar.
Fah Poul Schluter er leiðinlegt en lærdómsríkt. Þar
fer góður maður fyrir htið en það má Schluter eiga að
hann tekur sjálfan sig nógu alvarlega til að játa að hann
getur ekki setið undir ásökunum um óheiðarleika. Það
mættu fleiri gera.
Ehert B. Schram
Greinarhöffundur telur ólíklegt aö samdráttur samhliða tilraunum til aö ná niður veröbólgu hvetji stjornmála-
menn kosna tíl 4 ára til stórra aðgerða gegn verðbólgunni.
Mikilvægi
stöðugleikans
Hagfræðingar virðast nokkuð al-
mennt þeirrar skoðunar að stöðug-
leiki í verðlagi sé markmið númer
eitt. I vaxandi mæli setja seðla-
bankar heims sér það meginmark
að halda verðbólgu niðri og í smn-
um löndum er það beinlínis hlut-
verk seðlabankans. Þannig á seðla-
banki Þýskalands að vinna að stöð-
ugleika í verðlagi samkvæmt lög-
um og setur sér það mark að verð-
bólgan verði innan við 2%. Samá
mark hafa sett sér seðlabankar
Nýja Sjálands, Kanada og Japan,
svo að dæmi séu nefnd. Hið stöðuga
verðlag á síðan að vera sá frjósami
jarðvegur sem þróttmikið atvinnu-
líf sprettur upp af.
Nú um stundir er hins vegar vax-
andi umræða í Bretlandi um gildi
lágrar verðbólgu. Þar halda sumir
hagfræðingar uppi umræðu um að
vandamál dagsins sé ekki verð-
bólga heldur samdráttur og dálítil
verðbólga geti virkað sem hvati á
efnahagslífið. Breska ríkisstjórain
virðist í augnablikinu hailast að
þessari skoðun.
Reyndar halda sumir hagfræð-
ingar í Bandaríkjunum því fram
að lok kalda stríðsins, friðurinn, sé
meginorsök samdráttar í efnahags-
lífi landanna og í stað þess að taka
mið af þessum breyttu aðstæðum,
sem friðurinn veldur í efnahagslíf-
inu, samdrættinum, séu ríkis-
stjórnir almennt að beijast við
verðbólgu sem sé vandamál liðins
tíma.
Verðbólga - vöxtur
Þjóðverjar glíma við nær 5%
verðbólgu nú og mun meiri vöxt í
peningamagni í umferð en verið
hefur og áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þessu veldur margt, einkum sam-
einingin, sem hefur orðið kostnað-
arsöm, og innflytjendastraumur.
Margir segja þó að þessar pen-
ingalegu stærðir séu ekki nægUega
nákvæmar til þess aö lýsa ástand-
KjáUaiiim
Guðmundur G.
Þórarinsson
varaformaður Verkfræðinga
félags íslands
inu. Verðbólgan stafi að hluta af
þvi að verðlag í A-Þýskalandi hafi
hækkað eftir tíma verðlagshafta og
aukið peningamagn í innferð sé
villandi vegna aukningar þýskra
marka í A-Þýskalandi nú og þess
að háir vextir kalli á að Þjóðveijar
velji fremur að eiga peninga en
aðrar eignir.
Því þurfi aðrar stærðir á slíkum
tímum til að lýsa ástandinu og
benda sumir á nafnvöxt þjóðar-
framleiðslu, þ.e. summu verðbólgu
og raunvaxta. En hvað sem öðru
líður virðist samhengi milli verð-
bólgu og hagvaxtar. Athuganir í
Kanada og OECD benda skýrt til
þess en samband verðbólgu og at-
vinnustigs virðist óljósara.
Könnun gerð í Kanada á 62 lönd-
um í 25 ár bendir til að lækkun
verðbólgu um 1% auki hagvöxt um
1/10%. Lækkun verðbólgu um 3%
í 10 ár yki hagvöxt um 3%.
Fórnarkostnaður
Flestum ríkisstjómum í iðnríkj-
unum hefur tekist að lækka verð-
bólgu. Hún er nú víða um 3%. En
samdráttur ríkir í efnahagslifi
þjóðanna og setja margir þessar
stærðir í samhengi. Lægri verð-
bólga eða öllu heldur lækkun verð-
bólgu setur í vanda fyrirtæki sem
síður eru samkeppnishæf. Því má
reikna með samdratti meðan verð-
bólgu er náð niður.
Sumir slá því fram að hagvöxtur
gæti minnkað um 1% við að ná
verðbólgu niður um 1% samanber
The Economist. Samkvæmt áður-
nefndri könnun tæki þá 10 ár að
ná hagvextinum upp í það sem
hann var áður.
Ólíklegt er að svona reikningur
hvetji stjómmálamenn, sem kosnir
eru til 4 ára, til stórra aðgerða gegn
verðbólgu. Árangur á Nýja Sjá-
landi, þar sem seðlabanki er hvað
sjálfstæðastur, er hins vegar mjög
jákvæður og hvetur til trausts á
stöðugleikamarkniið.
Guðmundur G. Þórarinsson
„Flestum ríkisstjómum í iönríkjunum
hefur tekist að lækka verðbólgu. Hún
er nú víða um 3%. En samdráttur ríkir
í efnahagslifi þjóðanna og setja margir
þessar stærðir í samhengi.“
Skoðanir annaiia
Ráðskast með matardiskinn
„Við teljum ekki síst alvarlegt að með ákvörðun-
um sínum mismima sljómvöld samkeppnisvörum
gróflega. Þannig á að lækka nauta-, kjúklinga-, svína-
og hrossakjöt, en lambakjötið á áfram að búa við
sömu styrki og óbreytt verð. Stjómvöld ætla enn að
reyna að ráðskast með það hvað lendir á matardisk-
um okkar. Blessaö lambið skal ofan í okkur, með
illu ef ekki næst árangur á annan hátt.“
Jóhannes Gunnarsson, form.
Neytendasamtakanna, í Mbl. 15. jan.
Vítahringur verðtrygginga
„Sjálfvirkni sem stafar af verðtryggingum hvers
konar fylgir engum skynsamlegum lögmálum.
Hækkun á einu sviði leiðir af sér hækkun á óskyld-
um sviðum án þess að neitt hafi gerst sem réttlætir
hækkunina. Vítahringur verðtrygginganna hefur
áreiðanlega í ríkari mæh en nokkuð annað mglað
fólk í riminu í efnahagsmálum. Hitt er svo annað
mál, að að til þess að hægt sé að afnema verðtrygging-
ar verður að ríkja trúnaður á miili stjómvalda,
verkalýðshreyfingar og lánastofnana, um að ailt sé
gert sem unnt er til að halda verðbólgu niðri.“
Úr forystugrein Timans 15. jan.
Það styrkir sjálfstæði okkar
„Við erum mjög háöir EB viðskiptalega, reyndar
einnig menningarlega... Ef við ætlum að einangra
okkur frá öðrum þjóðum bíður okkar fátækt og
margfalt meira atvinnuleysi en okkur grunar. Það
styrkir sjálfstæði okkar og fullveldi þjóðarinnar aö
gera samninga af fullri reisn. Evrópska efnahags-
svæðið er okkur vissulega mikils virði, en fari allir
nánustu vinir okkar í Evrópubandalagið vandast
máhð.“
Karl Steinar Guönason alþm. í Pressunni 14. jan.