Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Síða 30
Afmæli
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 19!
Höskuldur Egilsson
Höskuldur Egilsson verslunar-
maður, Gljúfraborg, Breiðdalsvík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Höskuldur fæddist í Reykjavík,
ólst þar upp og lauk skyldunámi frá
Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Árið 1962 gerðist Höskuldur sjó-
maður, fyrst á Gullfossi en svo á
hinum ýmsu togurum og síldarbát-
um og var að mestu til sjós til ársins
1984.
Höskuldur hefur síðan þá unniö
við hin ýmsu störf. Hann var um
tíma umboðsmaður Esso á Breið-
dalsvík en hefur jafnframt verið
verkamaður og var lengi bílstjóri. í
dag starfar hann hjá Kaupfélagi
Stöðfirðinga á Breiðdalsvík.
Ári eftir að Höskuldur kvæntist
flutti hann ásamt konu sinni að
Gljúfraborg í Breiðdal þar sem hann
býrídag.
Höskuldur var í stjórn Verkalýðs-
og sjómannafélags Breiðdælinga í
nokkur ár, var um tíma stjórnar-
maður Rauða kross deildarinnar á
Breiðdalsvík og einn af stofnfélög-
um Ldonsklúbbsins Svans þar. Hann
hefur bæði gegnt formennsku og
öðrum trúnaðarstörfum innan
klúbbsins.
Höskuldur syngur í kirkjukór
Heydala- og Stöðvarfjarðarkirkja og
einnig í Amís-djasskómum og er
jafnframt í stjórn Jassklúbbs Egil-
staða.
Fjölskylda
Höskuldur kvæntist 15.6.1967
Soffiu Rögnvaldsdóttur, f. 14.4.1947,
gæðastjóra hjá Gunnarstindi hf. á
Breiðdalsvík. Hún er dóttir Rögn-
valds Erlingssonar, fyrmm b., og
Þórhildar Jónasdóttur sem starfar á
sjúkrahúsi. Þau búa á Egilsstöðum.
Höskuldur og Soffia eiga fimm
börn. Þau em: Stefán, f. 12.9.1967,
sjómaður, búsettur í Kópavogi; Arn-
leif Steinunn, f. 1.2.1970, sjómaður,
búsett í Kópavogi; Rögnvaldur Þor-
berg, f. 19.4.1973, nemi í Vélskóla
íslands, búsettur í Kópavogi; Þór-
hildur, f. 5.4.1975, nemi í Mennta-
skólanum á Egilsstööum, býr í for-
eldrahúsum; og Ragnheiður Ama,
f. 1.2.1978, nemi í Alþýðuskólanum
á Eiðum, býr í foreldrahúsum.
Systkini Höskulds eru: Öm, f.
15.11.1937, fulltrúi hjá Almanna-
vömum ríkisins, kvæntur Lonni
Egilsson, fædd Hansen, búsett í
Reykjavík og eiga þau tvö böm;
Ragnheiður, f. 20.7.1946, læknafull-
trúi á Landspítalanum, gift Lámsi
Svanssyni, búsett í Reykjavík og
eiga þrjá syni; og Margrét Þórdís,
f. 1.10.1955, læknaritari á Lækna-
setrinu, gift Óskari Smára Haralds-
syni, búsett í Reykjavik og eiga tvo
syni.
Höskuldur Egilsson.
Foreldrar Höskuldar vom Egill
Gestsson, f. 6.4.1916, d. 1.11.1987,
try ggmgamiðlari og Amleif Stein-
unn Höskuldsdóttir, f. 5.3.1915, d.
7.12.1986, húsmóðir. Þau búa í
Reykjavík.
Höskuldur tekur á móti gestum á
heimili sínu eftir kl. 20.30 laugardag-
inn 23. janúar næstkomandi.
Ingibjörg Bryndís
Ámadóttir
Ingibjörg Bryndís Ámadóttir,
gjaldkeri við íslandsbanka, til heim-
ilis að Víkurási 4, Reykjavík, er fer-
tugídag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar 1970 og stundaði síðan ýmis
störf, lengst af hjá Landsbankanum,
eða í tæp tíu ár. Ingibjörg flutti suð-
ur til Reykjavíkur 1988 og er nú
gjaldkeri hjá íslandsbanka í Þara-
bakkaíMjódd.
Fjölskylda
Ingibjörg gifdst 18.1.1985 Óðni
Traustasyni, f. 21.10.1953, vélstjóra
ffá Fáskrúðsfiröi. Hann er sonur
Trausta Gestssonar, f. 11.12.1930,
og Pálinu Vestmann Ottósdóttur, f.
29.10.1930, d. 26.6.1989, húsmóður.
Ingibjörg og Óðinn slitu samvistir.
Dóttir Ingibjargar frá því fyrir
hjónaband er Kolbrún Inga, f. 2.6.
1971, sjúkraliði á Akureyri, en sam-
býlismaður hennar er Baldur Ólaf-
ur Baldursson skattaendurskoðandi
og eiga þau eina dóttur, Hrafnhildi,
f. 22.12.1989. Sonur Ingibjargar og
Óðins er Ámi Brynjar, f. 5.12.1984.
Bræður Ingibjargar eru Vilhjálm-
ur Ingi Ámason, f. 12.10.1945,
sjúkranuddari og formaður Neyt-
endasamtakanna á Akureyri, og á
hann tvo syni; Tryggvi Ámason, f.
27.9.1948, lagerstjóri hjá SUppstöð-
inni Odda hf. á Akureyri, kvæntur
Björgu Skarphéðinsdóttur hjúkran-
arfræðingi frá Siglufirði og eiga þau
þijúböm.
Foreldrar Ingibjargar Bryndísar
emÁmiIngólfsson,f.21.3.1918,
mjólkurfræðingur á Akureyri, frá
Skálpagerði í Eyjaíjarðarsveit, og
Sólveig Vilþjálmsdóttir, f. 30.6.1914,
frá Torfunesi í Köldukinn í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Ætt
Ámi er sonur Ingólfs, b. í Skálpa-
gerði, Árnasonar og Ingibjargar
Þorláksdóttur. Sólveig er dóttir Vil-
hjálms, b. á Hafralæk, bróður Sigur-
laugar, móöur Indriða Indriðason-
ar, ættfræðings frá Fjalli. Vilhjálm-
ur var sonur Friðlaugs, b. á Hafra-
læk, bróður Friðjóns, fóður Guð-
mundar, skálds á Sandi, föður
Bjartmars, skálds og alþingis-
manns, og Heiðreks skálds en bróð-
Ingibjörg Bryndís Árnadóttir.
ir Guðmundar var Sigurjón á Litlu-
laugum, faðir Halldóm skólastjóra
ogBraga, fyrrv. ráðherra. Systir
Guðmundar var Áslaug, móðir
Karls ísfelds skálds. Friðlaugur var
sonrn- Jóns, b. á Hafralæk, bróður
Péturs á Stómvöllum, fóður Bald-
vins, skálds í Nesi, fóöur Stein-
gríms, skálds í Nesi. Jón var sonur
Jóns, b. á Hólmavaði, Magnússonar,
á Hólmavaði og ættfóður Hólma-
vaðsættarinnar, Jónssonar. Móðir
Sólveigar var Lísibet Indriðadóttir
frá Vestari-Krókum í Flateyjardal.
Sviðsljós
Valgerður R. Ragnarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík. Lauískálum 15, Hellu.
Margrét Þorgeirsdóttir,
Engihlíð, Vopnafirði.
........ ..................... Haukur Ákason,
80 3f3 Sólbrekku 17, Húsavík.
KjartanMagnússon, „
Flókagötu37, Reykjavík. W ara__________________________
Sigríður Arnlaugsdóttir,
Öldugötu 25, Reykjavík.
Kjartan Kjartansson,
Dalseli 13, Reykjavík.
Edda M. Halldórsdóttir,
Svalbarða 8, Haftiarfirði.
Tómas Sigurðsson,
Vallholti 20, Ólafsvík.
Kristín Hermannsdóttir,
Skeiðháholti 1, Skeiðahreppi.
Hólmsteinn Valdn
Grænuhlíð, Torfab
Hj úlmtýr Jónsson,
fyrrv. síma-
verkstjóri,
Kirkjuvegilb,
Keflavík.
Hjálmtýrtekur
ámótigestumá
heimilisinufrá
kl. 17áaftnælis-
4Uara
Guðrún Björnsdóttir,
Keilusíðu lb, Akureyri.
Þorbjörg Ingvadóttir,
Spítalavegí 9, Akureyri.
Sesselja Svava Svavarsdóttir,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Bj örn Birgir Stefánsson,
Seljavegi 15, Reykjavík.
Guðný Anna Tórshamar,
Þrastargötu 9, Reykjavik.
Ásta Friðjónsdóttir,
Fýlshólum 3, Reykjavik.
Dolly Parton fór í sund
Dolly Parton var á meðal gesta sem sóttu samkundu til styrktar eyðnlsjúkl-
ingum sem var haldin I Hollywood. Veislan var haldin við útisundlaug Bev-
erly Hills hótelsins og það bar helst til að tfðinda að Dolly fékk sér sund-
sprett ásamt tvelmur glnsliegum fulltrúum sterkara kynsins. Samkvæmt
árelðanlegum heimlldum notaði söngkonan ekki kút en eftir þvi var tekið
að hún foröaðist að bfeyta hárM.
Sabatini í popp-
bransann?
Tennisleikarinn Gabriela Sabat-
ini tók lagið á skemmtun til heið-
urs Monicu Seles. Sú siðar-
nefnda er tennisleikari eins og
Sabatini en skömmu fyrir
skemmtunina mættust þær ein-
mitt á tennisvellinum. Seles sigr-
aöi í viðureigninni en Sabatini
tók það ekki nær sér en svo að
hún söng fyrir andstæðing sinn.
Lagið, sem hún flutti, heitir
Against All Odds en það flutti
Phil Colllns upphaflega. Engum
sögum fer enn af þvf hvort tenn-
isleikaranum hafi boðist hljóm-
plötusamningur.
Töffaramir tveir
Kevin Costner og Steven Seagal hittust i samkvæmi i Hollywood á dögun-
um. Vel fór á með köppunum enda eiga þeir margt sameiginlegt, báðir
hafa t.d. leiklð harösnúna töffara.