Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1993, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR1993
Útlönd____________________
Fjórðihver
Færeyingur án
atvinnu
Jens Dalagaard, DV, Færeyjunx
Fíórði hver maður hér í Færeyj-
um er nú án atvinnu og hefur
ástandið aldrei áöur verið svo
slæmt. Nýjustu opinberar tölur
um atvinnuleysið sýna að það er
á milli 25 og 26% og er enn að
aukast.
Almenningur gerir sér vel grein
fyrir hve staðan er orðin alvar-
leg. Stöðugt er verið að segja upp
fólki og nú hefur landstjómin
fylgt í kjölfar einkaaöila og ráðist
i uppsagnir.
Bankastjóri vili
sameiningu við
Danmörkuáný
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum;
Helgi Fossadal, bankastjóri hjá
Fossbankanum, segir að Færey-
ingar séu nú orðnir of skuldugir
tíl að nokkurt vit sé að halda í
heimastjómina.
Eina von þjóðarinnar sé að eyj-
amar verði á ný amt í Danmörku
enda komi þaö í hlut Dana aö
borga þegar Færeyingar geta það
ekki. Fossbankinn er sá lang-
minnstí í Færeyjum og sá eini
sem stendur þokkalega.
Prestur dæmdur
fyriraðnauðga
barnfóstrunni
James Porter, fyrmm prestur í
Bandaríkjunum, hlaut fýrir helg-
ina sex mánaða fangelsisdóm fyr-
ir að nauðga ungri bamfóstra á
heimili sínu fyrir fímm áram.
Porter á yfir höfði sér fleiri
dóma því verið er að rannsaka
tugi mála þar sem hann á að hafa
beitt böm og ungmenni kynferð-
islegu ofbeidi. Umlangsmestu
málaferlin bíöa hans í Massa-
chussetts þar sem 46 kærur hafa
verið lagðar fram gegn honum.
Clinton rekur
krabbameins-
lækniBush
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hefur rekiö sérfræðing í krabba-
meinslækningum úr þjónustu
forsetaembættisins og segist ætla
aö ráöa nýjan. Burton Lee læknir
segist ekki vita af hveiju hann
var rekinn.
Lee var einkalæknir Georges
Bush meöan hann var forseti.
Clinton hefur átt við ofnæmi að
stríða og er getum að því ieitt að
hann vilji ráða til sín sérfræðing
í þeirri grein í staö krabbameins-
læknisins.
Hvergi finnst
vottur um gróð-
urhúsaáhrif
Bandarískir veðurfræðingar
segja að þeir geti ekki með
nokkru móti fundiö merki um
hækkandi hitastig á jöröinni
vegna svokallaðra gróöurhúsa-
áhrifa
í nýrri skýrslu er sagt aö 27
þúsund mælingar i ýmsum hæð-
um umhverfis norðurheimskaut-
ið á síðustu 40 árum sýni að hita-
stíg lækkar fremur en hitt.
Með tölvulíkönum hefur veriö
reiknað út að hitastig á jörðinni
hljóti að hækka með vaxandi
mengun í andrúmsloftinu. „Ann-
aðhvort er eitthvað að veðurroæl-
ingunura eða tölvuforritunum,*'
segir í skýrslu veðurfræðing-
anna.
Danska stjómin sniögengur rétt lögþings Færeyja til aö setja lög:
Konungsvaldi beitt
í fyvsta sinn í 45 ár
- fiárhagnum bjargað um sinn en milljarða vantar til að endar nái saman
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjar:
Danska stjórnin hefur í fyrsta sinn
frá því að Færeyjar fengu heima-
stjóm fyrir 45 áram sniðgengið rétt
lögþingsins til að setja lög og beitt
konunglegri tilskipun viö lagasetn-
ingu. Lög um heimastjóm gera ráð
fyrir þessum möguleika en aldrei
hefrn- þótt ástæðá til að nota hann.
Nú verða dönsk lög um hlutafélög,
reikningsskil og endurskoðun tekin
upp í Færeyjum og getur lögþingið
samþykkt þau ef það vill. Sé meiri-
hlutí þingmanna á móti breytir það
engu því lögin taka engu að síður
gildi. Ekki er annað vitað en aö þing-
menn ætli að láta þetta yfir sig ganga
enda svigrúm til andmæla ekkert.
Lögin era sett vegna efnahags-
kreppunnar og gífurlegra áfalla sem
landsjóðurinn hefur orðið fyrir
vegna ábyrgða til smíða á toguram.
Sérfræðingar Dana segja að koma
hefði mátt í veg fyrir þetta með nú-
tímalegum lögum um endurskoðun
og reikingsskil.
Danir vilja líka hafa full tök á efna-
hagslífinu enda kemur það í þeirra
hlut aö borga skuldir Færeyinga með
einum eöa öörum hætti. Nýja tilskip-
unin miöar því að því að færa for-
ræðið í efnahagsmálum yfir til
dönsku stjómarinnar.
Nú þegar 3,5 milljaröar íslenskra
króna hafa verið lagðar í Sjóvinnu-
bankann til viðbótar við fimm millj-
arða í haust vill stjórnin tryggja að
peningunum verði vel varið.
í allt tapaði Sjóvinnubankinn um
10 milljörðum íslenskra króna á síð-
asta ári, m.a. vegna þess að erfitt var
Stjórnarsetur en engin völd
v,m n * ; | | ' i
S! n | »* M
t fy ; \ 1 • i:'; 1 ; xj
fl JSÍB | fcliiBÍiilipt: | SS i KiiU I»»8» «»|
Færeyjum hefur verið stjórnað frá aðsetri landstjórnarinnar á Þinganesi frá því heimastjórn var komið á fyrir 45
árum. Enn fer stjórnin formlega meó völdin en í reynd eru Danir búnir að taka stjórnina í sínar hendur og stjórna
með tilskipunum ef þurfa þykir. DV-mynd ból
Þjóöverjar fylgjast grannt með Oskari Lafontaine:
Leiðtogi jaf naðarmanna í
viðskiptum við mafíuna?
Þingmenn á fylkisþinginu í Saar-
landi í Þýskalándi hafa sakað Oskar
Lafontaine, einn helsta forystumann
þýskra jafnaðarmanna, um að eiga
viðskiptí við mafíuna. Lafontaine
svaraði þessum ásökunum í gær og
sagöi þær tilhæfulausar með öllu.
Sagan segir að Lafontaine hafi ver-
ið í nánum tengslum við mann að
nafni Hugoi Lacour sem nú situr í
fangelsi fyrir morð.
Lafontaine sagöi í gær að hann
hefði síðast hitt Lacour árið 1977.
Lafontaine var þá borgarstjóri í Sa-
arbrúcken en Lacour rak þar dans-
hús og bari. Lafontaine sagðist hafa
komið í húsakynni Lacour en ekki
átt við hann bein viðskipti.
Máli verður þó erfitt fyrir Lan-
fontaine því Lacour er kunniu- fyrir
að stjóma umfangsmiklum undir-
Oskar Lafontaine, einn helsti for-
ystumaður þýskra jafnaðarmanna,
er sakaður um viðskipti við mafíuna.
Símamynd Reuter
heimavisökiptum. Fullyrt er að La-
fontaine hafi til skamms tíma haldið
tenglum við Lacour. Hann sagðist í
gær vissulega eiga rétt á sínu einka-
lífi en gæti sannað að engin tengsl
hefðu verið í sextán ár.
Lafontaine hefur verið á hraðri
uppleið í þýskum stjórnmálum síð-
ustu ár og var eitt líklegasta kansl-
araefni jafnaöarmanna til skamms
tíma.
Hann hefur hins vegar átt erfitt
með að bera af sér ásakanir um spill-
ingu og nú kann svo að fara að jafn-
aðarmenn hafni honum endanlega
því mörgum fmnast útskýringar La-
fontaines ósennilegar og að hann
hafi ekki náð að hreinsa sig af áburð-
inum um viðskipti viö helsta leiðtoga
mafíunnar í Þýskalandi.
Ritzau
að meta raunverulega stööu fyrir-
tækja eftir gömlu lögunum um reikn-
ingsskil.
Hér í Færeyjum era menn ekki
bjartsýnir á að framlagið nú dugi tii
að forða efnahagslífinu frá endan-
legu hruni þótt bæði landstjómin og
danska stjórnin látí í það skína.
Landssjóðurinn á í miklum erfiðleik-
um og gæti svo farið að hann þyrfti
styrk frá ríkissjóði Dana á næstu
mánuðum. í því sambandi er talað
um milljarða króna.
Færeyjar:
Sjávarútvegnum
breyttmeðvaldi
Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum:
Eitt af skilyrðunum dönsku
stjómarinnar fyrir að leggja Sjó-
vinnubankanum færeyska til 3,5
milljarða íslenskra króna er að
skipulagi útgerðar og fiskvinnslu
verið breytt.
Leggja á stórum hluta fiski-
skipaflotans og loka frystihúsum.
Tekjur sjávarútvegsins hrökkva
ekki fyrir útgjöldunum enda hef-
ur afli dregist verulega saman á
síðustu árum.
Færeyingar hafa veigrað sér við
að ráðast í uppskurð á helsta at-
vinnuvegi sínum en nú skal það
gert samkvæmt valdboði frá
dönsku stjöminni.
Afleiöingin verður að enn eykst
atvinnuleysið og má búast við
fólksflótta í kjölfar þess. Danir
ætla að skipa sérstaka nefnd til
að endurskoða sjávarútveginn og
verða Færeyingar að láta það yfir
sig ganga.
Bannlagtvið
öllum opinber-
umfram-
kvæmdum
Jens Dalsgaard, DV, Faereyjum:
Danska stjórnin hefur hert enn
skilyrðin um stjórn landssjóðsins
í Færeyjum. Nú verður endan-
lega lagt bann við opinberum
framkvæmdum en áöur hafði
stjómin sett skilyrði um að samin
yrðu hallalaus íjárlög.
Nú er landstjórninni t.d. fyrir-
skipað að fella áform um lagn-
ingu jarðganga til Gæsadals á
Vogey út úr nýjum fjárlögum
enda komi ekki tÚ greina að halda
gangagerð áfram.
Tilmæli umkjör-
dæmabreytingu
Jens Dalsgaaid, DV, Færeyjuni:
Danska stjórnin ætlar ekki að
fyrirskipa breytingu á kjör-
dæmaskipaninni í Færeyjum
heldur verða lögð fram tilmæli
um þaö. Færeyingar eiga hins
vegar erfitt með að hafna tilmæl-
unum enda í gjörgæslu hjá
dönsku stjóminni. Margir vilja
þó halda í gömlu kjördæmin.