Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1993, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1993, Síða 28
\ 40 a /-'Tc-jTqu » cjttm rriTio/ífq FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR1993 Menning Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands: Áhugi mikill á námskeiðum - yfir tvö hundruö manns sóttu um námskeið 1 Egfis sögu Allt frá þvi endurmenntunamám- skeið hófust á vegum Háskóla ís- lands hefur umfangið vaxið ár frá ári og er nú svo komið að um tuttugu og þijú þúsimd manns hafa sótt nám- skeið á vegum Endurmenntunar- stoftiunarinnar. Á síðasta ári hafði verið búist við samdrætti en það fór á annan veg, aukingin varð 25%. Þessa daga eru að hefjast mörg námskeið á vegum stoftiunarinnar og mörg þeirra tengjast menningu íslands og annarra þjóða. Að sögn Margrétar Bjömsdóttur endur- menntunarsijóra er góð aðsókn á námskeiðin en þó hefur verið lang- mest aðsókn á námskeiðin sem byggjast á Islendingasögunum og sóttu yfir 200 manns um á námskeið í Egils sögu. Af menningamámskeiðum, sem Endurmenntunarstofnun býður upp á þetta misseri, má nefna: Jónas Hallgrimsson: Láf, ljóð og áhrif. Leið- beinandi er Guðmundur Andri Thorsson, auk þess sem gestafyrir- lesarar koma á einstök kvöld. Njála og nútíminn. Leiðbeinandi er Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur, en hann vinnur að doktorsritgerð um þetta efni, og gestafyrirlesarar. Dýr- gripir úr sýnisbók tónlistarinnar, en markmiðið með þessu námskeiði er að auka áhuga og skilning hins al- menna hlustanda á þróun og sögu tónlistar og gildi hennar. Leiðbein- andi er Ingólfur Guðbrandsson söng- stjóri. Endurreisnartíminn á Ítalíu 1400-1600 - Ustasaga, hugmyndasaga og samfélagsgerð. Leiðbeinandi er Ólafur Gíslason, blaðamaður og list- gagnrýnandi. Egils saga, námskeið sem haldið er í samstarfi við Tóm- stundaskólann. Leiðbeinandi er Jón Böðvarsson íslenskufraeðingur og ritstjóri Iðnsögu íslendinga. Japan - land sólarupprásarinnar. Kynning á mannlifi og menningu. Leiðbeinandi Ragnar Baldursson, Asíufræðingur og rithöfundur, en auk hans verða fyrirlesarar Thor Vilhjálmsson rit- höfundur, Jón Ormur Halldórsson, stjómmálafræðingur, Baldur Hjalta- son framkvæmdastjóri og fleiri. Hin nýja kvikmynd án Paradísar. Á þessu námskeiði kynnast þátttak- endur Ítalíu og ítalskri kvikmynda- list samtímans í gegnum 6 verk leik- stjóra af „nýju kynslóðinni". Leið- beinandi Roberto Tartaghone og fer þetta námskeið að mestu fram á ít- ölsku. Þessi upptalning er aðeins brot af þeim fjölda námskeiða sem boðið er upp á en nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá á skrifstofu Endurmenntunarstofnunar. -HK íRúmeníu Leikfélagi Reykjavíkur hefur verið boðiö að koma með Tsjékov-verkin Platanov og Vanja frændi á leikUstarhátíð í Rúmeníu í apríl. Þetta boð er að tilhlutan rúmenska leikstjórans og leikhússtjórans Alexa Visari- on sem var hér á ferð fyrir stuttu. Auk þess að vera leikhússtjóri í Búkarest er Visaiáon stjómandi áriegrar listahátíðar í Brazov. Hátíð þessi er einn stærsö leik- Ustarviðburður í gömlu A-Evr- ingar frá öllum heimsálftim. Sjálfur hefur Visarion unnið sem leikstjóri í fjölmörgum löndum í Evrópu, Asíu og Ameríku ogm.a. sett upp öll leikrit Tsjekovs. Leikfélag Akureyrar: Æfingar hafnar á Leðurblökunni Söngvarar, leikarar og aðrir aðstandendur óperettunnar Leðurblökunnar hjá Leikfélagi Akureyrar. DV-mynd gk Gyifi Knstjánsaan, DV, Akuieyri: Það er Uf og fiör í gamla Samkomu- húsinu á Akureyri þessa dagana. Þar standa nú yíir sýningar á gaman- leiknum Útlendingnum sem sýndur er um helgar en alla virka daga standa yfir æfingar á óperettunni Leðurblökunni sem frumsýnd verð- ur 26. Leðurblakan verður síðasta verkefni leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar, og var fyrsti samlestur á mánudaghm. Æfingar hjá einsöngv- urum og kór hafa hins vegar staðið yfir í lengri tíma. Kolbrún HaUdórs- dóttir er leikstjóri, tónlistarstjóm er í höndum Roars Kvam og þýðinguna sá Böðvar Guðmundsson um. Jón Þorsteinsson tenór var fenginn frá Amsterdam til að túlka hlutverk Eisensteins og Ingibjörg Marteins- dóttir sópran kemur frá Reykjavík til að túlka konu hans, Rósalindu. Guðrún Jónsdóttir sópran, sem er við nám á ítahu, kemur beint þaðan til að syngja og hlutverk Adele. í öðrum stórum hlutverkum em ýmist lærðir söngvarar eða atvinnuleikar- ar, Þuríður Baldursdóttir, Steinþór Þráinsson, Michael Jón Clarke, Már Magnússon, Aðalsteinn Bergdal, Þráinn Karlsson, Bryndís Petra Bragadóttir og Sigurþór Albert Hei- misson. Roar Kvam hefur unnið nýja út- setningu á tónlist Strauss fyrir 10 manna hljómsveit og 14 manna kór. Karl Aspelund hannar leikmynd og búninga og hefur vaUð sýningunni afar skrautlegan og Utríkan umbún- að í anda þeirra uppgangstíma sem ríktu í Evrópu á sögutíma Leðurblö- kunnar. Ingvar Bjömsson sér um lýsmgu. Leðurblakan hefur verið nefnd „drottning óperettunnar" og er talin meistaraverk valsakonungsins Jó- hanns Strauss. Leikurinn gerist í Vínarborg seint á síðustu öld og hafa fáar óperettur notið jafnmikiUar hylU. Leðurblakan er eitt viðamesta verkefni sem Leikfélag Akureyrar hefur ráðist í, en félagið hefur ekki ráðist í að sviðsetja óperettu í tæp- lega 30 ár. Camera Obscura, ný sjónvarpsmynd: Ljósmyndari sem missir minnið Guörún Marinósdóttir leikur Hildi sem er annað aðalhlutverkið. Sjónvarpiö efndi til handritasam- keppni fyrir tveimur árum og vom tvö valin til kvikmyndunar. Annað þeirra var Camera Obscura eftir Sig- urbjöm Aðalsteinsson. Sigurbjöm, sem er kvikmyndaleikstjóri, hefur nú lokiö við myndina og verður hún frumsýnd 14. febrúar í Sjónvarpinu. Camera Obscura er latneska heitið á fyrstu myndavélinni. Camera þýðir herbergi og obscura er myrkur: Myrkraherbergi. Myndin fiallar um Guðjón Ijósmyndara (Þröstur Leó Gunnarsson) sem missir minniö, hugur hans er Camera Obscura: Hann man ekkert. En Guðjón finnur filmur sem hann tók daginn sem hann missti minniö og framkaUar sig í gegnum atburðina. Þegar Ijósmynd- arinn hefur framkallað aUar mynd- imar er ennþá eitt skúmaskot í huga hans óupplýst, það vantar eina filmu og Guðjón hefur það á tilfmnlngunni að það sem kemur í ljós á henni boði ekki gott Auk Þrastar leika í myndinni Guð- rún Marinósdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, mgvar Sigurðsson, Grétar Skúlason og Guðmundur Haraldsson. Sigurbjöm hefur undanfarin ár vakið athygU fyrir stuttmyndir sínar sem farið hafa víða í erlendum sam- Sigurbjörn Aðalsteinsson leikstjóri og Þröstur Leó Gunnarsson ræðast við milli atriða. keppnum. Fyrstu stuttmynd sína, Meistari að eilífu, gerði hann 1986, síðan hefur hann gert Hljóð (1989), Himdur, himdur (1990) og Ókunn dufl (1991). Hundur, hundur hlaut dómnefhdarverðlamún á stutt- myndahátíðinni í Hamborg og Ókunn dufl hlaut önnur dómnefnd- arverðlaun á gamanmyndahátíöinni í Vevey, Sviss, sem haldin er tíl heið- urs CharUe ChapUn. Camera Obscura er rúmlega hálf- tíma löng. TónUstina samdi Eyþór Amalds og PáU Reynisson kvik- myndaði. -HK í míðjum janúarmánuði var opnuð í Galleri De Lawei, sem er í Frislandi í Hollandi, sýning á verkum eftir myndlistarkonum- ar Borghildi Óskarsdóttur, sem sýnir keramikskúlptúra, og Guð- rúnu Kristjánsdóttur sem sýnir málverk. Er hér um stóra sýn- ingu að ræða og var fjallaö um hana í stóm hoUensku dagblaði, Leewarder Courant. Þar fer Jo- hanna Schuurman lofsamlegum oröum um sýninguna og segír meðal annars: „ÖU verkin á sýn- ingunni em framúrskarandi tjáningarfuU. Þau eru hugvit- samleg, hógvær og sýna staðfasta notkun forma og Uta og ftdl- komna úrvinnslu. Yfirvegað yfir- bragð sýningarinnar steypir verkum beggja listakvennanna saman í fallega lokaða heild, þar sem skúlptúrar og málverk styrkja hvort annað. Við það fær heildin á vissan hátt aukiö gildL heimurtnn fékk hókmennta- Danski rithöfundurinn Peer Hultberg fær bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs í ár fyrir bók sína Byen og verden. Þetta er ífyrstasinnitíuár semdansk- | ur rithöfundur fær verðlaunin. í tilkynningu frá Norðuriandaráöi segin „Byen og verden er mís- kunnarlaus skáldsaga þar sem spenna á milh efnis og forms byggir upp dýpt og hraða. Það er bærinn Viborg sem segir frá. í hundrað örsögum er sagt frá íbú- um sem tilheyra ólíkum þjóðfé- lagshópum og lífi þeirra frá fæð- ingu til dauða. Örlögum er lýst af innsæi, sumir mætast, aðrir skfija og enn aðrir verða ahtaf einir.“ Verðlaunin em 200 þús- und danskar krónur og veröa af- hent í Ósló 2. mars. Fulltrúar ís- lands í dómnefndinni eru Dagný Kristjánsdóttir og Sigurður A. Magnússon. Listakvöldí boðiMHogMR Listafelag MH og Skólafélag MR sameinast um að halda Ustakvöld í Tónabíói í kvöld. Þar verður meðal annars frumsýnd þrjátíu mínútna kvikmynd Vá! Gott mepp. Heiöursgestur kvöldsins veröur Sveinbjöm Beinteinsson aUsherjargoði sem les úr eigin verkum. Aðrir sem koma fram em Hrafn Jökulsson, Óttar Proppé, Sverrir Stormsker, PáU Oskar Hjálmtýsson, Vigdís Grímsdóttir og Dr. Gunni. Kynnir kvöldsins er Sigtryggur Baldurs- son (Bogomil Font).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.