Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Side 9
Italska stjórnin
heldurennvelli
en andstæðing-
urfellur
S//V7/ 32075
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR1993.
Utlönd
Frábær ný gamanmynd með Metthew Broderick
(Ferris Bueller's Day off).
Ungur maður er rændur stoltinu, bílnum og buxunum en í brókinni
var miði sem var milljóna virði.
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA.
SÝND KL. 5, 7, 9, OG 11.
80prósent
Brefa óánægð
Áttatíu prósent bresku þjóðarinnar
eru óánægð með stjóm landsins og
nær tveir af hverjum þremur hafa
orðið fyrir vonbrigðum með John
Major forsætisráðherra, samkvæmt
skoðanakönnun sem birtist í dag-
blaðinu Times í morgun.
Könnunin var birt á sama tíma og
Major sneri heim frá fyrsta fundi sín-
um með Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta í Washington og í kjölfar til-
kynningar um 13.500 manns til viö-
bótar hefðu misst atvinnuna.
Aðspurðir lýstu yfir vaxandi
áhyggjum sinum af auknu atvinnu-
leysi og fleiri glæpum. Þá vom þeir
svartsýnir á breskt efnahagslíf.
Blaðið sagöi að Major þyrfti að
hafa mestar áhyggjur af því að fólk
neitaði að trúa stöðugum yfirlýsing-
um um að bjartari tíð væri framund-
an í efnahagsmálum landsins.
Samkvæmt könnuninni telja 43
prósent að efnahagurinn eigi eftir aö
vemsa á næstu tólf mánuðum en
aðeins 22 prósent teljaað hann batni.
Reuter
ast kjarnorkuvá
Almannavamir í Bandaríkjun-
um eru gagnrýndar fyrir til-
gangslaust bruðl sem komi al-
mennura borgurum ekki aö
minnstu notum í náttúmhamfór-
um. Þannig hafi jafnvirði 85 miilj -
arða króna verið varið í veijast
kjamorkuárás á síðustu tíu áram
þótt þessi hætta væri hverfandi.
Almannavamir vörðu tólf sinn-
um meiri fjármunum til þessa
verkefnis en að koma fóiki til
hjálpar á Flórída þegar fellibyljir
gengu þar yfir slðasta haust og
ollu gífurlegu tjóni.
íbúar í einni borg á Flórida
báðu um lítil viðtæki til aö hlusta
á tilkynningar í útvarpi. Al-
mannavarnir sendu hátækni-
hlerunarbúnað sem nær fjöl-
bylgjusambandi við flugvélar um
allan heim. Útvarpið í borginni
náðist ekki á tækin.
Sáttumað
hættaaðkvelja
Ríkissljómir Kúveits og
Filippseyja hafa náð samkomu-
lagi um aö stöðva illa meðferð á
filippeyskura vinnukonum í Kú-
veit
Fiölmargar vinnukonur hafa
kvartað undan húsbændum sin-
um í Kúveit og í sumum tilvikum
kært þá fyrir nauðgaiúr. Mjög
rammt kvaö að þessu fyrst eftir
Persaflóastríöið.
Algengt er að stúlkur frá
Filippseyjum leiti til Kúveit og
fleiri Arabalanda eftir vinnu við
þjónustu. Þær sæta víða illri
meðferð.
Kynlíf batnarí
hjónabandinu
Könnun meðal 2.765 Banda-
ríkjamanna sýnir að kynlifið er
betra eftir giftingu en fvrir. Um
60% aðspurðra sögðust fá mun
meira út úr samveru með maka
sínum eftir aö búið var að vígja
sambúðina.
Kynlíf er minnst í Miðvestur-
ríkjunum efir því sem könnunin
sýnir. Þar kom einnig S ljós að
18% karla sögðust hafa sængað
með yfir 60 konum á lífsleiðinni.
Einungis 7% kvenna hafði af
svipaðri reynslu að státa.
varhentíá
Veiðimenn við ána Trent i Nott-
inghamskíri segja að hængar í
ánni hafi skipt um kyn í stórum
stíl efir að raiklu magni af getnað-
arvamapillum var hent í hana.
Fiskifræðingar eru að visu ekki
trúaðir á þessa skýringu en
nokkrir þeirra hafa þó verið gerð-
ir út af breska umhvcrfisráðu-
neytinu til að kanna málið. Mikið
afúrgangier slepptíánaoghalda
menn að ósöluhæfar pillur hafi
verið með í óhroðanum.
Saumuðuhönd
ámanneftir slys
Læknum við sjúkrahúsið í
Tromsö í Noregi tókst í gær aö
sauma hönd á mann sem hafði
oröið fyrir slysi f stáliðjuveri.
Aðgerðin tók 14 klukkutima og
er ekki annað vitað en hún hafl
heppnast vel.
Maðurinn kom á sjúkrahúsið
með höndina í hanska. Sauma
þurfti 22 sinar saman og er þetta
ein erfiðasta aögerö af þessu tagi
sem norskir læknar hafa gert.
Maöurin fer í endurhæfingu þeg-
ar höndin er gróin.
Framkvæmdastjóm EB setur lágmarksverð á innfluttan fisk:
Harðari aðgerðir ekki útilokaðar
- Norðmennsegjaþettaengináhrifhafa
Framkvæmdastjóm Evrópu-
bandalagsins ákvað í gær að setja
lágmarksverð á nokkrar fisktegund-
ir sem fluttar era inn til bandalags-
landanna, þorsk, ýsu, lýsing, ufsa og
skötusel, tU að reyna að koma í veg
fyrir frekari verðlækkun á mörkuð-
unum. Franskir sjómenn efndu til
uppþota á þriðjudag til að mótmæla
lágu fiskverði.
Yannis Paleokrassas, sem fer með
fiskveiðimál innan framkvæmda-
stjómarinnar, sagði aö ákvörðun
þessi ætti að koma aftur á jafnvægi.
Hann sagði þó að framkvæmda-
stjómin útilokaði ekki aö grípa til
harðari aðgerða ef þetta dygði ekki
til að afstýra frekara verðhrani.
Fiskverð hefur lækkað um fimmtán
til þijátíu prósent á fiskmörkuðum
EB upp á síðkastið.
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, sagði í gær að lág-
marksverð Evrópubandalagsins á
innfluttum fiski hefði ekki áhrif á
norskan sjávarútveg.
„Ég er ekki hrifinn af lágmarks-
verðinu þar sem það er hömlur á
verslun með fisk. Sem ein af stærstu
fiskútflutningsþjóðum veraldar snú-
umst við gegn slíkum hömlum en um
leiö er það ljóst að þetta hefur ekki
nokkur áhrif í Noregi."
Danskir sjómenn segja að lág-
marksverðið íyrir innflutta fiskinn
sé fyrsta skrefið en nú sé bara að sjá
hvemig verðið þróast á næstu dög-
um. Menn búast þó ekki við sama
háa verðinu og var á fiskmörkuðum
í fyrra.
Á undanfómum mánuðum hafa
danskir sjómenn átt í erfiðleikum
með selja eigin þorskafla, ufsa og
fleiri tegundir í samkeppni við lágt
verð á fiski frá Rússlandi, Noregi,
íslandi, Póllandi og Kanada.
Reuter, NTB og Ritzau
FRUMSÝNIR GAMANMYNDINA
HRAKFALLABÁLKURINN
Hann hefur 24 tíma til að
finna veskið sitt sem er
milljóna virði. Honum sást
yfir aðeins einn stað..
ítalska þingið lýsti yfir stuðningi
sínum við Giuliano Amato forsætis-
ráöherra og stjórn hans í gær með
310 atkvæðum gegn 265. Þetta var í
ellefta sinn á átta mánuðum sem
samsteypustjómin hafði betur í
slíkri atkvæðagreiðslu.
Þegar þingmenn ræddu traust á
stjómina bárast þær fréttir að einn
helsti andstæðingur Amatos, Giorgio
La Malfa, leiðtogi hins litla en áhrifa-
mikla repúblikanaflokks, hefði sagt
af sér vegna mútuhneykslisins sem
nú skekur ítölsk stjómmál.
La Malfa sagði af sér eftir að hann
hafði verið varaður við því að hann
lægi undir gran um að hafa þrotið
lög um íjármögnun stjómmála-
flokka. Reuter
Giuliano Amato, forsætisráðherra
Ítalíu, á f vök að verjast.
Teikning Lurie