Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1993, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR1993
íþróttir
Handbolti:
Norðmennimir
bjartsýnir
ÓJafar Haraldsscm, DV, Noregi'.
Norðmenn eru bjartsýnlr á gott
gengi handboltalandsliðs síns
sem tekur þátt í heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð. Norðmönn-
um hefur vegnað vel og iagt
margar sterkar A-þjóðir að velli.
Um síðustu helgi léku þeir tvo
leiki gegn Þjóðverjum; unnu fyrri
leikinn en fengu stóran skell í
þeim síöari en engu að síður bú-
ast Norðmenn við góðum árangri
sinna manna.
Hörð keppni
umtttHnn
Ólafur Haraldsson, DV, Noregú
Norski landsliðshópurinn, sem
leikur á HM, kemur saman í dag
og heldur hópinn fram að keppn-
inni í Svíþjóð. Lokaverkefnið er
tveir leikir gegn Egyptum sem
fram fara í byxjun mars. Síöasta
umferöin í 1. deildinni fyrir HM
var leikin í fyrradag og urðu úr-
slit þessi: Norröna - Viking 18—18,
Umrædd-Eiverum -24-17, Sta-
vanger-Fjeilhammer 34-24,
Wing Runar 17-21, FBS/SKI-
Drammen 20-20, Sandeflörd -
Kragerö 34-24. Þegar þremur
umferðum er ólokið er Urædd í
efsta sæti með 31 stig, Sandeflörd
30 og Runar 27. Elverum, iið Þór-
is Hergeirssonar, er í 5. neðsta
sæti með 16 stig og Jakob Jónsson
og félagar hans í Viking í sætlnu
fyrir neðan með 12 stig.
Danirtöpuðu
m mm | ■
Argentína sigraði Danmörk,
5-4, eftir vítaspymukeppni í
landsleik þjóðanna í knattspyrnu
í Argentínu í fyrrinótt. Þama
mættust Danir sem eru Evrópu-
meistarar og Argentínumenn
sem eru Suöur-Ameríkumeistar-
ar og kepptu um bikar. Staðan
eftár venjulegan ieiktíma og ffarn-
iengingu var 1-1. Nestor Cravi-
otto kom Dönum yfir á 12. mínútu
en Claudio Caniggia jafnaði á 29.
mínútu. í vítaspyrnukeppninni
varði markvörður Argentínu Go-
ycochea tvö víti Dananna.
-GH
JuiioCesartekur
framskéna
Julio Cesar, Brasilíumaðurinn
sem leikur með Juventus á ítabu,
ieikur sinn fyrsta leik á sunnu-
daginn frá því hann fótbrotnaði i
nóvember. Juventus mætir þá
Roma og verður fróðlegt að sjá
hvort þessi frábæri vamamiaöxu-
nái ekki að binda saman vöm
liðsins em hefur ekki veriö sann-
færandi í vetur. -GH
HMáskíðum:
Þærrússnesku
tókugullið
Rússar unnu sigur i 4x5 km
boðgöngu kvenna á heimsmeist-
aramótinu í norrænum sklöa-
greinum í Falum í gær. ftölsku
stúlkufnar urðu í öðru sæti og
norsku stúlkurnar í því þriöja.
Það var Ujubov Jegerova sem
öðru fremur tryggði rússnesku
sveitinni sigur með glæsilegri
göngu.
Henning var
gullkálfurinn
- tryggði Skallagrími sigur í spennuleik
Einar Pálsson, DV, Borgamesi:
Þaö var „Snæfellsspenna" í Borg-
amesi í gærkvöldi þegar Skallagrím-
ur vann Njarðvík, 89-88, í æsispenn-
andi leik í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik. Njarövík komst tvisvar
yfir á lokamínútunni en Henning
Henningsson tryggði heimamönnum
sigur, fyrst skoraði hann ævintýra-
lega 3ja stiga körfu og síðan gerði
hann sigurkörfuna með gegnum-
broti 16 sekúndur fyrir leikslok. í
lokin dansaði boltinn á körfuhring
Skallagríms eftir skot Teits Örlygs-
sonar en Alex Ermolinskij hirti frá-
kastið, sitt 17. í leiknum, og dýrmæt-
ur sigur Borgnesinga var í höfn.
„Leikmenn liðsins gerðu sér fylli-
lega grein fyrir því hvað þurfti og ég
er virkilega ánægður með allt liðið.
Þetta var mikil barátta og lítill mun-
ur á liðunum. „Gullkálfurinn“ Henn-
ing var frábær og Eggert Jónsson
átti sinn besta leik 1 vetur,“ sagði
Birgir Mikaelsson, þjáifari og leik-
maður Borgnesinga, við DV eftir
leikinn.
„Þetta var geysilega mikilvægur
sigur fyrir Borgnesinga og ég óska
Bigga og strákunum til hamingju
með fráhæran árangur í vetur. Þaö
er frábært að spila fyrir framan
þessa áhorfendur, þeir eru vel með
á nótunum og þaö er alltaf gaman
að spila spennandi leiki en þó væri
skemmtilegra aö vinna þá,“ sagði
Jóhannes Kristbjömsson.
Henning átti sniildarleik með
Skallagrími og Alex var mjög góður
í annars jöfnu liöi Borgnesinga.
Rondey Robinson var fráhær með
Njarðvík, besti Bandaríkjamaður
sem hefur leikið í Borgamesi í vetur.
Jóhannes var mjög góður og Njarð-
víkingar era með betra lið en staða
þeirra í deildinni sýnir.
Haukar í úrslitin
- eftir öruggan sigur á KR, 93-69
„ Jæja, þá erum við loksins komnir
í úrslitin," sagði Ingvar Jónsson,
þjálfari Hauka, og hafði ekki fleiri
orð um sigur sinna manna á KR í
Hafnarfirði í gærkvöldi, 93-69. Hauk-
ar tryggðu sér með því sæti í undan-
úrslitum íslandsmótsins í körfu-
knattleik og nokkuð ljóst er að þeir
mæta þar sigurliðinu úr B-riðli.
Leikurinn verður ekki í minnum
hafður fyrir góðan körfuknattleik,
mistök voru mörg á báöa bóga en
Haukamir gerðu þó öllu færri. Þeir
léku reyndar vel síðari hluta seinni
hálfleiksins, sýndu þá sínar bestu
hliðar en mótstaða KR-inga var lítil
sem engin.
Haukar, með Jón Amar Ingvars-
son og John Rhodes í aðalhlutverki
lengst af, höfðu fmmkvæðið allan
tímann og sigur þeirra var aldrei í
hættu. Hjá KR-ingum vantaði alla
leikgleði og liðið lék vægast sagt mjög
iUa. Tii að mynda skomðu þeir aö-
eins tvö sig á fyrstu sex mínútum
síðari hálfleiks. Það stefnir nú allt í
að KR-ingar hafni 1 næstneðsta sæti
deildarinnar og þurfi því að leika við
lið númer tvö í 1. deild um tilveru-
réttinn meðal tíu bestu og eiga þeir
varla betra skiiið miðað við leikinn
í gærkvöldi.
„Það er gaman að vera komnir í
úrslit og vera á sama spori og áður.
Þetta var orðið dálítið dapurt eftir
þrjú töp í röð,“ sagði Jón Amar, besti
maður Hauka. Rhodes var að vanda
sterkur undir körfunni og Pétur Ing-
varssonrvar mjög góður í seinni hálf-
leik. Keith Nelson var sterkur hjá
KR í fyrri háifleik og Láms Ámason
áttiþokkalegaspretti. -RR/VS
Ágóðaleikur á
gervigrasinu
- til styrktar krabbameinssjúkum bömum
A sunnudag fer fram fyrsti stór-
leikur ársins í- knattspymu á gervi-
grasveliinum í Laugardal. Um er aö
ræða leik til styrktar krabbameins-
sjúkum bömum. A-landslið íslands
leikur þá gegn úrvalsliði sem Guðni
Kjartansson, fyrmm landsliðsþjálf-
ari, hefur valið. Það er skipað fyrmrn
landsliðsmönnum og þeim sem yngri
eru og eiga einhveija landsleiki að
baki. Nægir þar aö nefna leikmenn
eins og Atla Eðvaldsson, Sævar Jóns-
son, Pétur Pétursson, Karl Þórðar-
son, Bjama Sigurðsson, Ómar Torfa-
son, Njál Eiðsson, Þorgrím Þráins-
son, Sigurjón Krisflánsson, Óskar
Hrafn Þorvaldsson og fleiri.
í landsliðshóp Ásgeirs Elíassonar
em eftirfarandi leikmenn:
Birkir Kristinsson............Fram
Friðrik Friðriksson........... .ÍB V
Valur Valsson..................UBK
Amar Grétarsson................UBK
Krisflán Jónsson..............Fram
Kristinn R. Jónsson...;.......Fram
Rúnar Kristinsson...............KR
Ragnar Margeirsson..............KR
Andri Marteinsson...............FH
HörðurMagnússon.................FH
Baldur Bragason..............Val
BaldurBjamason.............Fylki
Hlynur Birgisson.............Þór
Sveinbjörn Hákonarson........Þór
Láms Ö. Sigurðsson...........Þór
Þessi hópur hefur verið að æfa í
vetur og auk þeirra Ólafur Krisfláns-
son, FH, sem er meiddur, Skaga-
mennirnir Haraldur Ingólfsson og
Ólafur Þórðarson sem em famir með
ÍA til Danmerkur á mót og Ólafur
Gottskálksson úr KR. Þessi hópur
ásamt atvinnumönnunum Guðna
Bergssyni, Þorvaldi Örlygssyni, Sig-
urði Grétarssyni, Eyjólfi Sverrissyni,
Amóri Guðjohnsen og Amari Gunn-
laugssyni munu mynda landsliðiö
sem leikur vináttulandsleik gegn
Bandaríkjum í apríl og gegn Luxem-
borg í undankeppni HM í maí.
Leikurinn á sunnudag hefst klukk-
an 20 og rennur aUur ágóði af seldum
aðgöngumiöum í sjóð til styrktar
krabbameinssjúkum bömum. Leik-
urinn er liður í því að minna á söfn-
un Bylgjunnar og Stöðvar 2 sem fram
fer 5. mars næstkomandi en þá verð-
ur dagskrá stöðvanna helguð þessu
málefni. -GH
John Rhodes úr Haukum og Hermann Hauksson KR-ingur berjast hér hart undir t
í gær. Haukar höfðu betur og eru öruggir með sæti í úrslitakeppninni.
Á 81. Skjaldarglímu Ármanns, sem
fram fór 7. febrúar síðastliöinn, urðu
nokkrir atburöir sem dregiö hafa dilk
á eftir sér. Ég hef í kjölfarið veriö sak-
aður um það af Herði Gunnarssyni,
yfirdómara mótsins, aö hafa haft í
frarami svívirðingar í garð dómara-
nefndar mótsins í bland viö almennan
ruddaskap í framkomu.
Allt hófst þetta á því að ég varð tvisv-
ar fyrir því í þessu móti að felldur var
rangur úrskurður í mínum glimumog
vom þeir i bæði skiptin veruiega óhag-
stæðir mér. Fyrst var tekirrn af raér
löglegur sigur og síðan var dærad á
mig bylta sem ekki var bylta. Þegar
þetta geröist viðhaföi ég ákveðin um-
mæli í garð yfirdómara í augnabiiks-
bræði en faaðst síðan afsökunar á þeim
þegar búið var að visa mér úr mótinu.
Það næsta sem ég frétti er að ég hafi
veríð kærður til aganefndar GLÍ ásamt
öðrum keppanda og einum áhorfanda!
Sá sera kæiir er Hörður Gunnarsson,
yfirdómari mótsins, Síðan fara blöð að
úr í máifiutningi Hai-ðar, hann segir
mínar i garð allrar
dómaranefndarinnar hafi veriö slikar
að slíkt hafi ekki verið þolandi og því
hafi dómaranefndin neyðst til að visa
mér úr mótinu.
Ég vil benda á að allar núnar s vívirð-
ingar í garö dómara mótsins fólust i
þremur orðum sem ég beindi til Harð-
ar eins. Þessi orð vora „Farðu á
Klepp". Þetta beindist aðeins aö Herði
en ekki hinum tveimur. Hann hefur
líka sagt aö ég ætti aö geta vitnað rétt
í glímulögin og lætur þar með að því
liggja aö ég kunni ekki lögin. Það er
rangt eins og fleira. Það sem eftir mér
var haft er rétt, utan það að glímu-
sflóri hafi að öllu jöfnu einn rétt til að
visa mönnum úr móti. Þetta var nás-
skilningur hjá blaðamanni því ég sagði
að glímusflóri eínn heföi rétt til að visa
mönnum úr keppni alls staðar nema á
glímuvellinum. Það ætti heldur enginn
að þurfa að láta Hörð Gunnarsson
segja sér hvað væri rétt og rangt í
glímulögunum eða glimu almermt,
miðað við mistök hans í þessu eina
móti og eförmálum þess. Mistök Harð-
ar Gunnarssonar í kringum 81. Skjald-
argímu Ármanns voru þessi helst: