Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 7
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993
7
pv_________________________________Fréttir
Lokuð meðferðardeild fyrir 5 unglinga stofnsett:
Eingöngu lausn
á bráðavanda
- segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
„Þaö er taliö aö fimm unglingar
séu í bráðavanda en þeir sem vinna
með málefni unglinga telja að fleiri
séu komnir fast á hæla þeirra. Hér
er því einungis veriö að leysa þann
bráðavanda sem blasir við núna. Síð-
an þarf að taka á hinu,“ segir Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra en ríkisstjórnin samþykkti á
fundi sínum í gær að veita fé til að
stofnsetja lokaða meðferðardeild fyr-
ir fimm ungmenni undir 16 ára aldri
sem eiga langan afbrotaferil að baki
og hafa neitaö að þiggja aðstoð.
Stefnt er að því að deildin muni
taka til starfa 1. maí en áætlað er að
þar starfi 12-15 manns. Aö sögn Jó-
hönnu mun kosta um 30 milljónir á
ári að reka meðferðardeildina. Fyrst
um sinn verður hugað að því að leigja
húsnæöi en raunverulegur stofn-
kostnaður við deildina bætist við síð-
ar, væntanlega á næsta ári.
„Það er líka verið að vinna í vanda-
málum unglinga á aldrinum 16-18
ára. Þeir eru orðnir sjálfráða og því
ekki hægt að beita þá sömu úrræðum
og hina yngri. Það þarf að hraða
meðferð þeirra mála innan réttar-
kerfisins og úrskurða þá í síbrota-
gæslu ef það verður bið á að dæmt
sé í málum þeirra. Ég tel hins vegar
að það sé ekki fullnægjandi lausn því
þeir þúrfa að fá sömu hjálp og aðstoð
og hinir sem yngri eru. Það er verið
að skoða framtíðarlausnir og ein
hugmyndin er sú að hækka sjálfræð-
isaldurinn í 18 ár eins og er á hinum
Norðurlöndunum. Þá væri hægt að
veita þessum hópi viðeigandi með-
ferð.“
-ból
Vínartónleikar í íþrótta-
skemmunni á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kammersveit Akureyrar heldur
sína árlegu Vínartónleika í íþrótta-
skemmunni á Akuryri á sunnudag
kl. 17.
Einsöngvarar verða óperusöngvar-
arnir Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Jón Þorsteinsson en auk kammer-
sveitarinnar, sem í eru um 50 manns,
kemur fram 50 manna kór frá Dalvík.
Á tónleikunum verða flutt vinsæl-
óperuatriði eftir Verdi, Rossini,
Mascagni og Gounod og Vínartónlist
eftir Johann Strauss og fleiri.
ERLENDIR
MÁLASKÓLAR
MATREIÐSLU- OG
FERÐAMÁLASKÓLAR
Kynning í dag,
laugardaginn 6. mars, kl. 14.00, á Hótel Loftleiðum, í kennslu-
stofum í suðurálmu hótelsins (kjallara). Kynntir verða málaskól-
ar, matreiðslu- og framreiðsluskólar og ferðamálaskólar. Eftirfar-
andi er i boði:
Enska i Bournemouth og Swanage, þýska víðs vegar um Þýska-
land, franska i Frakklandi, spænska á Spáni og ítalska á ítaliu.
Ennfremur matreiðslu- og framreiðsluskólar í Sviss og Bourne-
mouth og ferðamálaskóli i Bournemouth. Skólar þessir eru allir
reknir á ársgrundvelli þannig að hægt er að hefja nám i þeim
hvenær sem er, dveljast eins lengi og hver vill og taka próf að
námi loknu i flestum tilfellum. Námið er ætlað bæði byrjendum
og þeim sem lengra eru komnir og gildir þar einu um aldur. Við
höfum handbæra bæklinga og video-spólur sem sýndar verða á
kynningunni eftir því sem tími gefst til. Ennfremur munu fulltrú-
ar tveggja skólanna mæta á fundinum til viðræðna.
Reynið viðskiptin. Sími okkar 68 62 55.
Bréfasíminn 68 85 18.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar
Gnoðarvogi 44, Reykjavík - IATA umboðsaðili
Fyrir strikamerki af
GEVALIA
kaffipökkum
færðu Georg Jensen mæliskeið.
■ sem drekka Gevalia kaffi - hvort
sem það kemur úr rauðum, hvítum,
grænum, hörðum eða mjúkum pökkum -
geta nú eignast fallega mæliskeið frá Georg
Jensen sem er sérhönnuð fyrir Gevalia.
p
I -w- aldurinn er að klippa út strikamerkin •
af kaffipökkunum, safna þeim
saman og senda til okkar.
Strikamerki af mjúkum pakka gildir sem
ein eining, en strikamerki af hörðum
pakka gildir sem tvær.
Fyrir samtals tuttugu einingar sendum við
þér þessa glæsilegu mæliskeið í pósti.
Þú þarft aðeins að fylla út innsendingar-
seðilinn og senda okkur ásamt nógu
mörgum strikamerkjum til að ná samtals
tuttugu einingum.
70 1059
Vinsamlega sendið mér Georg Jensen mæliskeið.
Hjálagt eru strikamerki sem samtals mynda tuttugu eininaar:l laf
mjúkum pökkum (ein eining fyrir hvert þeirra) oal laf hörðum pökkum
(tvær einingar fyrir hvert).
□ Ég vil gjarnan fá greitt fyrir strikamerkin 100 kr. og sleppa því að fá
skeiðina.
Síðasti innsendingardagur er 31. maí 1993.
Nafn:_
| Heimilisfang:_
! Póstnúmer:—
strikamerki aFgevaua kaffipakka ■ | Utanáskrift: Gevalia mæliskeið, Pósthólf 260, 202 Kópavogur.
* Þú getur einnig sent okkur öll strikamekin - ef þau mynda samtals tuttugu einingar- og fengið andvirði þeirra I peningum, eða 100 kr. (Þannig er strikamerki af mjúkum pakka 5 kr. virði og strikamerki af hörðum pakka 10 kr. virði.)
Tilboð þetta stendurtil 31. maí 1993.
Skrifaðu allar upplýsingar skýrt og
skilmerkilega á innsendingarseðilinn og
settu j frímerkt umslag með utanáskriftinni:
Gevalia mæliskeið
Pósthólf 260
202 Kópavogur
Ath. Reiknaðu með að fá skeiðina senda
u.þ.b. 2 vikum eftir að þú hefur póstlagt
strikamerkin til okkar.