Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 6. MARS1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Hann varð snemma ólæs „Hann varð snemma ólæs,“ skrifaði þekktur rithöf- undur um kunnan athafnamann í Eyjum. Þetta orðaval má nota til að lýsa svonefndu eftirlæsi, sem felst í, að fólk lærir í skóla að hrafla í lestri, en þarf ekki að halda við kunnáttunni, er það kemur til starfa í samfélaginu. í árdaga voru þjóðir ólæsar. Fyrir fáum öldum eða áratugum urðu þær læsar. Nú eru þær að verða eftirlæs- ar. Sem dæmi um þessar breytingar má nefna, að nýleg könnun leiddi til þeirrar niðurstöðu, að um fjórðungur íslenzkra grunnskólanema geti tæpast talizt læs. Grunnskólinn á íslandi snýst að verulegu leyti um að kenna bömum að lesa, reikna og skrifa. Þetta gengur treglega, enda hefur tæknin gert fólki kleift að fara í kringum þetta. Það lætur lyklaborðin skrifa og reikna fyrir sig og fylgist með í útvarpi og sjónvarpi. Umgengni við tölvur minnir á matseðla veitingahúsa. Menn benda með músinni á þann rétt, sem þeir kjósa af matseðlum tölvunnar. Senn nægir fólki að pota á skjánum í það, sem það vill, eins og þeir þekkja, er hafa prófað íslenzka ferðavakann sér til skemmtunar. Aukin síma-, tölvu- og skjátækni mun í ört vaxandi mæh gera fólki kleift að lifa lífinu og komast áfram í lífinu án þess að kunna að lesa, reikna og skrifa. Að vísu mun lestrarkunnátta áfram verða aðgöngumiði vel launaðra og vel virtra starfa í þjóðfélaginu. Með myndrænna efnisvali hafa upplýsingamiðlar á borð við dagblöð lagað sig að breytingunum. Svonefndar fagurbókmenntir eiga hins vegar í vök að verjast í bar- áttu við draumaverksmiðjur sjónvarps. Bóklestur sem bóklestur er á undanhaldi hér sem annars staðar. Fyrst urðu afþreyingarbókmenntir að rifa seglin og nú er röðin komin að hinum eiginlegu bókmenntum. Til skjalanna eru að koma kynslóðir, sem eru vanar að nota útvarp og sjónvarp sem afþreyingu og menningar- tæki og hafa úr meira en nógu að velja á því sviði. Auðvelt er að rökstyðja, að ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af þessu. Umheimurinn bjóði nægar upplýs- ingar, næga menningu og næga afþreyingu, þótt bóklest- ur dragist saman. Nýjum tímum fylgi nýir miðlar. Bæk- ur séu einfaldlega orðnar að úreltu fyrirbæri. Þetta er ekki svona einfalt. í fyrsta lagi er í uppsigl- ingu nýr þáttur í aukinni stéttaskiptingu, sem felst í, að gerendur þjóðfélagsins eru læsir og nota það til að afla sér upplýsinga og menningar, en þolendur þjóðfé- lagsins eru eftirlæsir og horfa stjarfir á imbakassann. Upp eru að rísa kynslóðir lágstéttarfólks, sem hefur tilhneigingu til að lenda í vítahring atvinnuleysis, bjór- neyzlu og sjónvarpsgláps, af því að þjóðfélagið er orðið svo ríkt og svo tæknivætt, að það hefur efni á að halda öllum uppi, þótt þeir séu meira eða minna úti að aka. Eftirlæsa og óvirka stéttin ímyndar sér, að hreyfan- legar myndir 1 sjónvarpi sýni henni veruleikann. Svo er ekki. Saga er sjón ríkari. Frægasta dæmið er Persa- flóastríðið, sem var í beinni útsendingu. Þeir, sem vildu fylgjast með því í raun, urðu að nota blöð og útvarp. Sjónvarpstéttimar missa sjónar á veruleikanum og telja sér nægja ímynd hans eins og hún kemur fram í sjónvarpi. Þess vegna kjósa sjónvarpsstéttirnar sér póh- tíska foringja í samræmi við tilbúnar ímyndir, sem þeir sjá í sjónvarpi, verksmiðjuframleidda persónuleika. Vaxandi eftirlæsi er þáttur í vítahring, sem eykur stéttaskiptingu í þjóðfélaginu og dregur úr líkum á, að þjóðir hafi vit á að velja sér hæfa menn til forustu. Jónas Kristjánsson Herforustan hvetur Jeltsín til dáða Skoðanir aimarra Valdabaráttan í Moskvu er kom- in á nýtt og háskalegt stig. Viður- eign þeirra Borísar Jeltsíns, forseta Rússneska sambandslýðveldisins, og Rúslans Khasbúlatovs þingfor- seta snýst ekki um það af hálfu hins síðamefnda að draga skýrari markalínu milli valdsviða forseta og þings. Hann er bersýnilega stað- ráðinn í að gera Jeltsín ómögulegt að stjórna. Þetta kom skýrt í ljós á fimmtu- dag í síöustu viku þegar Khasbúla- tov kom því til leiðar að fastaþingiö frestaði um óákveöinn tíma að taka til umræðu tillögu Jeltsíns um stjómarskrárbreytingar til að gera valdamörkin milli forseta og þings greinilegri. Jeltsín hefur lagt til að þjóðaratkvæði um breytingamar fari fram 11. apríl. Sömuleiðis fékk þingforsetinn frestað ákvöröun um að kalla saman fullskipað þing þjóðfulltrúa til að fjalla um málið. Á miövikudag í þessari viku brá svo við að forasta hersins lét stjómmálakreppuna til sín taká. Blaðið Ístvestía skýrði svo frá að æðstu yfirmenn rússneska herafl- ans hefðu fundað með Jeltsín í Kreml og skorað á hann að grípa til einarðlegra ráðstafana til að koma á pólitískum stöðugleika í ríkinu. Aðild heraflans að framvindu mála á stjómmálasviðinu á sér nokkum aðdraganda. Á degi hers- ins á þriðjudag í síðustu viku tók nokkur hópur hermanna í ein- kennisbúningum þátt í mótmæla- göngu kommúnista og þjóðemis- sinna gegn Jeltsín, stjóm hans og stefnu, um götur Moskvu. Jeltsín lýsti þá yfir að tiltekin öfl reyndu að flækja heraflann í sljómmála- baráttu. Samdægurs var útvarpað viðtali við Pavel Gratséf, landvamaráð- herra og hershöfðingja. Hann lýsti yfir að ekki yrði liöið að reynt yrði að kljúfa heraflann í þágu valda- baráttu stjórnmálaafla. Stöðugleiki væri það markmið sem allir her- menn ættu að styðja af fremsta megni. Gratséf landvamaráðherra skipulagði fundinn sem æðstu menn ráðuneytis hans og greina heraflans áttu með Jeltsín. Þar settu þeir fram af miklum þunga kröfuna um stöðugleika. Ástæðan er einfóld. Stjómmálabarátta eins og sú sem Khasbúlatov heyr ásamt harðlínumönnum gegn Jeltsín tefl- ir sjálfri tilveru Rússneska sam- bandslýðveldisins í tvísýnu. Þingið var kjörið meðan enn var við lýði veldi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna og gefur því brengl- aða mynd af rússneskum þjóðar- vilja. Khasbúlatov og bandamenn hans hafa gert Jeltsín að breyta Rúslan Khasbúlatov þingforseti áfellist fund Jeltsíns forseta og herfor- ustunnar á þingfundi á fimmtudag. Simamynd Reuter gamla sovétkerfinu nota sér ástandið til að treysta og efla eigin völd og forréttindi. Dmitri Volkogonov, fyrrum hers- höfðingi og hermálaráðunautur Jeltsíns, ræddi við erlenda frétta- menn á degi hersins. „Stalín er enn á meðal okkar,“ sagði hann. „Við þurfum að vera á verði. Þjóðemis- sinnar og gerviættjarðarvinir og kommúnistar, sem nú eru að renna saman, eru mikil ógnun við land okkar. Og ég útiloka ekki mögu- leikann á ógnaröld." Viðbrögð Khasbúlatovs við áskoran herforastunnar á forset- ann að hefjast handa til að koma á stöðugleika vora annars vegar að stefna Jeltsín fyrir þingið til að flytja því fundargerð af fundi hans með æöstu mönnum landvarna og hins vegar að hóta því að setja Gratséf landvamaráðherra af með þingsamþykkt. Um leið og þessi orð era fest á blað berst sú fregn að Jeltsín hafi svarað með því að bjóða öllum þingheimi á fastaþinginu til fundar við sig í Kreml. Harðlínumennirnir hafa hingað til talið heraflann eðlilegan banda- mann sinn. Nú þegar í ljós kemur að herforastan telur Jeltsín forseta færastan um að tryggja stöðugleika og viðgang þeirra breytinga sem orðið hafa frá hrani sovétkerfisins verða þeir að hugsa sitt ráð á ný. Magnús T. Ólafsson stjórn sinni og brugðið fæti fyrir framkvæmd stjómarstefnunnar en hafa sjálfir enga aðra stefnu fram að færa til að fást við breytinguna frá gjaldþrota miðstýringarkerfi. Sjálfheldan í viðureign þings og forseta hefur svo magnað tilhneig- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson ingu til upplausnar í hinu víðlenda ríki þar sem einstök sjálfstjórnar- lýðveldi og stjómarumdæmi leitast í vaxandi mæli við að sjá eigin hagsmunum borgið en láta reglur og fyrirmæli alríkisstjómarinnar lönd og leið. Oftar en ekki er um það að ræða að valdamenn úr Hvað hefur farið úrskeiðis? „Hvað hefur farið úrskeiðis? Við getum tekið nokkur atriði sem hafa breyst á undanförnum áram. Ofbeldi í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, mynd- böndum og tölvuleikjum er mun útbreiddara. Bresk- ir félagsvísindamenn hafa tilhneigingu til að draga í efa sambandið milli ofbeldis í skáldskap og ofbeldis í raunveruleikanum. Bandarískir starfsbræður þeirra era mun vissari í sinni sök en þeir hafa lengri reynslu af fjölmörgum sjónvarpsrásum sem era í boði allan sólarhringinn." Úr forystugrein Independent on Sunday 28. febrúar Sprengiefni fyrir alla „Geta yfirvöld gert meira til að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn og aðrir siðblindir menn kom- ist yfir sprengiefni? Meira en 1,8 milljónir tonna af sprengiefni eru keypt á löglegan hátt í Bandaríkjun- um á ári hverju. Eftirlit meö dreifmgu þess virðist undarlega slakt. Kaupendur fylla út eyðublöð svipuö þeim sem notuð eru við byssukaup. Enginn kannar hvort þeir segja satt um sakaskrá sína og andlegt heilbrigði og hvernig nota eigi sprengiefnið. Spreng- ingin undir World Trade Centre undirstrikar þörfma á harðara eftirliti.“ Úr forystugrein New York Times 3. mars Hverjir hlera í höllínni? „Hvenær verður breskum almenningi sagt hvað liggur að baki upptökum á samtölum konungsfjöl- skyldunnar og að þeim sé lekið til fjölmiðla. Sú spuming sem skyggir á allar aðrar hlýtur að vera hver stundi hleranimar. Hafa samtöl fleiri úr kon- ungsfjölskyldunni veriö tekin upp, þar á meðal sam- töl drottningarinnar?" Úr forystugrein Daily Express 2. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.