Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 18
18 LAU GARDAGUR 6. MARS1993 Dagur í lífi Elínar Hirst fréttamanns: Fjörutíu og fimm mínútur í fegnm Mánudagurinn 1. mars. Ég vaknaöi um háiftíuieytiö tii aö taka á móti manni sem ætlaði aö taka niður rimlagardínumar í húsinu, hreinsa þær og skila þeim aftur síðdegis. Þegar hann var farinn vakti ég syni mína og hin hefðbundnu morgun- verk tóku viö. Strákamir fóru í baö og síðan hjálpaði ég þeim viö heima- lærdóminn. Viö dunduðum okkm- fram aö hádegi. Mjólkurgrautur er í miklu uppá- haldi á mínu heimili svo ég setti gijónin yfir klukkan rúmlega ellefu. Síminn hringdi og það reyndist vera gamall koliegi. Hann var aö hugsa um að skipta um starf og vildi með- mæli. Það var auðvitað ekkert nema sjálfsagt. Fötinvalin f Klukkan eitt átti ég aö verá mætt í vinnuna og bömin í ísaksskóla. Á leiðinni upp á Stöð 2 kom ég við í versluninni Sautján, sem er búðin min, en hún sér um allan fatnað sem ég nota í 19:19. Á mánudögum eru yfirleitt valin föt fyrir vikuna. Þegar ég kom í vinnuna tóku við önnur skyldustörf. Fyrsta verkið var að taia við fréttamennina, spyrjast fyrir um fréttamál dagsins, með það fyrir augum aö raða fréttunum upp í röö fyrir útsendinguna um kvöldið. Því næst var ég viðstödd fund með fréttamönnum Bylgjunnar til að samræma fréttir milli miðlanna. Dagurinn fór að mestu leyti í að skipuieggja fréttatímann, ásamt fréttastjóra, útsendingarstjóra og fréttamönnum. Ræða við fréttaritara og fólk sem hringdi inn til okkar. „Þá er hárið þvegið og blásið, andlitið farðað og fatnaðurinn valinn.“ Auk þess sinnti ég alls kyns erindum innanhúss. Þá ^tti ég stutt símtal til Ítalíu við Kristján Jóhannsson sem var að koma inn úr dyrunum frá New York. Erindi mitt var þátturinn sem ég er að vinna um hann og verður sýndur um páskana. Ég rabbaði líka við Sig- uijónu, konu Kristjáns, en við erum orðnar prýðilegar vinkonur eftir mikið samneyti á síðustu mánuðum vegna þáttarins. Siguijóna var búin að kaupa belti fyrir mig, sem ég bað hana um, og senda það hingað heim. Alveg frábær manneskja. Gjörbreytt manneskja Um klukkan fimm byijaði ég á að fara yfir fréttainnganga og semja kynningar í 19:19 ásamt Ingva Hrafni. Stundvíslega klukkan hálfsjö Fréttaþulurinn að verða tilbúinn í slaginn aðeins þremur minútum fyrir út- sendingu, aðeins eftir að koma eyrnalokkunum upp. Aðrir starfsmenn gera sig einnig klára og Ingvi Hrafn klárar síðasta simtalið fyrir fréttir. DV-myndir Brynjar Gauti fór ég í smink, eins og við köllum það. Þá er hárið þvegið og blásið, andlitið farðað og fatnaðurinn val- inn. Það má segja að það sé gjör- breytt manneskja sem standi upp úr stólnum klukkan flmmtán mínútur yfir sjö, enda fjörutíu og fimm mín- útna fegrunarstarf að baki. Þennan dag var ég komin heim til eiginmannsins og bamanna á venju- legum tíma, rétt fyrir klukkan níu. Ég fékk mér ýsu og kartöflur en þurfti síöan að þjóta aftur út. Mín beið fundur í Veitingahöllinni með fréttamönnum um höfundarréttar- mál. Ég kom heim úm hálftólfleytið og endaði kvöldið með að horfa á uppá- haldssjónvarpsþáttinn minn um Katrinu miklu af Rússlandi. Sonur minn hafði séð um að taka hann upp ámyndbandfyrrumkvöldið. -ELÁ Finnur þú fimm breytingai? 195 / ■ Ég hafði það á tilfinningunni að þeim lægi á að losna við okkur þegar Nafn:................ þau hjálpuöu okkur í yfirhafnirnar. Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: TENSAI ferðaút- varpstæki með kassettu að verðmæti 5.220 krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Síð- umúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.950. Bækumar, sem eru í verð- laun, heita: Falin markmið, 58 mín- útur, Október 1994, Rauði drekinn og Víghöfði. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 195 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað nítugustu og þriðju getraun reyndust vera: 1. Ragnheiður Diljá, Sólvöllum 18, 760 Breiðdalsvík. 2. Jóna Guðjónsdóttir, Skipholti 45,105 Reykjavík. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.