Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 20
Lorenzo's Oil:
Mannleg úrvalsmynd
Lorenzo’s Oil, sem vakið hefur
mikla athygli í Bandaríkjunum að
undanfómu er byggð á sönnum
atburðum og fjallar um hjónin
Augusto og Michaela Odone sem
af einstöku hugrekki og þraut-
seigju börðust gegn tíma og lækna-
Nick Nolte og Susan Sarandon
leika hjónln Augusto og Michaela
sem neita að trúa að ekki sé hægt
að bjarga syni þeirra Lorenzo
(Zack O’Malley Greenburg) sem
er með þeim á myndinni. Innfellda
myndin er af leikstjóranum og
handritshöfundinum George Miller
sem elnnig er lærður læknir.
visindunum til bjargar syni sínum.
Það var 1984 sem læknar sögðu
þeim að flmm ára sonur þeirra
væri haldinn ólæknandi sjúkdómi.
Þrátt fyrir enga undirstöðumennt-
un í læknisfræði neituðu þau að
trúa staðreyndum og byijuðu sjálf
að lesa sér til um allt sem skráð
hafði verið um þann dularfulla
sjúkdóm sem heijaði á son þeirra.
Og í dag geta hundruð manna
þakkað fyrir þolinmæði þessara
einstöku hjóna.
Nick Nolte og Susan Sarandon
leika hjónin og hafa bæði fengið
mikið hrós fyrir leik sinn. Auk
þeirra leikur Peter Ustinov stórt
hlutverk í myndinni.
Ástralski leikstjórinn George
Miller, sem þekktur er fyrir Mad
Max myndirnar þijár, leikstýrir
Lorenzo’s Oil. Miller er sjálfur
lærður læknir og hafði lesið um
afrek hjónanna í sunnudagsblaöi
London Times og segir hann að
hann hafi ekki trúað sögunni í
fyrstu en forvitni hans var vakin.
Þegar hann síðar leitaði til hjón-
anna um að fá aö gera kvikmynd
um reynslu þeirra var það meðal
annars vegna þess að hann var
læknir að þau gáfu leyfi sitt. Marg-
ir höfðu reynt áður aö fá að kvik-
mynda sögu þeirra en þau ekki
samþykkt. MiÚer eyddi síðan ári í
rannsóknir og skrif á handritinu
sem hann vann í samvinnu við
Nick Enright. Hvers vegna Odone
hjónunum tókst aö gera vísinda-
lega uppgötvun upp á eigin spýtur
segir George Miller stafa af því að
Augusto Odone sé „fæddur" vís-
indamaður og hann eigi það sam-
eiginlegt með stórmennum vísind-
anna að spyija réttra spuminga.
Lorenzo’ Oil er fyrsta kvikmynd
sem George Miller leikstýrir frá því
hann gerði The Witches of
Eastwick fyrir fimm árum. Reynsl-
an af Hollywood þá gerði það aö
verkum að hann flúði heim til
Sydney og hóf framleiðslu á sjón-
varpsefni fyrir hiö þekkta kvik-
myndafyrirtæki sitt Kennedy Mill-
er sem hann hafði stofnað 1979
ásamt félaga sínum Byron
Kennedy sem nú er látinn. Það að
sagan gerist í Bandaríkjunum var
eingöngu ástæðan fyrir að George
Miller kaus að gera hana þar. Lor-
enzo’s Oil hefur fengið mjög góða
dóma og er nú í baráttunni um
óskarsverðlaunin.
-HK
LAUGARDAGUR 6. MARS1993
Kvikmyndir
Dustin Hoff-
man leikur
Bernie La-
Plante sem
óvænt sýnir
mikið hug-
rekki þegar
hann verður
vitni að flug-
slysi.
Stephen Fre-
arsviðtökur
á Hero, en
myndinni
seinkaði
meðal annars
vegna þess
að hann fékk
vægthjartaá-
fall.
Hero - nýjasta kvikmynd Dustins Hoffman:
Þjófurinn sem
gerðist hetja og
hvarf síðan
Hero er nýjasta kvikmynd Dust-
ins Hoffman. Er um að ræða gam-
ansama mynd þar sem Dustin leik-
ur þjófinn Bernie La Plante. Líf
Bernies tekur heldur betur breyt-
ingum þegar hann kvöld eitt er að
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
keyra á bíl sínum rétt fyrir utan
Chicago. Flugvél hrapar nánast
fyrir framan nefið á honum og allt
í einu er Bernie í hlutverki skát-
ans, gengur vasklega fram í björg-
unaraðgerðum og bjargar særðum
farþegum úr brennandi vélinni en
hverfur síðan og lætur ekki einu
sinni sjá sig þótt sjónvarpsstöð ein
heiti honum miklum peningum,
gefi hann sig fram...
í aðalhlutverkum auk Hofmans
eru Andy Gracia sem leikur mann
sem birtist með skó sem passar við
þann sem Bemie skildi eftir á slys-
staö og segist hann vera sá sem
eigi að fá verðlaunféð. Geena Davis
leikur sjónvarpsfréttakonu sem
áköf er í viðtal við heljuna. Aðrir
leikarar eru meðal annars Joan
Cusack, Kevin J. O’Connor og Tom
Amold.
Leikstjóri Hero er Bretinn Step-
hen Frears sem hefur átt mikilli
velgengni að fagna í Bandaríkjun-
um. Eftir hina ágætu bresku kvik-
mynd sína My Beutiful Laundrette
lá leið Frears vestur um haf þar
sem hann hefur leikstýrt Dangero-
us Liasons og The Grifters. Hand-
ritshöfundurinn David Webb Peop-
les er ekki af verri endanum. Má
nefna að hann er nú tilnefndur til
óskarsverðlauna fyrir handrit sitt
að kvikmynd Clints Eastwood, The
Unforgiven. Um sama leyti og Hero
verður frumsýnd í Stjörnubíói
kemur út bókargerð kvikmyndar-
innar á íslensku á vegum Urvals-
bóka.
Peoples skrifaði handritið með
Dustin Hoffman í huga en Frears
vildi athuga aðra möguleika og var
Geena Davis
og Andy
Garcia leika
aóalhlutverk-
in á móti
Dustin Hoff-
man í Hero.
O 0
Billy Crystal einn þeirra, sem hann
vildi, en þegar framleiðandinn
Laura Ziskin, sem hafði fengið
Stephen Frears til að leikstýra
myndinni, hafði tryggt sér Dustin
Hoffman kom í raun enginn annar
til greina. Það gekk ekki átakalaust
að skapa persónuna og höfðu Fre-
ars og Hoffman ólíkar skoðanir á
túlkuninni framan af og sagt er að
þeir hafi aldrei almennilega getað
séð hvor annan í réttu ljósi. Sam-
starfið gekk samt stórslysalaust
fyrir utan að Frears fékk snert af
hjartaáfalli meðan á tökum stóö,
sem illar tungur segja að sé Dustm
Hoffman aö kenna.
Hero var dýr mynd í framleiðslu
kostaði 42 milljónir dollara og fór
aðeins fram úr áætlun en ekkert
að ráði og hafa viðtökur verið ágæt-
ar. -HK