Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Qupperneq 21
21 LAUGARDAGUR 6. MARS1993 Þórarinn Guðlaugsson matreiðslumeistari: Við sitjum á gullkistu Þórarinn Guðlaugsson: „Mig langar að bjóða ráðamönnum þjóðarinnar til veislu þar sem á boðstólum væri matur úr úrvalshráefni sem fleygt er í dag. Ég vil láta ráðamenn sjá hvers virði það er sem við erum að gera.“ DV-myndir GVA Koníaksbleikja, kryddlegin bleikja með koníaksostahjúp, er ein af mörgum afurðum sem matreiðslumeistarinn Þórarinn Guðlaugsson og fyrirtæki hans Meistarinn hefur nýlega þróað. Fyrirtækið vann til fjölda gull-, silfur- og bronsverðlauna í alþjóðlegri keppni kjötiðnaðarmanna i Danmörku síðastliðið haust. „Það þarf að snúast gegn öllum bölmóðnum af krafti. Islendingar eiga mikla möguleika á erlendum vettvangi með afurðir sínar. í raun og veru sitjum við á gullkistu." Þetta segir Þórarinn Guðlaugsson mat- reiöslumeistari sem þróað hefur af- urðir sem hvergi eru framleiddar annars staðar í heiminum, koníciks- bleikju, hunangsbleikju og hunangs- lax. Fyrir tólf árum, þegar fyrirtæki hans Meistarinn hóf starfsemi sína, var framleiðslan samlokur og skyndiréttir. Velgengni Meistarans síðastliðið haust í alþjóðlegri keppni kjötiðnað- armaima í Danmörku hefur vakið verðskuldaða athygh. Auk íslend- inga kepptu Belgar, Austurríkis- menn, Þjóðverjar, Hollendingar, Svisslendingar, Danir, Norðmenn og Færeyingar. Sigruóu frægar pylsuþjóðir „Meðal þess sem við kynntum voru vínarpylsur og það þótti mörgum skrítið að við skyldum ætla að keppa við pylsuþjóðir um þeirra rétt. Það kom ekki minna á óvart að við skyld- um fá gullverðlaun fyrir pylsurnar," segja Þórarinn og Vihnundur Jósefs- son, eigendur Meistarans, sem voru að taka þátt í kjötiðnaöarkeppni er- lendis í fyrsta sinn. En það var ekki bara fyrir vínar- pylsur sem þeir fengu gullverðlaun heldur einnig fyrir graflð fjallalamb, kjúklingalifrarmús, laxapaté með sölvum og bleikjupaté. Meistarinn fékk silfurverðlaun fyrir Frankfurt- erpylsu, grófa lifrarkæfu og grísa- sultu með osti og bronsverðlaun fyr- ir spægipylsu og grísasultu með fars- hjúp. Þeir félagar segja þessar viður- kenningar mjög uppörvandi. „Við- tökumar sem koníaksbleikjan og hunangslaxinn fengu á stórri mat- vælasýningu í París i haust lofa einn- ig mjög góðu. Við erum hins vegar ekki komnir með þann vélakost sem við þurfum til að geta sinnt stórum pöntunum. Við höfum því ekki farið af stað með markaðssetningu á fullu.“ Ekta íslenskvara Koníaksbleikjan er kryddlegin bleikja með koníaksostahjúp. Hun- angslaxinn er lax marineraður í hun- angi og kryddi með hnetum utan á. Vilmundur leggur áherslu á að hun- angslaxinn sé ekta íslensk vara þó svo aö aðrir reyni að stæla hann. „Svíar eigna sér graflaxinn og Norð- menn reykta laxinn og nú höfum við okkar lax. Hxmangslaxinn er fyrsta nýjungin í þróun laxaafurða í langan tíma.“ Þórarinn skýtur því að að eftir keppnina í Danmörku hafi einn dóm- aranna farið að tala um frábæran hunangslax sem kunmngi hans hafði smakkað á íslandi. „Ég varö náttúr- lega þrælmontinn því hann var að tala um okkar afurð.“ Vinnsla þessara nýju afurða er í samráði við fagráð bleikjuframleið- enda. Vilmundur tekur fram að markaðssetning sé mjög dýr og því sé samstarf nauðsyidegt fyrir lítil fyrirtæki. íslendingar geti hins vegar nýtt sér miklu fleiri möguleika en þeir gera. Gæðavöru hent „Það er óhemjumikið af hráefni hér á Islandi sem hægt er að nýta. Við erum með fullt hús matar. En enn er miklu af gæðavöru hent, eins og til dæmis ungnautalifur. Það gengur einnig erfiðlega að selja lambalifur. Við erum með ákveðnar hugmyndir en höfum enn ekki haft aðstöðu til að markaðssetja réttina," segir Þór- arinn. „Ég treysti mér einnig til að búa til sælkeramat úr mörgu af því sem í dag er ekki htið viö, bæði til sjávar og sveita," bætir hann við. „Úr ýmsu sem fleygt er væri til dæmis hægt að búa til mat og senda utan sem þróunarhjálp. Fyrir nokkrum árum var verið að senda utan lamba- skrokka. Viðtakendur vissu ekki hvað þeir áttu að gera við skrokk- ana.“ Ekkert svar frá kirkjunni Sjálfir hafa þeir félagar gert blóð- pylsu úr afurðum sem er fleygt. „Við létum bragðprófa hana og næringar- prófa og þetta kom mjög vel út. Við vorum að hugsa um að þetta væri góður matur fyrir hungraða fólkið í Bosníu-Herzegóvínu. Þetta er hka matur sem er venjulegur á þeim slóð- um. Við höfðum samband við Hjálp- arstofnun kirkjunnar. Starfsmenn hennar smökkuðu á pylsunni og lýstu því yfir að hún væri góð. Við útbjuggum tilraunasendingu sem fara átti til hjálparstofnunar erlend- is. Þetta var í nóvember ogenn í dag höfum við ekki heyrt eitt einasta orð frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Með þessu framlagi okkar vildum við ekki bara koma góðu til leiðar erlendis heldur einnig hér heima. Við ætluðum okkur að þróa upp- skriftir án endurgjalds og senda þær til sláturhúsanna. Þar hefði svo getað hafist framleiðsla matvara til þróun- arhjálpar sem ríkið kostaði." Veisla fyrir ráðamenn Þórarinn lýsir því yfir að sig langi til að bjóða ráðamönnum þjóðarinn- ar til veislu þar sem á boðstólum væri matur úr úrvalshráefni sem ekki er nýtt í dag. „Þeir geta sjálfir bent á það sem þeir vhja að matreitt verði úr. Ég er reiðubúinn að búa th frambærilegan mat úr hverju sem er. Ég vh láta ráöamenn sjá hvers virði það er sem við erum að gera.“ Þórarinn og Vilmundur segja aö á hverju ári séu fluttir inn tugir tonna af kjöt- og fiskkrafti th íslands. „Við höfum ekki efni á að framleiða kjöt- kraft þar sem rafmagnið er svo dýrt. Samtímis erum við að hugsa um að flytja út rafmagn th annarra þjóða sem selja okkur kjöt- og fiskkraft. I fyrra voru á tímabhinu janúar til ágúst flutt inn 32 tonn af krafti. Á sama tíma var verið að henda tugum ef ekki hundruðum tonna af hráefni í kjöt- og fiskkraft um allt land. Það er ekki undarlegt að maður velti því fyrir sér hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi. íslendingar verða að fara að opna augun.“ -IBS útóalí í blÓMúð GARÐSHORN &8 við Fossvogskirkjugarð - simi 40500 POTTABLOM GJAF. 20-50% afsláttur 20-70' AVORUR % afsláttur POTTAHLÍFAR SJALR/O 20-75% afsláttur 30-50' KVANDI KER % afsláttur KERTI 20-40% TÚLÍP/ VNABÚNT n aóeins 245,- afsláttur m/greinur Opió alla daga kl. 10-19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.