Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Side 26
26 LAUGARDAGUR 6. MARS 1993 Hún ætlaði að upplifa ameríska drauminn en lífið snerist í martröð: Ég seldi líkama minn fyrir dóp - segir Matthildur Jónsdóttir Campell sem var forfallinn heróínneytandi í rúm tíu ár „Ég stóð við gluggann og horfði á dópsalann ganga eftir götunni. Lík- aminn öskraði á heróínið en ég beið eftir að hann hyrfi úr augsýn, að hann færi að minnsta kosti svo langt frá húsinu að hann heyrði ekki í mér ef ég kallaði á hann og bæði hann að koma aftur. Ég stóðst þessa eld- raun ekki síst vegna dóttur minnar sem hafði verið mér frekar sem móð- ir en dóttir frá því hún var lítið barn. Hún treysti þvi að ég væri hætt.“ Svo segir Matthildur Jónsdóttir Campell í viðtali við DV. Matta, eins og hún er kölluð, hefur verið búsett í Chicago í Bandaríkjunum frá árinu 1967. Hún kom í stutta heimsókn til íslands til að hvíla sig frá dauðanum, eins og hún nefnir það, en heldur út aftur á mánudag. Matta á að baki mikla átakasögu sem forfallinn eit- urlyfjaneytandi í meira en tíu ár. Hún kynntist undirheimum stór- borgarinnar og vinir hennar voru dópistarnir á götunni. „Það var ekki hægt að komast neðar á botninum en ég var,“ segir hún. Nú hefur líf Möttu snúist úr mar- tröð í eðlilegt líf 46 ára gamallar konu. Nema hvað starf Möttu er óvenjulegt. Hún hjálpar fíkniefna- neytendum og eyðnismituðum, fyrr- um félögum sínum, að komast undir læknishendur og gengur um götur borgarinnar og útdeilir ókeypis smokkum. Matta var heppin að augu hennar opnuðust fyrir raunveruleik- anum áður en það var um seinan. Nú horfir hún á eftir vinum sínum einum af öðrum sem hafa látist af eyðni eða ofnotkun á fíkniefnum. Matta ákvað að segja lesendum DV sögu sína ef hún gæti hjálpað ein- hverjum en það er einmitt starf hennar að hjálpa öörum. Ástfangin afhermanni Árið 1966 kynntist Matta 19 ára hermanni á Keflavíkurflugvelli. „Ég varð yfir mig ástfangin, þá 21 árs gömul. Hann lauk herþjónustunni og hélt heim en þá tóku við bréfa- sendingar. Ég fékk hvert ástarbréfiö á fætur öðru. Reyndar kunni ég ekki orð í ensku en við höfðum alltaf talað saman með orðabókinni. Ég trúði að sjálfsögðu að hann elskaði mig eins mikið og hann var sífellt að tjá mér í bréfunum. M'ér tókst að nurla fyrir fargjaldi til Bandaríkjanna aðra leið- ina og hélt út í heim í trássi við fjöl- skyldu mina. Ég skildi eftir lítinn son minn hér heima og átti tuttugu doll- ara sem voru farareyrir minn til fyr- irheitna landsins. Eg sá Ameríku í hillingum. Þar voru allir ríkir, áttu stór hús og bíla. Sjálf hafði ég alist upp í stórri og efnalítflli fjölskyldu. Eg var með lítinn miða með nafni hins heittelskaða og varla annað með mér. Leigubílstjóri, sem ók mér heim til hans, bankaði á dyrnar og sagði konu, sem kom til dyra, að í bílnum væri ung stúlka, sem ekki talaði ensku, að leita að manni með þessu nafni og rétti henni miðann. Þetta var móðir hans. Hann var ekki heima en kom skömmu síöar og leiddi kærustuna sína. Það var að sjálfsögðu mikið áfall. Hann hafði sagt mér frá því hversu ríkur hann væri en þama bjó hann í pínulítilli íbúð hjá móður sinni. Þau höfðu ekki efni á að senda mig til baka til ís- Matthildur með börnum sínum — forfallinn heróínisti sem lifði í undirheimum Matta ásamt móður sinni, Vilborgu Torfadóttur, þegar hún mætti óvænt í Chicagoborgar. sextugsafmæli hennar, þá nýlega hætt í dópinu. lands og ég átti aðeins 8 dollara. Ég var ákaflega óþroskuð og saklaus og hafði t.d. ekki hugmynd um að ég gæti snúið mér til sendiráðsins. Auk þess var ég svo ástfangin. Móðir hans skipaði syninum að giftast mér en ég vissi það ekki fyrr en löngu síðar. Ég kom út í apríl og við vorum gift í júní. Þegar ég byrjaði að skilja ensku þoldum við ekki hvort annað. Við reyndum samt og eignuðumst saman tvö börn. Einstæð móðir í ókunnri borg Ég fór síðan að vinna í verksmiðju. Þetta var mjög erfitt líf, sérstaklega vegna þess hve ung viö vorum. Það kom að því að eg flutti út frá honum með börnin. Ég fékk litla íbúð og skil ekki núna hvernig ég gat þetta - alein í ókunnu landi, langt frá öll- um ættingjum. Þetta var árið 1972 en í því hverfi, sem ég flutti í, voru mjög margar einstæðar mæður. Ég var eina konan sem hafði vinnu, hin- ar voru allar á bótum frá bænum. Þaö sem olli mér mestum vandræð- um var aö fá almennilega bamfóstru en gæslan var mjög dýr. Ég var auk þess óheppin því konan sem passaði fyrir mig var á kafi í dópi en ég vissi það auðvitað ekki. Stundum kom hún til dyra á morgnana þegar ég kom með bömin og sagðist vera svo veik að hún gæti alls ekki passað. Þetta gekk svona þangað til ég neyddist til að hætta að vinna og segja mig á bæinn eins og hinar kon- umar. Þegar maður hættir að vinna er nægur tími til að flækjast og ég fór að kynnast nágrönnum mínum. Ég kynntist manni, sem heimsótti móður sína í blokkina, og byrjaði að vera með honum. Ég varð ófrísk eftir hann og eignaðist dóttur mína, Michelle, árið 1973 en hann hvarf upp úr því.“ Heróínistar fluttu inntilhennar Þegar Michelle var nokkurra mán- aða gömul hitti Matta annan mann sem átti eftir að gjörbreyta lífi henn- ar. „Hann flutti inn til mín árið 1974. Ung stúlka í háskólanámi skrifaði ritgerð um líf Möttu og hún vakti slíka athygli að blað i Chicago birti frásögnina á mörgum síðum. Þessi maður var alltaf með stóran kunningjahóp í kringum sig og mér fannst svo skrítið að hópurinn fór alltaf inn í svefnherbergi og lokaði að sér. Ég áttaði mig ekkert á hvað var að gerast. Stundum kom til hans fólk scm var fárveikt. Ég vorkenndi því og hitaði handa því súpu. Einu sinni fór ég samt inn í svefnherbergi þegar gestimir voru þar inni og sá þá hvað var að gerast. Allir voru að sprauta sig. Á þessum tíma var ég mjög ein- mana og saknaði íjölskyldunnar á íslandi og sonar míns sem ég skildi eftir. Fyrsta daginn sem ég sá heróín sprautaði ég því í mig. Hann spurði hvort ég vildi ekki prófa og ég svar- aði því játandi. Sennilega vildi ég vera með - vera í klíkunni. Ég hafði varla drukkið áfengi áður, í mesta lagi bjór. Ég hafði ekki hugmynd um áhrif fikniefna né heldur hversu mikill skaðvaldur heróínið er. Ég vissi sama og ekkert um þessi efni, haíði aldrei umgengist þau eða heyrt af þeim. Ég ældi í þrjá daga. Hann sagði mér að reyna aftur og aftur því ég myndi hætta að æla. Allt í einu ældi ég ekki lengur en það var líka byrjunin á endinum. Ég elskaði að vera í vímu, hafði ekki áhyggjur af neinu og allt virtist í góðu lagi. Hins vegar vissi ég ekki að ég var orðin háð efninu eftiríjóra eða fimm daga. Seldi líkamann fyrir dóp Einn daginn fékk ég ekkert efni og vaknaði um morguninn með tárin í augunum og fann til í öllum skrokknum. Mér er illt, mér er illt, mér líður svo illa, sagði ég við strák- inn, sem ég var með, aftur og aftur. Og hann sagði: „Ég get látíð þér líða betur ef þú átt peninga.“ Ég gat borg- að og fékk mína sprautu og leið bet- ur. Eg vissi ekki hvaða vitahring ég var komin í. Lífið snerist um einn dag í einu. Þegar ég hafði notað fikni- efni í eitt ár gerði ég hvað sem var til að fá efni. Maður gerir allt fyrir fikniefnið og þá meina ég allt. Ég gerði hluti sem ég heíði ekki einu sinni lát- ið mér detta í hug áður. Ég dansaði nakin á næturklúbbum. Ég vann á götunni - seldi líkama minn til að eiga fyrir eitrinu. Ég stal, laug og notaði fólk, t.d. fjölskyldu barnanna minna. Núna veit ég að sambýlismað- ur minn, sem gaf mér fyrstu spraut- una, vissi nákvæmlega hvað hann var að gera. Það er miklu auðveldara íyr- ir konu að ná í peninga en karlmann. Þeir verða að hijótast inn en kona getur unnið inn peninga á mjög skjót- an hátt. Þessi maður er dáinn núna. Hann tók inn of stóran skammt.“ Matta hafði prófað ýmislegt sem hún taldi sig aldrei eiga eftir að upp- lifa þegar henni var sagt frá spítala (clinic) þar sem hún gæti fengið lyf, methadone, sem myndi hjálpa henni að hætta í eitrinu. „Þetta er í raun nákvæmlega eins og heróín nema hvað það er búið til í apóteki. Allir sem voru með mér á spítalanum voru fíkniefnaneytendur og þá fyrst lærði ég hvað til væri í þessum heimi. Þama var mér sagt frá kókaíni og alls konar pillum sem átti að blanda saman og fá enn meiri áhrif. Þegar faðir bam- anna minna frétti að ég væri á clinic trúöi hann fyrst fyrir alvöru að ég væri svona langt leidd. Hann tók bömin tvö, sem við áttum saman, af mér. Michelle var hins vegar hjá mér. Þetta vom verstu kvalir sem hægt er að hugsa sér og ég sá ekki bömin mín tvö næstu átta árin. Bjó til fíkniefni og seldi Það var hræðilegt hvemig líf mitt var. Ég gleypti pillur, sprautaði mig með heróíni og kókaíni en samt tók ég alltaf meðalið mitt, methadone; hélt það myndi bjarga mér. Ég seldi heróín. Þegar engir peningar voru til fór ég út á götu og seldi sjálfa mig. Margt man ég ekki, það vantar mörg tímabil í líf mitt. Ég kynntist öðrum manni á spítalanum og bjó með hon- um í níu ár. Við bjuggum til fíkni- efni, notuðum þau og seldum. Lög- reglan var alltaf á hælunum á okkur enda vissi hún að við vorum dópsal- ar. Hún náði okkur þó aldrei. Mér fannst ég vera svo klár að ég yrði nógu fljót að sturta öllu niður í kló- settið ef löggan birtist. Ég var alltaf með dóttur mína, Michelle, og hún hefur gengið í gegn- um þetta allt með mér. Michelle er mjög dugleg og hún hefur komist ósködduð úr þessu. Hún sagði þó við mig eitt sinn að ég hefði tekið æsk- una frá sér. Hún lifði við það árum saman að vita ekki hvort ég kæmi heim eða hvort ég lifði sprautuna af. Maður setti eitthvað í tappa, sauð það og sprautaði í sig en vissi aldrei hvað það var. Núna fæ ég hroll þegar ég hugsa um að stundum sprautaði ég einhverju sem átti að vera kókaín í blóðið á mér, kannski tuttugu sinn- um á dag. Það var bara maður á næsta horni sem sagði mér hvað þetta væri og ég trúði því. Lífíð snerist um sprautur Ég bjó í mjög slæmu hverfi á þess- um tíma. LÍfið snerist eingöngu um sprautur og það komu tímar þegar ég tók Michelle ekki einu sinni inn. Ég hugsaði ekkert um hana og gaf henni ekki að borða. Hún leitaði til gamallar vinkonu minnar sem bjó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.