Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Síða 32
I.AUGARDAOUR 6. MARS 1993
Iþróttir
Þorbergur Aðalsteinsson á erfitt verkefni fyrir höndum í Svíþjóð.
HM í handknattleik hefst í Svíþjóð eftir 3 daga:
Fá að hitta
konurnar
enekki
neitt meira
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, í DV-viðtali
Stóra stundin er aö renna upp hjá íslenska landsliðinu í hand-
knattleik. Eftir aðeins þrjá daga hefst úrslitakeppni heims-
meistaramótsins 1 handknattleik í Svíþjóð og í fyrramálið held-
ur liðið utan. Eins og ávallt þegar landsliðið í handknattleik
tekur þátt í stórkeppni fer íslenska þjóðin á „handboltafyll-
irí“ og alls staðar þar sem fólk kemur saman berst talið að
landöliðinu. Þegar vel gengur er talað um strákana okkar en
þegar á móti blæs virðast allir, hvort sem þeir hafa vit á íþrótt-
inni eða ekki, hafa lausnir 1 sjónmáli.
í fyrsta leik verður leikið gegn
heimsmeisturum Svía og silfur-
verðlaunahöfum á síðustu ólymp-
íuleikum og verður þetta jafnframt
opnunarleikur mótsins. Eftir Svía-
leikinn verða næstu andstæðing-
amir lið Ungveija og lokaleikurinn
í forriölinum er gegn Bandaríkja-
mönnum. Þrú efstu liðin fara
áfram í milliriðil og taka með sér
stigin og eftir leikina þar verður
leikið um endanleg sæti.
Það hefur veriö í nógu að snúast
hjá Þorbergi Aðalsteinssyni lands-
liðsþjálfara á þessum síðustu dög-
um fyrir heimsmeistaramótið. DV
tók Þorberg tali og spurði hann
álits á möguleika okkar manna og
öllu því sem við kemur svona stór-
móti.
Yrði alveg sáttur
við að lenda í 8. sæti
„Að vera meðal átta bestu í heimin-
um hefur alltaf verið takmark hjá
okkur. Ég yrði alveg sáttur við að
lenda í 8. sæti en það verður líka
að líta á að þaö er engin B-keppni
eða slíkt sem bíður okkar ef Ula fer
í Svíþjóð og þaö finnst mér hjálpa
okkur.
- Getum við unniö Svía á stórmóti?
„Ég hef ekki sett neina pressu á
strákana á að sigur verði að vinnast
á Svíum. Það eru bara óraunhæfar
kröfur. Hins vegar tel ég möguleika
vdssulega fyrir hendi að leggja þá
að veUi. Pressan verður öU á þeim,
þeir eru heimsmeistarar og á
heimaveUi og aUir ætla þeim sigur.
Eg legg dæmið upp þannig að leik-
urinn gegn Ungveijum er sá leikur
sem vdð verðum að vdnna en þar
getur aftur á móti orðið pressa á
okkur ef Svíaleikurinn tapast. Ég
veit lítiö um styrkleika Ungveij-
anna í dag. Þeir hafa leUdö Utið síð-
an á ólympíuleikunum en ég veit að
þeir' munu teUa fram Ueiri atvinnu-
mönnum en á ólympíuleikunum. Við
unnum þá á OL með því að ná topp-
leik en þar með er ekki hægt að segja
að það gerist aftur. Ég á von á hörku-
leik. Bandaríkjamenn eru alveg
óþekkt stærð og þar held ég að aðal-
máhð sé að halda haus.
í mUliriðli mætum vdð mjög
sterku liði Rússa sem erfitt verður
að eiga við og væntanlega leikum
vdð gegn Þjóðveijum og Dönum.
Þjóðveijarnir eru með mikið breytt
lið frá því á OL og Danirnir eru
með gott lið sem getur orðið erfitt
að leika gegn.
Annars er munurinn á milU Uð-
anna sem eru á topp 10 aUtaf að
minnka og á góðum degi getur
hvert þeirra sem er unnið.“
Erum sterkari ef
eitthvað er en á OL
- Hvernig berð þú liðið í dag saman
við liðið sem varð í 4. sæti á OL?
„Ég held að styrkleikinn sé mjög
svdpaður. Við erum að ná aftur upp
þessum góða varnarleik sem var
okkar sterkasta hUð á OL og þá
erum vdð með örvhentan leikmann
í skyttustöðunni, sem við höföum
ekki þá, og það er mikill plús. Ef
eitthvað er þá ættum við að vera
með sterkara Uð.“
- Finnst þér vera of miklar vænt-
ingar til Uðsins?
„Maður hefur fundið þaö að
væntingarnar fyrir svona mót eru
alltaf miklar. Maður varð ekki eins
var vdð væntingar fyrir OL enda
var þá sumar og vdð lékum marga
leiki erlendis fyrir leikana. í dag
er annað. Já, ég finn að vænting-
amar eru svakalega miklar en það
er ekkert nýtt.“
Léttleikinn verður
áfram í fyrirrúmi
- Verður sami léttleikinn í hópnum
og á ólympíuleikunum?
„Það verður alveg eins, við breyt-
um þvd ekkert. Léttleikinn verður í
fyrirrúmi eins og hann hefur reynd-
ar verið hjá okkur sem er kannski
styrkleikinn í þessum hópi. Þetta
byggist upp á ýmsu félagslegu. Mót-
ið í Svíþjóð er ekki ósvipað sett upp
og ólympíuleikamir, það er að yfir-
leitt einn dagur í frí á milli leikja.
Breytingin verður kannski sú
mesta að nú getum vdð ekki verið
úti í sólinni eins og í Barcelona en
allt annað verður eins.“
Strákamirhugsa
mikið um mataræói
- Hvað með mataræði fýrir og í
svona stórkeppni?
„Við byrjuðum á því síðastliðið
sumar að hugsa mikið um matar-
æðið, að menn fái kolvetnisríka
fæðu. Við höfum reynt að halda
því. Kannski fara ekki allir 100 pró-
sent eftir því en menn em alltaf
með þetta á bak við eyrað. Margir
af strákunum hafa tekið þetta mjög
alvarlega en flestir hugsa vel um
þetta.“
- Raðar þjálfarinn niður í hótelher-
bergin?
„Við Einar röðum oftast niður á
herbergin og reynum að velja eftir
því hvar menn spila á vellinum en
einstaka sinnum gefum við þetta
frjálst. Ég á fastlega von á að við
munum riðla herbergjaskipan þeg-
ar vdð höldum til Stokkhólms frá
Gautaborg."
Nóg að gera hjá
aðstoðarmönnunum
- Er ekki í mörgu að snúast hjá
aðstoðarmönnum landsliðsins?
„Ef ég tek sjúkraþjálfara sem
dæmi þá eru alls kyns smámeiðsli
sem hann þarf að vera að huga að
á milli leikja. Hann tekur menn í
nudd og setur á þá hljóðbylgjur.
Vinna hans eykst þegar líður á
mótið, þá koma fmgurmeiðsli og
öll meiðsli sem eru sárvond en líta
kannski ekki út fyrir að vera stór.
Læknir liðsins leikur aðalhlut-
verkið í svona móti, hann vegur
og metur hvað þarf til. Þá mæðir
mikið á fararstjóm. Menn, sem þar
eru, þurfa að huga að mörgum
málum óg eru allsheijar reddarar,
sjá um búninga, athuga með ferðir
og mataræði og fleira.“
- Hefur það ekki komið til tals að
mæta hálfsköllóttir eða með litað
hár til leiks gegn Svíunum eins og
Frakkar gerðu gegn okkur í leikn-
um um 3. sætið á OL?
„Mér sýnist nú nokkrir í liðinu
vera mjög snögghærðir. Það var
mikil stemning hjá Frökkunum
fyrir leikinn gegn okkur og einn
liður í þeirri stemningu var að
mæta til leiks með nýja hár-
greiðslu. Við höfum ekkert rætt um
að gera slíkt hið sama heldur væri
frekar að vdð settum eitthvaö undir
ef vdð næðum einhveiju óvæntu
takmarki, þá gætu fokið einhver
hár eða þau verið lituð.“
Hitta konurnar
en ekkertmeira
- Hvað með eiginkonur leikmanna?
„Ég veit til að einhveijar konur
leikmanna ætla að fylgjast með
lokakafla mótsins. Þær fara ekki á
vegum psí. Auðvitað fá strákamir
að hitta þær, enda langt liðiö á
mótið þegar þær koma, en ekkert
meira en það. Ég set strákunum
ákveðnar reglur sem þeir vita enda
þurfa þeir að halda hópinn með
landsliðinu og halda fullri einbeit-
ingu,“ sagði Þorbergur að lokum.
-GH
/iwjjmi mámís
A - r i ð i II UMEÁ C - r i ð i 1 1 GAUTABORG
SPÁNN TÉKKLAND AUSTURRÍKI EGYPTALAND SVÍÞJÓÐ UNGVERJALAND
ÍSLAND BANDARÍKIN
HALMSTAD _ STOCKHOLM
Milliriðill Milliriðill
A og B C og D
B - r i ð i II 1 D - r i ð i II
KARLSTAD MALMÖ
FRAKKLAND RÚSSLAND
RÚMENÍA ÞÝSKALAND
NOREGUR S-KÓREA
SVISS DANMÖRK