Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 47
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993 -
59
Afmæli
Þórhallur Birgir Jósepsson
Þórhallur Birgir Jósepsson, aö-
stoöarmaður samgönguráðherra,
Hólmgarði 50, Reykjavík, er fertug-
urídag.
Starfsferill
ÞórhaUur fæddist í Reykjavík en
fluttist tveggja ára gamall til Akur-
eyrar og síðar til Hjalteyrar. Árið
1959 flutti hann svo í Stykkishólm,
í Garðahrepp 1963, í Hafnarfjörð
1966 en hefur búið í Rvík frá 1984.
Hann dvaldist á Hjalteyri flest sum-
ur til tólf ára aldurs.
Þórhallur lauk landsprófi frá
Flensborgarskóla 1969 og stúdents-
prófifráMA1974.
Hann starfaöi sem kennari í
Hafralækjarskóla í Aðaldal frá
1975-76, í Bamask. Grýtubakkahr. á
Grenivík frá 1976-77, Grunnskólan-
um á Blönduósi 1977-80 og í Laugar-
bakkaskóla í Miðfirði 1983-84. Þór-
hallur nam við KHI1980-83 og
kenndi með námi í Hagaskóla í
Reykjavík síðasta árið.
Hann hefur einnig gegnt ýmsum
störfum með námi og kennslu, þ.á
m. sveitastörfum, sjómennsku á tog-
skipum, verkamannavinnu, við
fiskvinnslu, upp- og útskipun, ýms-
ar verktakaframkvæmdir, hjá Pósti
og síma, í jámblendiverksm. á
Grundartanga, við akstur vörubíla
og vöruflutningabíls, stjórnun
vinnuvéla og laxveiðar í Ölfusá.
Á árunum 1984-88 var Þórhallur
skrifstofum. ogumsjm. vöm-
geymslu hjá Skeljungi hf. í Rvík,
1988-91 blaðam. á Morgunbl.
(lausam. 1986-88), aðstm. sam-
gönguráðh. frá 1991 og í stjórn Hús-
næðisst. ríkisins frá 1991.
Þórhallur hefur einnig starfað í
Verði, FUS á Akureyri, 1969-74, í
Heimdalli 1985-88, þar af í stjóm
1987-88, form. málefnanefnd. SUS
um húsnæðismál 1986-88 og form.
málefnanefnd. Sjálfstæðisfl. um
húsnæðismál síðan 1989.
Þórhallur starfaði með Leikfél.
Vöku í Grýtubakkahr. 1976-77 og
með Leikfél. Blönduóss 1977-80.
Hann var í stjóm Nemendaráðs KHÍ
1980-83, fulltr. nemenda í skólaráði
og skólastj. KHI og í stjóm KÍ.
Fjölskylda
ÞórhaUur kvæntist 12.9.1981 Her-
dísi Ólafsdóttur, f. 1.3.1957,
skrifstm. í Rvík. Hún er dóttir Ólafs
Þorlákssonar, b. á Hrauni II í Ölf-
usi, og Helgu Sigríðar, húsmóður
þar, Eysteinsdóttur, b. á Guðrúnar-
stöðum, Bjömssonar, b. í Grímst-
ungu, Eysteinssonar.
Böm Þórhalls og Herdísar eru:
Helga Sigríður, f. 26.5.1981; Jósep
Birgir, f. 3.9.1985; og Margrét Þór-
hildur, f. 22.7.1992.
Systkini Þórhalls eru: Karólína
Kristín, f. 2.3.1955, skrifstm. í Hafn-
arf., og á hún Margréti Kristínu og
Þórönnu; Skarphéðinn, f. 12.7.1959,
nemi við sjávarútvegsd. Háskólans
á Ak., kvæntur Stefaníu Björnsdótt-
ur sjúkral. og eiga þau Fanneyju og
Heiðdísi; og Ævar Óm, f. 25.8.1963,
nemi í Þýskal., kvæntur Sigrúnú
Guðmundsdóttur, nema í Þýskal.,
og eiga þau Þórhildi Sunnu og Eddu
Karólínu.
Foreldrar Þórhalls em Jósep Birg
ir Kristinsson, f. 3.8.1932 í Rvik, bif-
vélav. hjá ísl. jámblfél. á Gmnd-
art., og Margrét Kristín Þórhalls-
dóttir, f. 20.7.1932 á Hjalteyri,
skrifstm. hjá ísl. járnblfél. Þau búa
í Skilmannahr.
Ætt
Faðir Jóseps var Kristinn Halldór,
vömbílstj. í Rvík, sonur Kristjáns
Hálfdánar Jörgens steinsmiðs,
Kristjánssonar og k.h., Önnu Sigríð-
ar húsmóður, Þorfinnsdóttur, b. í
Efra-Hegranesi, Finnssonar og k.h.,
Guðrúnar Jónasdóttur.
Móðir Jóseps var Karólína Ágúst-
ína Jósepsdóttir, Sigmundssonar,
Þórhallur Birgir Jósepsson.
Hagalínssonar, Jóhannessonar,
Jónssonar, Teitssonar.
Faðir Margrétar Kristínar var
Þórhallur, sjómaður á Hjalteyri,
Kristjánsson, smiður og b., Ytri-
Bakka, Pálssonar.
Móðir Margrétar Kristínar var
Þóranna Rögnvaldsdóttir, b. á Litlu-
brekku á Höföaströnd, Sigurðsson-
ar, b. í Hólkoti, Jónssonar, frá Hóli
á Upsaströnd, Jónssonar, b. á
Brúnastöðum í Fljótum. Móðir Þór-
önnu var Guðný Guðnadóttir.
Til hamingju með daginn 6. mars
Sigurður Jóhannes Þórðarson
Sigurður Jóhannes Þórðarson,
Stífluseli 5, Reykjavík, veröur sex-
tugurámorgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Geirseyri á
Patreksfirði og ólst þar upp. Hann
hefur stundað sjómennsku og uxmið
ýmis störf í landi. Hann var með
sérleyfi á fólksflutningum milh Pat-
reksfjaröar, Tálknafjarðar og Bíldu-
dals og starfaði hjá bróöur sínum
við vöruflutninga milh Patreks-
fjarðar og Reykjavíkur.
Sigurður flutti til Reykjavíkur
1970 og stundaöi þar fyrst ýmis störf
en hóf störf hjá Vatnsveitu Reykja-
víkur 1973 og hefur unnið þar síðan.
Fjölskylda
Kona Sigurðar er Ágústa Kristín
Þorvaldsdóttir, f. 5.8.1935, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Þorvalds Guð-
mundssonar og Ástu Jóhannsdóttur
í Oddakoti í Austur-Landeyjum en
þauerubæðilátin.
Böm Sigurðar og Ágústu Kristín-
ar em Óhna Þ. Sigurðardóttir, f.
11.6.1961, starfsmaðurviðdvalar-
heimilið Ás, búsett í Hveragerði, gift
Friðriki Kristjánssyni bifreiðastjóra
og eiga þau þrjár dætm-; Ástþór Sig-
urðsson, f. 22.2.1963, byggingar-
starfsmaður í Reykjavík; Ómar Sig-
urðsson, f. 16.2.1964, starfsmaður
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur; Geir
Sigurðsson, f. 5.10.1966, flokksstjóri
hjá Vatnsveitu Reykjavíkur, í sam-
búð með Berglindu Elvarsdóttur og
eiga þau tvo syni; Einar M. Sigurðs-
son, f. 23.9.1972, búsettur í Reykja-
vík.
Systkini Sigurðar: Einar Ásgeir
Þórðarson, f. 10.10.1923, d. 10.2.1969,
sjómaður á Patreksfirði, var kvænt-
ur Margréti Marteinsdóttur og áttu
þau saman sex böm; Halldóra Þórð-
ardóttir, f. 1.8.1926, húsmóðir á Pat-
reksfirði, og á hún þijár dætur;
Guðbjartur Þórðarson, f. 12.7.1931,
bifreiðastjóri á Patreksfirði; Margr-
ét Freyja Þórðardóttir, f. 3.2.1935,
dó nokkurra daga gömul; Andrés
Þórðarson, f. 12.8.1938, borgar-
starfsmaður, búsettur í Reykjavík,
Sigurður Jóhannes Þórðarson.
í sambúð með Salome Guðjónsdótt-
ur og á hann einn son. Uppeldis-
bróðir Sigurðar er Jón úr Vör skáld.
Foreldrar Sigurðar vom Þórður
Guðbjartsson, f. 15.12.1891, d. 1982,
verkamaður á Patreksfirði, og Ólína
Jónína Jónsdóttir, f. 2.5.1893, d. 4.8.
1957, húsmóðir.
Sigurður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Karl Hallbertsson
Karl Hafibertsson sjómaður,
Hjarðarholti 2, Akranesi, verður
sextugur á morgun, sunnudag.
Starfsferill
Karl fæddist í Veiðileysu í Ámes-
hreppi í Strandasýslu og ólst þar
upp. Hann hefur stundað sjó-
mennsku frá unga aldri. Fyrst á
smátrillum samhliða búskapnum
með föður sínum en fór svo alfarið
til sjós rétt innan við tvítugsaldur.
Karl hefur aðallega verið á línu-
skipum og síldarbátum og er í dag
sjómaður á Hrólfi AK29.
Fjölskylda
Karl kvæntist 1961 Hönnu Gyðu
Kristjánsdóttur, nú húsmóður á
Eskifirði. Þau skildu. Hann hóf sam-
búð 17.12.1977 með Önnu Jónsdótt-
ur, f. 16.10.1938, húsmóður. Hún er
dóttirJónsGuðmundssonarb.,
Stóm-Ávíkí Ámeshr., ogUnnar
Jónsdóttur húsmóður.
Karl eignaðist dóttur með Bára
Guðmundsdóttur frá Ófeigsfirði.
Hún er Edda Björk, 30.1.1957, hús-
móðir í Reykjavík, gift Sigurði
Reynissyni byggingaverktaka og
eiga þau þijú böm. Fyrir átti Edda
einnson.
Dóttir Karls og Hönnu Gyðu er
Rósamunda Jóhanna, f. 31.5.1961,
húsmóðir á Eskifirði, gift Ómari Sig-
urðssyni sjómanni og eiga þau þrjú
böm.
Synir Karls og Önnu em: ísleifur
Páll, f. 25.3.1971, sjómaður, búsettur
á Skagaströnd, og á hann eina dótt-
ur; ogBenedikt Guðfinnur, f. 4.11.
1975, verkamaður, búsettur á Akra-
nesi.
Böm Önnu frá fyrra hjónabandi
era: Guðmunda Björg Þórðardóttir,
f. 13.6.1958, húsmóðir og nemi, gift
Sigfusi Þorbjömssyni og eiga þau
tvo syni; Emelía Þórðardóttir, f. 3.5.
1960, húsmóðir og verkakona, og á
húneinnson.
Bræður Karls em: Ingibjöm, sjó-
maður, búsettur í Kópavogi, var
kvæntur Guðrúnu Ámadóttur sem
nú er látin og eignuðust þau fimm
böm; Þorleifur, starfsm. í prent-
smiðju, búsettur í Kópavogi, kvænt-
ur Sigríði Krisljánsdóttur og eiga
þau flögur böm; Lýður Rúnar, sjó-
maður, búsettur á Skagaströnd,
kvæntur Guðbjörgu Eiríksdóttur og
eiga þau átta böm; og Ármann Ás-
geir, jámabindingam., búsettur í
Hafnarfirði, kvæntur Guðrúnu
Steingrímsdóttur og eiga þau sex
böm.
HálfsystirKarls,.samfeðra, er
Sjöfn Inga, b. að Hólmakoti á Mýr-
um, gift Helga Guðmundssyni og
eiga þau fimm böm. Fyrir átti Sjöfn
þijú böm. Móðir hennar er Andrea
Karl Hallbertsson.
Guðmundsdóttir.
Foreldrar Karls vom Kristinn
Haftbert Guðbrandsson, f. 5.9.1903,
d. 21.12.1981, b. að Veiðileysu í Ár-
neshreppi í Strandasýslu, og Sigríð-
ur Þórlína Þorleifsdóttir, f. 24.12.
1897, d. 2.11.1986, húsmóðir þar.
Foreldrar Sigríðar vom Þorleifur
Jónsson, Amardal, og Margrét Sig-
urðardóttir, Amardal. Foreldrar
Hallberts vom Guðbrandur Guð-
brandsson og Ingibjörg frá Veiði-
leysu.
Karl tekur á móti gestum í Sjálf-
stæðishúsinu á Akranesi, Heiöar-
braut 20, eftir kl. 20 í kvöld, laugar-
dag.
50ára
Gestur Ólafsson,
Víðilundi 24, Akureyri.
80 ára
Alda Jóhannsdóttir,
Eyjalmauni 9, Vestmannaeyjum.
Páll Stefánsson,
Mýmm 1, Ytri-Torfustaðahreppi,
Víghólastíg 19, Kópavogi.
70 ára
Kristjón Jón Guðnason,
Nönnufellil, Reykjavík.
Ragnhildur Antonsdóttir,
Fagragarði 2, Keflavík.
Ragnhildur tekur á móti gestum í
Víkinni, Hafnargötu 80, Keflavík,
eftir ki. 19 á afmælisdaginn.
Lúðvik Lúðvíksson.
slökkvfliðs-
maður,
IIoltaseIi37,
Reykjavilt.
EiginkonaLúð-
víks erStein-
unnKristófers- ;
dóttir. Þau
verða að heim-
anáafmæhsdaginn.
Hilmar Kristjánsson,
Auönum.Vogum.
Sigurlína Sigurjónsdóttir,
Gránufélagsgötu 41, Akureyri.
Maria Gísladóttir,
Eyjahrauni 8, Vestmamiaeyjuin
Málfríður A. Sigurðardóttir,
Miðtúni 82, Reykjavík.
Þórdís Guðmundsdóttir,
Fálkagötu 21, Reykjavfk.
Birna Jensdóttir,
Seljavöllum, Nesjahreppi.
Margrét Jóhannsdóttir,
Húnavöllum, Torfalækjarhreppi.
Steindór G. Steindórsson,
Lyngholti 14, Akureyri.
Borghildur Jónsdóttir,
HörðurGíslason,
Kringlumýrí 19, Akureyri.
Samúel Kristjánsson,
Nesvegi 19, Suöavík.
Unnur Garðarsdóttir,
Hólabraut 18, Höfn í Homafirði.
Rýmingarsala á barnaskóm
smáskór
Skólavörðustíg 6b
Sími 622812
Opiö I dag
kl. 11-17
---------------------\
Útboð
Vegvísun 1993, framleiðsla
umferðarskilta
Vegagerð rlkisins óskar eftir tilboðum í fram-
leiðslu umferðarskilta, þ.e. skiltaflata leiðarmerkja
og þéttbýlismerkja með tilheyrandi burðarrömm-
um og festingum á rörauppistöður. Magn alls
600 stk.
Verki skal að fullu lokið 18. ágúst 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 5, Reykjavik (aðalgjaldkera), frá og
með 8. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00
þann 22. mars 1993.
Vegamálastjóri