Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1993, Page 52
LAUGARDAGUR 6. MARS 1993.
Ghanabúinn:
Var aftur
__ kærður fyrir
áreiti en
gæslu hafnað
Breskur ríkisborgari frá Ghana,
sem í fyrradag var dæmdur í 18 mán-
aða fangelsi fyrir að nauðga fyrrver-
andi sambýliskonu sinni, hefur verið
kærður á nýjan leik fyrir þrálátt
áreiti í garð konunnar.
Á grundvelli kæru konunnar var í
gær farið fram á að manninum yrði
gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til
hann hæfi afplánun dómsins. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hafnaði
þeirrikröfuenúrskurðaðiaömaður-
inn skyldi settrn- í farbann þar til
afplánun hefst.
Maðurinn var dæmdur í fangelsi
fyrir að ráðast að fyrrverandi sam-
býliskonu sinni með hníf um miðjan
janúar, neyða hana á brott af vinnu-
stað sínum og nauðga henni. Maður-
inn hélt því fram að konan hefði
haft frumkvæði að samforum þeirra
en með hliðsjón af framburðum vitna
sem sáu þegar hann þröngvaði kon-
unni inn í bíl með sér og aðdraganda
í málsins þótti sýnt að maðurinn hefði
beitt ofbeldi til að ná fram vilja sín-
um.
Fólkið bjó saman í þijú ár en eftir
skilnaðinn kærði konan manninn
fýrir einelti og líflátshótanir.
í dómsúrskurðinum kemur fram
að maðurinn hafi ekki fyrr sætt refs-
ingum og vitni beri honum góða
sögu. Refsingu er stillt í hóf af þeim
sökum svo og að hömluleysi hans
/ megi aö nokkru rekja til að hann
hafi ahst upp við annars konar við-
horf til kvenna en hér ríkja.
-ból
Péglers
GUFULOKAR
Vauisen
SuAuriandsbraut 10. S. 688499.
LOKI
Fer Ömmi ekki á bömmer?
Guðmundur Hilmaisson, D V, Gautaborg;
„Ég er mjög bjartsýn, það þýðir
ekkert annað. Mér liður furðuvel í
dag og finnst í raun ótnílegt aö ég
skuli vera búin aö gangast undir
þessa aðgerð,“ sagði Hrefna Ein-
arsdóttir, 34 ára lifrarþegi, í sam-
tali viö DV á Sahlgrenska sjúkra-
húsinu í Gautaborg í gærdag.
Hrefna gekkst undir lifrarskiptaað-
gerð á þriðjudaginn og er annar
Islendingurinn sem gengst undir
slika aðgerð.
„Læknamir segja mér að þetta
hafi gengið ipjög vel hingað til. Að
vísu varð vart við innvortis blæö-
ingar og fór ég í minniháttar aðgerð
vegna þeirra daginn eftir.“
Hrefna er byrjuð að hrej-fa sig,
gekk fram á-gang í gær og upp stiga
og er farin að gera æfingar til að
styrkja lungun. Þá drakk hún vatn
í fyrsta skipti i gær. Hún komst til
meðvitundar aðeins hálftíma eftir
aðgerðina en algengt er að fólk sé
meðvitundarlaust í 3-4 daga eftir
siíkar aðgerðir.
„Þetta vil ég þakka hve vel ég var
undir aðgerðina búin líkamlega.
Ég fór mikið út að ganga heima,
æfði í Mætti og var hjá sjúkraþjálf-
ara
Hrefha segir mikinn létti aö hafa
komist í aðgerðina nú en hún var
búin aö bíða eftir kallinu í eitt ár.
kláða, alltaf þreytt og húðin var
orðin heiðgul. Það er gaman að líta
í spegil núna og sjá hvernig húðin
er smám saman að ná eðlilegura lit
aftur."
; Hrefna segist ekki vita hvenær
hún fær að fara til íslands aftur en
hún verður i Gautaborg í allt að tvo
mánuöi.
,Áíú taka við æfingar og þá kem-
ur í ljós hvernig nýja lifrin virkar.
Aðalatriðið er að ná heilsunni aft-
Einar Marteinsson, eiginmaður
Hrefnu, og Ema, systir hennar, eru
með henni í Gautaborg. Veikindi
Hrefnu hafa haft mikinn kostnað i
fór með sér fyrir þau hjónin en þau
eru í Gautaborg í fimmta skipti
Þau vildu þakka fjölskyldu og vin-
um fyrir mikla fijáip og stuðning.
„Án þeirra værum viö illa stödd,"
sagöi Einar.
Michael Olavsson, annar lækn-
anna sem framkvæmdu aðgerðina
á Hrefnu, sagðist ánægður með
aðgerðina en of snemmt væri að
segja til um framhaldið. „Það hjálp-
ar Hrefnu hve ung hún er og hve
vel hún var undirbúin Iíkamlega
fyrir aðgerðina. Þetta eru ailt hlut-
ir sem ílýta bata hennar.**
„Það er gaman að líta í spegii núna og sjá hvernig húðin er smám saman að ná eðlilegum lit aftur,‘‘ segir
Hrefna Einarsdóttir sem fékk grædda í sig nýja lifur á þriðjudag. Með henni á myndinni er eiginmaður hennar,
Einar Marteinsson. DV-símamynd Guðmundur
Einn síbrotaunglinganna:
Úrskurðaður
ívikugæslu-
varðhald
Einn af síbrotaunglingunum, sem
unnu gífurleg skemmdarverk á sum-
arbústöðum í Meðalfellslandi fyrr í
vikunni, hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald í viku.
Tveir af unglingunum sjö, sem
tengjast málinu, voru yfir 16 ára aldri
og voru þeir vistaðir í Síðumúlafang-
élsi í framhaldi af handtöku þeirra.
Annar þeirra var síðan úrskurðaður
í gæsluvarðhald fyrir afbrotin sem
tengjast skemmdarverkunum. Lög-
regla hefur ítrekað þurft að hafa af-
skipti af honum og á annan tug af-
brotamála, sem hann tengist, bíður
afgreiðslu.
Hinum piltinum, sem sat í Síðu-
múlafangelsinu, hefur verið sleppt.
Hann hefur einnig oft komið við sögu
lögreglu en lát hafði orðið á að und-
anfórnu þar til hann var handtekinn
á nýjan leik eftir atburðina við Með-
alfellsvatn. -ból
Veöriö á sunnudag og mánudag:
Kólnandi veður
Á sunnudag verður suðvestanátt og rigning eða súld sunnanlands en snýst síðan til vestanáttar með skúrum sunnan- og vestanlands. Víða
verður rigning eða snjókoma norðanlands. Á mánudag verður norðan- og norðvestanátt með snjókomu norðanlands og éljum með vesturströnd-
inni en léttir tll suðaustanlands, frost á bilinu 0-5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 61
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
i
i
i
t
t
t
t
t
i