Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Page 5
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993 5 Fréttir Innflutningsaðili þreyttur á sýktum disklingum frá toUinum 1 Simdahöfn: Harði diskurinn hrundi „Seint á síðasta sumri fór að bera á einhveijum leiðindahlutum í tölv- unni hjá mér. Þetta ágerðist og end- aði með þvi að harði diskurinn hrundi. Ég komst engan veginn inn í kerfin sem voru á honum. Ég hafði samband við tölvusalann þar sem tölvan var aðeins ársgömul. Þar var úrskurðað að diskurinn hefði hrunið og byggja yrði hann upp aftur. Þetta kostaði mig um 20 þúsund krónur en heföi getað kostað mig mun meira,“ segir innflutningsaðili í Reykjavík, sem ekki vill láta nafns síns getið, í samtah við DV. Þegar búið var að byggja diskinn upp aftur keypti maðurinn forrit með innbyggðri vírusvöm. Þá sagði tölv- an strax að drifið fyrir 5,25 tomma disklingana væri smitað, nokkuð sem sérfræðingar tölvusalans gátu ekki upplýst um. Svokallaður „doktor" eða „læknir“ er í vímsvöm forritsins sem maður- inn keypti og gat hann sótthreinsað drifið. Fór hann síðan kerfisbundið í gegnum alla diskhnga sem voru í umferð hjá honum og sótthreinsaði þá. Kom í ljós að sýktu disklingarnir voru aht diskhngar sem höfðu farið um tohafgreiðsluna í Sundahöfn. „Eftir að aht átti að vera komið lag fór ég aftur í tollafgreiðsluna í Sundahöfn. Þegar ég ætlaði að lesa diskhnginn þaðan pípti vímsvörn tölvunnar ótt og títt. Tölvan neitaði að vinna áfram nema disklingurinn yrði sótthreinsaður. Þetta hefur síð- an gerst í hvert skipti þegar ég hef heimsótt sömu tohafgreiðslu. Notk- un disklinga í tollinum er vinsæl, enda mjög tímasparandi en það tekur mikinn tíma og er mjög pirrandi að þurfa alltaf að sótthreinsa disklinga sem koma frá þessari tollafgi'eiðslu. Ég er búinn að kvarta við toll- afgreiðsluna þar sem það getur ekki verið mikið mál að lagfæra þetta. En það virðast hálfgerð vetthngatök við- höfð gegn þessum leiðindum." Maðurinn segir ógurlegt til þess að vita að margir sem fara með tölvu- diskhnga í tohafgreiðsluna í Sunda- höfn séu með smitaða diskhnga og smituð drif í umferð. „Málið getur síðan orðið mjög alvarlegt ef menn hafa ekki vírusvörn og gleyma óvart disklingnum í drifinu þegar slökkt er á tölvunni. Þegar kveikt er aftur les tölvan af drifunum og vírusinn kemst við það inn í innra minni tölv- unnar. Þá er fjandinn laus. Þetta Ók á Ijósastaur Bifreið var ekið á ljósastaur á Suð- urlandsvegi viö Lyngás, skammt vestan við HeUu, í fyrradag. Öku- maður slapp ómeiddur en ljósastaur- inn, sem var nýuppsettur, brotnaði í tvennt við áreksturinn. Ökumaður bílsins hafði hemlað til að forðast árekstur við annan bíl sem var á veginum en þá vUdi ekki betur til en svo að hálkan tók völdin með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn varóökufæreftiráreksturinn. -ból virðist hafa gerst hjá mér.“ Eimskip á tölvumar hjá toUafgreiðsl- unni í Sundahöfn. „Eimskip sér um viðhaldið á tölvunum en ekki um for- rihn þar sem afgreiðslan er tengd Skýrsluvélum ríksins. Þama þarf að setja upp vímsvamir svo ekki sé hægt að taka inn smitaðan disk. Öðmvísi stoppar maður ekki útbreiðslu vírus- anna. Þetta virðast viðkomandi aðUar ekki skhja og svona hefur þetta því gengið í meira en hálft ár.“ -hlh BodQdíhl utir og i ugtir Nýkomin stór sending af boddíhiutum íflestar gerðir bifreiða, t.d.: Mercedes Benz árg. ’TS-’íiO Ford Escort árg. ’86-'90 BMW 300 árg. '83-’90 BMW 500 árg. ’82-’87 Lancer árg. ’85-’91 Colt árg. ’85-’91 o.fl. tegundir. Mjög gott verð Bíbvörubúðin FJÖÐRIN Skeifunni 2, Sími 81 29 44 73 milljóna HagnaðurVÍS ífyrra -iðgjöld gætu lækkað „Við höfum nú verið að lækka iö- gjöldin. Við höfum ekkert hækkað og vomm til dæmis að lækka iðgjöld á aldurshópnum 21 th 29 ára nú í mars. Það gætu jafnvel komið ein- hveijar Ueiri nýjungar á árinu,“ seg- ir Örn Gústafsson, framkvæmda- stjóri einstakhngstrygginga VÍS, að- spurður um iðgjaldalækkun í kjölfar umtalsverðs hagnaðar félagsins á síðasta ári. Hagnaður Vátryggingafélags ís- lands, VÍS, var 73,1 mUljón á síðasta ári en aðalfundur félagsins var hald- inn í gær. Hagnaðurinn árið 1991 var hins vegar 40,6 mihjónir. Rekstrarkostnaður fyrirtækisins sem hlutfaU af iðgjöldum lækkaði og nú er hlutfalhð 18,4% en var 27,7% hjá stofnfélögunum tveimur, Bruna- hótafélagi íslands og Samvinnu- tryggingum, á árinu 1988. Iðgjöld ársins námu 4.459 milljón- um en það er 6% hækkun frá 1991. Tjónagreiðslur lækkuðu lúns vegar um 8,2% núlh ára. Þær voru 3.942 mUljónir 1991 en 3618 í fyrra. -Ari Háskólinn á Akureyri: Opið hús í Dunhaga Hin árlega námskynning æðri menntastofnana á íslandi verður haldin á sunnudaginn í Reykjavík frá kl. 13-18. AUar deUdir Háskólans á Akureyri verða einnig með kynn- ingu sína i anddyri Tæknigarðs, Dunhaga 5. Af sama tilefni verða haldnir flórir fyrirlestrar um rann- sóknarverkefni tengd íslenskum sjávarútvegi í kennslustofu Tækni- garðs. Fyrirlestramir heíjast á milh kl. 14 og 15. -em

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.