Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 8
8 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Hagnýt lögfræði „Hlutverk umboösmannsins yrði að tryggja réttindi barna og að tekið yrði tillit til hagsmuna þeirra við lagasetningu og við ákvarðanir stjórn- valda, hvort heldur er ráðuneyta, ríkisstofnana eða sveitarstjórna." Verður rétt- inda bama beturgætt! Síðustu ár hafa íjögur frumvörp um umboðsmann barna btið dags- ins ljós. Ekkert þeirra hefur orðið að lögum en nú standa vonir til að eitthvað gerist í þeim málum þar sem frumvarpi um slíkt efni var vísað til ríkisstjórnar á síðasta þingi. Ráðherra hefur gefið vilyrði sitt fyrir að stuðla að framgangi málsins og er það nú á umræðu- stigi í sifjalaganefnd Alþingis. Verði slíkt frumvarp að lögum fá börn sérstakan aðila sem hefur það hlutverk að gæta réttinda þeirra. Fjórðungur landsmanna böm Á íslandi eru nú um 65.000 lands- manna á aldrinum 0-15 ára en það er um fjórði hver íbúi. Þessi stóri hópur hefur engan aðila sem gætir réttinda hans en margs konar Umsjón ORATOR félag laganema ákvarðanir, sem teknar eru af Al- þingi og stjórnvöldum, varöa böm. Sem dæmi má nefna dagvist- armál, skólamál, skipulagsmál, umferðarmál og heilbrigðismál. Umboðsmaðurinn fylgistmeð Samkvæmt frumvarpinu frá síö- asta þingi skal Alþingi kjósa um- boðsmann til fjögurra ára í senn og jafhframt skipa honum sjö manna ráð til aðstoðar. Hann skal hafa sérþekkingu á uppeldismálum og málum sem snerta velferð bama. Hlutverk umboðsmannsins yrði að tryggja réttindi bama og að tek- ið yrði tillit til hagsmuna þeirra við lagasetningu og við ákvarðan- ir stjómvalda, hvort heldur er ráðuneyta, ríkisstofnana eða sveitarstjóma. Umboðsmaðurinn fylgdist þannig með og gætti þess að hagsmunir bama yrðu ekki fyrir borð bomir eða gleymdust við afgreiðslu hjá alþingismönn- um eða embættismönnum. Athugasemdir og ráðgjöf Við störf sín er gert ráð fyrir að umboðsmaður bama hefði rétt til að gera athugasemdir við hvað- eina sem hann telur brjóta gegn rétti bama. Er honum heimilt að beina athugasemdum sínum aö hveijum sem hann vill og óska eftir leiðréttingu á því sem aflaga hefurfarið. Umboðsmaöurinn er hins vegar ekki einungis í vöm. Hann getur haft frumkvæði aö því að koma með tillögur að úrbótum. Honum er einnig ætlaö að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og einstaklinga um málefni barna og veita upplýs- ingar um stöðu þeirra. Standa vonir til þess að í framtíðinni leiti þessir aðilar til hans í ríkum mæli áður en þeir taka ákvarðanir sem varða börn beint eða óbeint. Upplýsingaréttur Til þess að geta sinnt starfi sínu, töldu flutningsmenn frumvarps- ins nauðsynlegt að umboðsmaður hefði aðgang að öllum stofnunum sem annast málefni barna og þeim gögnum sem þar er að fmna. Við meðferð þessara gagna og við úr- vinnslu mála bæri honum þó að gæta fyllsta trúnaðar og þagnar- vemdar um málefni einstakhnga. Gefistvelí nágrannalöndunum Nágrannalönd íslendinga hafa tekið upp stöðu umboðsmanns barna. Hefur það þótt takast vel og verið breyting til batnaðar. Fjölmargir hafa tjáð sig um gildi slíks embættis í tengslum við frumvörpin hérlendis og virðist það samdóma áht allra að mikil þörf sé á því nú og þótt fyr r hefði verið. Lilja Dóra Halldórsdóttir laganemi Matgæðingnr vikurmar____________________________________________dv Léttsteiktar svartfuglsbringur í sólberjasósu „Nú stendur netavertíðin hjá bát- unum sem hæst. Þá fá þeir mikið af svartfugli sem kemur í verslan- ir. Mér þótti því upplagt að gefa góða uppskrift að svartfuglsrétti,“ sagði Guðmundur Ragnarsson, matreiðslunemi á Laugaási, sem er matgæðingur DV að þessu sinni. Uppskriftin er miðuð við fjóra og í hana þarf: 800 g svartfuglsbringur (8 fuglar) Salt og pipar Ört seasoning (Herb seasoning) Olía til steikingar. Svartfuglssoð í sósuna er búið til þannig: Bein af u.þ.b. 4 fuglum 1 laukur (u.þ.b. 70 g) Gulrætur, 70 g Ferskt timian (af einum kvisti) 1-1,2 lítrar af vatni Salt og pipar Þegar soðið er búið til er gott að bijóta bringubeinin þannig að vatn- ið hylji þau. Þau eru soðin við væg- an hita ásamt kryddinu og græn- metinu í u.þ.b. 30 mínútur. Saltið skal ekki setja í pottinn fyrr en suð- an er komin upp. Soðið er síað og tilvalið að geyma afganginn í klaka- pokum í frysti og nota eftir þörfum. Sósan búin til í sósuna er notaðir 2 dl af soðinu á móti 1 dl af ijóma, 2 matskeiðar af sólberjasultu, ferskt timian (af einum kvisti), 2 matskeiðar af Hinhliðin Skemmtilegast að fara á skíði með fjölskyldunni - segir Eiríkur Ólafsson, útgerðarstjóri HFF stjórninni? Frekar andvígur en þó er ýmislegt sæmilegt sem hún ger- ir. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Væntanlegt barnabarn mitt. Uppáhaldsleikari: Róbert Amf- innsson. Uppáhaldsleikkona: Goldie Hawn. Uppáhaldssöngvari: Allir kántrí- söngvarar. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Hall- dór Ásgrímsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tommi og Jenni. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og fræðsluefni. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Hlynnt- ur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Jónas Jónasson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Jafn mikið á báðar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ólöf Rún Skúladóttir. Uppáhaldsskemmtistaður: Heima er best. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Sund- deild Leiknis á Fáskrúðsfirði. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, auðvitað. Hvað ætlar þú að gera í sumarfri- inu? Það er í geijun. Ægir Kristiiisson, DV, Fáskrúðsfirði: „Það skemmtilegasta sem ég geri er að fara á skíði með fjölskyld- unni,“ segir Eiríkur Ólafsson, út- gerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsi Fá- skrúðsfjarðar, en hann sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. Eiríkur er einnig formaður Út- vegsmannafélags Austíjarða og stjórnarmaöur í Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Fiskifé- lags íslands. Hann var vélstjóri á skuttogaranum Ljósafelli SU 70, áður en hann tók við starfi útgerð- arstjóra hjú HFF. Fullt nafn: Eirík- ur Olafsson. Fæðingardagur og ár: 28. október 1951. Maki: Guðrún Níelsdóttir. Böm Jóhanna Lilja, 20 ára, Ólafur Níels, 15 ára, og Reynir Svavar, 9 ára. Bifreið: Engin en hef aðgang að Volvo-bifreið eiginkonunnar. Starf: Útgerðarstjóri hjá HFF meö meiru. Laun: Ég kvarta ekki. Áhugamál: Starfið og félagsmál í kringum það. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Mest þijár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Fara á skíði með íjölskyld- unni. Hvað ftnnst þér leiðinlegast að Eirikur Ólafsson. gera? Taka til. Uppáhaldsmatur: Aligæs að hætti eiginkonunnar. Uppáhaldsdrykkur: Góð Mósel- og Rínarvín. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Sigrún Huld Hrafnsdóttir. Uppáhaldstímarit: Ekkert sérstakt. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkonuna? Ólöf Rún Skúladóttir. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- Guðmundur Ragnarsson matreiðslunemi. kirsuberjasérríi og 1 tsk. af gráð- osti. Soðinu og ijómanum er blandað saman og soðið. Sólbeijasultunni, timianinu og kirsubeijasérríinu er bætt út í og soðið saman. Þá er gráðostinum bætt út í. Síðan eru bringumar settar í sósuna og látn- ar malla í 3-4 mínútur. Sósuna má jafna með maisenamjöh. Meðlæti MeS þessu er gott að bera fram sykurbrúnaðar kartöflur og peru. Þá er gott að hafa eplasalat með þessum rétti. Það er þannig búið til: 4 græn eph 2 dl þeyttur ijómi 1 matsk. mayonnes Sítrónusafi Hvítvín, 1 matsk. Valhnetur, 1 matsk. Guðmundur skorar á Dagmar Hahdórsdóttur húsmóður sem mun gefa lesendum næstu helgar- blaðsuppskrift að gómsætum rétti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.