Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skfifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Persona non grata
Boris Spasskíj braut bann Sameinuöu þjóöanna við
samskiptum við Serbíu á sviði viðskipta, íþrótta og
menningar, þegar hann tefldi við Bobby Fischer í Bel-
grað í fyrra. Ótvírætt er, að bannið náði til skákeinvíg-
is þeirra, sem telst til glæpa gegn samfélagi þjóðanna.
Hömlulaus gróðafíkn leiddi Fischer og Spasskíj út á
þá ógæfubraut að þiggja boð heimsþekkts glæpamanns
á sviði bankaviðskipta um að rjúfa víðtækt samskipta-
bann við það ríki, sem síðustu misserin hefur gengið
lengst allra ríkja í ógeðslegum stríðsglæpum.
Einvígi Fischers og Spasskíjs var ekki aðeins form-
legt brot á formlegri ákvörðun, sem samþykkt var sam-
hljóða í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Það var einn-
ig brot gegn óformlegum siðareglum, sem alls staðar á
að halda í heiðri. Það var glæpur gegn mannkyninu.
Spasskíj hefur óhreinkað sig svo á þessu máli, að
dularfullt er, að til tals skyldi koma, að hann kynnti
skák í skólum og tefldi tveggja skáka einvígi við Friðrik
Ólafsson, sem er framkvæmdastjóri eins af þremur
hornsteinum þjóðskipulags íslendinga, sjálfs Alþingis.
Fischer er þegar byrjaður að taka út hluta refsingar-
innar fyrir sinn ömurlega þátt í auglýsingaskrumi í
þágu siðlauss árásarríkis. Hann getur ekki snúið aftur
til Bandaríkjanna, því að þar verður hann tekinn fastur
og látinn sæta opinberri ákæru fyrir landráð.
Sakarefni Fischers varða í Bandaríkjunum sem svar-
ar 15 milljarða króna sekt og tíu ára fangelsi. Svo alvar-
legum áugum er þar í landi litið á framgöngu Fischers.
Hann er því dæmdur til að lifa sem vansvefta útlagi á
sífelldum flótta undan hugsanlegri kröfu um framsal.
Spasskíj nýtur þess, að frönsk stjórnvöld hafa ekki
nennt að framfylgja skyldu sinni gagnvart eigin stuðn-
ingi við aðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Hann fékk að fara aftur til þess lands, sem skaut yfir
hann skjólshúsi, þegar hann hrökklaðist af heimaslóð.
Hins vegar teflir Spasskíj ekki fyrir hönd Frakklands
í landshðseinvíginu við ísland, sem nú stendur yfir í
Reykjavík. Samkvæmt skákstyrk sínum ætti hann að
tefla á öðru borði, ef aht væri með felldu. En okkur
hefur verið sýnd sú kurteisi að tefla honum ekki fram.
Þar með var málið einfalt gagnvart Skáksambandinu.
Frakkar leystu sjálfir mál Spasskíjs gagnvart íslandi.
Þá kemur upp sú einkennilega og siðbhnda hugmynd
að bjóða heimskunnum siðleysingja sérstaklega til að
tefla við Friðrik og jafnvel kynna skák í skólum.
Skáksamband íslands er að hluta til á framfæri þjóð-
arinnar samkvæmt ákvörðunum teknum á Alþingi.
Eðlilegt er, að endurskoðaður verði stuðningur skatt-
greiðenda við stofnun, sem gengur þvert á stuðning ís-
lands við réttmætar refsiaðgerðir á alþjóðavettvangi.
Skáksambandið er auðvitað frjálst að því að hafa
engar siðareglur að leiðarljósi. En þjóðfélagið í heild er
líka frjálst að því að hafna stuðningi við félagsskap, sem
gengur þvert gegn almennri siðgæðisvitund og alþjóð-
legum samþykktum, sem ísland styður á formlegan hátt.
I staðinn getur Skáksambandið beðið Spasskíj að láta
eitthvað af hendi rakna af blóðpeningunum, sem hann
fékk í Serbíu í fyrra. Eðlilegt er að slíkir aðilar rotti sig
saman um meðferð fjármuna af því tagi og ónáði ekki
aðra, sem virða almennar og alþjóðlegar siðareglur.
Spasskíj hefur í taumlausri gróðafíkn vahð sér ömur-
legt hlutskipti. Ef hann lætur sjá sig í skólum, verður
hann persona non grata í augum margra íslendinga.
Jónas Kristjánsson
ítalska flokks-
veldið hrynur í
mútuhneyksli
Fyrsta ítalska lýöveldiö er að líða
undir lok. Fimmtugasta ríkisstjóm
þess á hálfum fimmta áratug liggur
undir sífelldum áfóllum en Giul-
iano Amato forsætisráðherra hefur
sett sér að sitja fram yfir þjóðarat-
kvæðagreiðslu í næsta mánuði um
stjómkerfisbreytingu og helst ná
því að halda þingkosningar eftir
gerbreyttum kosningalögum.
Skæðadrífa hneykslismála síð-
ustu misseri hefur sannfært þorra
ítala um að ekki megi lengur við
svo búið standa. Þrír ráðherrar í
stjórn Amato og tveir formenn
stjómarflokka hafa sagt af sér eftir
aö þeim var kunngert að rannsókn
á mútuþægni beindist að þeim.
Fimmtíu þingmenn að auki liggja
undir sama grun. Fomstumenn
nokkurra stærstu fyrirtækja Ítalíu,
bæði ríkisfyrirtækja og einkafyrir-
tækja, hafa verið handteknir fyrir
mútugreiðslur. Sjö menn, sem
rannsókn beindist að, hafa framið
sjálfsmorö.
Upphaf málarekstursins var að
17. febrúar í fyrra leiddi Luca
Magni, kaupsýslumaður í Mílanó,
forastumann Sósíalistaflokksins í
borginni, Mario Chiesa, í gildru í
samráði við rannsóknardómara en
að eigin frumkvæði. Hann greiddi
stjómmálamanninum sem svarar
260.000 krónur í mútur fyrir samn-
ing um hreingemingar á elliheim-
ili og viðræður þeirra voru teknar
á falið segulband. Eftir sjö vikna
gæsluvarðhald tók Chiesa að leysa
frá skjóðunni og síðan hefur ekkert
lát orðið á uppljóstrunum.
Spillingarkerfið starfaði þannig
að fyrir hvers konar samninga um
framkvæmdir eða starfsemi á veg-
um opinberra aðila greiddi sá sem
samning hlaut verulega fjárhæð
þeim stjórnmálamanni í borgar-
kerfi eða ríkiskerfi sem réð úthlut-
uninni. Giskað er á að síðari árin
hafi fjárhæðir, sem þannig runnu
ólöglega til valdaflokka, numið sem
svarar 400 milljörðum króna.
Mútuféö greiddu svo skattborgarar
að lokum því fjárhæðunum var
bætt ofan á annan kostnað sem ríki
eða sveitarfélög greiddu.
ítalska mútustjómkerfið er eitt
af fórnarlömbum endaloka kalda
stríðsins. Kristilegi demókrata-
flokkurinn hefur verið uppistaðan
í öllum 50 ríkisstjórnum lýðveldis-
ins Ítalíu. Þar hefur aldrei komið
til raunverulegra stjórnarskipta.
Stjórnarandstaða öflugs kommún-
istaflokks var röksemdin fyrir því
að halda öllu í sömu skorðum. Mál
óþægileg fyrir stjómarflokka vora
þögguð niður. Fyrir fimm eða tíu
áram hefði enginn viljað hlusta á
mig, sagði Magni sá sem bauð
rannsóknardómara að færa honum
þráðinn sem dugði til að rekja upp
spillingarveginn í Mílanó.
Önnur meginástæða fyrir hvem-
ig komið er felst í flokksveldinu í
ítölskum stjórnmálum. í ítalska
hlutfallskosningakerfmu eru
flokksstjórnir einráðar um skipun
framboðslista og frama þing-
manna. Þeir eiga allt undir foringj-
unum en ekki kjósendum. Því er
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
nú stefnt að því með þjóÖaratkvæð-
inu í næsta mánuði að koma á per-
sónukjöri, þótt óráðiö sé enn í
hverri mynd það verður. Markmið-
ið er að brjóta niður flokksveldið
og gera einstaka þingmenn ábyrg-
ari.
Á meðan millibilsástand ríkir
hrannast upp vandamálin í ítölsku
stjórnkerfi og atvinnulífi. Síðan
hneykslaskriðan tók að renna hef-
Guiliano Amato forsætisráðherra.
ur enginn þorað að gera nýja samn-
inga um opinberar framkvæmdir
svo byggingarstarfsemi og sam-
gönguframkvæmdir eru að fjara
út. Gengi lírunnar fellur og hluta-
bréfamarkaður er í uppnámi, sér í
lagi eftir að fjármálastjóri Fiat,
stærsta einkafyrirtækis Ítalíu, og
yfirmaður tryggingafélags sam-
steypunnar voru handteknir. Efna-
iðnaðarsamsteypan Montedison og
orkurisinn í ríkiseign, ENI, hafa
einnig séð á bak æðstu mönnum
sínum inn fyrir fangelsismúra.
Fram til þessa hefur rannsóknin
á mútuþægni og mútugjöfum aðal-
lega náð til Norður-Ítalíu og upp-
ljóstranir bitnað harðast á flokkun-
um sem þar eru öflugastir, Sósíal-
istaflokknum, Lýðveldisflokknum
og Fijálslynda flokknum. En eftir
því sem sunnar dregur berast
böndin að áhrifamönnum í hópi
kristilegra demókrata, sem þar
hafa víða verið í slagtogi með maf-
íunni, en réttarhöld eru nú hafin í
Palermo yfir manni sem talinn er
foringi foringjanna í þeim glæpa-
samtökum, Salvatore Riina, köll-
uðum Toto.
Rannsóknardómarar segja sjálfir
að málafjöldinn, sem er í augsýn,
geti stíflað ítalska dómskerfið og til
að afstýra þvi lagði Amato forsæt-
isráðherra til að sakborningar í
mútumálum slyppu meö að endur-
greiða þrefalt mútufé og missa
kjörgengi í allt að fimm ár. Svo
mikilli linkind mótmæltu dómar-
amir og Oscar Scalfaro forseti
ónýtti áformið.
Skodanir aimarra
Að auka vinsældir Jeltsíns
„Það kynni að vera hægt að færa rök fyrir þvi
að aðstoð Vesturlanda myndi að minnsta kosti auka
vinsældir Jeltsíns og kannski tryggja umbótum hans
lengri lífdaga. En ef frekari aðstoð á eftir að valda
vonbrigðum, eins og virðist óumflýjanlegt, mundu
slíkar vinsældir dala fljótt. Þótt það sé mikilvægt
fyrir Vesturlönd að Rússland verði lýðræðisríki með
frjálsu markaðshagkerfi er kannski kominn tími til
aÓ viðurkenna að það er takmarkað sem við getum
gert.“
Ur forystugrein Daily Express 13. mars.
Hagvaxtarverkir
„Stjóm Clintons hefur verið að kvarta undan því
að á sama tíma og tölur sýni heilbrigðan hagvöxt
láti ný störf enn á sér standa. Skýringin er sú að
framleiðni - meiri framleiðsla með færra starfsfólki
- hefur aukist. Tölfræðingar segja að í fyrra hafi hún
aukist meira en nokkra sinni undanfarin tuttugu
ár. Þótt þessi aukning sé góð fyrir Bandaríkin er
hún, eins og stjómmálamenn vita mætavel, sárs-
aukafull fyrir margt fólk. Þetta gerist ekki án lokana
verksmiðja og uppsagna."
Ur forystugrein Washington Post 15. mars.
Burt með flokkskóngana
„Almennar kosningar era nauðsynlegar ef ítalir
ætla sér að losna við pólitískt kerfi sem hefur misst
alla tiltrú. Vandinn er sá að núverandi kosninga-
kerfi veitir flokkskóngunum gífurlegt vald, sömu
mönnunum og þarf að losna við. ítalir munu gera
umbætur á kosningakerfinu eftir fáeina mánuði.
Kosningar samkvæmt núverandi reglum væra tál-
gangslausar.“
Úr forystugrein The Economist 13. mars.