Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993
Skák
Kasparov sigraði
- á stórmótinu í linares
Garrí Kasparov hrósaði öruggum sigri á stórmótinu í Linares. Englendingur-
inn Nigel Short á varla von á góðu í einvígi þeirra í haust.
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov
hlaut 10 vinninga af 13 mögulegum á
stórmótinu í Linares, hálfum öörum
vinningi meira en næstu menn, Ana-
toly Karpov og Viswanathan Anand.
Sigurinn getur Kasparov fyrst og
fremst þakkaö frábærri taflmennsku
í skákunum gegn helstu keppinaut-
unum. Karpov og Anai.d urðu báðir
að játa sig sigraða og raunar hefur
Karpov sjaldan goldið slíkt athroð á
skákferli sínum.
Lokastaðan varð þessi:
1. Garrí Kasparov 10 v.
2. -3. Viswanathan Anand og Anatoly
Karpov 8,5 v.
4. Alexei Sírov 8 v.
5. Vladimir Kramnik 7,5 v.
6. -7. Vassily Ivantsjúk og Valery
Salov 6,5 v.
8. Alexander Beljavskí 6 v.
9. -10. Evgení Bareev og Gata Kamsky
5,5 v.
11.-12. Artur Jusupov og Jan Tim-
man 5 v.
13. Boris Gelfand 4,5 v.
14. Ljubomir Ljubojevic 4 v.
Lettinn Sírov, sem sigraði á Apple-
mótinu í Reykjavík í fyrra ásamt
Jóhanni Hjartarsyni, náði bestum
árangri unglinganna, sem svo oft eru
nefndir í sömu andránni: Sírov,
Kramnik, Gelfand, Ivantsjúk, Kam-
sky. Kramnik, sem er aðeins 17 ára
gamall, stóð sig einnig með prýði en
hann háði nú frumraun sína meðal
þeirra allra bestu. Árangur hans á
ólympíumótinu í Manila og á Evr-
ópumeistaramótinu í Debrecen var
bersýnilega engin tilviljun.
„Gömlu meistararnir" Beljavskí,
Timman, Júsupov og Ljubojevic áttu
allir erfitt uppdráttar gegn kvikum
og sókndjörfum stíl ungu mannanna.
Lítum á skák Kasparovs við An-
and, sem í raun og veru var önnur
tveggja úrslitaskáka mótsins. Ef úr-
sht skákarinnar hefðu orðið önnur,
að öðru óbreyttu, hefði Anand staðið
einn uppi sem sigurvegari. En eins
og sjá má kom þessi möguleiki aldrei
upp á yfirborðið.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Viswanathan Anand
Slavnesk vörn.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. RÍ3 RfB 4. Rc3
dxc4 5. a4 Bf5 6. e3 e6 7. Bxc4 Bb4 8.
0-0 Rbd7
Þessi leikur á nú fremur upp á
pallborðið en 8. - 0-0 en þannig lék
Anand gegn Kasparov í Dortmund í
fyrra. Minningamar frá þeirri skák
hafa trúlega fengið hann til að breyta
út af nú: 8. - 0-0 9. De2 Rbd7 10. Re5
He8 11. Hdl Dc7 12. Rxd7 Dxd7 13. f3
Rd5 14. Ra2 Bf8 15. e4 Bg6 16. Del f5?
17. exd5 og Anand gafst upp!
9. Rh4 Bg6 10. h3!?
Kasparov er fyrri til að breyta út
af hefðbundum leiðum, sem eru 10.
f3, eða 10. g3.
10. - 0-0 11. Rxg6 hxg6 12. Dc2 He8
Anand hefur yndi af þessum hróks-
leik en líklega ætti svartur að huga
að öðrum leiðum frá þessari stöðu.
13. Hdl Db6 14. e4 c5 15. d5 Re5?!
Betra virðist 15. - exd5 16. Rxd5
Rxd5 16. Bxd5 Rf6 þó svo 17. Bf4 gefi
hvítum betra tafl.
16. Be2! exd5 17. Rxd5 Rxd5 18. Hxd5
Rc6 19. Bc4!
Heimsmeistarinn lætur hvítreita
biskupinn ekki af hendi. Biskupapar-
ið og peöameirihluti á kóngsvæng
gefa honum nú trausta stöðuyfir-
burði.
19. - Rd4 20. Dd3 Had8 21. Be3 Hxd5
22. Bxd5 Hd8 23. Dc4 Hd7 24. Hcl Dffi
25. Hdl Re6 26. Db3 a5 27. Hd3 Rf4?
Hvítur hótaöi 28. Bxe6 Hxd3 29.
Bxf7+ og vinna peð. En eftir leik
svarts má rekja taflið áfram til vinn-
ings á hvítt.
Umsjón
Jón L. Árnason
28. e5! Df5
Ef 28. - Dxe5 29. Bxf7+ Hxf7 30.
Hd8+ Kh7 31. Dxf7 og vinnur.
29. Bxf4 Dxf4 30. e6! Hd8 31. e7! He8
32. Hfí Dcl+ 33. Kh2 Hxe7 34. Bxf7+
Kh7 35. Bxg6+!
8
ABCDEFGH
35. -Kh6
Svarið við 35. - Kxg6 yröi 36. Dd3+
Kh6 37. Dd6 og hrókurinn á e7 fellur.
Eftir þvingaða leikjaröð stendur
Kasparov með pálmann í höndunum.
En nú bregst honum bogahstin. Eftir
36. Dg8! Kxg6 37. Hg3+ eru svörtum
allar bjargir bannaðar. T.d. 37. - Kh5
38. Dh7+ Dh6 39. Df5+ g5 40. Hg4!
og gegn hótuninni 41. Hh4 + ! Kxh4
42. Dg4+ er engin viðunandi vöm.
Eða 37. - Kffi 38. Dffi+ Ke6 39. He3 +
Dxe3 40. fxe3 og vinnur létt.
36. Dd5? Dg5 37. Bf5 g6 38. h4 Dffi 39.
Bd3 De5+ 40. Dxe5 Hxe5
Anand er „sloppinn" út í tapað
endatafl og berst um á hæl og hnakka
þar til yfir lýkur.
41. Hffi c4! 42. Bxc4
Eftir 42. Bxg6 Be7 vakna vonir.
42. - Be7 43. Hb6 Bc5 44. Hffi He4 45.
Bd3 Hg4 46. Kh3 Be7 47. He6 Hxh4+
48. Kg3 Hd4 49. Hxg6+ Kh5 50. Bf5
Bd6+ 51. Kf3
Auðvitað ekki 51. Kh3?? Hh4 mát!
Eftir dálitla erfiðleika hefur Kasp-
arov loks fengiö tæknilega léttunnið
tafl. Ef 51. - Hf4+ 52. Ke3 Hxf5 53.
Hxd6 og vinnur létt.
51. - Bc5 52. g4+ Kh4 53. Hh6+ Kg5
54. Hg6+ Kh4 55. Be4 Hd6 56. Hg7
Hffi+ 57. Bf5 Hb6 58. Hh7+ Kg5 59.
Hh5+ Kffi 60. Bd3 Bd4 61. g5+ Kg7
62. Hh7+ Kfö 63. Bc4 Hxb2 64. Hf7+
Ke8 65. g6
- Og Anand gafst upp. Ef 65. -
Hxf2+ 66. Ke4 Hd2 er 67. Bb5+ Kd8
68. Hd7 + Kc8 69. Hxd4 einfaldast.
Bridge
Sunday Times-Macallan tvímenningskeppnin:
Bandaríkjamenn í efstu sætunum
Sunday Times tvímenningskeppn-
in, sem nú er kennd við Macallan,
hefur um langt árabil verið tahn hin
óopinbera heimsmeistarakeppni í
tvímenningi. Mikill heiður er að vera
boðinn til keppni þar og í ár var einu
pari íslensku heimsmeistaranna
boðið, Guðmundi Páli Amarsyni og
Þorláki Jónssyni.
Þrátt fyrir fljúgandi start hjá þeim
félögum, en þeir skoruðu 119 stig af
120 mögulegum í fyrstu tveimur set-
unum, þá náðu þeir aðeins sjöunda
sæti. Það er samt skínandi árangur
í þessari sterku keppni. Bandaríkja-
mennimir Bobby Levin og Gaylor
Kasle unnu með töluverðum yfir-
burðum, meðan landar þeirra Eric
Rodwell og Jeff Meckstroth urðu í
öðm sæti.
Röð og stig efstu para var þessi:
1. Levin - Kasle, USA 575
2. Rodwell - Meckstroth, USA 515
3. Levy - Mouliel, Frakkl. 500
4. Wolff - Hamman, USA 495
5. Sheehan - Munir, England 495
6. Shariff - Chemla, Frakkl. 473
7. GUÐMUNDUR-ÞORLÁKUR, ÍSL.
462
8. Westra - Laufkens.Holl. 455
Guðmundur og Þorlákur „hreins-
Guðmundur og Þorlákur að spili við Svíana Morath og Bjerregard á heims-
meistaramótinu í Japan.
uðu“ upp Brasilíumennina og heims-
meistara í tvímenningskeppni, Chag-
as og Branco í annarri umferðinni.
Áður en við skoðum eitt spil frá
mótinu, er rétt að geta þess, að Guð-
mundur og Þorlákur em einmitt
núna, meðan þið lesið þetta, að spila
um Evrópumeistaratitil í tvímenn-
ingskeppni í borginni Bielefeld í
Þýskalandi ásamt nokkmm öðrum
pörum frá íslandi. Meira um það í
næsta þætti.
N/0
* 65
¥ K 9 5 2
* 10952
* ÁDG
* D 8 4
¥ D G 10 4 3
♦ K 7 3
+ K 9
♦ K 9 7
¥ Á 7
♦ Á D 4
+ 10 6 5 4 2
♦ Á G 10 3 2
¥ 86
♦ G 8 6
+ 873
Leikurinn var sýndur á sýningar-
tjaldi og þar sátu n-s Chagas og
Branco, en a-v Þorlákur og Guð-
mundur. Sagnir gengu þannig:
Norður Austur Suður Vestur
pass llauf pass lhjarta
pass 1 grand pass 2 lauf
pass 2tíglar pass 2grönd
pass 3grönd allir
pass
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Tvö lauf vom yfirfærsla í tígul og tvö
grönd vom áskorun með fimmlit í
hjarta.
Branco spilaði út spaðagosa, sem
Guðmundur drap á kónginn heima.
Hann spilaði nú hjartaás, meira
hjarta, sem Chagas drap á kónginn.
Hann spilaði síðan hjartaníu til baka
og taldi aö þar með ætti suður að
geta drepið ömgglega á spaðaásinn
og spilað síðan laufi. Ekki komst það
til skila, því er Guðmundur spilaði
spaöa, þá gaf Branco og þar með var
spilið unnið.
A-sveit Taflfélags Reykjavikur
vann öruggan sigur í Sparisjóöa-
keppninni - deildakeppni Skák-
sambands íslands - sem lauk um
síðustu helgi. Sveitin fékk alls
44.5 v., í 2. sæti varð sveit Skákfé-
lags Akureyrar með 35 v. og
Skáksamband Vestíjaröa fékk
28.5 v. og 3. sæti. íslandsmeistar-
arnir frá því í fyrra, Taflfélag
Garðabæjar varð í 4. sæti með
26.5 v„ B-sveit Taflfélags Reykja-
víkur i 5. sæti með 24 v., síðan
Skákfélag Hafnarfjarðar með 23
v„ USAH meö 22,5 v. og Taflfélag
Kópavogs fékk 20 v. og varð að
sætta sig við að falla niður í 2.
deild.
Keppninni í 2. deild lauk með
sigri Tafífélagsins Hellis, sem
fékk 30 v. og tefla þeir Hellismenn
í 1. deild að ári. C-sveit Tafifélags
Reykjavíkur fékk 26 v. og betri
stigatölu en D-sveit sama félags,
sem fékk jafmnarga vinninga. í
4. sæti varð B-sveit Skákfélags
Akureyrar með 24 v„ Taflfélag
Akraness féltk 20,5 v„ B-sveit
Skáksambands Vestfjarða 16 v„
UMSE 14 v. og C-sveit Skákfélags
Akureyrar fékk 11,5 v.
I 3. deild sigraði B-sveit Taflfé-
lags Kópavogs og vann sér rétt
til keppni í 2. deild að ári. Kópa-
vogsbúar fengu 11,5 v., Taflfélag
VestmannaeHa varð í 2. sæti með
10.5 v. og D-sveit Skákfélags Ak-
ureyrar og F-sveit Taflfélags
Reykjavíkur skiptu með sér 3.
sæti meö 7 v.
mót
Taflfélagið Hellir mun standa
fyrir opnu móti í atskák mánu-
dagana 22. og 29. mars nk. Teflt
verður í Menningarmiöstöðinni
Geröubergi, sex umferðir eftir
Monrad-kerfi og befst taflið kL
20 báöa dagana. Öllum heimil
þátttaka.
Lands-
keppnin
við
Frakka
íslendingar hafa svart á öllum
borðum í 4. uraferð landskeppn-
innar viö Frakka sem tefld verö-
ur í íþróttahúsinu viö Strandgötu
í Hafnarfirði í dag og hefst kl. 16.
Þá teflir Jóhann Hjartarson við
Hauchard, Margeir Pétursson viö
Koch, Jón L. Árnason við Marc-
iano, Helgi Ólafsson við Chaban-
on, Hannes Hlífar Stefansson við
Dorfman, Karl Þorsteins við Ren-
et, Þröstur Þórhallsson við Kou-
atly, Héðinn Steingrímsson við
Apicella, Björgvin Jónsson við
Prie og Róbert Harðarson við
Bricard.
Á morgun, sunnudag, verður
5. umferð tefld og þá snýst dæmið
við íslendingar eiga hvítf á öll-
um borðutn. Þá tefla Jóhann og
Bricard, Margeir og Haucliard,
Jón L. og Koch, Helgi og Mare-
iano, Hannes og Chabanon, Karl
og Dorfman, Þröstur og Renet,
Héðinn og Kouatly, Björgvin og
Apicella og Róbert og Prie.
Frídagur er á mánudag en
sjötta umferð verður tefld á
þriðjudag og hefst kl. 16. Tefldar
veröa alls tíu umferðir. Seinni
hluti keppninnar fer fram í
Ðigranesskóla í Kópavogi.
-JLÁ