Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Dagur í lífi Ólínu Þorvarðardóttur: Annasamur frídagur Eftir langan og þreytandi þriðju- dag vaknaði ég til miðvikudagsins úr djúpum svefni. Siggi, elskulegur eiginmaður minn - sem aldrei slíku vant var heima við vinnu sína þennan morgun - ýtti við mér og sagði að Jóhanna Sigþórsdóttir blaðamaður væri mikið að reyna að ná í mig. Hríðarveðrið buldi á húsmæninum þegar ég stakk mér undir sturtuna og velti fyrir mér hvaða frétt væri nú í uppsiglingu. Þegar ég síðan hringdi tíl Jóhönnu var erindið að fá skýrslu um dag í lífi mínu. Ég benti á að þessi til- tekni dagur yrði sennilega ekki dæmigerður dagur í mínu lífi, enda að hálfu leyti frídagur. Þá fékk ég það svar að frídagar væru síst ómerkilegri en aðrir dagar - og ég er sammála því. Um það bil sem símtalinu lauk valt Saga, tíu ára dóttir mín, eins og snjóboltí inn úr dyrunum, ísköld á fingrum með eldrautt nef. Hún var að koma úr skólasundi og hafði gleymt vettlingunum fyrr um morguninn, áöur en hríðin skall á. Skömmu síðar var hún komin í þykka ullarsokka og hlýja peysu. Þannig útbúin innan undir skíða- galla fór hún beint í skólann aftur. Mættust í dyrunum Fram að hádegi sinnti ég nokkr- um erindum símleiðis milli þess sem ég las blöðin og tók upp póst- inn. Um tólfleytið fór ég að útbúa yngstu dóttur mína - Magdalenu - sem er sjö ára - í skólann. Þau mættust í dyrunum, hún og bróðir hennar, Pétur. Hann kom færandi hendi með ilmandi smákökur sem hann hafði bakað í heimilisfræðun- um. Eftir hádegismatinn dreif ég mig í hrossagallann og hélt af stað upp í hesthús til þess að gefa og hirða. Það er nefnilega „mín vika“ núna. Þrátt fyrir talsverðan skafrenning hafði ég það notalegt í bílnum á um. Fast á hæla henni kom Siggi úr vinnunni og sagðist verða heima til klukkan átta. Mér var þá ekki til setunnar boðið því ég þurftí aö vera mætt klukkan flmm á fund í borgarmálaráði Nýs vettvangs, eins og alla aðra miðvikudaga. Þetta var vinnufundur sem stóð til klukkan að ganga níu og fór að mestu í að undirbúa borgarstjórn- arfund daginn efitír. Börnin í háttinn Þegar ég kom heim var Siggi ný- farinn í vinnuna aftur. (Dæmigert fjölskyldulíf nútímafólks - eða hvað?) Ég hitaði upp hrísgrjóna- graut, sem fjölskyldan hafði gætt sér á í kvöldmatnum, og náði með naumindum að horfa á veðurfrétt- imar í sjónvarpinu. Ég tók það ró- lega framan við sjónvarpið þar til Siggi kom heim aftur um hálftíu- leytið. Þá fórum við að setja börnin í háttínn, gefa þeim að drekka, láta þau þvo sér og bursta tennurnar, eins og lög gera ráð fyrir. Þegar hann var búinn að bjóða þeim góða nótt las ég með þeim bænirnar við óminn af rokktónlist, sem barst innan úr herbergi sautján ára son- ar míns, Þorvarðar. Nú var orðið rólegt í húsinu svo við hjónakomin settumst niður í stofunni, ræddum viðburði dagsins og lögðum á ráðin með morgundag- inn. Unglingurinn á heimilinu heiðraði okkur með nærveru sinni skamma hríð. Um miðnættið geng- um við til náða - nokkuð fyrr en venjulega. Ég las svolitið í Önnu Karenínu eftír Tolstoj en var svo þreytt að ég sofnaði fljótiega. í svefnrofunum muidraði ég faðir- vorið mitt og þakkaði góðum guði fyrir að allir skyldu hafa komist heilir í hús að kvöldi. Mig grunar þó að svefninn hafi lagt mig að velli áður en ég náði að segja Amen. leiðinni, söng og trallaði við lögin hans Gests Einars Jónassonar á Rás 2. í hesthúsinu biðu mín tutt- ugu óþreyjufullir ferfætlingar sem voru orðnir svangir. Ég hleyptí þeim út í gerðið og tók til við gegn- ingarnar. Á meðan ég var að moka flórinn hugleiddi ég efni í erindi sem ég hef verið beðin að flytja á fundi hjá Kvæöamannafélaginu Ið- unni bráðlega. Við þær hugrenn- ingar gleymdi ég stað og stund. Þegar hirðingunni var lokið hafði veðrinu slotað svo að ég greip tæki- færið og skrapp í stuttan útreiðar- túr áður en ég hélt aftur heimleiðis. Þegar heim var komið náði ég úr mér hrollinum undir vel heitri sturtu en fór síðan að gefa Sögu og Pétri að drekka. Skömmu síðar kom Maddý litia heim úr skólan- I hesthúsinu biðu tuttugu óþreyjufullir ferfætlingar sem voru orðnir svangir. DV-mynd BG Finnur þú fimm breytingai? 197 Ef þú vilt endilega vita hvaö ég lærði í skólanum í dag þá komst ég aö því aö bekkjarfélagar mínir fá helmingi meira í vasapeninga heldur en égl Nafn:........ Heimilisfang: Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: ELTA útvarps- vekjaraklukka að verðmæti 5.450 frá versluninni Tónveri, 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.950. Bækumar, sem eru í verö- laun, heita: 58 mínútur, Sonur Ott- ós, Kolstakkur, Leikmaðurinn og Víghöíði. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 197 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavik Vinningshafar fyrir hundrað nítugustu og fimmtu getraun reyndust vera: 1. Erla Sif Magnúsdóttir Furulundi 10H, 600 Akureyri. 2. Halldór Páll Kjartans- son Reykjabraut 23, 815 Þorláks- höfn. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.