Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 20. MARS1993 Fordstúlkan 1993: „ Sveitastelpa með grasið í skónum" „Mér líöur alveg stórkostlega vel og er mjög ánægð meö þetta. AUt í kringum þessa keppni er nýtt fyrir mér og æöislegt aö upplifa hana. Annars er ég bara róleg yflr þessu,“ segir Birna Willardsdóttir, 16 ára nemandi í grunnskólanum á Dalvík, sem kjörin var Fordstúlkan 1993 á fimmtudagskvöldið á kaffihúsinu Sólon íslandus. Það var ekki Bima sjálf sem sendi myndir af sér í keppnina heldur hár- greiðslukonur hjá Hebu á Siglufirði sem höfðu óskað eftir við hana að fá aö greiða henni og farða fyrir mynda- töku. „Þær spurðu mig síðan hvort þær mættu senda myndirnar. Sjálf spáði ég ekkert í hvað þetta væri, hélt reyndar að ég væri að gera þeim einhvem greiða. Mér þótti hins vegar mjög gaman að sitja fyrir í mynda- tökunni. Þegar hringt var síðan heim og tilkynnt að ég væri komin í úrslit trúði ég því ekki og hélt að verið væri að gera at í mér. Sólarhring síð- ar var ég komin til Reykjavíkur og farin að æfa fyrir keppnina,“ segir Birna. „Þetta var allt öðmvísi en ég bjóst við en alveg meiriháttar gaman. Við þurftum að æfa mjög stíft fyrir tísku- sýningu, fara í búðir og máta fot og hver mínúta var skipulögð. Fyrir mér var þetta allt saman nýtt enda er ég bara stelpa úr sveitinni." Bima er 182 sm á hæð og segir að sú hæð hafi valdið henni mikilli minnimáttarkennd í gegnum árin. Það varð til þess að hún fór að ganga hokin. „Núna þurfti ég að læra að rétta úr mér og ganga bein. Það var ekki auðvelt að læra það upp á nýtt,“ segir Bima. Aldrei kynnst módelstörfum Nýja Fordstúlkan fer heim tii Dal- víkur á morgun og það var ekki laust við að það væri spenningur í rödinni þegar hún hugsaði heim. „Hvað ætli vínir mínir segi?“ spurði hún for- eldra sína. „Þetta er svo lítill staður og allir vita allt um mann.“ Mjög góður andi var meðal þeirra tólf stúlkna sem tóku þátt í Ford- keppninni. Þær slógu á létta strengi og hjálpuðu hver annarri. Bima hef- ur aídrei fyrr kynnst neinu í líkingu við módelstörf og hún hefur aldrei farið í líkamsrækt né lært að farða sig. Hinar stúlkumar vom ávallt til- búnar að hjálpa henni og grínuðust með að hún væri sveitastelpan með grasið í skónum. Bimu fannst þaö alla tíð safnað dýrum í kringum mig.“ Bima segir að Dalvík sé upplagður staður að alast upp á þar til fólk er komið á hennar aldur en þá er lítið um að vera. „Flestir á mínum aldri þurfa að flytja burt,“ segir hún. „Hins vegar væri gott að koma þang- að aftur og ala upp börnin sín þar.“ Bima segist þó ætla að halda áfram að vera Norðlendingur þó hún flytji til Reykjavíkur. „Mig langar til að komast í fyrirsætustörf þó ég viti að það sé mjög erfitt starf. Mér fannst erfitt að læra að ganga,“ segir hún. „Það er gaman að fá að kynnast þessu öllu og ég gæti vel hugsað mér fyrirsætustörf í útlöndum." - Heldur þú að þetta komi til með að breyta þér eitthvaö? „Nei, alls ekki. Það er alltaf verið að segja við mann að halda sínu striki og vera eins og maður er og ég á alltaf eftir að vera bara ég - eða stelpan úr sveitinni,“ segir Birna og hlær. Mikill dýravinur Hún hefur mikinn áhuga á ferða- lögum og hefur ferðast talsvert um Evrópu. „Ég hef feröast um Frakk- land, Spán og Ítalíu. Við eigum hús í Frakklandi og höfum farið þangað nokkrum sinnum í frí. Þaðan höfum við farið í heimsókn til Spánar." Birna á tvo yngri bræður, 6 ára og 14 ára. Þegar móðir þeirra hringdi heim til að tilkynna úrslitin sagði sá yngri aö hún myndi áreiðanlega vinna fimm milljónir í útlöndum og gefa sér eina. Verðlaunin í Super- model of the World keppninni eru samningur við Ford Models skrif- stofuna upp á rpmar sextán milljónir króna þannig að það er ekki til lítils að vinna. Hestamennska er eitt aðaláhuga- mál Birnu og hefur hún verið með eigin hesta á Dalvík. Birna safnar dýrum í kringum sig. Hún á hund, sem er einn besti vinur hennar, og páfagauk. Auk þess hefur hún átt svín, hamstur, mýs, þrjár hænur, kanínur og móðir hennar var með æðarkolluunga í fóstri þannig að fjöl- skyldan hefur nánast verið með dýragarð. „Ég er ofboöslega mikið fyrir dýr og þau eru í miklu uppá- haldi hjá mér. Ég var með stóran kofa þar sem ég geymdi hænurnar og svíniö og þar girti ég í kring. Þama dundaöi ég mér oft við að dytta að og mála og gera fínt hjá dýrunum. Ætli ég sé ekki bóndi í mér þó ég vilji frekar vera þar sem mannmargt er,“ segir Fordstúlkan 1993. -ELA kvöldið. passa vel við sig. „Ég er bara sveita- stelpa," segir hún. Birna heldur til Los Angeles í júlí í sumar og mun þar taka þátt í keppn- inni Supermodel of the World. í gær heimsótti hún Vigdísi Másdóttur, Fordstúlkuna 1992, og skoðaði mynd- band af keppninni og myndir. „Ég geri mér enga grein fyrir hvemig þetta er en ég hlakka rosalega til.“ Móðir Birnu sagði að hún myndi örugglega fara með henni út og jafn- vel móðursystur líka enda var fjöl- skyldan mjög stolt af stúlkunni. Norðlendingur í húð og hár Bima er fædd og uppalin á Dalvík og er Norðlendingur í húð og hár. Móðir hennar, Þómnn Þórðardóttir, er Siglfirðingiu- og faðirinn, Willard Helgason, frá Dalvík. „Flestallt frændfólk mitt er að norðan og ég held að helmingur allra Grímseyinga sé frændfólk rnitt," segir hún. Birna er í tíunda bekk grunnskól- ans á Dalvík. Hún hyggst flytja til Reykjavíkur næsta vetur og fara í framhaldsskóla. „Framtíðin er óráð- in vegna þess að það er mjög margt sem mig langar að læra. Sérstaklega heilla mig öll störf sem tengjast umönnun annaðhvort á fólki eða dýram. Ég er mikill dýravinur og hef - segir Bima Willardsdóttir sem kom, sá og sigraði Sigurvegari kvöldsins ásamt foreldrum sínum, Þórunni Þórðardóttur og Willard Helgasyni. Bræðurnir tveir voru skildir eftir heima á Dalvík. Þátttakendur Fordkeppninnar voru eins og atvinnufyrirsætur þegar þær sýndu tískuföt frá verslununum Vero Moda, Plexiglass og Kúmen. Þær lentu í fimm efstu sætunum: Til vinstri er Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, sem var í öðru sæti, þá sigurvegarinn Birna, Berglind Ólafsdóttir var í þriðja sæti, Erla Björg i því fimmta og Ragna Borgþóra Gylfadóttir í því fjórða. DV-myndir Gunnar V. Andrésson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.