Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 27
LAUGARDAGUR 20. MARS1993 39 Vel heppnað Fordkvöld á Sólon íslandus: Frábær úrslitahópur Það var gríðarleg spenna á kaffi- húsinu Sólon íslandus þegar Anne Gorrisson frá Ford Models í New York tilkynnti úrslit í Fordkeppn- inni 1993. Svo góður var hópurinn að Anne valdi fimm stúlkur í úrsht og er það í fyrsta skipti sem svo margar stúlkur komast í úrsht í keppnina. „Ég gat ekki gert upp á milh þeirra," sagði Anne í samtali við DV. „Þetta var ótrúlega góður hópur. Ég fann hve vel þessar stúlkur náðu saman og það skiptir miklu máh þegar heildin er jafngóð og nú,“ sagði hún. Anne sagði að Birna hefði allt th að bera sem fyrirsæta. „Hún er stórkostleg, hún er faheg, hefur há kinnbein, breiðar varir og faheg augu. Hún er hávaxin og það teljum viö kost. Þar fyrir utan er hún ein- læg og gefur mikið af sér. Maður finnur hversu saklaus og indæl hún er,“ sagði Anne ennfremur. „Hún laðar að sér fólk og er á ahan hátt afar sérstök. Við erum ahtaf að leita að sérstöku úthti og nátt- úrulegu útliti því það er í tísku.“ Anne sagði að í raun væru ahar stúlkumar í hópnum fahegar og ahar sigurvegarar. „Það er þó ahtaf einhver sem skarar fram úr og það var Bima. Valið var virkilega erfitt og þess vegna valdi ég þetta margar í úrshtin. Það gæti hins vegar verið erfitt fyrir sumar þeirra að fá starf í Bandaríkjunum vegna þess að þær em ekki nógu háar.“ Skemmtileg stemning Anne var mjög ánægð með kvöld- ið og þá stemningu sem rnyndaðist á Sólon íslandus. Hún er djassaðdá- andi og hreifst af skemmtiatriðum kvöldsins. Djasstríó Ólafs Stephen- sen lék einfaldan blúskenndan djass við mikinn fógnuð þeirra fjöl- mörgu gesta sem fylgdust með Fordkeppninni. Með Ólafi spiluðu þeir Tómas R. Einarsson bassaleik- ari og Guðmundur R. Einarsson trommuleikari. Strákarnir í Raddbandinu heih- uðu ekki síður gesti hússins með skemmtilegri og líflegri söngdag- skrá en þeir hafa verið að gera garðinn frægan að undanförnu og munu syngja aftur á Sólon íslandus á næstunni. Að lokinni krýningu og verð- launaafhendingu spiluðu félagarn- ir Seymon Kuran og Reynir Jónas- son á fiðlu og nikku og myndaðist skemmtheg stemning í lok kvölds- ins með þeim félögum. Eins og atvinnufyrirsætur Hámark kvöldsins var þó þegar stúlkurnar tólf sýndu föt frá versl- ununum Vero Moda, Plexiglass og Kúmen. Sýningin tókst frábærlega vel þó stúlkurnar væru flestar ný- hðar á þessu sviði. Það var Módel 79 að þakka hversu frábærlega sýn- ingin tókst, sérstaklega þeim Jónu Lárusdóttur, Kristínu Ingvadóttur og Ingólfi Stefánssyni. Fengu þau sérstakt hrós frá Anne Gorrisson fyrir vel heppnaða sýningu. Mynd- ir frá tískusýningunni verða'sýnd- ar í tískublaði DV nk. miðvikudag. Baltasar Komákur leikari kynnti dagskrá kvöldsins og fór það vel úr hendi eins og hans er von og vísa. Glæsilegverðlaun Þá má ekki gleyma að nefna öh þau glæsilegu verðlaun sem stúlk- umar fengu. Ahar fengu þær Filo Doro sokkabuxur, Gale Hayman snyrtivörur frá hehdversluninni REKÍS og ljósakort frá Sólbaðs- sagði Anne Gorrisson sem valdi fimm stúlkur í úrslit DV-mynd Gunnar V. Andrésson Fordstúlkurnar tólf í upphafskynningunni. Ágústa Hilmarsdóttir, Fordstúlkan 1988, var meðal gesta kvöldsins ásamt Sigríði móður sinni. Seymon Kuran og Reynir Jónas- son spiluðu að lokinni krýningu. Hanna Frímannsdóttir ásamt tveimur Fordstúlkum, þeim Lilli Karen, sigurvegara ársins 1989, og Þórunni Lárusdóttur sem var í öðru sæti árið 1991. Anne Gorrisson tilkynnir hver sigurvegari kvöldsins er en áður hafði hún tilkynnt annað til fimmta sæti. Sjá má Birnu á bak við en hún áttaði sig ekki strax á að hún var i fyrsta sæti þar sem Anne bar nafn hennar vitlaust fram. Anne Gorrisson ásamt Berglind Ólafsdóttur, sem var í þriðja sæti Ford- Þeir eru hressir, strákarnir i Raddbandinu, og kunna að koma fólki í keppninnar, Birnu Bragadóttur, sem var Fordstúlkan 1991, og Vigdísi gott skap. Másdóttur, Fordstúlkunni 1992. stofu Reykjavíkur. Þijár efstu stúlkurnar fengu auk þess Versus Donna ilmvörur frá hehdverslun- inni Klassík, einnig fékk sigurveg- arinn vöruúttekt úr versluninni Kúmen og skóúttekt í Bossa Nova en þær eru báðar í Kringlunni. Að lokum er vert að geta þeirra sem gerðu útht stúlknanna jafnt glæshegt og raun bar vitni en það voru þeir Alh, Kalli og Gunnar hjá Kompaníinu, Armúla 15, sem höföu hendur í hári þeirra og þær Svanhvít Valgeirsdóttir föröunar- meistari og Helga Jónsdóttir förð unarnemi sem önnuðust andhts- förðun með Gale Hayman snyrti- vörum. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.