Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1993, Side 31
LAUGARDAGUR 20. MARS 1993 ■H ■V' „I mörgum verslunum eru hillur fullar af vítamínum og alls konar samsetningi úr blómafræflum, hvítlauki, þaragróðri, ginsengrótinni og hákarli og mörgu öðru sem tryggja á endaiausan æskublóma, líkamlega ham- ingju og vellíðan." Leitin að eilífri æsku Frá örófi alda hefur mannkynið sóst eftir eilífri æsku. Menn hafa bölvað þeim örlögum sínum að eld- ast og hrörna. Guðimir á Ólymps- flalh neyttu nektars og ambrósíu og héldu sér þannig síungum. Þeg- ar mennirinir reyndu með klækja- brögðum að skáka dauðanum var þeim refsað grimmilega. Shkt hef- ur þó ekki aftrað mönnum í enda- lausri leit sinni að uppsprettu æsk- unnar. Á öhum tímum hafa spákaup- menn, efnafræðingar og lyfjafram- leiðendur framleitt ógrynni af alls konar lyfjum, pihum og mixtúrum th að halda aftur af Elh kehingu. í mörgum verslunum eru hillur fuU- ar af vítamínum og alls konar sam- setningi úr blómafræflum, hvít- lauki, þaragróðri, ginsengrótinni og hákarli og mörgu öðru sem tryggja á endalausan æskublóma, líkamlega hamingju og vellíðan. Aldur eins og galdur En eUin færist yfir eins og galdur þrátt fyrir aUar tilraunir til að streitast á móti. Frumur hkamans eldast og hrörna, starfshæfnin minnkar. Meltingarfærin vinna ekki úr fæðunni eins og áður, hjart- aö slær ekki af sama afli og lungun standa ekki lengur fyrir sínu. Ekkert getur stöövað þessa þróun en á hinn bóginn má gera margt til að hefta framstreymi eUinnar. Margir eru þeir sem einangrast í eUinni og telja þátttöku sinni í hf- inu vera lokið. Fæstir hafa lengur áhuga á sögum þeirra eða lífs- reynslu. Þeir sakna hðinna tíma og horfa öfundaraugum á Uðapdi stund. Ekki er hægt að framleiöa eihfa æsku í töfluformi tíl að taka með morgunmatnum en á hinn bóginn getur hver einasta mann- eskja gert ýmislegt fyrir sjálfa sig tíl að EUi kerling nái ekki á henni hefjartökum og keyri hana hraöar niður í lífsglímunni. Þegar sjúkhngar báðu aldurhnig- inn, síungan lækni um undralyf æskunnar lagði hann ávallt í hönd þeirra hsta með ráðleggingum. Hann sagði þær vel til þess faUnar að vernda andlegt og Ukamlegt heUbrigði. 1. Ekki reykja. Sígarettur stytta hf og veikja hkamann. Þær valda krabbameini, hjartasjúkdómum og lungnasj úkdómum. Nota áfengi í hófi. Á læknavaktiniii |uj Óttar Guðmundsson læknir 2. Borða næringarríkan mat og halda sér í kjörþyngd. Miklu skipt- ir að fitna ekki í elhnni. Offita hef- ur í for með sér mikið álag á hjarta, lungu og hði líkamans og neikvæð áhrif á sjálfsímynd og velhðan. Fólk skyldi því forðast feitmeti, skera á brott sýnUega fitu af kjöti, minnka sny örát og neyslu rjóma. Multivítamín eru ágæt uppbót á næringuna en varast skyldi hömlu- laustvítamínát. 3. Halda sér í góðri andlegri og hk- amlegri þjálfun. Það er aldrei of seint aö fara að hreyfa sig og byggja þannig upp Ukamlegt atgervi. Hreyfmgin hefur góð áhrif á beina- byggingu, starfsemi lungna og hjarta, lækkar blóðþrýsting og kó- lesterolmagn blóðsins og minnkar magn streituhormóna. Best er að byija varlega með göngum og sundi en auka hreyfinguna síðan hægt og fara að hlaupa og stunda leikfimi. Gott er að hreyfa sig reglu- lega, ekki sjaldnar en þrisvar í viku, 20 mínútur í senn. Eldra fólk ætti auk þessa að halda andanum vakandi, fara í leikhús, lesa góðar bækur, fara á námskeið, læra ný tungumál og ferðast til ókunnra landa. Það er ótrúlega skaðlegt fyr- ir atgervi og hreysti að leggja árar í bát. Andlegur sljóleiki, sem stund- unj er kahaður kölkun, stafar oft af sinnuleysi og doða. Fólki stendur á sama um allt og heldur að enginn taki lengur mark á því, það gefst upp ogeinangrast. 4. Fara reglulega í læknisskoðun. Eldra fólk dregur stundum lengi að fara til læknis og láta athuga einhverja kviha. Slíkt getur veriö varasamt því að koma má í veg fyrir marga alvarlega sjúkdóma ef þeir uppgötvast næghega snemma. 5. Forðast einangrun og mikla ein- veru. Best er að eiga sem mest af vinum og kunningjum og umgang- astþáreglulega. 6. Fá nægilegan svefn. Það er mikil- vægt að sofa reglulega og næghega lengi á hverri nóttu. Margt eldra fólk sefur á daginn og hefur miklar áhyggjur af styttum nætursvefni. Sumir fara að taka svefnlyf vegna þessa og festast áöur en varir í neti svefnlyíja. Svefnlyfm sljóvga og gera fólk óstyrkt á fótum. 7. Taka því sem að höndum ber af bjartsýni og standa vörð um Ufs- nautnina. AUs konar lífsnautnir eins og gott kynhf, hoh líkams- hreyfning, góður matur, ferðalög, lestur góðra bóka, leikhúsferðir og inrúleg mannleg tengsl viðhalda eiUfri æsku mun betur en aUs kon- ar lyf. „Þetta getur haldið aftur af EUi keUingu en enginn leggur hana að veUi,“ sagði læknirinn aldni, kvaddi sjúkUnga sína og hélt heim áleið. 43 -----------------------------------\ Útboð Landgræðsla á Austurlandi 1993 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í land- græðslu á Austurlandi árið 1993. Helstu magntölur: Nýsáning 130 hektarar og áburðardreifing 29 hektarar. Verki skal lokið 15. júlí 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal- gjaldkera), frá og með 22. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5. apríl 1993. Vegamálastjóri ---------------------------------------------- Utboð Leirársveitarvegur að Leirá og vegir við Heiðarskóla 1993 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla alls 3,1 km. Helstu magntölur: Fyllingar og burðarlög 31.000 m3 og klæðingar 12.700 m2. Verki skal lokið 1. september 1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera), frá og með 23 þ. m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 5. apríl 1993. Vegamálastjóri DHLEIOSLR Þú gehir meira en úð heldur Friðrik Páll Ágústsson R.P.H. C.Ht. er viðurkenndur í alþjóðlegum fagfaögum dáleiðara eins og Intemational Medical and Dental Hypnotherapy Association, American Guild of Hypnotherapists og National Society of Hypnotherapists. Dáleiðsla getur hjálpað þér á fjölmörgum sviðum einsogt.d.: Hættaað reykja, losna við aukakílóin, streitu, flughræðslu, lofthræðslu, kynlífsvandamál, bæta minni og einbeitingu, ná meiri árangri í íþróttum, öðlast aukinn viljastyrk og margt fleira. ri " HafOu sambard ÍSÍma: 91-G25717 Sænskunám - sumarleyfi Norræna félagið á Islandi í samvinnu við Norræna félagið í Norrbotten í Norður-Svíþjóð gefur 15 Is- lendingum kost á 2ja vikna sænskunámi í Framnás folkhögskola dagana 26. júlí til 6. ágúst næstkom- andi. Kenndar verða 6 stundir á dag og auk þess fer fram kynning á lífi og starfi fólks á Norðurkollu. Eftir námskeiðið gefst kostur á þriggja daga ferð um Lappland. Námskeiðið kostar 62.000,- krónur. Inni- falið er ferðir báðar leiðir, kennsla og dvalarkostnað- ur í tvær vikur. Umsóknir skal senda til skrifstofu Norræna félagsins í Norræna húsinu í Reykjavík á sérstöku eyðublaði sem þar fæst. Umsóknarfrestur er til 7. apríl. Kjörið tækifæri til að sameina sumarleyfi og sænskunám. Norræna félagið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.